Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1984, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1984, Blaðsíða 2
DV. MIÐVKUDAGUR 4. APRlL 1984. —og íslenska kjötið verður eitthvert ódýrasta kjöt í heimi Við greiðum kjötið niður til Norðmanna og þeir til Japana ^ -.v C A Blönduósi er t.d. verið að pakka 105 tonnum af heilum skrokkum í gáma og er hver skrokkur stórlega mðurgreiddur. Að sögn Gísla Garðars- sonar sláturhússtjóra fer þetta kjöt til Noregs. Norðmenn hafa skuldbundið sig til að kaupa héöan 1.200 tonn af dilkakjöti árlega en nú er oröin offram- leiðsla á dilkakjöti i Noregi líka. Er því úr vöndu að ráða hjá Norð- mönnum, en nú hafa þeir fundið lausn á málinu. Þeir taka Islandskjötið aldrei úr gámunum í Noregi, heldur Bytja það aftur út, ýmist til Japan eöa Afríku og greiða það enn stórlega niður. Kjötið sem um ræðir á Blönduósi er ekki útflutningsstimplað fyrír Banda- ríkjamarkað, enda hefur sláturhúsið ekki útflutningsleyfi þangað þar sem það fullnægir ekki fyllilega þeim kröf- um sem Bandarikjamenn gera til sláturhúsa hérlendis. Gísli sagði að lambakjötið færi til Japan, en kjöt af fullorðnu til Afríku. Var honum ekki kunnugt um hvemig Japanir eöa Afrikumenn tilreiddu kjöt- ið. Eitt er þó víst að meö niðurgreiðsl- um okkar og svo Norðmanna er hér á ferð eitthvert ódýrasta kjöt í heimi sem hæft er til manneldis. -GS *-----------------► Heldur lækkar kjötfjallið viö hvem skrokkinn sem tekur sér á hendur Jap- ansferð. DV-mynd GVA. Trukkur með f rystigám við sláturhús vegginn á Blönduósl. Starfsmenn sláturhússins ferma gáminn stras og trakk- urinn ekur kjötínu svo til Reykjavíkur. KÍLÓ AF ÚTFLUTTU KJÖTl FÆR 58 KRÓNUR í MEÐGJÖF — söluþóknun til búvörudeildar SÍS gagnrýnd á Alþingi Útflutningsuppbætur á hvert kíló af dilkakjöti sem flutt var út á síöasta árí námu 58,62 krónum og 38 krónum á hvert kfló af útfluttu ærkjöti. A þessu árí eru áætlaðar á fjárlögum 280 milljónir króna til útflutningsbóta. Matthías A. Mathiesen viðskiptaráð- herra sagði á Alþingi í gær í svari við fyrirspum Birgis Isleifs Gunnarssonar um útflutning dilkakjöts og greiöslu út- Butningsuppbóta að á síöasta ári hefðu verið flutt út 2585 tonn af frystu kinda- kjöti en á þessu ári hafa verið gerðir samningar um sölu á 3000 tonnum af dilkakjöti. Á þessu ári mun helmingur þess magns sem samið hefur veriö um sölu á fara til Noregs eða 1560 tonn, 650 tonn fara til Svíþjóðar, 400 tonn til Færeyja og 200 tonn fara til Danmerkur og til Bandaríkjanna. Á síðasta ári fékkst hæst verð fyrir fryst kindakjöt í Noregi eða 73 krónur á kílóiö en lægst í Vestur-Þýskalandi 24,70 krónur á kBó. Viðskiptaráðherra sagöi aö ekki væri fært aö gefa upp verö á því kjöti sem samið hefði verið umsöluáþettaár. I svari ráðherra kom einnig fram að búvörudeild SlS hefði annast þennan útButning að langmestu leyti. Sláturfé- lag Suðurlands hefði Butt út 13 tonn af ærkjöti og 6 til 7 tonn heföu verið flutt út af öðrum aðilum. Otflytjendum er reiknuð 2% söluþóknun af óniður- greiddu heildsöluverði kindakjötsins sem var 75,62 krónur á kBó frá septem- ber 1982 tB ágústloka 1983, en frá þeim tima tU ágústloka 1984 er miöaö viö 129,32 krónur á kfló og er því greidd 2% söluþóknun af því verði af því kjöti sem nú er verið að selja. Birgir Isleifur Gunnarsson gagn- rýndi harölega það fyrirkomulag sem nú væri á sölu kindakjöts á erlendum mörkuöum. Einkum að það væri nær alfariö í höndum SIS. Sagöi hann aö af og til kæmi upp umræöa um hversu erfltt það væri fyrir einstaklinga að reyna aö selja kindakjöt erlendis þvi þegar þeir hefðu möguleika á sölu þá gufaði allt kjöt upp. Þá gagnrýndi hann einnig að söluþóknun væri reikn- uð óháð því hvað fengist fyrir kjötiö á erlendum mörkuðum og væri það ekki hvatning að ná sem hæstu verði. Sagði hann svör viðskiptaráöherra staðfesta það að hvorki hagsmunum skattgreiö- enda né hagsmunum bænda væri borg- ið með þvi kerfi sem nú væri við lýði og þyrfti að taka þaö til endurskoðunar. ÖEF Haldlagtá amfetamín ífyflavík — notkun efnisins hefur aukist mjögámeðal eiturlyfjaneytenda Lögreglan í Keflavik lagði hald á milli 12 og 15 grömm af amfetamíni um helgina. Jafnframt voru tveir menn handteknir. Annar þeirra var seljandi efnisins, hinn kaupandi. Amfetaminið fannst er mennirnir tveir voru að versla með efnið í húsi í Keflavík. Hús- ráðandinn er seljandinn. Hann er um þritugt og hefur áður komiö við sögu lögreglunnar. Honum var sleppt aö lokn um yf irheyrslum. Kaupandinn er maður á þrítugs- aldri. Talið er fuflvist aö hann hafl ætlað að endurselja amfetamíniö. Honum var einnig sleppt að loknum yfirheyrslum. Þess má geta að notkun amfeta- mins viröist vera að ryðja sér mjög til rúms á meöal eiturlyfjaneyt- endaiKeflavík. -JGH. Gleypti amfetamín — skilaði því í gúmmíumbúðum í gærmorgun Maður á þritugsaldri gleypti um 130 grömm af amfetamíni og reyndi að smygla því þannig til landsins er hann kom frá London á sunnudagskvöld. Hann var hand- tekinn við komuna á Keflavikur- flugvelli, grunaður um að vera með fíkniefnin innvortis. Það var svo í gærmorgun sem maöurinn skilaði efnunum. Hann haföi gengið vandlega frá þeim í gúmmíumbúðír. Ekki er endanlega búið aö greina efnið en fuflvist er talið aö hér sé um amfetamín að ræða. Maðurinn hefur verið úrskurðað- ur í tíu daga gæsluvarðhald. -JGH Nú er unnið að því í ýmsum slátur- húsum að pakka dilkaskrokkum í frystigáma sem síðan er ekið til Reykjavíkur og settir á skipsfiSI til út- flutnings. Sá, BLAI fénniir út/

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.