Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1984, Blaðsíða 8
8
DV. MIÐVIKUDAGUR 4. APRlL 1984.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Mondale fékk stórsigur
kominn með afgerandi forystu í forkosningum demókrata
Walter Mondale, fyrrum varafor-
seti, hlaut yfirburöasigur í forkosning-
um demókrata í New York í gær og
þykir nú hafa tekiö afgerandi forystu í
forkosningunum.
Hlaut hann 45% á meðan Gary Hart
fékk 27% og Jesse Jackson fékk 25%,
sem er besta hlutfall sem 'sá síðast-
nefndi hefur hlotiö í forkosningunum
til þessa.
„I love New York,” sagöi Mondale,
himinlifandi meö sigurinn, því aö í húfi
var stærsti fulltrúafjöldi sem kosiö
hefur veriö um í einu fylki til lands-
fundar demókrata í júní (þar sem
frambjóðandi flokksins veröur út-
nefndur).
„I still love New York,” sagöi Hart,
sem reyndi að taka ósigrinum vel, en
kosningaspár á elleftu stundu höföu
gert ráö fyrir miklu tvísýnni úrslitum!
því aö taliö haföi verið aö Hart heföi
mjög unnið fylgi af Mondale á síöustu
viku.
Jackson spáöi því aö þessar for-
kosningar ættu eftir aö hafa mikil áhrif
á kosningar í New York í framtíöinni
og þá borgarstjórakosningamar strax
næsta ár. Hann hlaut yfirgnæfandi
fylgi blökkumanna, sem skiluðu sér
60% á kjörstaö, en þaö er metkjörsókn
eöa helmingi fleiri blökkumannaat-
kvæöi en nokkru sinni fyrr í N.Y. —
Hugsanlega er þaö vísir aö því aö
minnihlutahópar og blökkumenn taki
sig saman innan Demókrataflokksins í
framtíðinni til þess að hafa meiri áhrif
á framboð flokksins í New York en þar
hafa gyðingar veriö atkvæðamestir.
Flokksvélin og verkalýössamtökin
unnu ötullega að því að smala sínu
fólki til aö kjósa Mondale en 30%, eöa
um ein milljón demókrata, skiluöu sér
á kjörstaðina.
Forkosningar hafa nú farið fram í 29
ríkjum og áöur en New York bættist
viö haföi Mondale tryggt sér 716 full-
trúa á landsþinginu, Hart 435 og Jack-
son 101 (á meðan 320 eru óháðir). —
Þarf minnst 1967 fulltrúa á bak viö sig
til þess aö tryggja sér útnefningu á
landsþinginu.
Aö undanskildu Connecticut fyrir
viku hefur Mondale sigraö í öllum
fulltrúafleiri ríkjunum síöustu þrjár
vikurnar og þar á meðal í hinum mikil-
vægu forkosningum í Michigan og Illin-
ois. -Erling AspelundíNew York.
REAGAN ÆTLAR
TILKÍNA
TREHOLT REKINN
Arne Treholt veröur á næstunni end-
anlega sagt upp embætti sínu í norska
utanríkisráðuneytinu. Þaö verður gert
á ríkisstjórnarfundi í fyrsta lagi næst-
komandi föstudag.
Eftir aö hann var handtekinn, 20.
janúar síöastliöinn, var hann leystur
frá störfum en hefur haft full laun
fram til þessa, 14750 norskar krónur á
mánuöi.
Ulf Underland, verjandi Treholts,
hefur lýst því yfir aö hann telji upp-
sögnina ótímabæra á þessu stigi máls-
ins, eðlilegra heföi verið aö bíða
átekta. Underland kvaöst hafa reynt
að fá frestun á þessari ákvöröun en
sótt heföi veriö fast innan utanríkis-
ráöuneytisins aö fá hana í gegn.
Fyrirhuguð heimsókn Reagans
Bandaríkjaforseta til Kína síöar í
þessum mánuöi er ætluö til aö efla
sambúö rikjanna og létta á ágreiningi
út af Taiwan og öðrum málum.
„Vináttan sem tekist hefur milli
landanna á síöustu tólf árum er var-
anleg,” segir í fréttatilkynningu um
feröaáætlunina, en þaö eru tólf ár
síðan Nixon heimsótti Kína og batt
endi á tveggja áratuga fjandskap al-
þýöulýðveldisins og Bandaríkjanna.
Reagan ætlar til Kína 26. apríl í sex
rdaga heimsókn eftir viökomu á Hónó-
lúlú og Guam.
Kínverjum leikur hugur á aö ræöa
vopnasölu Bandaríkjamanna til
Taiwan, en afstaöa Reagans hefur
verið sú aö hann vill bæta sambúöina
,við alþýðulýðveldið en standa viö allar
skuldbindingar við þjóðemissinnana.
EIGINKONA TRE-
HOLTS FÆR EKKI
INNI í SJÓNVARPI
Arne Treholt hefur verið á fullum
launum í fangelsinu.
Kari Storækre, eiginkonu Arne Tre-
holts, hefur verið meinað að koma
fram sem einum af stjómendum sjón-
varpsþáttanna „Afsakið aö ég spyr”.
Ný rás í norska sjonvarp-
inu til einkarekstursins
Horfur eru nú á því aö ný sjónvarps-
rás í Noregi geti hafið útsendingar frá
og með næstu áramótum. Þaö eru fern
samtök, íþróttasamband Noregs, bind-
indishreyfingin, landssamtök krist-
inna og norska alþýðusambandið sem
hafa sótt um leyfið til rekstrarins.
Þessi samtök munu þó ekki móta
dagskrána nema þá aö litlu leyti. Um
er aö ræða rás með fréttum og afþrey-
ingarefni.
Samtökin hafa hug á aö fjármagna
fyrirtækið með auglýsingum, sem
hingað til hafa verið óþekktar í norsku
sjónvarpi. Utsendingar munu ná til
60% Norðmanna.
Menningarráðuneytið hefur umsókn
samtakanna til umfjöllunar en stór-
þingið úrskurðar endanlega hvort út-
sendingar verða að veruleika.
Sylvía Svíadrottning.
Áæskuslóðum
íBrasilíu
Karl Gústaf Svíakóngur og Silvia
drottning hans komu um helgina í
opinbera heimsókn til Brasih'u. Þau
munu dvelja þar í landi í hálfan
mánuð.
Konungshjónin lentu í hafnar-
borginni Salvador í noröausturhluta
landsins. Þaöan héldu þau í gær til
höfuðborgarinnar Brasilíu. Síöan
Uggur leiöin til Sao Paulo, Rio de
Janeiro og Iguacu-fossa.
Síðari vikuna munu þau hjónin verða
á eigin vegum og dvelja meö
ættingjum Silvíu í Brasihu. En hún bjó
í Sao Paulo frá þriggja til fjórtán ára
aldri.
Skömmu fyrir upptöku þáttar
síðasta mánudag fékk hún þau boð frá
stjómendum sjónvarpsins að ekki væri
æskilegt að hún kæmifram , það
gæti orðið til skaöa fyrir þáttinn. Ónn-
ur kona var því fengin í staðinn fyrir
Storækre í upptökuna.
Lögmaöur Kari Storækre hefur mót-
mælt þessari ráöstöfun harðlega viö
Bjartmar Gjerde útvarpsstjóra. Hún
haföi einsett sér aö starfa áfram viö
þáttagerö, þrátt fyrir handtöku eigin-
mannsins, án þess aö koma fram á
skjánum fyrst um sinn, en síðan ætlaði
hún aö taka aftur upp þráðinn sem
áður. Lögmaðurinn telur hér um að
ræöa hreint vinnubann.
Sjónvarpsstjómin heldur því hins
vegar fram aö þátttaka Kari heföi
Kari Storækre, eiginkona Treholts.
oröiö ótímabær og til þess faUin að
draga athygli áhorfenda frá sjálfu
innihaldi þáttarins.
11. einvígisskák Kasparovs og Smyslovs í Vilnius:
Sóknarstaöan gufaði upp
— og Kasparov tók þann kost að þráskáka
Heimsmeistarinn fyrrverandi,
Vassily Smyslov, kom Garrí Kaspar-
ov á óvart í 11. skákinni í Vilnius í
gær, með því að beita hinni ævafornu
Tsigorin vöm. Sú byrjun sést sjaldan
nú orðið í keppni sterkustu manna,
enda var Kasparov greinilega bmgð-
ið. Hugsaði um þriðja leik sinn í tíu
mínútur og eftir 16 leiki hafði hann
notað mun meiri tíma en Smyslov,
eða 1 klst. og 25 mínútur en Smyslov
aöeins 40 mínútur. Kasparov varði
samt tíma sínum vel, því að hann
fann öflugt framhald og er á leið virt-
ist kóngur Smyslovs í bráðri lífs-
hættu. Einhverjir leyniþræðir héldu
þó stöðu hans saman og sá Kasparov
þann kost vænstan að fóma skipta-
mun og þráskáka. Jafntefli samið
eftir 26 leiki.
Það er ekki fjarlægt Smyslov að
fara í smiöju til Mikhail Tsigorin,
sem oft er nefndur „faðir sovéska
skákskólans”. Smyslov hefur ein-
mitt lýst því yfir að hann sæki sér
fyrirmyndir til hans, enda má oft sjá
svipaða „takta” í skákum þeirra.
Báðir meta riddara mikils og bjóða
biskupaparinu oft byrginn. Annað
dæmi er sókn léttu mannanna gegn:
peðamiðborði. Þessi þemu koma.
bæði viö sögu í 11. skákinni, sem
reyndar er dæmigerö fyrir báöa
keppendur og lýsir vel ólíkum skák-
stíl þeirra.
Staðan í einvíginu er þá 7—4
Kasparov í vil. Þessar tölur ættu að
vera skákunnendum kunnuglegar,
því aö þannig hljómaði lokastaðan í
einvígi Kasparovs við Kortsnoj. Nú
þarf hann þrjú jafntefli í viðbót.
Hvítt: Garrí Kasparov
Svart: Vassily Smyslov
Tsigorin-vöm
1. d4 d52. Rf3Rc6!?
Upphafsleikur Tsigorin-vamarinn-
•ar. Nú á dögum telja fræðimenn
hvítan fá betra tafl í nánast öllum af-
brigöum og því er ekki nema von að
hún höfði litt til sterkari skákmanna.
3. c4 Bg4 4. cxd5 Bxf3 5. gxf3
Annar möguleiki er 5. dxc6 Bxc6 6.
Rc3 Rf6 7. Bg5 e6 8. Dd3 og síðan e2—
e4 og hvítur hefur frjálsara tafl.
5. — Dxd5 6. e3 e5 7. Rc3 Bb4 8. Bd2
Bxc3 9. bxc3 Dd6
Svartur hefur látiö báöa biskupa
sína gegn riddurum og hvítu peðin
eru fjölmenn á miðborðsreitunum.
Þetta er einkennandi fyrir Smyslov,
sem hyggst þrýsta að miðborðínu
með riddurum sínum. Svona teflir
enginn nú á dögum nema Smyslov, ef
Benóný er undanskilinn.
lO.Hbl!?
Nýr leikur? I bókum er getið um
10. Be2 Rge711.0-0 0-0-0 12. Khl g5 og
staðan er vitaskuld mjög flókin, þótt
möguleikar hvíts séu sagðir betri.
10. —b6
11. f4!?
Kasparov hugsaöi um þennan leik í
26 mínútur. Hann ræöst beint aö
svarta miðborðspeðinu en veröur á
eftir í liðsskipan.
11. — exf4 12. e4! Rge7 13. Df3 04)
14.Bxf4
Og um þennan leik hugsaði hann í
21 mínútu.
14. — Da3 15. Be2 f5!? 16. 0-0 fxe4
17. Dxe4 Dxc318. Be3 Da319. Bd3
Er Smyslov lék f-peði sínu fram í
15. leik, opnaöist kóngsstaða hans og
nú virðist hann þurfa að taka
afleiðingunum. Hann getur nefnilega
ekki valdað h-peðið. Ef 19. — g6, þá
20. Bc4+ Kg7 21. d5 Ra5 22. Bd4+ og
vinnur. Hann verður að gefa peðið,
kóngurinn fer á flakk en samt hangir
staða hans saman.
19. — Dd6! 20. Dxh7+ Kf7 21.
Hb5(?)
Lítur vel út, því hann svarar 21. —
Hh8?? með 22. Bc4+ Kf6 23. Bg5
mát! En Smyslov bjargar sér.
Freistandi er því aö stinga upp á 21.
Bc4+ Ke8 22. Dxg7!?, því svartur
nær ekki að tengja saman hrókana
(22. — Kd723. Dg4+).
22. —Had8!
Nú eru allir svörtu mennirnir
komnir í leikinn og Kasparov sér
ekkert betra en að þvinga fram þrá-
skák. Svartur tapar eftir 22. —
Rxb5? 23. Bc4+ Kf6, því kóngurinn
Skák
Jón L. Árnason
er kominn á vergang. Framhaldið
gæti t.d. orðið: 24. Dh4+ Kf5 (24. -
Ke5 25. Dg3 leiðir til sömu niður-
stöðu) 25. Dg5+ Ke4 26. Dg4+ Ke5
27. f4+ Ke4 28. f5+ Kxe3 29. Hf3+
Kd2 30. Dg2+ Kcl 31. Hfl+ Ddl 32.
Hxdl+ Kxdl 33. Bb3+ og mát í
næsta leik.
23. Bxd4 Dxd4 24. Hf5+! Rxf5 25.
Dxf5+ Kg8 26. Dh7+
— Jafntefli. Svartur tapar ef hann
fer á e-línuna vegna Hel+ og fyrir-
buröi á f6 er svarað með Bc4+.