Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1984, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1984, Side 10
10 dv. miðvikúdágUMOPBÍlTsímV" Útlönd Útlönd Útlönd Utlönd Sálfræðingurinn Stanton Samenow dregur upp kaldranalega mynd af hugsunarhættiglæpamanna. filænampnn hora vlwpdlllvllll Klvl d sjalfir sokma en ekki samfé- lagið og kring- umstæðurnar Bandarískur sálf ræðingur vill kollvarpa fyrri hugmyndum um orsakir glæpahneigðar „Aö stela og nauöga er spennandi og glæpamenn drýgja glæpi vegna þess aö þeim líkar þaö,” segir Stanton E. Samenow, sálfræöingur af þeim skólanum sem nú lætur oröiö æ hærra í sér heyra um sök og ábyrgö afbrotamanna sjálfra á verk- um þeirra. öfugt viö þær kenningar sem ríkt hafa undanfama áratugi um ábyrgö samfélagsins og um- hverfisins á því aö leiða afbrota- menn inn á glæpabrautina. Samenow hefur hlotiö mikinn oröstír meöal sálfræöinga, einkan- lega fyrir nýjustu bók sína „Inside the Criminal Mind” (1 hugarfylgsni glæpamannsins), en þar slær hann því föstu að „glæpamenn séu valdir að glæpunum — ekki slæmur félags- skapur, ófullnægjandi foreldrar, fá- tækrahverfiö, ofbeldiö í sjónvarpinu, lélegir skólar, vímugjafar eöa at- vinnuleysið”. „Freud, maöurinn sem átti til af- sökun fyrir öllu, er allur,” segir höf- undirinníbóksinni. „Ogglæpamenn kunna skil á góðu og illu, en taka hiö illafram yfir.” Hann heldur því fram aö ómennt- aður smákrimmi á strætum stór- borganna og óprúttinn fjárbraskari úr hvítflibbastétt eigi það báöir sam- eiginlegt að líta á tilveruna sem skákborð er þeir hafi öll tök á. Og annað fólk skoöi þeir sem smápeö, er þeir geti stjakaö fram og aftur eftir eigingeöþótta. Trúnaöur, kærleikur, tryggö og hópvinna samrýmist ekki þeirra lífsmáta. Samenow hefur starfaö í fimmtán ár við fangelsi, betrunarhæli og ámóta stofnanir viö sálgreiningu á glæpamönnum og reynslan hefur kennt honum aö koma megi afbrota- mönnum til aö horfast í augu við sjálfa sig og þá lifsbraut sem þeir hafa til þessa valiö sér. Jafnvel megi koma þeim til aö velja annan kost til betra lífs. Þessi fjörutíu og tveggja ára gamli sálfræöingur býr í Alexandríu í Virginíufylki og í viötali viö Phil McCombs hjá Washington Post kveð- urhannfastaöoröi. „Það er erfitt aö fá fólk til þess aö skÚja,” segir hann í viötalinu. „En glæpamenn eru svo sannarlega ööru- vísi en venjulegt, ábyrgt fólk.” Nefnir hann sem dæmi annaö blaðaviðtal, sem tekiö var viö hann nokkrum dögum fyrr. (Fjölmiðlar hafa keppst viö aö kynna manninn aö undanförnu og byltingarkenndar skýringar hans á glæpaatferli, sem .raunar hljóma eins og ævagamlar 'kenningar, er rykið hefur veriö dust- aö af.) I viötalinu var hann að skýra út fyrir blaðakonu hinn dæmigeröa glæpamann. „Sá býst við aö allt snú- ist honum í hag, hann væntir skjótrar þjónustu og úrlausnar og allt þar fram eftir götunum.” — Blaöakon- unni varö aö oröi að þetta hljómaöi eins og lýsing á fyrrverandi eigin- manni hennar, og hvort sálfræðing- urinn væri ekki meö þessu aö stimpla 90% karlmanna sem glæpamenn. Samenow hristir höfuðiö yfir slíku og segir: „Þetta er spuming um á hve háu stigi þessi þankagangur er hjá einstaklingnum. Við erum að tala um þá sem í öllum sínum lífs- háttum ganga út frá því sem gefnu aö heimurinn sé til oröinn til aö henta þeim. Og þegar hlutirnir ganga þeim ekki í haginn grípi þeir ófr jálsri hendi þaö sem þeim finnst þeim bera og hiröa hvergi um þótt það skaöi einhvem annan. Æ ofan í æ brjóta þeir lögin án þess aö kippa sér hiö minnsta upp viðþað.” Sjálfur viöurkennir Samenow aö hann heföi ekki lagt neinn trúnaö á svona tal ef einhver annar hefði sagt honum fyrir 24 árum. Þá aö- hylltist hann skýringar Freuds, en segist nú sannfæröur um hiö gagn- stæða. — Hann segir aö mörgum muni þykja of kaldranaleg sú mynd sem hann dregur upp af glæpasál- inni. „Hinn dæmigerði glæpamaður drýgir hundruð glæpa, hugur hans er allur viö þaö bundinn. Á meðan margir venjulegir menn geti látið sér koma í hug aö brjóta af sér og gefiö jafnvel ímyndunaraflinu laus- an tauminn til þess aö drýgja glæpinn í huganum, þá getur krimm- inn ekki gengið framhjá verslun án þess aö hugsa um aö ræna hana og framkvæmir síðan oft þessa hugsun. Stundum neytir hann vímugjafa fyrst til aö yfirstíga einhverja tálma, hræðslu eöa samviskubit. En í hroka sínum lætur hann aldrei f lögra að sér að hann veröi tekinn. Venjulegt, ábyrgt fólk finnst honum vera leiö- indaskjóður.” Samenow segir aö það síöasta sem sálfræöingur ætti aö gera sé aö byggja upp sjálfstraust glæpa- manns. „Hann hefur æriö nóg fyr- ir,” segir hann. „Menn hafa tekið sálgreiningar og síðan heimfært þær upp á glæpaatferli því til skýringar. Freud meðhöndlaði aldrei glæpa- menn og í rauninni lagöi hann sjálfur kenningar sínar aldrei út sem skýr- ingaráglæpaeöli.” „Glæpamönnum falla hins vegar kenningar Freuds mjög vel í geð. Þeir læra að draga sálfræðingana á asnaeyrum með því að leika sál- fræðileikinn. Með því að taka þá af- stööu að glæpamaður sé fómardýr kringumstæðnanna hefur samfélagið lagt honum upp í hendur afsakanir fyrir gerðum hans og styöur þá af- stööu hans aö það sé ekki viö hann aö sakast.” Samanow, sem útskrifaöist frá Yale áriö 1963, starfaöi meö dr. Samuel Yochelson heitnum viö vinnslu tveggja binda bókar „The Criminal Personality” (Skapgerð glæpamannsins) sem kom út 1976— 77. Hún þykir sígilt verk. Byggðist hún á rannsóknum þeirra á geðveik- um glæpamönnum við St. Elizabeths geðsjúkrahúsið. Þeir höfðu byrjað rannsóknir sín- ar trúaöir á freudisku skýringamar, en Yochelson og Samenow komust fljótt á snoðir um að þaö gekk ekki upp. Þeim læröist að krimmamir bættu ekki ráö sitt við sálfræðimeð- ferö, heldur geröust einf aldlega klók- ir s jálf ir á sviöi sálfræðinnar. Á seinni árum hefur samúö al- mennings meö glæpamönnum minnkaö og þær raddir gerast hærri sem krefjast þyngri viöurlaga við af- brotum, svo að hugmyndin um glæpamanninn sem fómardýr kring- umstæðna sinna hefur átt erfiðara uppdráttar og sömuleiöis betrunar- kenningar. Samenow telur sig kunna aöferðir til að fá glæpamanninn til þess aö breyta rétt og bæta sitt ráö. Þeir Yochelson hafi þróaö þær aöferöir viö rannsóknir sínar á krimmunum í St. Elizabeths-sjúkrahúsinu. — Sam- enow segir aö þriðjungur þeirra 100 forhertu glæpamanna sem hann hafi haft til meöferöar (engir þeirra ofb- eldismenn), hafi síöan (1978 þeir fyrstu) haldiö sig viö heiðarlegt líf- emi. Mörg þessi viðfangsefni Samenow vom menn sem komnir vora að náö- un eöa eftirgjöf refsivistar, og marg- ir orðnir leiöir á glæpalífinu og vildu breyta um. Aðferð þeirra Samenow og Yochelson byggöist á því að byrja á því aö láta glæpamanninn standa full reikningsskil geröa sinna. I staö þess aö hlusta á hann rekja feril sinn, raunir, afsakanir og útskýringar lýs- ir sálfræðingurinn dæmigerðum glæpaþönkum og atferli og sýnir skjólstæðingnum fram á, hvað hann eigi sameiginlegt meö því. Honum er sýnt fram á, að hann átti ávallt annarra kosta völ, en hefði valið glæpakostinn. Hann hefði ekki við neinn að sakast nema sjálfan sig í því. Meðferðin byggist á því að gera glæpamannin svo leiöan á sjálfum sér og glæpaatferli sínu og kenna honum smám saman aö yfirvinna glæasamlegan hugsanagang. Fá hann til þess aö beina hugsunum sín- um strax aö einhverju öðru þegar þær hvarfla að glæpamöguleika. Þetta mun vera seinlegt verk, að minnsta kosti eitt ár með vikulegum viðtölum sálfræðingsins og sjúklings hans. iBandaríkjunumerslíktmjög kostnaöarsamt, og telur Samenow þaö valda því að þessar aöferöir hafi ekki breiðst út. En líka kemur þar til, aö ekki era allir sálfræöingar al- ' veg sammála kenningum Samenow eöa Yochelson. Umsjón Guðmundur Pétursson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.