Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1984, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1984, Blaðsíða 34
DV. MIÐVÍ KUDAGUR 4. APRlL 1984. Knapp beitti sál- fræðinni amann Árni Stefánsson, þjálfari Tindastóls og fyrrverandi landsliðsmarkvöröur íknattspyrnu Iþróttahúsið við Barnaskólann á Sauöárkróki er ekki stórt, agnar- lítið væri kannski nær að segja. En þó ekki sé vítt til veggja er hægt að uppfylla lágmarkskröfur um leik- fimi fyrir krakkana. Boltaíþróttir, er auövitað illmögulegt að stunda þó þaö sé gert, tuðran er alltaf í lofti eða veggjum. Árni Stefánsson, fyrrverandi landsliðsmarkvörður í knatt- spyrnu, kennir nú leikfimi í þessu litla íþróttahúsi. Það er að sjálf- sögðu aðeins á veturna, sumarið fer í knattspyrnuna. Hann er þjálf- ari meistaraflokks Tindastóls og leikur með liðinu. I fyrra vannst það ágæta afrek að pota Tindastóli upp í 2. deild, langþráður draumur heimamanna eins og búast má við. Árni sagöi að það væri geysilegur áhugi á Sauðárkróki á fótbolta og liðið búið að vera á mörkum þess að komast upp síðustu 5—6 árin. Yfirleitt hefði markatala gert út- slagið. En hvernig er þá aðstaðan? „Það er góð aðstaða, hér er ágætis grasvöllur. Það sem hefur vantað, númer eitt, tvö og þrjú er íþróttahús, svo stórt að fleiri en tveir eða þrír geti hreyft sig inni í einu. Salurinn hérna er ekki nema 15,70x8 m. Þetta er eina húsið í bænum og þjónar öllum, reyndar stærsta húsið í sýslunni. Með þokkalegu móti er hægt að vera með yngstu nemendurna í kennslu.” Þetta stendur til bóta, ekki rétt? „Við höfum hér fokhelt íþrótta- hús en það fengust ekki nema tvær milljónir á fjárlögum í ár til byggingarinnar og það sér hver heilvita maður að það er ekkert hægt aö gera við það. Þetta er um þriðjungur af fullri stærð og þarf 17 milljónir til að klára þennan áfanga.” Ami með dætur sinar, Gunnhildi 6 ára og Jónu 9 ára. Þær voru hja pabba i iþrottahusinu en Herdis mamma var ekkiibænum. Ertt höfuð upp og annað niður. Gunnhildur ætlar líklega að feta i fótspor föður sins hvað fimina varðar. DV-myndir: Gunnar V. Andrésson. Árni flutti til Sauðárkróks fyrir tveimur árum og kom þá beint frá Svíþjóð. Þar dvaldi hann í fjögur ár, fyrst tvö í Janköbing, síðan önnur tvö í Landskrona. „Ég kenndi á veturna og spilaði á sumrin, auk þess sem ég var aðeins með sundkennslu.” Var þetta einhvers konar hálf- atvinnumennska í knattspyrnu? „Ja, við getum kallað það hvaö sem er. Náttúrlega má segja það. Við vorum samningsbundnir þannig að við fengum greitt fyrir unna leiki og síðan fastar upphæðir sem voru mismunandi eftir því hver átti í hlut. Menn sömdu sérstaklega við félögin. Hvernig líkaði þér þetta líf ? „Mjög vel, ég kunni ágætlega við mig. Aðstaða var náttúrlega miklu betri en gerist hér heima, það er hægt aö bera saman. En kannski felst munurinn fyrst og fremst í meiri tíma. Maður átti miklu meiri tíma fyrir sjálfan sig og fjölskylduna heldur en hér. Þó leikimir væru fleiri var æft á þannig tíma, það er að segja klukkan fjögur á daginn. Þá var maður kominn heim klukkan sex, en hérna er maður að fara á æfingu klukkan átta og er kominn heim klukkan tíu eöa hálfellefu. Menn vinna frá átta til sjö þannig að þegar hitt bætist ofan á þá er lítill tími eftir.” Þú varst bæði þjálfari og leik- maður í fyrra, ætlarðu að halda áfram að spila með? „Ef ég kemst í liðið. En það er að koma hér fram mjög efnilegur strákur svo ég hef samkeppni. Ef ég tel að það sé styrkur fyrir liðið að ég spili með þá geri ég það. Það eina sem ég hef fram yfir þennan strák núna er reynslan. Maður er samt farinn að finna að áhuginn er ekki eins mikill og var, það er ekki

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.