Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1984, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1984, Síða 17
dv. vo Bréfrítarí gagnrýnir að Hóimadrangi skuli hafa verið leyft að sigia án haf- færisskirteinis. Lesendur Lesendur Gagnrýni á störf samgönguráðherra 2455—8754 skrifar: Mikiö fjári varð ég hissa þegar ég las DV á miðvikudaginn fyrir viku. Þar stóð að ráðherrann okkar, Matt- hías Bjamason, hefði gefið mönnum sem ekki höfðu farið eftir lögum og reglum eitthvert prívat-haffæris- skírteini á skip þeirra. Efast ég um að hann hafi séð skipiö, hvaö þá skoðað það, fyrir utan þaö svo að maðurinn hefur ekkert vit á skip- um, annars gerði hann ekki þessa vit- leysu. I fyrsta lagi hefur Matthias skipun skipherrans á varðskipinu að engu og tekur svo völdin af Siglingamálastofn- un. Allt er þetta gert á þeim forsend- um að skipið sé nýlegt og aö hann hafi vitað að allt væri í lagi, vitað að haf- færisskírteinið væri í lagi. Siöan rekur Matthias smiðshöggiö á allt saman meö þvi að segja að hann skammist sín ekkert fyrir þetta. Þá er nú ekki margt eftir til að skammast sin fyrir. Ég gæti kannski hringt til Matthiasar og sagt að billinn minn væri nýlegur og fengið skoðunarvott- orðið sent heim? Nei, eftirlitið er ekki þaö mikiö úti á hafinu aö ástæða sé til aö auka á hætt- una með svona vitleysum. Ekki finnst mér sjávarútvegsráöherra vor sýna gott fordæmi með svona framkomu. Hvað varðar kostnaðinn við að senda skipið heim þá geta eigendur skipsins sjálfum sér um kennt að vera ekki búnir að láta skoða það og fá haf- færisskirteini, eða öllu' heldur: halda , skírteininu með því að láta skoða það á réttum tíma. Eg ætla að enda þetta bréf mitt með þvi að skora á Matthías Bjamason aö ógilda þetta haffærisskírteini og láta þá sem með þau mál hafa aö gera um aösjáumþau. Þak verði sett á f rjálsa verðlagningu — opið bréf til verðlagsst jóra Finnbogi Ástvaldsson hringdi: Nú fyrir skömmu var verð á mat- vælum gefið frjálst eins og alþjóð veit og virðist mér sem ákvörðun þessi hafi eingöngu verið hugsuð fyrir Stór- Reykjavíkursvæðið, eins og svo margt annað. Get ég með engu móti séð hvernig þetta á að ganga upp úti á landsbyggð- inni þar sem kannski er bara eitt kaup- félag og samkeppni því engin til að halda veröinu niðri. Er ekki nóg að við greiðum dýran flutningskostnaö undir vöruna svo ofan á allt annað? Það segir sig sjálft að þetta gerir hlutina erfiðari fyrir landsbyggöarfólkiö þegar þröngt er í búi hjá smáf uglunum. Ég vil því skora á verðlagsstjóra og hans liösmenn að athuga gang mála og setja eitthvert þak ofan á þessa vit- leysu. Of mikið af pennavinum — þarf að fækka þeim Lilja skrifar: Nú er ég í vanda. og mig langar að vita hvort lesendur geti hjálpað mér úr honum. Þannig er mál með vexti að ég er með algera pennavinadellu, og til aö verða mér úti um fleirí þá skrifaði ég í þýskt pennavinablað, og óskaði eftir pennavinum. Og árangurinn lét ekki á sér standa þvi innan skamms fór að rigna yfir mig bréfum, aðallega frá Vestur-Þýskalandi, Austurríki, og Sviss, og svo nokkur frá Belgíu, Finnlandi, Spáni, Portúgal, Svíþjóð og víðar. Flestir, ef ekki allir, virð- ast hafa mikinn áhuga á landi og þjóð, og segja sumir að erfitt sé að fá pennavini hér á landi, þeir hafi reynt það lengi, en ekki haft árangur sem erfiði. Flestir eru á aldrinum 13—16 ára, en fer niöur í 11 og upp í 19, svo að flestir ættu aö geta f undiö eitthvað við sitt hæfi. Og svo er það bara að hrista af sér slenið, taka upp penn- ann, skrifa niður í hvaða landi þú vilt fá pennavin(i), á hvaöa aldri við- komandi á að vera, hvors kyns, og Þetta eru pennar. En skyltfu þeir veira vinir? Þá væru þoir penna- vinir. aðaláhugamálin þín. Og munið: Sendiö frímerkt umslag með, annars fáið þið ekki svar. Eg svara svo eins fljótt og ég get. Svo vonast ég eftir góðum undirtektum. Skrífiötil: Lilju Grétarsdóttur Hverfisgötu38 220 Hafnarfirði Es. Munið eftir frímerkta umslag- inu... í FARARBRODDI If T -----------------AR ,VITAS Og fyrir þá sem helst vilja vera heima og skoða sitt eigið land bjóðum við upp á úrvalsbílinn Toyota Tercel 4WD. Þeir sem senda seðlana núna eru líka með þegar dregið verður um hann, ef þeir eru skuldlausir áskrifendur. SUMIR HAFA HEPPNINA MEÐ SÉR. HVERS VEGNA EKKI ÞÚ? MISSTU EKKI AF TÆKIFÆRINU! ÁSKRIFTARSÍMINN ER (91)-27022

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.