Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1984, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1984, Blaðsíða 9
DV. RÍIÐVÍKUDÁGÚR 4. APRÍL1984. 9 INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 Útlönd Útlönd Útlönd /S|i ** p Heilsugæslustöð á Hólmavík innanhússfrágangur Heildartilboð óskast í innanhússfrágang heilsugæslustöðvar á Hólmavík. Húsið er ein hæð, án kjallara, alls um 375 m2 brúttó. Innifalið í verkinu er t.d. múrhúðun, vatns- og hitalagnir, loft- ræstikerfi, raflagnir, dúkalögn, málun og innréttingasmíði. Verkinu skal að fullu lokið 1. febrúar 1985. Utboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7 Reykjavík, gegn 2.500 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað föstudaginn 27. apríl 1984 kl. 11.00. Þessi fjölskylda hefur ekki haft mikla ástæðu til þess að brosa að undanfömu. T.v. Mark, Margaret og Denis Thatcher. „ÞETTA HAFA VERIÐ BLÓDUGAR VIKUR” — segir Mark Thatcher um gagnrýnina sem hann og móðir hans hafa sætt að undanförnu Mark sonur Margrétar Thatcher for- sætisráðherra Bretlands viðurkenndi um helgina að hann hefði verið „barnalegur” í viðskiptum sínum en sakaði samtímis gagnrýnendur sína um að reyna að koma höggi á móður hans í gegnum hann. En þau hafa bæði sætt mikilli gagnrýni undanfarnar vikur vegna hagsmuna hans í Mið- austurlöndum. Mark sagði í blaðaviðtali að síðustu tólf vikur hefðu verið „blóðugar”, en á þeim tíma hefur móðir hans látlaust verið gagnrýnd í breska þinginu og f jölmiðlum vegna ráðgjafastarfs sonar hennar við breskt fyrirtæki en þaö voru tengsl hans við fyrirtækið sem gagnrýnendumir töldu að ráðið hefði fyrirgreiðslum er það fékk. „Á þessum tólf vikum hafa þeir kastað öllum hugsanlegum skít í mig,” sagði Mark. Mark Thatcher var í Oman þegar móðir hans kom þangað í opinbera heimsókn 1981. Fyrirtæki hans fékk þá 300 milljón punda samning um að byggja háskóla í þessu arabariki. Gagn- rýnendumir halda því fram að þar hafi skyldleiki hans við forsætisráðherrann ráðiö ferðinni. „Eg hef ekki aðhafst neitt athuga- vert. Ekkert sem ég þarf að skammast mín fyrir. Þetta er allt saman fyrir- sláttur til að koma höggi á móður mína,” sagði Mark sem kvaðst hafa verið barnalegur að því leyti að hafa ekki séð þetta fyrir, hvemig hann hefði verið misnotaður til að unnt væri að koma höggi á móður hans. Indverskur geimfari með Rússum Fyrsti indverski geimfarinn og tveir sovéskir starfsbræður hans em á leiö út í geiminn að hitta þrjá sovéska geimfara um borð í Saljut-7 geim- stöðinni. Rakesh Sharma (35 ára flugsveitar- foringi í flugher Indlands) var skotið á loft ásamt Yuri Malyshev og Gennady Strekalov í gær og var flugtakinu sjónvarpað beint, sem er óvenjulegt um sovéskar geimferðir. Fréttaþulir lögöu mikla áherslu á að ferðin undirstrikaði vináttu Indlands og Sovétríkjanna og Indiru Gandhi. HAFNIR Upplýsingar hjó Magnúsi B. Einarssyni. Simi 92-6958. ÞÓRSHÖFN Upplýsingar hjá Jónínu Samúelsdóttur. Sími 96-81185. Einrtig eru a/Iar upplýsingar á afgreiðslu DV Þver- holti 11, sími27022. upp fyrirhugaðri herstöð sinni í Larisa íGrikklandi. Dýrtaðspilla brúðkaupsferð Eldri hjón hafa höfðað mál gegn Cunard-skipafélaginu breska (sem gert hefur út Drottningamar) og krefst tveggja milljón dollara skaðabóta vegna þess að dávaldur félagsins hafi eyðilagt fyrir þeim brúðkaupsferöina. Hjón þessi eru 67 og 66 ára gömui og frá Kaliforníu og höfðu fariö í brúökaupsferð með Queen Eliza- beth H, en dávaldur, skemmti- kraftur um borð í skipinu, hafði á einni kvöldskemmtun dáleitt konuna og eftir það ,,gat hún ekki fullnægt hjónabandsskyldunum”, eins og komist er aö orði í máls- höfðuninni. Caspar Weinberger, varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna, ræddi um helgina við nokkra af forystumönnum grísku þjóðarinnar án þess að takast að leysa úr landamæradeilum Grikklands og Tyrklands. Weinberger sem hafði gert sér vonir um að geta borið klæði á vopnin í deilu þessara tveggja Miöjarðarhafsþjóða hélt frá Grikklandi á fund Atlantshafs- bandalagsins í tyrknesku borginni Cesme án þess að hafa náð þeim árangri sem hann haföi gert sér vonir um. Ráöamenn í Grikklandi segja aö ef Bandaríkjastjórn takist að fá Tyrki til að verða á brott með herlið sitt frá Kýpur muni mörg af vandamálum þessara tveggja þjóða leysast. Ágreiningur Atlantshafsbandalags- ins og Grikklands hefur oröiö til þess aö bandalagið hefur ekki getað komiö Verkstjóri við unglmgavinnu Siglufjarðarkaupstaöur vill ráða verkstjóra við unglingavinnu á komandi sumri (júní—ágúst). Umsóknum sé skilað til undirritaðs fyrir 24. þ.m. Bæjarstjórinn Siglufirði. ÍGabrig^fi HÖGG- | DEYFAR j NY SENDING MJÖG MIKIÐ ÚRVAL j PÓSTSENDUM : jSBBftwi r , hábebchf.1 SkeiSunni Sa — Simi 8*47*88: I - • I • ••••••••••••••••••••••••••••••••©•••••••••••••• GÓÐIR BÍLAR TIL SÖLU Subaru 4x41983, ek. 6.000 km. Peugeot 5041980, fallegur einkabíll. Mazda 323 SP 1980, ek. 45.000 km. Volvo 244 GL 1980, ek. 37.000 km, over-drive, einstaklega fallegur bíll. VW Passat CL1982, ek. 17.000 km. Honda Accord EX 1980, 5-gíra, vökvastýri, mjög fallegur. <i J "<S^ bilasala GUOMUNDAR Bergþórugöfu 3 — Reykjavík Simar 19032 — 20070 Útlönd Útlönd WEINBERGER NÁÐIEKKI ÁRANGRI í GRIKKLANDI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.