Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1984, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1984, Qupperneq 4
4 Skoðanakönnun DY: DV. MIÐVIKUDAGUR 4. APRIL1984. ----------------------) Allra flokka fólk vill þjóöaratkvæði um bjór I skoðanakönnun DV nýverið var sama fólkið meðal annars spurt hvort það væri fylgjandi eða andvígt þjóðar- atkvæðagreiðslu um bjórinn, og hvaða flokk eða lista það styddi. Því má sjá, hvernig afstaðan til þjóðaratkvæðis um hið umdeilda bjórmál skiptist eftir flokkum. Utkoman varð þjóðaratkvæða- greiðslu mjög í vil. Mikill meirihluti stuöningsmanna allra flokkanna vill láta fara fram þjóðaratkvæði um, hvort leyfa skuli áfengt öl hér á landi. Fylgjandi þjóðaratkvæðagreiðslu um bjórinn voru í könnuninni yfir 82 prósent sjálfstæðismanna, tæp 77 prósent framsóknarmanna, 73,5 prósent alþýðubandalagsmanna, tæp 68 prósent alþýðuflokksmanna, yfir 81 prósent stuðningsfólks Kvennalista, tæp 89 prósent stuðningsmanna Banda- lags jafnaðarmanna og yfir 69 prósent þeirra, sem ekki svöruöu til um á- kveðinn flokk eða lista. Sjá meðfylgjandi töflur. -HH. Þjófar virðast vera með Iþrótta hús Háskólans á heilanum — „ekkert fémætt lengur í húsinu” Svo virðist sem þjófar séu með Iþróttahús Háskólans á heilanum þessa dagana. Þar var brotist inn í annað skiptið á stuttum tíma á sunnudagskvöld. Þjófamir höfðu ekkert upp úr krafsinu í þetta skiptiö nema skeiðklukku og armbandsúr sem ekki haföi verið náð í úr geymslu. Fyrra innbrotið Var mjög baga- legt fyrir Iþróttafélag stúdenta. Þá var stoliö verðlaunapeningum og verðlaunagripum sem voru í húsinu. Auk þess var s jónvarpstæki húsvarð- arins stoliö og peningum vegna gos- sölu, alls um 30 þúsund krónum. „Það eina sem við getum beöið um er að þjófamir hætti að heimsækja okkur. Það er ekkert fémætt lengur í húsinu. Ekkert slikt skilið eftir,” sagði Magnús Péturs- son, húsvörður Iþróttahúss há- skólans. JGH. SLYSIÐ EKKISÖK RABBÍNANS Að gefnu tilefni vegna fréttar DV í gær vill talsmaöur Norðurstjömunnar koma þeirri leiðréttingu á framfæri að slysið sem um er rætt var ekki sök rabbínans, heldur af öðrum orsökum. Rannsókn stendur nú yfir. Framkvæmdastjóri Norður- stjörnunnar og vélstjóri liggja enn á sjúkrahúsi, illa brenndir, en tveir aðrir starfsmenn, sem einnig brenndust, hafa fengið aö fara heim aö aðgerð lokinni. Afstaða sjálfstæðismanna til þjóðaratkvæðagreiðslu um bjórinn var þessi: Fylgjandi.........................138 eða 82,1% * Andvfgir.......................... 24 eða 14,3% Öákveðnir......................... 6 eða 3,5% Afstaða framsóknarmanna var þessi: Fylgjandi..........................43 eða 76,8% Andvígir........................... 8 eða 14,3% Óákveðnir.......................... 4 eða 7,1% Svara ekki......................... 1 eða 1,8% Afstaða alþýðubandalagsmanna var þessi: Fylgjandi.........................36 eða 73,5% Andvígir...........................12 eða 24,5% Óákveðnir......................... 1 eða 2,0% Afstaða alþýðuflokksmanna var þessi: Fylgjandi.........................21 eða 67,7% Andvigir.......................... 8 eða 25,8% Óákveðnir......................... 2 eða 6,5% Afstaða stuðningsmanna Kvennalista var þessi: Fylgjandi.........................13 eða 81,3% Andvígir........................... 2 eða 12,5% Óákveðnir.......................... 1 eða 6,3% Afstaða stuðningsmanna Bandalags jaf naðarmanna var þessi: Fylgjandi..........................8 eða 88,9% Andvígir...........................1 eða 11,1% Afstaða þeirra sem voru óákveðnir gagnvart flokkum og listum eða vildu ekki svara spurningunni um flokka eða lista: Fylgjandi þjóðaratkvæði um bjór . 188 eða 69,4% Andvígir .......................... 51 eða 18,8% Óákveðnir.......................... 10 eða 3,7% Vilja ekki svara.....................22 eða 8,1% I dag mælir Dagfari í daq mælir Dagfari I daa rrtælir Daafari Kjaftshögg þingmannsins Því hefur verið slegið upp á for- síðum að einn af þingmönnum þjóð- arinnar hafi lamið mann i gólfið. Þykir það greinilega fréttnæmt að þingmenn hafi einurð til að berja frá sér ef þeim mislíkar vlð viðmæl- endur sína og segir það fréttamat meira um það álit sem þjóðin hefur á þingmönnum heldur en hinu að mað- ur berji mann. Fer varla á milll mála að þingmenn eru ekki hátt skrifaðir þegar það telst til meiriháttar tíðinda þá loks að þingmaður grípur til barsmíða þegar hann vill hafa sitt mál fram. Engu er líkara að fólk haldi almennt að þjóðkjörnir full- trúar á löggjafarsamkundunni séu veifiskatar og amlóðar upp til hópa sem ekki geti borið hönd fyrir höfuð sér, hvað þá siegið frá sér, þegar mikið liggur við. Sennilega stafar þetta álit af frammistöðu þingmannanna sjálfra, sem sifellt eru að verða kurteisari og almennilegri í viðmóti hver við annan og mega ekki orðinu halla öðru visi en að biðjast afsökunar á eftir. Munnsöfnuður og hressilegar skammir heyrast vart lengur í þing- sölum og helgislepjan hefur jafnvel gengið svo langt að þar mæta menn með biblíuna upp á arminn og fara með guðsorð í ræðupúlti. Svona nokkur blúndulagning á gömlum orrustuvelli, þar sem áður rann blóð og sviti, gengur auðvitað ekki til lengdar öðru vísi en að þjóðin haldi að þingið sé einhvers konar hvildarheimili eða endurhæfingar- stöð fyrir liðónýta og geðlausa ó- nytjunga. Ekki er nema von að garpur eins og Árni eyjapeyi hafi fengið ákúrur fyrir bibliulestur og kurteisissnakk frá umbjóðendum sinum i Eyjum sem hingað til hafa ekki þekkt aðrar umgengnis ven jur en auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. Árni vili auðsjáanlega reka af sér slyðruorðið og við nánari lestur á biblíunni hefur hann áttað sig á því að kenningin um augað og tönnina er einmitt þaðankomin. Lét hann höggið riða við fyrsta tækifæri og valdi til þess Stýri- mannaskólann sem vettvang. Fór vel á þvi enda segir hann, högginu til málsbóta, að hann hafi svarað fyrir sig að sjómannasið. Það hefur hins vegar gerst í íram- haldi af þessu kjaftshöggi að sjó- mannastéttln hefur mótmælt þvi að hún berji fólk og nemendur Stýrl- mannaskólans senda frá sér yfir- lýsingu þar sem harmað er að skól- inn hafi orðið vettvangur þessa sama kjaftshöggs. Virðist því svo komið fyrir þessari aldagömlu sjómannsþjóð að enginn vill kannast við þann þjóðlega sið að berja mann og annan þegar þeir liggja vel við höggi. Er þá af sem áður var þegar s jávarplássin og ver- búðirnar loguðu í áflogum þegar flotinn lá í höfn og strákarnir þurftu að fá útrás fyrir krafta sina. Kannski verður þetta kjaftshögg Árna það síðasta sem sögur fara af ef marka má undlrtektir og afneit- anir sjómanna. Auðvitað er ástæða til að hafa áhyggjur af þessari hæversku sjómannastéttarinnar ef hún þykist vera hætt að berja fólk. En hitt er þó bót i máli ef þingmenn byggjast taka upp þráðinn þar sem frá var horfið og halda þessum gamla sið við lýði úr þvi sjómenn eru ekki menn til þess lengur. Best væri ef Árni og co efndu til áfloga í þing- sölum og svöruðu fyrir sig með kjaftshöggum. Þá fyrst verður eftir- sóknarvert að komast á þing þegar neðri deild verður breytt i hnefa- lelkapall. Dagfari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.