Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1984, Blaðsíða 31
.{>861 jih'ja .* auoAauHivaiM. va
DV. MIÐVKUDAGUR 4. APRIL1984.
Sandkorn
Sandkorn
Sandkorn
31
Hann íe/ur efft fó/kió.
Anna litla á tón-
leikum
Anna litla þótti vera ákaf-
lega músíkalskt barn. Voru
foreldrar hennar afar stoitir
vegna þessa og geröu allt sem
í þeirra valdi stóð til að örva
gáfur þeirrar stuttu.
Einhverju sinni tók pabbi
hennar sig til og fór með hana
á sinfónhihljómleika. Honum
til mikillar gieði starði dóttir
hans dolfallin á hljómsveit-
ina. En allt i einu sagði hún
svo hátt að glumdi um ailan
sai; um lelð og hún benti á
hljóms veitarstjórann:
„Pabbl, af hverju er
maðurinn að telja allt fólk-
ið?”
Það var þá
1 Þórhildi, blaði tsieudinga
í Kaupmannahöfn, er fróð-
iegt viðtal vlð Guðrúnu
Eiríksdóttur í Jónshúsi.
Guðrún hefur dvaliö um
margra ára skeið i Dan-
mörku og kann því frá
mörgu að segja. Hún minnist
meðal annars á atvik sem
átti sér stað þegar hún gerðl
hreint í Tívolí.
....Það var elnu sinni,
þegar ég var að vinna þar,
þá komst ég upp á svlðið
með Jósefinu Baker. Hún
tróö upp í Glassalnum i
Tívolí og vlð áttum að gera
hreint milli atriða. Ég stóð
þarna bak við tjaldið með
fötuna. Þá kemur hún og
Ouðrún Ekiksdúttír.
tekur í höndina á mér, leiðlr
mig út á senuna og segir við
fólkið i salnum að þaö sé
meðal annars og ekki sist
þessu fólki sem þarna vinni
að þakka að hún geti troðlð
upp...”
Vondur dagur
Brunaslysið, sem varð
þegar rabbininn blessaði
tæki Norðurstjörnunnar í
Hafnarfirði, hefur verið mik-
ið til umrsðu manna á með-
al. Þykir mörgum sá mark-
aður sem vinnst við blessun-
araðgerðir rabbinans nokkuð
dýru verði keyptur þegar
svona fer. Þá þykir mörgum
þarna vera um hrein skripa-
lsti að rsða og alls óþarft
fyrir íslenska aðila að taka
þátt i þeim.
Ekki skal neinn dómur
lagöur á þetta atvik hér. En
tíðlndamenn Sandkorns
segja að þeir aðilar sem
fyrst var haft samband við
eftir siysið hafi í fyrstu ekki
vitað hvemig þeir áttu að
bregðast við. Það áttl sér
nefnilega stað síðastliðinn
sunnudag, eins og DV hefur
greint frá, en þann dag var
einmitt 1. apríl.
Hvað er það...?
Og af því að nú bregður til
betri tíðar, líklega með blóm
i haga, þykir rétt að varpa
einni laufléttri fyrlr yngstu
lesendurna:
Hvað er það sem er brúnt,
þétt viökomu, sívalt með sól-
gleraugu?
Svar: Hrossaskítur i
sumarfríi.
Hart Iff í drerf-
býlinu
Það hefur vist ekki farið
fram hjá neinum að Selfyss-
ingar era búnir að opna sltt
riki. Nokkrar deilur urðu
þegar ákveðið var að opna
áfengisútsöluna og svo
seinna vegna ráðningar
ríkisstjóra.
En nú er sumsé búið að
opna Mömmu-riki, eins og
það mun nefnt á Selfossl og
ættu þvi allir að geta verslað
þaraðvlld. Því fer þó fjarri.
Segir sagan að séu menn
illa haldnir af löngun i léttar
veigar á mánudögum brenni
þeir frekar til Reykjavikur
eftir þeim heldur en að
versia i Mömmu-ríki. Það
þyki nefnilega hin mesta
smán að láta sjá sig i
áfengisverslun staðarins i
byrjun viku og stígi menn
ekki fsti sinum þangað frek-
ar en á brennda jörð á þeim
tíma. Mun það ekki vera
fyrr en um eða eftir miðja
ÞaÓ ar /jótt ad kaupa svona á mánu-
dögum.
viku, sem versiunin í
Mömmu-ríki tekur að glæð-
, ast.
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir.
Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Heiti: I skjóli nœtur (Still Of The Night).
Leikstjóri: Robert Benton.
Handrit: Robert Benton eftir sögu David New-
man.
Kvikmyndun: Nestor Almendros og Joe
Coffey.
Tónlist: John Kandor.
Aðalleikendur: Roy Scheidor, Meryl Streep og
Jessica Tandy.
Það er ekki erfitt að gera sér í
hugarlund hver kveikjan aö „I skjóli
nætur” hefur verið. Myndin er óður
til þeirra tegunda sakamálamynda
er gerðar voru í meiri og minni
mæli á fimmta og sjötta áratugnum
og náðu hæst í meðförum meistara
Hitchcock. Og þar sem undirritaður
er einlægur aödáandi slikra gamal-
dags krimma var það með nokkurri
tilhlökkun sem ég fór að sjá „I skjóli
nætur”.
Bæði er að í aðalhlutverkum eru
úrvalsleikararnir Roy Scheider og
Meryl Streep og svo hitt að leikstjóri
myndarinnar er Robert Benton sem
leikstýrði hinni eftirminnilegu
Kramer vs Kramer. Og þrátt fyrir
að ég geti ekki sagt að ég hafi orðið
fyrir vonbrigðum þá get ég heldur
ekki sagt að ég sé fullkomlega
ánægður með útkomuna.
Söguþráðurinn er ekkert of flók-
inn. SálfræðingurinnSamRice(Roy
Scheider) hafði sjúkling til meöferð-
ar sem síöar var myrtur og þrátt fyr-
ir aö Rice viti nokkuð um einkalíf
hans neitar hann að gefa lögreglunni
mokkrar upplýsingar. A fund hans
kemur Brooke Reynolds (Meryl
Streep), ung kona sem hafði haldiö
við þann myrta og þrátt fyrir að allar
líkur bendi til þess aö hún sé morð-
inginn veröur Sam Rice hrifinn af
henni og hyggur á eigin rannsókn í
málinu.
Rannsókn hans í byrjun gefur enn
betur til kynna hversu liklegur morð-
ingi Reynolds er og er Sam Rice
meöal annars sýnt morðtilræði í al-
menningsgarði. En það er margt
sem á eftir aö koma í ljós er flækir
málið og eins og í góöri sakamála-
mynd er það ekki fyrr en á lokamín-
útunum sem hlutirnir skýrast.
Það er í rauninni allt sem viökem-
ur ,,I skjóli nætur” sem ætti að gera
hana að vel heppnaðri sakamála-
mynd. Söguþráðurinn í heild spenn-
andi. Kvikmyndataka, leikstjóm og
öll tæknivinna er fyrsta flokks, en
samt er það nú svo að ég er ekki al-
veg sáttur við myndina.
Það er einkum tvennt sem mér
finnst athugavert þótt það vegi
Meryl Streep og Roy Scheider í hlutverkum elskenda sem flskjast i morðmál.
kannski ekki upp á móti kostum
hennar. Handritiö er frekar slakt.
Það er nokkuð um ódýrar lausnir til
að fá áhorfandann til að grípa and-
ann á lofti. Má þar nefna drauma-
atriði hins myrta sem að vísu er vel
gert en stingur í stúf þegar endir
myndarinnar er skoðaður, og eins er
atriðið þegar Sam Rice fer í þvotta-
húsið og fær á tilfinninguna að morð-
inginn sé þar einnig nokkuð útþvælt.
Og þrátt fyrir að Meryl Streep sé
frábær leikkona og hafi á undanförn-
um árum gert hluti sem eru aöeins á
valdi úrvals leikkvenna þá á hún
ekki beint heima í hlutverki hinnar
grunuðu. Húnerhvorkisannfærandi
sem morðingi né fomminjasérfræð-
ingur.
Roy Scheider aftur á móti er eins
og skapaður í hlutverk sálfræðings-
ins sem tekst á hendur eigin rann-
sókn á málinu, leikari sem er orðinn
viss gæðastimpill á þær kvikmyndir
er hann leikurí.
Þrátt fyrir ofangreindar athuga-
semdir má samt hafa gaman af og
unnendur gamaldags sakamála-
mynda veröa ekki fyrir vonbrigðum.
Hilmar Karlsson.
Tónabíó—í skjóli nætur
PRÝÐISKRIMMI
BILASOLU
300 FERMETRA
SÝNINGARSALUR
Óskum eftir öllum tegundum bifreiða á skrá.
Opið frá mánudegi til föstudags kl. 10 — 19,
einnig laugardaga kl. 10 — 17.
Bílasalaim VaIT
SMIÐJUVEG118 C - KÓPAVOGI.
SÍMI 79130.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suóurlandsbraut 16 Sími 9135200
DIESELVÉLAR HF.r SUÐURLANDSBRAUT 16, SÍMI 35200.
3 GÓÐAR FRÁ SANYO
Láttu rakvélarnar frá SANYO sjá um raksturinn
heima og á ferðalögum.
H,eöslu' rakvélar
"ST 86,11 reVnast Þér vel.
rafhloðu-.