Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1984, Page 35
DV. MIÐVKUDAGUR 4. APRlL 1984.
öllu fómað.
I landsliðinu hefur væntanlega
öllu verið fórnað. Hvenær varstu
þar síðast og hvað spilaðirðu oft
með liðinu?
„Það var árið 1978 og ég spilaði
15 leiki með landsliðinu.”
Hvaða leikur er eftirminnileg-
astur?
„Við fórum í eina ferð 1975. Það
var til Frakklands, Belgíu og
Rússlands. I þeirri ferð var bara
allt geysilega gaman,
stemmningin virkilega góð.”
Úrslitin voru kannski ekki alveg
í samræmi við það, eða hvað?
„Jæja, við töpuðum reyndar
öllum leikjunum, fyrir Frökkum
3—0, Belgum 1—0 og Rússum 1—0.
Á sínum tíma þótti þetta geysilega
góður árangur. Þessi hópur var
virkilega samrýndur og
„Knapparinn” náði alltaf að
skapa mikla stemmningu. Ég
spilaði síðasta árið hjá Yuri og
fannst það allt annað. Hann kom
aldrei beint að hlutunum eins og
„Knapparinn” sem gat átt það til
að segja manni að fara í andskot-
ann, ef honum datt það í hug. Yuri
fór frekar aftan að manni.”
Manstu eftir einhverju tilfelli
þar sem þér þótti verra en annað
að missa tuðruna inn fyrir þig?
„Það var í landsleik á móti
Rússum hérna heima árið 1975.
Það voru 10 mínútur eftir af
leiknum, staðan 0—0 og gekk mjög
vel. Þá skoraði Búbbi sjálfsmark.
Þetta var annar leikur minn með
landsliðinu, sá fyrsti hérna heima,
og ég var mjög svekktur. Strax á
eftir fylgdi annað mark, þeir voru
búnir að brjóta ísinn. Eins var það
í úrslitaleik með Fram á móti Val
í bikarkeppninni. Þeir skora mark
strax á annarri mínútu og þá
fannst manni eins og allt væri
búið.”
Hefurðu ekki unnið neina titla?
„Einu sinni hef ég orðið Reykja-
víkurmeistari og svo þetta í
fyrra.”
En finnst þér ekki sárt að horfa
á eftir þessum landsliðsárum?
„Jú, þetta er skemmtilegasti
tími sem maður hefur verið í
þessu, tvímælalaust. Maður á
margar geysilega góðar minning-
ar frá þessum árum. Ég hugsa að
andinn sem var þá hafi verið eins
góður og hann gat verið bestur í
félagsliði. Knapp fór þannig að
manni að hann sagði „ef þú spilar
vel fyrir mig”, beitti þannig á
mann sálfræðinni. Hann sagði „ég
veit hvað þú getur og þá spilarðu
fyrir mig.” Þetta gerði það að
verkum að hann náði alltaf því
bestaútúrmanni.”
Nú er það ekki landsliðið heldur
Tindastóll. Hvað ætlið þið ykkur í
sumar?
„Við stefnum að því að halda
okkur í 2. deild, það verður nóg
verkefni. Það eru margir góðir
strákar hérna og fram til þessa
hefur það verið höfuðverkur, að
þeir hafa orðið að leita út fyrir
bæinn í sambandi við nám. Með
tilkomu fjölbrautaskólans leysist
það að hluta. Hann lengir
verulega veru þeirra í bænum.
Það sem kannski hefur verið
ótryggast er að maður hefur ekki
getað fengið á hreint hver jir verða
með fyrr en komið er fram undir
mót. Til dæmis er það ennþá
þannig, að ég veit ekki hvort þrír
eða f jórir menn koma.”
-JBH/Akureyri
Hátt í 300 manns sóttu kynningarfundinn á Hótel Borg. DV-mynd S.
Samtök fiskvinnslufólks íReykjavík stofna málfundafélag:
Hátt1300manns voru á fundinum
Samtök fiskvinnslufólks í
Reykjavík hafa stofnað með sér mál-
fundafélag og var kynningarfundur
að stofnfundi félagsins haldinn á
Hótel Borg í fyrrakvöld. Sóttu hann
háttí300manns.
„Þetta er ekki nýtt verkalýðsfélag
heldur er markmiöiö með stofnun
félagsins að sýna samstöðu og vera
ráðgefandi í samningum en við
teljum okkur hafa orðið á eftir í þeim
efnum,” sagði Aðalheiður Fransdótt-
ir hjá BUR í samtali við DV en hún
var ein af hvatamönnum félagsins.
Hun sagði einnig að fiskvinnslufólk
teldi betri líkur á að koma skoðunum
sinum á framfæri í gegnum félag
eins og þetta í stað þess að hver og
einn væri að puða í sínu homi.
Stofnfundur félagsins verður
haldinn þann 16 apríl nk. .pRl
Bolungarvík:
Lionsklúbburinn gaf dagheimili
Frá Kristjáni Friðþjófssyni, frétta-
ritara DV í Bolungarvík.
Nýtt dagheimili var tekið í notkun í
Bolungarvík um áramótin. Lions-
klúbburinn á staðnum sá um byggingu
hússins og hófst hún fyrir tveimur
árum. Klúbburinn afhenti síðan bæjar-
félaginu húsið fokhelt með gleri í
gluggum og sá bærinn um að ganga frá
þviaðinnan.
Húsiö er 4—500 fermetrar að stærð
og er það búið vönduöum leiktækjum
og aðbúnaður fyrir bömin er góður.
Dagheimilið er nú fullsetið og hafa
þegar myndast biðlistar.
Ibúar Bolungarvíkur hafa hvatt
bæjarstjórn til að koma upp leik-
tækjum á lóð dagheimilisins, en fé
skortir til þeirra framkvæmda. Þá
hafa foreldrar boðist til að vinna sjálf-
boðavinnu viö að koma útivistar-
svæðinu í sæmilegt horf gegn því að
bærinn útvegi efni.
-GB
Krakkarair í Bolungarvik una glaðir við sitt í nýja dagheimilinu, sem Lionsmenn
byggðu fyrir bæinn. DV-mynd Kristján Friðþjóf sson.
Ferðaskrifstofan Atlantik:
Ferðaáætlun 1984 komin út
Ferðaskrifstofan Atlantik hefur nú
sent frá sér feröaáætlun fyrir árið
1984.
Meðal feröamöguleika sem í boði
em má nefna ferðir til Mallorca. Er
þar hægt að velja um gististaöi við
««*»* á ** « * »»»»»”
Hið glæsilega lúxusskip Maxim Gorki.
þrjár mismunandi strendur. Þar er
um að ræða Royal Torrenova hóteliö
á Magaluf, Royal Playa De Palma á
Playa De Palma ströndinni sem
aðeins er 8 km austan við hina fomu
höfuðborg eyjarinnar, Palma. Þriðji
staðurinn er Santa Ponsa ströndin
þar sem viðskiptavinir Atlantik geta
gist á Royal Jardin Del Mar hótelinu.
I þessum ferðum er boðið upp á fjöl-
breyttar skoðunarferðir með ís-
lenskri fararstjóm.
Af öðra sem er á feröaáætluninni
er til að mynda flug og bíll og flug og
hótel þar sem ótal möguleikar eru í
boði og mörg lönd Evrópu inni í
myndinni.
Meðal þess sem boðið er upp á er
ferð með hinu fljótandi lúxushóteli,
skemmtiferðaskipinu Maxim Gorki.
Um borð í því skipi er nánast allt
sem einn maöur þarfnast, eins og
verslanir, bankar, kvikmyndasalur,
sundlaug, íþróttasalur, nætur-
klúbbur og veitingasalir.
Rínarsiglingar era enn einn
valkosturinn á ferðaáætlun Atlantik
og er hægt að velja um siglingaleiðir
og sjá hinar ýmsu stórborgir í Sviss
og Vestur-Þýskalandi.
. 35
Sjómannafélag
Reykjavíkur:
Atkvæða-
greiðsla um
samningana
Sjómannafélag Reykjavíkur
heldur félagsfund í dag, miðviku-
dag, og jafnframt hefst þá þriggja
vikna atkvæðagreiðsla um kjara-
samningana en félagiö samþykkti
ASI samkomulagið meö fyrirvara
sl. sunnudag. Þaö era þrír hópar
sem Sjómannafélag Reykjavíkur
semur fyrir, farmenn, og sjómenn
á sanddæluskipum og hafrann-
sóknarskipum en varöandi kjara-
samningana era fiskimenn hins
vegar í samfloti með Sjómanna-
sambandi Islands.
Samningaumleitanir fyrir
sjómenn á sanddælu- og hafrann-
sóknarskipum standa enn yfir, að
því er Guðmundur Hallvarðsson,
formaður Sjómannafélags Reykja-
víkur, tjáðiDV.
Kennarar
mótmæla
Á kennaraf undi sem haldinn var í
Seljaskóla fyrir helgi var sam-
þykkt ályktun til að mótmæla fyrir-
hugaðri vegarlagningu Amarnes-
vegar um Vatnsendahvarf þar sem
vegurinn mundi liggja um mest
notaða útivistarsvæði borgarinnar,
Lýsti fundurinn furðu sinni á því
að mönnum skyldi detta slík fá-
sinna í hug þegar útivistarsvæðum
borgarinnar fækkaði óðum. Lagði
fundurinn til að vegurinn yurði
færður þannig að hann skerti sem
minnst útivistarsvæðið.
Búðardalur:
Götum
bjargað frá
eyðingu
Frá Önnu Flosadóttur, frétta-
ritara DV í Búðardal.
Nú er nær lokið framkvæmdum
sveitarfélagsins á landbrotsvörn-
um við þær götur í Búöardal sem
standa næst sjónum.
Undanfarin ár hefur molast tölu-
vert úr bakkanum, sem er ca 8—10
m hár og liggur alveg upp að göt-
unni. A síöastliðnu ári var ráöist í
gatnagerðarframkvæmdir og fór
þá bakkinn af staö, svo hressilega
að nýja gatan komst ekki lengur
fyrir á þeim stað sem henni hafði
verið ætlaöur. Gripið var því til
þess ráðs aö fylla upp í kantinn og
setja síðan grjótgarð þar fyrir utan
til hlífðar. Garður þessi er um 430
m langur og áætlaöur kostnaöur
við framkvæmd þessa verks er um
600þúsundkrónur. -GB.
Nýstárleg ferðamanna-
versluníSuðursveit:
Minjagripir unnir
af fólki í sveitinni
Frá fréttaritara DV á Höfn í
Horaafirði:
I sumar verður opnuö verslun
fyrir feröamenn að Kálfafellsstaö í
Suðursveit en þar verða seldir
ýmsir minjagripir, sem unnir eru
af fólki í sýslunni, úr tré, beinum,
skeljum, steinum og fleiru, auk
þess sem lopapeysur, sjöl og annað
úr ull verður á boöstólum.
Það er Beta Einarsdóttir sem
hefur veg og vanda af þessari
verslun en hún sagði í samtali við
DV að hugmyndina hefði hún
fengið er hún var á ferðalagi í Sví-
þjóð og rakst þar inn á heimilis- og
sölusýningu í gamalli hlöðu, og
hefði hún þá ákveðið að gera
tilraun með svipaöa starfsemi hér.
Verslunin verður opnuð í júní nk.FRI.