Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1984, Page 36
36
DV. MIÐVDCUDAGUR 4. APRlL 1984.
Dæmalaus 'Veröld Dæmalaus V'eröld Dæmalaus Verölp
LEIÐARLJÓS
Kötturtil
fyrírmyndar
Við íslendingar erum fá-
menn þjóð, svo mjög að
heimsathygli hefur vakið
fyrir löngu. Reyndar kæmust
við fyrir í hverju meðal smá-
þorpi í Evrópu svo að ekki sé
minnst á bandaríska bsi.
Það er sama hvað hver segir,
við verðum að fjölga okkur
og það rækilega. Landrými
er nægUegt tU að rúma mUl-
jónir íslendinga og að þvi
skal stefnt að mati hæfustu
manna.
Hér á síðunum til hliðar
getur að líta frásögn af ketti á
Langholtsvegi í Reykjavík
sem vann það einstæða afrek
að gjóta 12 kettlíngum án
þess að blása úr nös. Að vísu
kann einn fremsti dýralæknir
þjóðarinnar ekki að skýra
þessa frjósemi kattarins
þannig að fullnægjandi sé en
það breytir ekki eðli málsins.
Afrek kattarins er til fyrir-
myndar fyrir islenskar hús-
mæður. Það má sanna með
einföldu dæmi:
Segjum sem svo að 10.000
íslenskar húsmæður tækju
Doppu sér tU fyrirmyndar og
eignuðust 12 börn hver á
næsta ári. Þá væru
íslendingar allt i einu orðnir
120.000 fleiri en venjulega. Ef
þetta endurtæki sig ár eftir ár
yrði þess ekki langt að
bíða að Islendingar yrðu
milljón talsins — jafnvel
margar mUljónir.
Kötturinn á Langholtsveg-
inum hefur sýnt okkur svo að
ekki verður um villst að dýrin
standa okkur mönnunum
framar á fjölmörgum
sviðum.
Aftur á móti væri verra ef
hundarnir færu að taka upp á
þessu. Nógu erfitt er að fela
einn hund í híbýlum sínum þó
að ekki birtist 12 nýir þegar
minnst varir.
íslenskar húsmæður!
Stillið saman strengi ykkar.
Fjölgið landsmönnum. Gerið
ísland að milljónaþjóð!
Doppa stó ÍsJandsmet i frjósemi og gaut 12 kettiingum án þess að blása úr nös.
Hér sést hún með 3 afkvæmum sinum, 9 stykkjum var komið fyrir i vist annars
staðar.
Doppa slær íslandsmet:
DV-mynd Sveinn.
OGURLEG FRJOSEMI
Nýlega var slegiö Islandsmet á
Langholtsvegi. Tæplega tveggja ára
köttur, Doppa aö nafni, gaut 12 kettl-
ingum í einum rykk án þess að blása úr
nös.
„Þetta er þaö mesta sem ég hef
heyrt um á ferli mínum hér á landi,”
sagöi Brynjólfur Sandholt dýralæknir í
samtali viö DV. ,,Um ástæöumar skal
ég ekki fullyrða. Bæði getur þessi frjó-
semi legið í ættum og svo er hinn
möguleikinn aö fressin sem hlut áttu
aö máli hafi verið tvö um hituna. ”
Venjulega eiga læður 3—7 kettlinga
þannig aö afrek Doppu er allrar at-
hygli yert. Þrátt fyrir ungan aldur
hefur hún komiö 23 kettlingum í
þennan heim, fyrst 6, svo fimm og nú
síðast 12 eins og fyrr sagöi. Eigendur
Doppu á Langholtsveginum vildu ekki
leggja þaö á blessaða skepnuna að ala
önn fyrir öllum þessum afkvæmum og
því var 9 stykkjum komiö fyrir í vist
annars staöar og eru því aðeins þrír í
heimahúsum.
Litlu f jölskyldunni líöur vel eftir at-
vikum.
-EIR.
GARY „HOTPANTS”
Á VINIíHOLLYWOOD
Þaö er líf og fjör í smábænum Ottowa
1 í Kansasríki í Bandaríkjunum. Bærinn
er fullur af fréttamönnum sem svífast
einskis til að draga fram í dagsljósiö
frásagnir af bernskubrekum stráks
sem fæddist þar í bæ þann 28.
nóvember áriö 1936. Þá hét strákurinn
Gary Hartpence en í dag Gary Hart og
keppir aö útnefningu demókrata vegna
forsetakosninga í Bandaríkjunum.
| Fréttamennimir hafa haft árangur
| semerfiöi:
— Foreldrar Gary Harts voru fá-
tækir og strákurinn þurfti að þola
ýmislegt hjá strangri og strangtrúaöri
móöur sem var félagi í sértrúarsöfnuöi
sem nefnist Nazarenamir.
— Gary mátti eiginlega aldrei koma
út aö leika sér, mömmu hans var lítið
um þaö gefið, segir æskuvinurinn,
DuaneHoobing.
— Hartpence flutti aö heiman 18 ára
gamall og stundaði nám í Oklahoma.
Þar gat hann um frjálst höfuð strokiö
og daglegar venjur hans breyttust.
— Þar kynntist hann eiginkonu
sinni, Lee Ludwig, sem er prestsdóttir
frá Kansas.
— Hjónaband þeirra hefur veriö
stormasamt, tvivegis hafa þau skilið
og segja menn aö hjónaband þeirra
þessa stundina byggist á pólitískri
nauðsyn.
— Gary breytti nafni sínu úr Hart-
pence árið 1960 og segja sumir aö þaö
hafi veriö gert vegna þess aö í skóla
var hann oft uppnefndur, ,Hotpants”.
— Hart á 2 börn. 19 ára dóttur og 18
ára son. Strákurinn heitir John og er
skíröur í höfuöið á John F. Kennedy,
fyrrum forseta.
— Gary Hart á marga vini í Holly-
wood sem styöja hraustlega viö bakið
á honum núna þegar mikið liggur við.
Þar f ara menn eins og Robert Redford,
Warren Beatty, Jack Nicholson og
Goldie Hawn.
Meira um smábæinn Ottowa í Kans-
assíðarmeir...
Gary Hart biandar geði við kjós-
endur og er hinn alþýðlegasti.
GAGNRÝNENDUR
ERU
Gríska tónskáldið Manos
Hadzidakis, sem samdi tónlistina i
kvikmyndina „Never on Sunday” og
hlaut óskarsverðlaunin fyrir bragöiö,
hefur veriö dæmdur í 4 mánaöa fang-
elsi. Var það vegna þess aö hann lét
þau orö falla í útvarpsþætti árið 1980 að
SVÍN
gagnrýnendur, og þá sérstaklega tón-
listargagnrýnendur, væru svín.
Sungið og dansað í kvikmyndinni
Hever on Sunday. Nú situr tón-
skáldið i fangelsi.