Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1984, Side 18
18
DV. MÁNUDAGUR 9. APRlL 1984.
Reykjavík: 91-31615/86915
Akureyri: 96-21715/23515
Borgames: 93-7618
Víöigeröi V-Hún.: : 95-1591
Blönduós: 95-4136
Sauöárkrókur: 95-5175/5337
Siglufjörður: 96-71489
Húsavík: 96-41940/41229
Vopnafjörður: 97-3145/3121
Egilsstaöir: 97-1550
Seyöisfjöröur: 97-2312/2204
HöfnHornafirði: 97-8303
interRent
létta þér
störfín.
SIÐAN
32
QGENN
AFULLU
I/INNUFÖT
VINNUFATAGERÐ ÍSLANDS.
REYKJAVÍK, SÍMI:166 66
Hakkavélar,
margar gerðir.
Það besta er
hagkvæmast.
UMBOÐSAÐILI:
RÖKRÁS
RAFEINDATÆKNIÞJÓNUSTA
HAMARSHÖFOA 1 -SIMI39420
Félag skólastjóra og yfirkennara um deiluna í Þelamerkurskóla:
RÁÐUNEYTINU BER AB
RÉTTA HLUT STURUI
Stjóm Félags skólastjóra og yfir-
kennara hefur í bréfi til mennta-
málaráöuneytisins lýst því að hún
telji brottvikningu Sturlu Kristjáns-
sonar frá skólastjórastööu viö Þela-
merkurskóla í fyrravetur ekki rétt-
lætanlega.
I bréfinu, sem er dagsett 13. jan.
síöastliöinn, segir að stjórnin hafi
aflaö sér allra þeirra gagna sem vit-
aö er um varðandi þetta mál og
kynnt sér þau rækilega. Eins og kom
fram í f jölmiðlum í fyrravetur ríktu
haröar deilur milli kennara og skóla-
stjóra Þelamerkurskóla þá. Lyktaði
þeim með því aö Ingvar Gislason, þá-
verandi menntamálaráöherra, vék
Sturlu úr embætti. I áðumefndu
bréfi sem stjórn og varastjóm Fé-
lags skólastjóra og yfirkennara
skrifa undir segir: „Ekkert hefur
komið fram í þessum deilum sem
bendir til þess að Sturla hafi gerst
brotlegur í starfi né sýnt vanrækslu á
nokkurn hátt. Bent skal sérstaklega
á aö þrátt fyrir sáttaumleitanir af
hálfu menntamálaráöuneytisins fór
ekki fram formleg rannsókn á störf-
um skólastjóra sem hann þó baö um.
Vakin er sérstök athygli á upphafi
þessa sorglega deilumáls þar sem
skólastjóra er stillt hastarlega upp
aö vegg af kennurum sem eiga í per-
sónulegum samskiptaörðugleikum
viö hann. Málsmeöferöin leiöir svo
til þess aö skólastjóra er vísaö úr
starfi. Stjórn F.S.Y. lítur svo á aö
vegiö hafi verið aö siöferðilegum
gmndvallarreglum í samskiptum
ríkisvalds viö sína embættismenn og
telur aö menntamálaráöuneytinu
beri skylda til aö rétta hlut Sturlu
Kristjánssonar í máli þessu meö
opinberri yfirlýsingu.”
I menntamálaráöuneytinu feng-
ust þær upplýsingar aö mál Sturlu
Kristjánssonar væri til athugunar.
Sólveig Olafsdóttir, lögfræðingur og
fulltrúi I ráöuneytinu, fékk þessi
gögn í hendur í vikunni. Sólveig
sagöi í samtali viö DV aö hún ætti eft-
ir að athuga hver staöa Sturlu væri,
til dæmis hvort hann ætti rétt á ein-
hverjum bótum. Að öðru leyti vildi
hún ekki tjá sig um málið þar sem
hún væri enn ekki búrn að kynna sér
þaö.
JBH/Akureyri
Akureyri:
EITT HÓTEL LOKAÐ
YFIR PÁSKAHELGI
Hótel Varöborg á Akureyri veröur
lokað um páskana, fyrstu feröamanna-
helgi ársins.
„Ástæöan er ekki önnur en sú aö hér
hefur ekki verið nein aösókn um pásk-
ana,” sagöi Amfinnur Arnfinnsson
hótelstjóri í samtali við DV. „Hér er
enginn grundvöllur fýrir þessu. Þaö
hefur oft verið pantaö hjá okkur um
páskana en ekki staðfest og menn hafa
ekki komið og þaö er dýrt aö hafa opið
á þessum tíma. Eg hef nú mikiö aö
gera viö aö laga til og mun nota þennan
tíma til þess.”
Herbergjafjöldi á Hótel Varöborg er
26 og hægt er aö hýsa 56 manns. Oft
hefur verið kvartað undan skorti á
gistirými á Akureyri og er Arnfinnur
var spurður hvort þaö ylli ekki
óánægju aö hann hefði lokað, er hér
væri mikiö um aö vera eins og t.d.
skíöalandsmótið, sagöihann: „Eghef
haft samband viö ferðaskrifstofumar
og ef þær geta bókaö í hóteliö er í lagi
aö hafa opið, en ég fer ekki út í neina
happa og glappa aðferð. Til þess aö
þetta borgi sig þarf aö vera 70% nýting
á herbergjunum.”
Amfinnur sagði ennfremur að
skíðafólkið gisti allt í íþróttahúsum og
skólum; „Við erum ekki einu sinni
spuröir um verö eða gert kleift aö
bjóöa í gistiaöstööu.” JBH/Akureyri.
Húsavík:
Júlíus með 22
tonn af rækju
Frá Ingibjörgu Magnúsdóttur, frétta-
ritara DV á Húsavik:
Júlíus Havsteen ÞH—1 lestaöi ný-
lega 22 tonnum af rækju sem togarinn
fékk í 4ra daga veiðiferð á Kolbeinseyjar-
svæöinu. Aflinn er blandaöur, bæöi stór-
rækjaogminni.
Þetta er fyrsta rækjuveiöiferö
Júlíusar en hann mun stunda veiöarn-
ar út aprílmánuö. Júlíus kom úr
þorskveiöiferö fyrir hálfum mánuöi,
en breytingar þær sem gera þurfti fyr-
ir rækjuveiöarnar vom í lágmarki og
kemur þessi fyrsta veiöiferö vel út.
Rækjan verður unnm í Fiskiöjusam-
lagi Húsavíkur og er unniö þar á
tveimur vöktum fy rst um sinn. -FRI