Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1984, Page 22
22
>3Ct IÍHSA M HUOAOUMÁM . v'O
DV. MANUDAGUR 9. APRlL 1984.
íþróttir
Iþróttir
(þróttir
Iþróttir
Bikarinn aftur f
handboltabæinn
— eftir sigur FH á Víkingum á föstudagskvöid
Það er ár og dagur síðan Víkingsliðið
í handknattleiknum hefur verið leikið
eins grátt og í Laugardalshöllinni á
föstudagskvöld. FH-ingar fóru á
kostum á fjölum haliarinnar — léku
sinn besta leik í úrslitakeppninni — og
möskuðu Víkinga. Sigruðu með níu
marka mun, 31—22. Þetta var 21.
leikur FH á Isiandsmótinu í vetur, 21.
sigurinn og íslandsmeistaratitillinn í
höfn að hálfnaðri úrslitakeppninni.
Eftir sigurinn var FH með 14 stig og
ekkert annað lið nær þeirri stigatölu í
keppninni. Fyrsti sigur FH á Islands-
mótinu í átta ár eða frá 1976 og það
hefur verið löng bið fyrir handknatt-
leiksbæinn Hafnarfjörð. FH-liðið í
aigjörum sérflokki og stefnir á met
sem seint verður jafnaö. Glæsilegur
FH— Víkingur
FH-Víkingur 31—22 (16-10).
Nokkrar tölur úr leiknum: 0—1,1—2, 3—3,
5—4, 12—1, 14—7 og 16—10 í hálfleik. 19—10,
21—12,26—18,29—19 og úrslit 31—22.
Mörk FH skoruöu Pálmi 9, Þorgils Öttar 7,
Sveinn 5, Kristján 5/4, Atli 3 og Hans
Guðmundsson 2. Mörk Víkings Siguröur 6/3,
Guftmundur 5, Stcinar Birgisson 3, Hilmar
Sigurgislason 2, Hörður Harðarsou 2, Karl
Þráinsson 2 og Ólafur Jónsson 2.
Dómarar Guðmundur Kolbeinsson og Þor-
gcir Pálsson. FH fékk 5 víti, Víkingur 3.
Þremur Vikingum var vikift af velli, fjórum
úrFH.
árangur hjá Geir Hallsteinssyni og
strákunum hans.
Hraöi var gífurlegur framan af leik
FH og Víkings og þar naut FH-liðiö sín
vel. Lék sterkan vamarleik og skoraöi
grimmt. Mest úr hraöaupphlaupum.
Eftir nokkurt jafnræði í byrjun tók FH-
liðið leikinn algjörlega í sínar hendur.
Skoraði sjö mörk í röð og breytti stöð-
unni úr 5—4 í 12—4. Leikmenn Víkings
réöu ekkert við hraöann, ekki heil brú í
leik þeirra langtímum saman. FH-liðið
þurfti því ekki mikiö fyrir sigrinum að
hafa en nú var aldrei gefiö eftir. Leikið
á fullu til leiksloka og oft sáust glæsileg
tilþrif hjá FH. Glæsimörk eftir stór-
skemmtilegar leikfléttur. Pálmi Jóns-
son og Þorgils Ottar Mathiesen voru
óstöðvandi og Sveinn Bragason lék
sinn besta leik í vetur. Þeir skoruðu tvo
þriðju marka FH. Minna bar á stór-
skyttunum Atla Hilmarssyni og
Kristjáni Arasyni. Teknir úr umferð
framan af en því svo hætt. Best aö hafa
sem fæst orð um Víkingsliðið. Það var
mjög slakt. Helst að Siguröur
Gunnarsson, sem var tekinn úr umferö
aUan leikinn, og Guðmundur fyrirliði
Guðmundsson sýndu eitthvað.
Jafnt var í 3—3 eftir sjö mín. en á 21.
mín. var staöan orðin 12—4 og öruggur
sigur FH í höfn. 16—10 í hálfleik og
strax í síðari hálfleik jók FH muninn í
tíu mörk, 21—11. Níu tU tíu marka
munur oftast það sem eftir lifði leiks
oglokatölur 31—22.
hsím.
FH og Valur
með tvo sigra
— í yngri f lokkunum
íhandknattleik
Lokið er keppni í yngri flokkunum í
handknattleik. FH og Valur sigruðu í
tveimur flokkum hvort félag, Grótta
ogKRíeinum.
I 2. flokki karla sigraöi Valur. Hlaut
17 stig af 20 mögulegum. Stjarnan í
öðru sæti með 16 stig. I 3. flokki karla
sigraði Grótta með 10 stig af 12
mögulegum. Víkingur í öðru sæti,
einnig með 10 stig en Grótta sigraði í
innbyrðLsleik liöanna 11—8. I 4. flokki
karla sigraði KR með 10 stig. KA í ööru
sæti meö 9 stig. 15. flokki karla sigraði
Valur með 9 stig. Þór, Vestmannaeyj-
um, hlaut einnig 9 stig en Valur sigraði
í innbyrðisleik liðanna 6—4.
I 2. flokki kvenna sigraöi FH. Hlaut
11 stig. Stjarnan í öðru sæti með 8 stig.
I 3. flokki kvenna sigraði FH. Hlaut 12
stig. Grótta í öðru sæti með 10 stig.
mmt. mt *******
Sveinn Bragason sést hér skora eitt mark FH-inga gegn Vikingum. Sveinn stóð
sig ágætlega í leikjum FH-inga um helgina er liðið tryggði sér tslandsmeistara-
titilinn í handknattleik.
DV-mynd Óskar örn Jónsson
Franska kvennatandstiðið
/ handknattieik heimsækir
ísland
ÍSLAND
í Laugardalshöll
íkvöldkl. 8.30.
Á AKRANESI
ÞRIÐJUDA G KL. 8.30.
í VESTMANNAEYJUM
MIÐ VIKUDA G KL. 7.30.
KOMIÐ OG HVETJÍD
HINAR FRÁBÆRU
ÍSLENSKU STÚLKUR
SENDIR LANDSLIÐI
OKKAR BARÁTTUKVEÐJUR.
BESTU LANDSLIÐ I
HANDKNATTLEIK GISTA
Á /y /]/) M -
/ f»/ / i/J / /7