Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1984, Page 28
28
DV. MÁNUDAGUR 9. APRlL 1984.
íþróttir
Iþróttir
íþróttir
íþróttir
„Hamramir” negldir á kaf
— Liverpool vann West Ham 6-0 á Anfield.
35 mörk skoruð í 1. deild
Þaö var engin miskunn hjá ensku
meisturunum Liverpool er West Ham
kom í heimsókn á Anfield á laugar-
daginn. Liverpool liöiö, sem nú er
komið á fulla ferö, var komið í 4—0 eft-
ir aðeins hálftíma leik.
Þaö var markamaskínan Ian Rush
sem geröi fyrsta markiö eftir undir-
búningi Kenny Dalglish sem skoraði
svo næsta mark. Dalglish átti svo allan
heiöurinn af næsta marki sem Rush
geröi. Dalglish var enn á ferðinni með
glæsilega fyrirgjöf er Ronnie Wheelan
geröi fjórða mark Liverpool. Það sem
eftir var hálfleiksins sóttu leikmenn
Liverpool stanslaust en án þess aö
uppskera, enda nóg komið að áliti
sumra.
Leikmenn Liverpool hægöu aðeins á
í seinni hálfleiknum en héldu áfram að
ráða lögum og lofum á vellinum með
Dalglish og Graeme Souness sem
bestu menn en sá síðamefndi gerði tvö
mörk i seinni hálfleiknum og undir-
strikaði hve mikilvægir þessir menn
eru liðinu.
Stórt spumingai merk; er nú yfir
West Ham liðinu sem óðum er aö ná
eðlilegri liðskipan eftir mikil meiðsl.
Það gekk hins vegar ekkert upp á laug-
ardaginn og möguleikarnir aö ná í
Evrópusæti minnkuðu mikið.
Coton varði víti
Á meðan Liverpool var að kafsigla
West Ham áttu leikmenn Man. Utd. í
hinu mesta basli með Birmingham en
tókst þó að sigra með einu marki,
gerðu í fyrri hálfleik. Það var Bryan
Robson sem skoraði með glæsilegum
skalla eftir fyrirgjöf frá Ray Wilkins.
Að venjulegum leiktíma liönum fékk
United víti sem Wilkins tók. Tony
Coton geröi sér hins vegar lítið fyrir og
varði þaö, tvisvar, því endurtaka
þurftispymuna.
- Nottingham Forest hélt þriðja
sætinu með sigri yfir WBA sem hefur
verið talsvert sigursælt að undanförnu.
Það átti hins vegar ekkert svar við
frískum leik Forest-manna sem leiddu
2—0 í hálfleik, mörkin gerö af Colin
Walsh (víti) og Viv Anderson.
I síðari hálfleik jafnaðist leikurinn
talsvert og tókst Gary Thompson aö
minnka muninn fyrir WBA. Það stóð
hins vegar stutt því fyrirliðinn, Ian
Bowyer, jók á forskot Forest og inn-
siglaöi sigurinn, 3—1.
Sjö mörk í Norwich
Flest mörkin í þessari 35 marka
umferö voru gerö á Carrow Road í
Norwich, sjö. Það voru leikmenn
Norwich sem sáu um að gera sex af
þeim gegn Watford, liðinu sem veöjað
er á sem bikarmeistara. Leikurinn var
alger einstefna á mark Watford þar
sem vörn liðsins lak eins og sigti. Steve
Sherwood markvörður má skammast
sín lengi fyrir tvö fyrstu sem John
Deehan og Greg Downs gerðu. Deehan
geröi tvö næstu sitt hvorum megin við
leikhléi. Glæsileg mörk af 20 og 30.
metra færi. I millitíðinni hafði Mo
Johnston gert mark fyrir Watford. Um
John Deehan gerði þrennu í leik
Norwich gegn Watford.
hverjir gerðu tvö síðustu mörk
Norwich var ekki getiö í fréttaskeyt-
um.
Ef leikmenn Watford sýna svipaöan
leik á laugardaginn kemur i undan-
úrslitum bikarsins þá liggja þeir sjálf-
sagt fyrir þriðju deildarliðinu Ply-
mouth sem verða mótherjarnir. Það
eru einkum Sherwood, Johnston og
George Reiley sem veröa að taka sig
saman í andlitinu ef þeir verða þá
valdir í liðiö, slíkur var leikur þeirra á
laugardaginn.
Nicholas skoraði
Charlie Nicholas svaraði haröri
gagnrýni sem hann fékk á sig frá Jock
Stein, þjálfara Skota, með því aö gera
fyrsta mark leiksins gegn Stoke og var
það níunda mark hans í vetur. Paul
Mariner og Tony Woodcock tryggðu
svo Arsenal sigurinn gegn slöku Stoke
liöinu.
Þó aö Everton hafi sigrað Luton,
3—1, á útivelli gefur þaö ekki rétta
mynd af gangi leiksins. Luton hefði
með réttu átt að ná 2—0. Mark Stein
(bróðir Brians) og Trevor Aylott
klúðruðu báðir dauðafærum. Eftir að
Derek Mountfield hafði náð forystunni
.fyrir Everton í fyrri hálfleik var svo
engin spuming um hvort liðið sigraði.
Adrian Heath gerði hin tvö mörkin og
hefði sennilega gert eitt í viöbót ef Mal
Donaghy hefði ekki fellt hann.
Donaghy fékk rauöa spjaldið fyrir
vikið en meira markvert geröist ekki í
þessumgrófa leik.
ÚRSLIT
Urslit í ensku knattspymunni á laugar- dag: 1. deild.
Arsenal—Stoke 3-1
Aston Villa—Covcntry 2—0
Liverpool—West Ham 6—0
Luton—Everton 0—3
Man. Utd.—Birmingham 1-0
Norwich—Watford 6—1
Nott. For.—WBA 3—1
'QPR—Ipswich 1—0
Southampton—Leicester 2—2
Sunderland—Tottenham 1—1
Wolves—Notts C 0-1
2.deild.
Blackburn—Middlesbro 1-0
Brighton—Grimsby 2—0
Cambridge—Leeds 2—2
Carlisle—Cardiff 1—1
Charlton—Newcastle 1—3
Chelsea—Fulham 4—0
Derby—C. Palace 3—0
Huddersfield—Bamsley 0—1
Oldham—Shrewsbury 0—1
Sheffield Wed.—Portsmouth 2—0
Swansea—Man. City 0-2
3. deild.
Blackpool—Bury 1—1
Chester—Hereford 0-1
Chesterfield—Hartlepool 4—1
Colchester—Tranmere 0-1
Crewe—Peterborough 0-1
Darlington—Torquay 0-1
Northampton—Halifax 1—1
Reading—Bristol City 2—0
Rochdale—Wrexham 1-2
Swindon—Aldershot Föstudagur 0-2
Stockport—Mansfield 0-4
4. deild.
Bolton—Gillingham 0—1
Bradford—Sheffield Utd. 2—1
Bristol R.—Bouraemouth 1—3
Exeter—Wigan 1—1
Newport—Buraley 1—0
Orient—Lincoln 1—1
Port Vale—Millwall fr.
Rotherham—Brentford 4—0
Scunthorpe—Plymouth 3-0
Walsall—Oxford 0-1
Wimbleton—Hull Föstudagur 1—4
Southend—Preston 1—1
Southampton átti í miklu basii meö
gesti sína frá Leicester er liðin áttust
við í skemmtilegum leik. GaryLiniker
náði forystu fyrir gestina, en Danny
Wallace jafnaði undir lok fyrri hálf-
leiksins. I síöari hálfleik náði Liniker
aftur forystu fyrir Leicester og virtist
það ætla að verða lokamarkið þegar
Steve Moran slapp í gegnum vöm
Leicester í lokin og tókst aö tryggja
Dýrlingunum annað stigið.
Coventry í fallhættu
Aston Villa sigraði Coventry sann-
gjarnt á Villa Park með mörkum
Brendan Ormsby og Paul Birch.
Coventry er nú komiö í fallhættu en
liðið hefur aöeins fengið 3 stig í síöustu
tólf leikjum.
Mark Falco náði forystunni fyrir
Tottenham í upphafi leiksins gegn
Sunderland en Colin West jafnaöi
skömmu síðar fyrir heimaliöið og þar
með var allt púður úr leiknum.
Leiöinlegustu leikir deildarinnar
vora háðir á Loftus Road og Moulineux
þar sem áttust viö QPR og Ipswich
annars vegar og Wolves og Notts
County hins vegar.
Clive Allen gerði eina mark fyrr-
nefnda leiksins í fyrri hálfleik og virð-
ist hann vera kominn á fullt skrið eftir
mikil meiðsli í vetur. Ipswich er hins
vegar að veröa eitt af lélegustu og leið-
inlegustu liðum deildarinnar, enda ekki
furða þegar liöiö tímir ekki að borga
bestu leikmönnunum þaö kaup sem
þeir eiga skilið.
Wolves getur fariö aö kyssa 1. deild-
ina bless eftir stutta veru. Þeir töpuöu
gegn ööram fallkandídötum, Notts
County í afspymuslökum leik á heima-
veiii Ulfanna. David Hunt gerði eina
markið í fyrri hálfleik.
Cambridge fallið
I annarri deild gerðist það helst
markvert aö Cambridge er svo gott
sem fallið í þriðju deild eftir 3—2 tap
gegn Leeds á heimavelli. Þettavarþó
líklega besti leikur liösins í háa herr-
ans tíð, en það hefur ekki unniö í síö-
ustu 32 leikjum.
Kevin Keegan kvaddi London meö
stæl, en hann lék sinn síðasta deildar-
leik þar er Newcastle heimsótti hiö
nýja félag, Charlton ’84, er stofnaö var
úr rústum og leifum Charlton Athletic
sem fór á hausinn fyrir skömmu. Þaö
leit út fyrir að um jafntefli yrði að ræða
en á þremur síöustu mínútunum skor-
uðu Terry McDermott og Peter
Beardsley mörk fyrir gestina. I fyrri
hálfieik haföi Kevin Dowman náö for-
ystu fyrir Charlton en Chris Waddle
jafnaði fyrir Newcastle.
Roy McFarland stýrði Derby í
fyrsta skiptið á laugardaginn og gerði
eigi færri en sjö- breytingar á liðinu.
Ein af þessum breytingum var Andy
Garner, 18 ára, og varö meira til bóta
en alit annað því að Gamer gerði öll
mörk Derby í 3—0 sigri yfir Crystal
Palace.
Stórsigur Chelsea
Chelsea sigraði Fulham öragglega í
uppgjöri Lundúnaliðanna. 4—0 var
lokatalan og Colin Lee, David Speedie
og Kerry Dixon 2 gerðu mörkin.
Sheffield Wednesday yfirspilaöi
Portsmouth svo illa að leikmenn síð-
amefnda liðsins gátu lítið annað gert
en að pakka saman í vörn. Þaö dugöi
lítið. Gary Shelton og Imrie Varadi
gerðu mörk Wednesday sem hefðu átt
aðverða fleiri.
Manchester City á enn veika von um
uppgöngu eftir 2—0 sigur gegn 3. deild-
arfóðrí Swansea. Steve Kinsey og
Derek Parlane gerðu mörkin.
Oxford efst
Oxford er nú svo gott sem búið að
tryggja sér sæti í annarri deild, vann
Walsall, 1—0, á útivelli með marki
Peter Rhodes-Brown. Liðin, sem berj-
ast um að fá að fylgja Oxford upp, eru
Sheffield Utd., Walsall, Wimbleton og
Hull. Huil sigraði Wimbleton öragg-
lega, 4—1, á útivelii, Sheff. Utd. tapaði,
2—1, á útivelli fyrir Bradford eftir aö
Keith Edwards hafði náö forystunni
fyrir þá í fyrri hálfleik.
STAÐAN
1. DEILD
Læti í Reading
I fjóröu deild hefur York örugga for-
ystu en Bristol C., Doncaster, Col-
chester og Aldershot glíma um þrjú
næstu sætin. Aödáendur Bristol C
gengu berserksgang er Reading náöi
2—0 forystu og þurfti Terry Cooper,
framkvstj. liðsins, að tala í hátalara-
kerfið og biðja þá um að hætta látun-
um, annars myndi hann gefa leikinn.
Hann fór jafnvel upp í stæðin til að tala
viö hina æstustu, en allt kom fyrir ekki.
Cooper gaf ekki leikinn, en hefði allt
eins getaö gert það þar sem liðið tapaði
2-0. SigA.
Aberdeen
með örugga
forystu
— vann Motherwell 2-1
Dundee United missti svo að segja
af möguleikanum á aö halda skoska
meistaratitlinum annað árið í röð er
liðið tapaði óvænt en sanngjarnt
gegn Hiberninan á útivelli.Willie
Jameson gerði markið. Aberdeen
átti í hinu mesta basli með Mother-
wcll, náði 2—0 forystu með mörkum
Mark Mcgee og Gordon Strachan.
John Raferty gerði eina mark
Motherwell í seinni hálfleik.
St. Johnstone, neösta liö úrvals-
deiidarinnar, átti í fullu tré við Celtic
sem nú er einu sæti, fjórum stigum á
eftir Aberdeen. Það hefur aö auki
leikið tveimurleikjummeiraþannig
að staða Aberdeen er feikisterk.
St. Mirren vann sinn fyrsta úti-
sigur í vetur gegn Dundee og var það
enginn smásigur, 5—2. Rangers og
Hearts gerðu markalaust jafntefli í
viðburðalausum leik í Glasgow.
SigA
Liverpool 34
Man. Utd. 34
Nott. For. 34
QPR 35
Southampton 33
West Ham 34
Arsenal 35
Aston Villa 35
Watford 35
Everton 33
Luton 35
Norwich 34
Leicester 35
Birmingham 35
WBA 34
Coventry 35
Sunderland 35
Stoke 35
Ipswich 35
Notts. C. 34
Wolves 34
20 9 5 59—24 69
19 10 5 64—33 67
18 6 10 58—36 60
17 6 12 54—31 57
16 8 9 41—32 56
16 7 11 53—44 55
15 6 14 61—50 51
14 9 12 51—51 51
14 6 15 61—67 48
12 11 10 32—34 47
13 8 14 45-51 47
12 10 12 42—38 46
11 11 13 57—57 44
12 8 15 35-39 44
12 6 16 40-52 42
10 10 15 46—55 40
9 12 14 34—47 39
10 8 17 33-58 38
10 6 19 41—51 36
8 9 17 41—60 33
5 9 20 25—65 24
2. DEILD
Chelsea 35
Sheffield Wed. 33
Newcastle 35
Manchester C. 35
Carlisie 35
Grimsby 34
Blackburn 35
Charlton 35
Brighton 35
Leeds 35
Shrewsbury 35
Portsmouth 35
Huddersfield 34
Cardiff 34
Barasley 34
Fulham 35
Middlesbro 35
C. Palace 34
Oldham 35
Derby 34
Swansea 35
Cambridge 35
19 12 4 73—37 69
20 9 4 62—29 69
21 6 8 70—46 69
18 8 9 54—39 62
16 13 6 41—24 61
16 11 7 51—40 59
15 13 7 47—38 58
15 9 11 46—49 54
14 8 13 57—49 50
13 9 13 45-47 48
12 10 13 36—45 46
13 5 17 60—50 44
11 11 12 42-41 44
13 4 17 45-52 43
12 6 16 49—46 42
10 12 13 48—46 42
10 10 15 35—40 40
9 10 15 33—43 37
10 7 18 39—61 37
8 8 18 31—61 32
5 7 23 29-68 22
2 10 23 25-67 16
hsim