Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1984, Page 30
30
DV. MANUDAGUR 9. APRIL1984.
A tvinnuleysisdraugur
inn enn á undanhaldi
Um mánaöamótin síöustu voru 9
færri á atvinnuleysisskrá en um
mánaöamótin febrúar-mars. Þá voru
254 einstaklingar skráöir atvinnulausir
en voru nú 245. Karlar voru 143 og
konur 102.
Sem fyrr eru verkamenn stærsti
hópur atvinnulausra karla, eöa 81. Bíl-
stjórar eru 17, trésmiöir 16 og úr
Félagi verslunar-og skrifstofufólks 11.
Atvinnulausar verkakonur töldust 73
og 24 voru úr Félagi verslunar- og
skrifstofufólks.
Heilir atvinnuleysisdagar í mars
voru 3911 en í febrúar voru þeir 4288.
Þessi fjöldi atvinnuleysisdaga í mars
svarar til þess aö 178 hafi veriö at-
vinnulausir allan mánuöinn. I febrúar
var samsvarandi tala 204.
„Skýringin á minnkandi atvinnu-
leysi er sú,” segir Haukur Torfason
hjá Vinnumiölunarskrifstofu Akureyr-
ar, „aö nokkrir hafa fengið vinnu hjá
Utgeröarfélaginu, í verksmiöjum
Sambandsins og einn og einn hjá
öörum fyrirtækjum í bænum.”
Haukur sagöi einnig aö þeir sem
misstu vinnuna þegar Hagi hf. hætti
hefðu flestir fengið vinnu aftur. Einnig
heföu nokkrir af þeim sem Smárinn hf.
sagöi upp þann 1. mars komist til ann-
arra fyrirtækja á Akureyri.
JBH/Akureyri
Flugleiðir ogSAS
opnanýjarleiðir
fyrir landkönnuði!
Framhaldsflug frá Kaupmannahöfn tækniundrinu, standa á Rauða to'rginu, kynnast könnun, sjá Flugleiðir um að flytja ykkur til
Ef þú ert landkönnuður sem stefnir í frumbyggjum Amazon-landsins eða telja bjór- Kaupmannahafnar, á almennu ferðamanna-
fjarlæga heimshluta er bæði fljótlegt og nota- krárnar í Munchen? - Þegar félög eins og gjaldi, eða á „SAGA CLASS", ef þú vilt lifa lúxuslífi
legt að fljúga með Flugleiðum til Kaupmanna- Flugleiðir og SAS leggjast á eitt, áttu vísa þægi- á leiðinni. Síðan getur þú verslað í fríhöfninni á
hafnar. Þar býður SAS þér framhaldsflug til lega og ógleymanlega ferð. Kastrup, áður en þú heldur áfram út i heim, í
áfangastaða um víða veröld. Ekkert flugfélag Enn á ný er borgin við sundið orðin dyr hinu þekkta EUROCLASS-farrými SAS-flugfélags-
flýgur til eins margra- áfangastaða frá Kaup- Islendinga að umheiminum. ins eða „First Business Class" farrými, t.d. til
mannahöfn og einmitt SAS. Það er næstum Singapore eða Tokyo.
sama hvað þig langar að kanna, Flugleiðir og „EUROCLASS" og „SAGA CLASS":
SAS gera þér það fært. Langar þig að Ijúka upp Vellíðan á ferðalögum Flugleiðir og SAS veita þér óteljandi ferða-
leyndardómum Austurlanda, átta þig ájapanska Þegar þú og þínir halda af stað í land- tækifæri!
FLUGLEIDIR
Gott fólkhjá traustu félagi
Æ/S4S
„Airline of the year"
Kaupfélag Saurbæinga
á Skriðulandi:
Konatekur
við kaup-
félaginu
Margrét Jóhannsdóttir hefur verið
ráöin kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Saurbæinga á SkriöuiandL Margrét lauk
verslunarix-ófi frá VI áriö 78 og stúdents-
prófi á viðskiptabraut frá Fjölbrauta-
skólanum á Akranesi í fyrra. A náms-
árunum starfaöi hún m.a. hjá Búnaöar-
bankanum í Búðardal, hjá útibúi Kaup-
félags Borg&röinga á Akranesi og hjá úti-
búi Samvinnubankans á AkranesL Hún er
gift Siguröi Jónssyni búfræöingi og eiga
þautvosyni.
Ulfar Reynisson, sem gegndi þessu
starfi, flytur nú til Reykjavíkur og
tekur viö forstööu kjötiðnaöarstöövar
búvörudeildar Sambandsins.
-GS.
Hrefna ekki
lengurvinsæl
íJapan
Þaö viröist svo sem Japanir séu al-
mennt að draga mjög úr hvalkjöts-
neyslu og er þaö aö einhverju leyti
rakiö til umræöna um hvalveiðibann
og framkvæmd þess í áföngum.
Að sögn Kára Snorrasonar, fram-
kvæmdastjóra Særúnar á Blönduósi,
fer verö fyrir hrefnukjöt þannig ört
lækkandi. Fyrirtækiö hefur veitt og
verkaö hrefnu í þó nokkur ár og hef jast
veiöar 20. maí. Þeim lýkur í ágústlok
og tekur fulltrúi japönsku kaupend-
anna ávallt þátt í vinnslunni hér.
Þrátt fyrir lækkandi verö bjóst Kári
viö aö reynt yrði aö veiöa meö
venjulegum hætti þessa vertíö enda
heföu 8 til 9 manns atvinnu af vinnsl-
unni og þrír s jómenn.
-GS.
Leiklistarviðburður í
Norræna húsinu
íÞórshöfn:
Brúðuheimilið
átveimur
tungumálum
Frá Eðvarð T. Jónssyni, fréttaritara
DVíFæreyjum:
Ovenjulegur leiklistarviöburöur
veröur í Norræna húsinu í Þórshöfn á
föstudaginn kemur en þá veröur
„Brúðuheimili” Ibsens frumsýnt á
tveimur tungumálum, íslensku og fær-
eysku.
Sveinn Einarsson er leikstjóri
Brúöuheimilisins og átti hann hug-
myndina aö þessu samstarfi íslenskra
og færeyskra leikara. Segir hann aö
þeir hafi m.a. viljaö sýna fram á hve
líkmálintvöeru.
Jens Pauli Heinesen rithöfundur
hefur þýtt færeyska texta leikritsins en
Sveinn Einarsson þann íslenska.
Leikararnir Borgar Garöarsson og
Pétur Einarsson fara meö hlutverk
Krogsteds og Helmers en færeyskir
leikarar skipa önnur hlutverk.
Ljósameistari er íslenskur en fær-
eyski listamaöurinn Trándur Paturson
geröi leiktjöld.
-FRI
Húsaleigan
hækkarum6,5%
I framhaldi af launahækkunum
nýlega hækkaöi húsaleiga um 6,5% um
síöustu mánaöamót. Gildir húsaleiga
svo breytt út júní. Þetta á við um
íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði
samkvæmt ákvæöi í bráðabirgðalög-
um frá í f yrravor.
Hagstofan reiknar út hækkanir húsa-
leigunnar fjórum sinnum á ári fyrir
næstu þrjá mánuöi hverju sinni.
Byggjast útreikningamir á hlutfalls-
legum meöalbreytingum launa næstu
þrjá mánuði á undan.
HERB