Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1984, Síða 40
40
DV. MÁNUDAGUR 9. APRIL1984.
í gærkvöldi____________í gærkvöldi
GÓÐHELGI
Dagskrá blessaöra ríkisfjölmiðl-
anna var til sóma um helgina og hafi
þeir þökk fyrir.
1 öll þau skipti sem ég hafði tíma
til að líta upp frá bakstri og skúring-
um var af bragðsefni á skjánum.
Á laugardaginn var Við feöginin
meö allra besta móti. Einkenni á
bresku gamanþáttunum sem alltaf
eru sýndir öðru hverju er raunar að
maður er oftast oröinn nokkuð
ánægður með þá í fimmta þætti eða
svo. Bleiki pardusinn, sem ég hafði
séö tvisvar áður, brást ekki fremur
venju. Tólf ruddar sem var síðast á
dagskrá á laugardagskvöld, og ég
hafði ekki séö nema einu sinni áöur,
fannst mér hins vegar ómerkilegur
stríðsáróöur. Um það hvernig
nokkrir harðir naglar væru þjálfaðir
til að sprengja mann og annan. Fí.
Ekki tók slorlegra viö í sjónvarp-
inu á sunnudagskvöld: Nikulás
Nickleby. Það er mjög gaman að
sögunni (sem á áreiðanlega eftir að
enda með því aö einhver reynist stór-
ættaður og svo í framhaldi af því
hamingja til æviloka). Egsáhlutaaf
þætti um píanóleikarann Oscar Pet-
erson í dagskrárlok. Þar lék Nils
Henning frændi okkar á bassa. Mér
heföi fundist þátturinn betri meö
meirijassiogminnakjaftæði. Hljóö-
færiö er nú einu sinni sá tjáningar-
miðill sem hljóðfæraleikarinn hefur
valið sér og þá er engin ástæöa til að
ætla annaö en aö hann komi sínum
hugmyndum og viöhorfum best til
skila með því.
Það litla sem ég heyrði í útvarpi
um helgina var svo sem ekki slæmt
heldur. Eg heyrði brot af Listalífi,
Ut og suður og I dægurlandi. Þetta
eru allt þættir sem oft eru meö mjög
góöu efni. Þegar ég skoða útvarps-
dagskrána um helgina í blaði sé ég
marga fasta þætti í viöbót sem geta
verið skemmtilegir. Þar má nefna
Fyrir minnihlutann, Listapopp, Vik-
an sem var og Nýjustu fréttir af
Njálu sem dæmi. I útvarpsdag-
skránni má líka finna ýmislegt sem
ég treysti mér með góðri samvisku
til að slökkva á. Ég nefni: Fritz
Wunderlich syngur lög úr óperettum,
Forleik nr. 3 í G-dúr eftir Thomas
Arne og svo framvegis.
Ef ég hefði ríkan áhuga á tónlist af
þessu tagi myndi ég áreiðanlega
nota hljómflutningstækin mín og
finna mér friðsæla kvöldstund til aö
hlusta á hana óáreittur. Fordóma-
laus maður sem ég er læt ég þó þessa
viðleitni Ríkisútvarpsins til tónlist-
aruppeldis óáreitta og vona að hún
hitti og þroski einhverja samlanda.
Utvarpsmessur hafa ávallt veriö
eitt leiöinlegasta efni sem ég hlýði á í
útvarpi. Skiptir þar engu máli hver
talar eða syngur. Má vera að þetta
tengist viðbremidu sunnudagslæri
frá æskudögunum — ég er ekki alveg
viss hver skýringin kann að vera.
Hitt er víst aö ég slekk alltaf á mess-
unni ef ég kemst í færi við útvarpið.
Sigurður G. Valgeirsson.
Andlát
Kristinn Friðriksson, Eikjuvogi 1,
Reykjavík verður jarösunginn frá
Fossvogskapellu þriöjudaginn 10. apríl
kl. 13.30.
Björgvin Benediktsson prentari, Skeiö-
arvogi 121, verður jarösunginn frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík miövikudaginn
11. aprdkl. 13.30.
Þorgeir P. Eyjólfsson, Lokastíg 24 A,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju þriðjudaginn 10. apríl kl. 15.00.
Björn Olafsson, fyrrverandi konsert-
meistari, verður jarðsunginn frá Dóm-
kirkjunni þriðjudaginn 10. apríl kl.
13.30.
Tónleikar hjá
Tónlistarskóianum í
Reykjavík
Tónlistarskólinn í Reykjavík heldur tvenna
tónleika í næstu viku. A fyrri tónleikunum,
þriðjudaginn 10. apríl, leikur Sólveig Anna
Jónsdóttir á píanó verk eftir Schubert, J. S.
Bach, Chopin og Messiaen.
Miðvikudaginn 11. apríl leikur Bryndís
Halla Gylfadóttir á selló verk eftir J.S. Bach,
Beethoven, Hafliða Hallgrímsson og Sjosta-
kovitsj. Dagný Björgvinsdóttir leikur með á
píanó.
Þetta er fyrri hluti einleikaraprófs Sól-
veigar Önnu og Bryndísar Höllu. Tónleikarnir
hefjast báöir kl. 7. Aögangur er ókeypis og öll-
um heimill.
Tónleikar í Borgarnesi
Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari og
Sigurður Ingvi Snorrason klarinettuleikari
halda tónleika í Borgarnesi næstkomandi
miðvikudag, 11. apríl, kl. 17.15. Tónleikarnir
eru haldnir á vegum Tónlistarskóla Borgar-
ness. A efnisskránni eru verk frá ýmsum
tímabilum, allt frá Loillet til Þorkels Sigur-
björnssonar. Auk verka fyrir klarínettu og
píanó mun Bjöm Leifsson, skólastjóri tón-
listarskóla staðarins, bætast í hópinn í
klarínettudúett eftir Crusell. Tónleikarnir
fara fram í kirkjunni og hefjast eins og áður
sagöikl. 17.15.
Tónleikar í Djúpinu
Næstkomandi sunnudagskvöld heldur hljóm-
sveitin Hrím tónleika í Djúpinuog hefjast þeir
klukkan21.
Hljómsveitin leikur þjóðlög frá ýmsum
löndum og þar á meöal fjöruga þjóðlaga-
tónlist frá Skotlandi og Irlandi.
Einnig leikur hljómsveitin frumsamda
tónlist.
Tilkynningar
Náttúrufræðistofa Kópavogs
Opið á miðvikudögum og laugardögum frá
kl. 13.30-16.
Frá Rannsóknastofnun
uppeldismála
Andri Isaksson prófessor flytur erindi í
Kennaraskólanum við Laufásveg þríðju-
daginn 10. apríl kl. 16.30. Erindið nefnist:
„Rannsóknir á námi ogkennslu".
Fjallað verður um markmið, viðfangefni,
aðferðir og kenningar í námsskrárrannsókn-
um og námsskrárfræöum. Sérstaklega verð-
ur rætt um vandkvæði sem við er að et ja í slik-
um rannsóknum og færð rök fyrir ákveðinni
stefnumörkun þar að lútandi.
Öllum heimill aðgangur.
Námskeið
Námskeið í frönsku og franskri menningu
fyrir kennara og fyrirsvarsmenn æskulýðs-
samtaka.
— Ef þú ert á aldrinum 20 til 45 ára.
— Ef þú hefur ábyrgöarhlutverki að gegna
í æskulýðssamtökum einhvers konar eða ef þú
hefur umsjón með kennslu eða tómstundar-
starfi utan við hið eiginlega skólakerfi eða þá
ef þú kennír við öldungadeild og ef þú talar
þegar dálítiö frönsku þá stendur þér til boða
aö taka þátt þér að kostnaðarlausu, í nám-
skeiði í frönsku og franskri menningu sem
sérstaklega er skipulagt fyrir þig.
Námskeiöið fer fram frá 24. maí til 19. júni
næstkomandi í Cannes við Miðjarðarhafs-
strönd Frakklands, 35 þátttakendur frá 20
löndum munu þar koma saman. A námskeið-
inu verður veitt kennsla í frönsku með hjálp
nýsigagna (adiovisuel) auk samræðutima
og einnig verða fundir og umræður um
franskt þjóðféiag nú á dögum, um féiagsstarf
fullorðinsfræðslu, nýjungar í tómstunda-
starfi, um félagasamtök og alþjóöleg mót
æskufólkso.s.frv.
Menningarferðir, skoðunarferðir, fundir
með frönskum starfsbræðrum verða einnig á
,dagskrá.
Ekki hefur gleymst aðskipuleggja frítím-
ann: þar er fyrst að nefna ströndina að sjálf-
sögðu, tennis, hjólreiðaferðir og fleira.
Sérhver þátttakandi mun þurfa að skipu-
leggja eina kvöldskemmtun þar sem hann á
að kynna fyrir hinum þátttakendunum land
sitt og þjóð.
Námskeiðið, gistrng, fæði og skipulagðar
skemmtanir eru þátttakendum algjörlega að
kostnaðarlausu en ferðakostnað til Antibes
greiða þeir sjálfir eða þau félagasamtök er
þeirtilheyra.
Þeir sem áhuga haf a eru beðnir að snúa sér
hið allra fyrsta til menningardeildar franska
sendiráðsins, Túngötu 22, því umsókn þarf aö
berast fyrir fimmtudagmn 5. apríl.
Gert er ráð fyrir þátttöku tveggja
Islendinga í námskeiði þessu. Til að afla nán-
ari upplýsinga skal hringt í síma 17621 eöa
17622.
Iðnnemasamband íslands
vill koma því á framfæri að í dreifiriti er félag
hárgreiðslu- og hárskeranema gaf út um bar-
áttu sina fyrir bættum kjörum kom fram að
hárskerameistarar væru aðilar aö VSf og
hefðu fellt samkomulag það er kvaö á um lág-
markslaun á milli ASl og VSl.
Það skal tekið fram að hárskerameistarar
eru ekki aðilar innan VSl og náði því
samningurinn um lágmarkslaunin ekki til
þeirra.
Iðnnemasambandiö harmar þessi mistök
•en bendir jafnframt á aö ekki hafa verið und-
irritaöir samningar um kjör hárskeranema
siöan 1980 og þeir samningar sem í gildi eru i
dag ná ekki lágmarkslaunum þeim sem sam-
ið var um milii ASÍ og VSl.
Skák
Firmakeppni í skák
Akveðið hefur verið að UlA gangist fyrir
firmakeppni í skák föstudaginn 20. apríl
(föstudaginn langa.) Mótið fer fram í Vala-
skjálf á Egilsstöðum og hefst kl. 13 og ska!
keppt í formi hraðskákar.
Þetta er í annað sinn sem slíkt mót fer
fram, en á síðustu páskum var fyrsta mótið
af þessu tagi haldið í Neskaupstaö og þótti
takast mjög vel.
Því hefur verið ákveðið að reyna aftur og
gera þetta að árlegum atburði.
Þátttökugjald frá hverju firma verður kr.
1000,-
Fyrirtæki eiga þess kost að tilnefna
keppendur, en þau sem það ekki gera fá
valda keppcndur eftir útdrætti, og þá helst
úr viðkomandi byggðarlögum.
Forystumönnum í skákh'fi í hverju
byggðarlagi veröur falið að safna skákfólki.
Sömuleiðis verður stofnunum safnað á
hverjum stað í samráði við framkvæmda-
stjóra UlA.
Athugað verður með rútuferöir frá Nes-
kaupstað og Fáskrúðsfirði til Egilsstaða til
aö auövelda mönnum þátttökuna. .. SKAK.
Ferðalög
Ferðir Ferðafélagsins
um bænadaga og páska
1. 19.-23. apríl, kl. 08.00; Skíðaganga að
Hlöðuvöllum (5 dagar). Gist í sæluhúsi
Ferðafélagsins.
2. 19.-23. apríl, kl. 08.00: Skíðaganga,
Fljótshlíð-Alftavatn-Þórsmörk (5 dagar).
Gist í húsum.
3. 19.-23. apríl, kl. 08.00: Snæfellsnes-
Snæfellsjökull (5 dagar). Gist í húsinu
Amarfelli á Arnarstapa.
4. 19.-23. apríl, kl 08.00: Þórsmörk (5
dagar). Gist í sæluhúsi Fl.
5. 21.-23. apríl, kl. 08.00: Þórsmörk (3
dagar). Gist í sæluhúsi Fl.
Tryggið ykkur farmiða tímanlega. Allar
upplýsingar á skrifstofu Ferðafélagsins,
úldugötu 3.
Fundir
Fundarboð
Fræðafundur í Hrnu islenska sjóréttarfélagi
verður haldinn miðvikudaginn 11. apríl nk. kl.
17 í stofu 103 í Lögbergi, húsi LagadeildarHá-
skólans.
Fundarefni: Einar Öm Thorlaeius lög-
fræðingur flytur erindi er hann nefnir: „Um
stöðuumboð skipstjóra”. Að loknu framsögu-
erindi verða almennar umræður.
Fundurinn er öllum oprnn og eru félags-
menn og aörir áhugamenn um sjórétt og sigl-
ingamálefni hvattir til að fjölmenna.
Siglingar
Áætlun Akraborgar
Frá Akranesi ~ Frá Reykiavík
Kl. 8.30 Kl. 10.00
Kl. 11.30 Kl. 13.00
Kl. 14.30 Kl. 16.00
Kl. 17.30 Kl. 19.00
GAUTABORG: HULL/GOOLE:
Francop.... . 10/4 Jan ..2/4
Francop.... . 24/4 Jan .16/4
Francop.... ..8/5 Jan .30/4
Francop.... . 22/5 Jan .14/5.
KAUPMANNA-
HÖFN: ROTTERDAM:
Francop.... . 11/4 Jan ..3/4
Francop.... .25/4 Jan .17/4
Francop.... ..9/5 Jan ..1/5
Francop.... .23/5 Jan .15/5
SVENDBORG: ANTWERPEN:
Francop.... .12/4 Jan ..4/4
Francop.... .26/4 Jan .17/4
Francop.... .10/5 Jan ..2/5
Francop.... .24/5 Jan .16/5
AARHUS:
Francop.... .13/4 HAMBURG:
Francop.... .27/4 Jan ..6/4
Francop.... .11/5 Jan .19/4
Francop.... .25/5 Jan ..4/5
Jan .18/5
FALKENBERG:
HelgafeU ... . 12/4
Mælifell.... .25/4 HELSINKI/TU-
HelgafeU ... .10/5 RKU:
HvassafeU.. .25/4
GLAOUCESTER, HvassafeU.. .20/5
MASS.:
JökulfeU.... .13/4
SkaftafeU... .25/4 LARVIK:
Francop ,.9/4
HALIFAX, Francop .23/4
CANADA: Francop ..7/5
SkaftafeU... .26/4 Francop.... .21/5
Minningarspjöld
Sölustaðir minningarkorta
Hjartaverndar
Reykjavík:
Skrifstofa Hjartavemdar, Lágmúla 9,3. hæð.
Reykjavíkurapótek, Austurstræti 16,
Skrifstofa DAS, Hrafnistu,
Dvalarheúnili aldraðra, Lönguhlíð,
1 Garðsapótek, Sogavegi 108,
Bókabúöin Embla, Völvufelli 21,
Arbæjarapótek, Hraunbæ 102 a,
Bókabúð Glæsibæjar, Alfheúnum 74,
Vesturbæjarapótek, Melhaga 20—22,
Kirkjufell, Klapparstíg 27.
Hafnarfjörður:
Bókabúö Olivers Steins, Strandgötu 31,
Sparisjóöur Hafnarfjarðar, Strandgötu 8—10.
Keflavík:
Rammar og gler, Sólvallagötu 11,
Samvinnubankinn, Hafnargötu 62.
Kópavogur:
Kópavogsapótek, Hamraborg 11.
Akranes:
Hjá Sveini Guðmundssyni, Jaðarsbraut 3,
og Kristjáni Sveinssyni, Samvúmubankan-
um.
ísafjörður:
Póstur og sími.
Siglufjörður:
Verslunin ögn.
Minningarkort Barnaspítala
Hringsins fást á eftirtöldum
stöðum:
Versl. Geysú- hf., Aðalstræti 2.
Jóhannes Norðfjörð hf., Hverfisgötu 49.
Bókabúð Olivers Steins, Strandgötu 31 Hf.
Bókaversl. Snæbjarnar, Hafnarstr. 4 og 9.
Bókabúðúi Bók, Miklubraut68.
Bókhlaðan, Glæsibæ.
Versl. EUingsen hf., Ananaustum, Grandag.
Bókaútgáfan Iðunn, Bræðraborgarst. 16.
Kópavogsapótek.
Háaleitisapótek.
Vesturbæjarapótek.
Garðsapótek.
Lyf jabúð Breiðholts.
Heildversl. Júliusar Sveinbjörnss., Garðastr.
6.
Mosfells Apótek.
Æfingatímar
Golfklúbbur Reykjavíkur hefur fengið að-
stöðu til inniæfinga í Tranavogi 1. Hefur þar
verið komið fyrir netum til aö slá í og sett upp
lítil púttbraut.
Aðgangur verður ókeypis en kylfingar
þurfa sjálfir að koma með bolta og kylfur.
Opið verður þriðjudaga og fúnmtudaga frá kl.
16—22, laugardaga kl. 10—16 og sunnudaga kl.
13-19.
Orðrómurum
Aidsíbænum:
„Kjaftæði”
— segir aðstodar-
landlæknir
Þrálátur orörómur gengur í bænum
aö Aids-tilfelli sé komið upp hér og
liggi kynvilltur maöur á spítala vegna
þess.
„Þetta er algjört kjaftæöi og viö
erum búnir að hrekja þetta þrisvar,”
sagði Guöjón Magnússon
aðstoöarlandlæknir í samtali viö DV.
„Ef svona tilfelli kæmi á annað borö
upp mundum viö fyrstir vita af því og
viö erum meö ákveðið prógramm til aö
bregöast viðslíku.”
-FRI.
Bix Beiderbeckí
Norræna húsinu
A mánudagskvöld veröur kanadíska
heimildarkvikmyndin um Bix Beider-
beck endursýnd í Norræna húsinu, en
hún var sýnd þar í mars á vegum kvik-
myndaklúbbsins Norðurljóss. Þaö er
Jazzvakning og jassdeild Tónlistar-
skóla FIH sem standa að sýningunni.
Bix Beiderbeck var fyrsti hvíti jass-
leikarinn sem talinn er í hópi
snillinganna. Hann lést aöeins 28 ára
gamall. Hann lék meö frægum stór-
sveitum, svo sem sveit Paul White-
mans, en þótti þó njóta sín best í
smærri hljómsveitum, sérlega þegar
hann lék meö vini sínum saxófón-
leikaranum Franki Traumbauers.
I myndinni er spjallaö viö vini og
ættingja Bix, verk hans leikin og
sýndur eini filmubúturinn sem til er af
honum. Meðal þeirra sem koma fram
eru Hoagy Charmichael, Jess Stacy og
ArtieShaw.
Sýningin hefst kl. 20.00 og aðgangur
er ókeypis.
Dómur í
Skaftamálinu
í vikunni
Dóms í Skaftamálinu svokallaöa er
aö vænta í þessari viku en Sverrir
Einarsson sakadómari, sem fer meö
málið, sagöi í samtali viö DV aö senni-
lega kæmi dómurinn um miöja vikuna.
Tæpar tvær vikur eru síðan mál-
flutnmgi lauk í málinu fyrir Sakadómi.
-FRI.
BELLA
Hvað er þetta, rauð vítamíntafla?
Þá er það varahnappurinn í rauðu
peysuna mina sem ég hef verið að
stinga upp í mig.
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur veriö í Lögbbl. á fasteigninni Heiöarbraut 3C í
Keflavík, þingl. eign Guðbjöms Bjarnasonar, fer fram á eigninni
sjálfri að kröfu Veðdeildar Landsbanka íslands og Vilhj. Þórhalls-
sonar hrl. fimmtudaginn 12.4.1984 kl. 10.15.
Bæjarfógetinn í Keflavík.