Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1984, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1984, Side 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR 24. APRIL1984. 5 FISKIÐJAN FREYJA, SUÐUREYRI: Spennuástand vegna uppsagna og „skilningsskorts fyrirtækisins” —segir formaður verkalýðsfélagsins „Þaö er mikil spenna i loftinu, bæöi í fiskiöjunni Freyju og meðal íbúa þorpsins vegna uppsagna og þeirrar stefnu sem fiskiöjan hefur markaö og fólki finnst ekki taka nægilegt mið af hagsmunum Suður- eyrar,” sagöi Sveinbjöm Jónsson, formaöur verkalýösfélagsins á staönum, í samtali viö DV. Hjá fiskiðjunni Freyju starfa rúm- lega 100 manns en fastráönir eru 15. Þá er 13 manna áhöfn á 200 tonna línubát Freyju, Sigurvon, og 17 á tog- ara fyrirtækisins, Elínu Þorbjamar- dóttur. Nýlega var þremur vélstjór- um sagt upp og 4 skrifstofumönnum. Hafði DV spurnir af því aö allt logaði í illdeilum í fiskiöjunni og hluti starfsfólks ihugaði að ganga út í mótmælaskyni við framkomu stjórnar Freyju viö suma starfs- menn. Samband íslenskra samvinnufélaga er einn stærsti hlut- hafinn í Freyju en SlS geröist hlut- hafi fyrir u.þ.b. tveimur árum og jókst þá jafnframt hlutur hreppsins í fyrirtækinu. En samkvæmt upplýsingum DV er Freyja mjög skuldug, skuldar m.a. 2 milljónir í lífeyrissjóö verkafólks, milljón í sjóði verkalýösfélagsins og 4 milljón- ir til hreppsfélagsins. Þykir því meöferðin á verkafólkinu enn verri fyrir vikiö,að mati heimildarmanna DV. Formaöur verkalýðsfélagsins á Suðureyri segir aö samkomulag þorpsbúa og fyrirtækisins, sem er þaö stærsta á Suöureyri, hafi veriö nokkuð stirt undanfarin tvö ár eftir aö eignaskiptin uröu. Á Suðureyri búa um 500 manns og afkoma fyrir- tækisins og þorpsins eru nátengd. Sagöi Sveinbjöm m.a. aö þaö kæmi illa út fyrir sveitarfélagiö ef skulda- stööu fyrirtækisins væri haldið svona yfir sumarmánuðina sem væru eini raunhæfi framkvæmdartími til upp- byggingar í þorpinu. „Nýlega tók hreppurinn veö í skreið fyrirtækisins fyrir skuldum,” sagöi Sveinbjöm Jónsson. Sagöi Sveinbjöm aö verka- lýðsfélagið væri nú aö reyna aö efla skilning fyrirtækisins og eigenda þess á tengslum fiskiðjunnar við þorpiö og hagsmuni þess. Nefndi Sveinbjöm fiskkaup sem dæmi um þaö hvemig hagsmunir stönguöust á eöa skilningsskort fyrirtækisins viö þarfir þorpsbúa. Heföi fiskiðjan verið mjög treg aö kaupa steinbít eöa sagt smábátaeigendum aö þeir ættu ekki aö róa þegar steinbítur hylur öll miö, eins og Sveinbjörn orðaði það. Sagöi Sveinbjörn að við lægi aö slík stefna flokkaðist undir fyrirbyggj- andi aðgerö til aö stemma stigu viö hugsanlegri samkeppni af hálfu smábáta. hþ íslandsmeistararnir i bridge 1984, sveit Jóns Hjaltasonar, (lengst til vinstril en aðrir i sveitinni eru Simon Simonarson, Jón Ásbjöms- son og Hörður Arnþórsson. A myndina vantar Þóri Sigurðsson. D V-mynd G VA. íslands- mótiðíbridge: Sveit Jóns Hjaltason- ar sigraði Sveit Jóns Hjaltasonar sigraöi á Islandsmótinu í bridge sem háö var á Hótel Loftleiðum í páska- vikunni. Hlaut sveitin 115 stig en í ööru sæti varö sveit Runólfs Pálssoriar meö 93 stig og þriöja sæti náöi sveit Þórar- ins Sigþórssonar, einnig meö 93 stig. Sveit Jóns skipa þeir Jón Hjaltason, Höröur Arnþórsson, Jón Asbjömsson, Simon Símonarson og Þórir Sigurðs- son. Þeir leiddu mótið frá byrjun og var sigur þeirra aldrei í verulegri hættu. Tvísýnasta augnablikiö í mótinu var ef til vill á föstudaginn langa en þá tapaði sveit Jóns fyrir sveit Þórarins (7—13) og átti sveit Runólfs þá möguleika á aö ná efsta sætinu en hún tapaði einnig sinum leik í þeirri umferö (4—16) og eftirleikur- inn var auðveldur fyrir sveit Jóns. Ásmundur Pálsson, margfaldur íslandsmeistari i bridge, og Ragnar Hall- dórsson, forstjóri ÍSÁL, fylgjast með Þórarni Sigþórssyni i einu spilanna. -FRI DV-mynd GVA. HLUTABRÉF RÍKIS- INS í IÐNAÐAR- BANKANUM A ÞRE- FÖLDU NAFNVERDI Sverrir Hermannsson iönaöarráö- herra hefur sent öllum hluthöfum Iönaöarbankans tilkynningu um að þeir eigi forkaupsrétt aö hlutafé ríkis- ins í bankanum fram til 1. júní næst- komandi. Eftir þann tíma veröur hlutaféö boöiö til sölu á almennum markaði. Ríkissjóöur á nú 27% af hlutafé bankans og ætlað er aö selja þann hlut á 32 milljónir króna sem er þrefalt nafnverö hlutabréfanna. Aö sögn Braga Hannessonar, bankastjóra Iðnaðarbankans, hefur töluvert veriö selt af hlutabréfum í bankanum aö undanförnu og hafa þau þá gengið á tvöföldu nafnveröi. Rikissjóöur býöur hlutabréfin á hærra veröi þar sem hann lánar hluta þeirra til langs tíma. Kaupendur þurfa aö greiöa 25% í upphafi og síöan 25% á næstu níu mánuðum en eftirstöövarnar eru lánaöar meö vöxtum og fullri verö- tryggingu til þriggja ára. Stjórnarflokkamir hafa samþykkt sölu hlutabréfanna en frumvarp þess efnis veröur lagt fram á Alþingi á næstu dögum. -ÓEF Sumarid er byrjad, eda svo segir almanakid ad minnsta kosti. Sumardagurinn fyrsti var ó skírdag. Vonandi nœr sumarid smrím saman yfirhöndinni af Vetri konungi en ekki er víst ad hann hafi sagt sitt sídasta ord. Myndin var tekin af skrúdgöngu á sumardaginn fyrsta, en hún fór nidur Bankastradid i Reykjavik. Skátar fóru fyrir med islenska fána. DV-mynd Bjarnleifur. LITMYIMDIR SAMDÆGURS FILMAN INN FYRIR KL. 11. MYNDIRNAR TILBÚNAR KL. 17. Athugið, opnum kl. 8.30 alla virka daga. Opið á laugardögum kl. 9—12. luRtxaou POXDXECCI Lmunnmim LJOSMYNDAÞJONUSTAN HF LAUGAVEGI 178-P.O. BOX 5211-125 REYKJAVIK fmnmmmfmmnimiT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.