Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1984, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1984, Side 16
16 DV. ÞRn53UDAGDR2írAPRim9lí4: Spurningin Stundarðu hestamennsku? Finnbogi Bjarnason: Eg hef nú ekki komiö á hestbak í ein 40 ár og hef lítinn áhuga á því. Ragnheiður Jónsdóttir: Nei, ég geri það ekki. En ég kom stundum á hest- baksemkrakki. Guðbjörg Ingimundardóttir: Já, ég hef oft komiö á hestbak. Vinkonur minar eiga hesta og ég fer oft meö þeim. Fjalar Sigurjónsson: Nei, það gerí ég. ekki. Þetta eru nú samt ágætis skepnur. Ragna Gunnarsdóttir: Það er komið eitt og hálft ár síðan ég kom á hestbak. Eg hef nú h'tinn áhuga á aö fara að stunda hestamennsku. Helgi Indriðason rafvirkjameistari: Já, ég fer á hestbak á hverjum degi ef. ég get. Eg á eina sex hesta sjálfur. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur sleða- manna Ariskrifar: Heldur finnst mér kátbroslegar yfirlýsingar sleöamanna um aö allt hafi nú verið í stakasta lagi hjá þeim þama uppi í einskismannslandi. Þaö þarf ekki gáfaöan mann til aö sjá að þegar maður liggur undir vél- sleða sinum í tvo tíma í vonskuveöri hefur allt ekki verið í lagi. Einn sagði í bréfi í gær að hann hafi vitaö að allt myndi bjargast með manninn sem saknaö var. Mikil er grunnhyggni þessa manns. Ölvun undir stýri er ekki eínkamái þess ölveða. Krístindómsfræðsla i Stundinni okkar Dísaskrifar: Vegna greinar Svanhildar Oskars- dóttur á lesendasíöu þann 12. apríl sl. Hún setur sig þar upp á móti kristin- dómsfræðslu í Stundinni okkar. Ég held að það sé rétt að miðla börn- um okkar sem mest um kristnifræðslu og er Stundin okkar einmitt besti tíminn til þess. Meirihluti þjóöarinnar er nú einu sinni í þjóökirkjunni. Krónur og aurar Dísa skrifar: unnar. Afnemum þessa aura, þeir eru Ægilega leiðast mér þessir aurar. svo litlir aö þeir eru ekki þess virði að Þeir eru að verða eins og flotkrónan verameðþáívasanum. sem fyrir rest sökk í hafsjó verðbólg- ÖLVUN VIÐ AKSTUR — ekki einkamál Tvær að norðan skrifa: Fyrir nokkrum árum lásum við grein í Vísi sem lögreglumaður skrif- aði, þessi grein snart okkur mjög djúpt. I greininni, sem var á lesenda- síöu, sagði frá drykkjumanni sem fyrrnefndur lögreglumaður haföi af- skipti af. Þessi maöur baö lögreglu- manninn aö segja sem flestum þessa sögu, en hún er á þessa leiö: Vel stæð hjón vantaði eitthvað úr verslun á sunnudagsmorgni. Konan ákvaö aö ganga út í búð því að veðrið var gott. Eiginmaður hennar sá stuttu seinna hvar ölvaður nágranni þeirra settist undir stýri en stöðvaði hann ekki því að hann vildi ekki vera afskiptasamur nágranni. Drukkni maðurinn ók burt. Nokkru seinna fór maðurínn að undrast hvað kona hans var lengi í búðinni. En þá hringir síminn og hann er beöinn aö koma á sjúkrahús, þar er honum sagt að konan hans hafi látist í bílslysi. Það var drukkni nágranninn sem hafði keyrt á hana. Maöurínn ásakaöi sjálfan sig fyrir þetta því að hann stoppaöi ekki nágrannann. Hann fór aö drekka og fannst að lokum látinn einhvers staðar. Viö vonum að þið skiljiö hvaöa grein við eigum við. Jón Pálsson skrifar: Eg má til með að minnast á hvað stundin okkar er orðin góð. Hún Ása er svo glettin en samt hlý í viðmóti. Og þátturinn er uppbyggður af svo mörgum ólíkum atríöum. Mikil vinna er greinilega lögð í hvern þátt. Fyrir hönd Magneu Jónsdóttur, 10 ára. „Svokölluð bindindishreyfing” — vegna umsagnar Stefáns Benediktssonar um bindindishreyf inguna Halldór frá Klrkjubóli skrifar: Stefán Benediktsson alþm. segir í DV7. aprílsl.: „Hér á landi hefur starfað svoköll- uö bindindishreyfing og fengiö litlu áorkað, enda leggur hún höfuð- áherslu á boð og bönn”. Hér hefur það hent alþm. að tala um það sem hann veit bersýnilega ekki hvað er. Bindíndishreyfingin er félags- skapur manna sem ekki neyta áfengis eöa veita þaö. Um boð og bönn í sambandi við það er sennilega svipað aö segja og gilda mun í Bandalagi jafnaöarmanna er miöað er við að það hafi stefnu og stefnu- skrá. Starfsemi bindindishreyfingar- innar er tvíþætt. Annars vegar er fræðsla sem kalla má bindindis- boöun. Það er túlkun þeirrar lífs- skoðunar aö farsælast og drengileg- ast sé að hafna allri vímuefnaneyslu þar sem hún er hættulegur óþarfi og stórkostlegt þjóðarböl þar sem hún kemst í tísku. Fordæmiö hefur áhrif. Hins vegar er svo félagslífið. Þaö heyrir sögunni til að kringum aldamótin síðustu var bindindis- hreyfingin þjóöinni skóli í félagsmál- um. Þar á ég við stúkur templara og ungmennafélögin sem höfðu sama bindindisheit og templarar. Munu norsku ungmennafélögin hafa tekið upp skuldbindingu templara og hún borist þannig til ungmennafélaganna á Islandi. Þetta eiga allir sæmilega upplýstir menn að vita en auövitað er það ekki þetta sem gefur bindindishreyfingunni gildi nú þegar styttast fer að nýjum aldamótum. Félagsstarf bindindishreyfingar- innar liggur í því að menn hittast sér til gleði og hressingar og njóta sam- veru án vímuefna. Á fundum sínum hafa menn oft dagskrá sem er til fróðleiks og skemmtunar. Það liggur við að ég skammist mín fyrir að hafa ekki boðið Stefáni Benediktssyni á stúkufund og úr því mun ég reyna að bæta. Stefán segir að „svokölluð bindindishreyfing hafi litlu fengið áorkað”. Þetta er mælt af miklum óvitaskap eða gáleysi. Bindindishreyfingin hefur fengið því áorkaðaðtíundi hver Islendingur er bindindismaður. Þar að auki tel ég að rekja megi til áhrifa hennar aö annar hópur fjölmennari fer mjög hóflega með vín. Um það skulum við þó ekki þrefa. Þaö má liggja milli hluta. Höldum okkur við 10%. Það bætast árlega við þessa þjóð meira en 4000 börn. Meðan bindindis- hreyfingunni heppnast að verja tí- unda hluta þeirra fyrir áfengi er það á fimmta hundrað manns úr ■ hverjum árgangi. Fimmti hver maður, sem venst áfengi, drekkur sér til skaöa og skammar. Einn af hverjum 10 verður það sem kallaö er áfengissjúklingur og annar úr þeim sama 10 manna hópi drekkur meira en hann vill sjálfur og telur heppi- iegt. Þama sparar því bindindis- hreyfingin almannasjóðum milli 40 og 50 sjúkrarúm fyrir hvem árgang, auk annarra vandræða sem sam- félagið losnar við fyrir áhrif hennar. Bindindishreyfíngin jafngildir því góöum tekjustofni fyrir ríkissjóðinn. Auðvitaö kunnum við ekki nákvæma tölu um vistartíma hvers ofdrykkju- manns á sjúkrahúsi en hins vegar má ekki gleyma því að mikiö brestur á að öllum verði bjargað þrátt fyrir aUt. Eg tel að engum alþingismanni sé samboðiö aö gera litiö úr þessum árangri. Hann er verulegur og jafn- vel furöumikill þegar þess er gætt hversu margir eru talsmenn og áróðursmeistarar vímuefnatískunn- ar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.