Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1984, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1984, Side 40
40 DV. ÞRIÐJUDAGUR 24. APRIL1984. Andlát ' Sigríöur Lllja Jónsdóttir lést 18. april. Einar 01. Sveinsson lést aö morgni síöasta vetrardags. Elísa Jónsdóttir frá Teigarhorni, Vesturgötu 56A Reykjavík, er látin. Utförin hefur fariö fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Elín Jónina Gunnlaugsdóttir, Borgar- nesi, andaöist á Dvalarheimili aldr- aöra, Borgamesi, aö morgni 17. þessa mánaðar. Einar G. Guömundsson, Eskihliö 7, veröur jarösunginn frá Hallgríms- kirkju i dag, þriöjudaginn 24. apríl, kl. 13.30. Ása Siguröardóttir, Hofteigi 14 Reykjavík, sem lést 12. apríl, veröur jarösungin frá Dómkirkjunni miöviku- daginn 25. april kl. 13.30. Ólina Þorbjömsdóttir, Laugavegi 100, verður jarösungin frá Dómkirkjunni miövikudaginn 25. april kl. 15. Magnús Hjörtur Stefánsson jámsmiöur, Vesturbergi 118 Reykja- vík, veröur jarðsunginn frá Bústaöa- kirkju þriöjudaginn 24. apríl kl. 15. Halldór Pálsson, fyrrverandi búnaöar- málastjóri, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðviku- daginn 25. april kl. 10.30. Guðrún Bjömsdóttir verður jarösungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 25. þ.m. kl. 13.30. Elinbjörg Geirsdóttir andaöist á heimili sínu, Smáratúni 1 Svalbarðs- eyri, aö kvöldi 17. apríl. Tilkynningar Dregið var í almanaks- happdrætti Landssam- takanna Þroskahjálpar 15. april Upp kom númerið 47949. Osóttir vinningar á árinu eru 756,18590 og 31232. Styrkur til náms eða rannsókna við japanskan háskóla Félag japanskra háskólakvenna býður styrk, mest 84 þúsund krónur, til náms eða rannsókna við japanskan háskóla. Styrkurinn er eingöngu ætlaður konum. Hann skal nota á þriggja mánaða tímabili frá 1. september 1984 til 28. febrúar 1985. Konur sem hyggjast stunda sjálfstæðar rannsóknir eða framhalds- nám í Japan, geta sótt um styrkinn hjá félagi íslenskra háskólakvenna, Hallveigarstöðum í Reykjavík, box 327. Skilyrði fyrir styrk- veitingu eru eftirfarandi: Bachelor-próf frá háskóla, eða sambærileg menntun. Lögð skal fram áætlun um nám eða rannsókn í Japan. Viðurkenning frá skóla eða rannsóknarstofn- un í Japan skai fylgja. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 131., 137. og 140.tölublaði Logbirtingablaðsins 1983 á eigninni Brekkubyggð 33, Garðakaupstað, tal. eign db. Siguröar B. Jónssonar, fer fram eftir kröfu innheimtu rikissjóðs á eigninni sjálfri miðvikudaginn 25. april 1984 kl. 14.45. Bæjarfógetinn i Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 131., 137. og 140. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Blikanesi 10, Garðakaupstaö, þingl. eign Guömundar Þóröar- sonar, fer fram eftir kröfu innheimtu ríkissjóðs á eigninni sjálfri miö- vikudaginn 25. april 1984 kl. 15.15. Bæjarfógetinn i Garðakaupstað. Nauðungaruppboð annað og síðasta á fasteigninni Kirkjubraut 3, Njarövík, fer fram á eigninni sjálfri aö kröfu Verslunarbanka Islands, Guðjóns Steingrims- sonar hrl., innheimtumanns ríkissjóðs, Haralds Blöndal hrl. og Guðjóns Á. Jónssonar hdl. f östudaginn 27. april 1984 kl. 15.00. Bæjarfógetinn i Njarðvík. Nauðungaruppboð annaö og síðasta á fasteigninni Kirkjuvegi 45, efri hæö og risi í Kefla- vik, þingl. eign Þóris Magnússonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Jóns G. Briem hdl., Ævars Guömundssonar hdl. og Hafsteins Sigurðs- sonar hrl. fimmtudaginn 26.4.1984 kl. 11.00. Bæjarfógetinn í Keflavík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á fasteigninni Hjallavegi 9, múð 1Á i Njarðvik, þingl. eign Ómars Árnasonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Guðjóns Ármanns Jónssonar hdl. fimmtudaginn 26.4.1984 kl. 10.15. Bæjarfógetinn í Njarðvik. Nauðungaruppboð annað og síðasta á fasteigninni Suðurgötu 5, Sandgerði, þingl. eign Ólafs I. Ögmundssonar, fer fram á eigninnl sjálfri að kröfu Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl. og Hafsteins Sigurðssonar hrl. fimmtudaginn 26.4.1984 kl. 16.00. Sýslumaðurinn íGullbringusýslu. Nauðungaruppboð eftir kröfu Framkvæmdastofnunar ríkisins, vegna byggðasjóðs, veröur bús Loranstöðvarinnar á Reynisfjalli V-Skaftafellssýslu, selt á nauðungaruppboðí, sem verður háð á eigninni sjálfri, miðvikudaginn 25. apríl 1984 kl. 14.00. Uppboðið var auglýst í Lögbirtingarblöðum nr. 93,96 og 1001983. Sýslumaðurinn í V-Skaftafellssýslu 17. aprfl 1984, Einar Oddsson. Um helgina Um helgina Stína og andarungarnir Það er af mörgu að taka þegar fjalla skal um dagskrá útvarps og sjónvarps yfir páskana. Báðir fjöl- miðlar vönduðu vel til dagskrár sinnar og held ég að flestir hafi heyrt eða séð eitthvað við sitt hæfi. 1 út- varpi bar hæst páskaleikritið Efgenía Grandet eftir Heinrich Böll á fimmtudagskvöldið. Nirfillinn Grandet, í meðförum Helga Skúla- sonar, er eftirminnilegur. Söngur Kristins Sigmundssonar brást ekki það kvöldið frekar en i önnur skipti, en rödd hans hljómaði í útvarpi einnig á f östudag og sunnudag. Þegar sýnt var í sjónvarpsfréttum á föstudag er fólk safnaðist saman á sumardaginn fyrsta i byl til að fagna sumri, fannst mér þrautseigju landans vel lýst. Móöuharðindin — óáran og hungurtilstand þjóðarinnar fyrir tvö hundruð árum sem lýst var í heimildarmynd sjónvarpsins á föstudaginn langa, gaf okkur innsýn í seigluna landlægu. Hvað eru nokkur snjókom á sumardaginn fyrsta annað en til aö blása á? Umræðan um krossfestinguna, sem Gunnlaugur Stefánsson guðfræðingur stýrði, er umræða sem aldrei endar — við krossfestum á hverjum degi. En hvers vegna, verður hver og einn að svara fyrir sig. Lena, hin föla móðir allra landa, í þýsku kvikmyndinni svaraði fyrir sitt leyti þessari spumingu. Stríðshrjáðir einstaklingar og bugaö- ir geta svarað. Og þeir sem risa upp og trúa á frelsi og frið. Ljóð eftir Margréti Jónsdóttur — Draumur aldamótabamsins — náði eyrum mínum um bænadagana mitt i allri friðarumræðunni. Það verður að vona enn að vitkist mannkynið senn Og trúin á frelsi og frið sé framtíðar æðsta mið. Heimildarmyndin um móðu- haröindin var mjög góð og eins þýska kvikmyndin, en hún skildi eftir þyngsli í sálinni. Langa leiöin til Babylon á laugardagskvöldið geröi það einnig. En seinkunin í flughöfn- inni lyfti þyngslunum og örlitiö glytti í draumaverksmiðjuna í Holly, meö öflu sinu prjáU. TónUst Donizetti og frábær flutningur listamanna á óper- unni „Lucia di Lammermoor” á sunnudag reisti sáUna upp. Og áfram flaug hún með Ásgrími Jónssyni yfir í HúsafeUsskóg um kvöldið. „Eins og birtan kæmi innan frá því sjálfu,” var sagt um tré eitt í skóginum á striganum hans Ásgrims. Þannig eru verk hans. Þáttur Hrafnhildar Schram var vel unninn og gaf góða mynd af Ufi og starfi listamannsins. Nickelby og PygmaUon undirstrika það sem oft er haldið fram aö breskir vita hvað þeir eru að gera í þessum málum. Efniviöurinn frá Dickens og Shaw líka frábær. Karlar Kjartans Ragnarssonar eru sprottnir úr öörum jarðvegi en Nickelby og prófessor Higgins, en þeim tókst aUsæmilega að „gutlast i gegnum soðninguna” eins og Hannes skipstjóri oröaöi það, þó að hægt færi. Skrautsýningin og léttir tónar frá þýska sjónvarpinu var endapunktur páskadagskrárinnar. Ríkisfjölmiðlamir blönduöu vel í taU og tónum bæði krossfestingu, upprisu, friöarumræðu og drauma- heimi. Boðskapur friðar og páska hefur eflaust náö eyrum margra, en skýrasta dæmiö fannst mér læðan Stina norður í landi sem fóstraöi andarungana af mikUU nærfæmi og bUðu í staö þess aö gleypa þá. Þórunn Gestsdóttir. Styrkþegi skal vera í Félagi háskólakvenna, og vera fús að starfa með Félagi japanskra háskólakvenna. Vitni óskast Keyrt var utan í Mözdu 626 fyrir utan Mikla- garö mánudaginn 16. apríl sl. um tvöleytiö. Hefur þaö aö öllum líkindum veriö gulur bíll. Þeir sem einhverjar upplýsingar geta gefiö um atburöinn eru vinsamlegast beönir aö hringja í síma 32647 eöa snúa sér til lögregl- unnar. „Á felgunni" Gefin hefur verið út bílsnældan ,Á felgunni”. Innihaldið eru 19 „ferðalög”, ættuð úr visna- vinafjöiskyldunní. Lögin eru af hljómplötunum Afram með Hálft í hvoru, Bergmáli og Afturhvarfi Bergþóru Amadóttur og Þaö vex eitt blóm, Guömundar Arnasonar. Eitt splunkunýtt lag af óútkom- inni breiðskífu Bergþóru er einnig á snæld- unni en það heitir Hvar er friður. Af öðrum lögum má nefna; Borgarijós, Heimurinn og ég, Vinátta okkar, Sýnir, Einu sinni þú, Heitur snjór, Sitthvað er bogiö o.fl. Vonast er til að þessi vorgiaðningur eigi eftir að endast lengi og falla fólki á öllum aldri vel í geð. Utgefandi er Þor, dreifingu annast Fálkinn hf. ÆSKANé* -—...—..—..... Æskan Aprilblað Æskunnar er komið út. Meðal efnis: „Gangvegir”. Viðtöl unglinga við gamalt fólk. Okkar á milli. Viðtal við Oskar Oskars- son og Herdisi Gísladóttur. Listskautahlaup á vetrarólympíuleikum, eftir dr. Ingimar Jónsson. Æfir níu sinnum á viku. Viðtal við Guðrúnu F. Agústsdóttur. Æskan spyr: Hve- nær feröu aö sofa á kvöldin? Lýðveldiö 40 ára. Hvað segja þau um samræmdu prófin? Vertu með í frjálsum, eftir Kára Jónsson. Kvöld- sögur Æskunnar: Guli kjúklingurinn, Marta litla. Rauöikross tslands: Hjálpartækjabank- inn, eftirSigurð Magnússon. Ertu góðurleyni- lögreglumaður? Smaladrengurinn, saga. Fjölskylduþáttur: Vorið er komiö, eftir Hrefnu. Drengirnir með netin, eftir Hrefnu, KærleikurGuðs. Hjá ömmu. Við bökumsjálf. Verðlaunagetraun Flugleiða og Æskunnar til Færeyja. Frá Færeyjum: Kirkjubær og fær- eyski dansinn. Hinum megin við hafið. Æsku- pósturinn. Rás 2. Poppmúsík í umsjón Jens Guðmundssonar. I tilefni 100 ára afmælisins. Mynd mánaðarins. Afmælisböm Æskunnar. Askriftasöfnun, Sviþjóðarferð. Askrifenda- getraun Æskunnar. Hvað heitir landið? Hér er ég, eftir Halldór Kristjánsson. Hver á hvað? Gagnsæ spil. HVað er þetta? Gátur. Felumyndir. Bréfaskipti. Myndasögur. Krossgáta o.m.fl. Ritstjóri er Grimur Engil- berts. FÉLAG FORRÆÐISLAUSRA FORELDRA Páskabókin Bókaútgáfan Salt hf. og Híð islenska Bibliufélag hafa nýverið gefið út Páska- bókina. Er hún eftir Anitu Behrendt og upphaflega gefin út af danska bibliufélaginu. Ástráður Sigursteindórsson bjó íslenska text- anntilprentunar. Anita Behrendt teiknaði einnig myndir í Páskabókina og era þær allar í lit. Bókin er 46 bls. að stærð og fjallar um atburði páskanna eins og sagt er frá þeim í guðspjöllunum. Páskabókin er send öllum félögum í bóka- klúbbi Salts, en auk þess er hún fáanleg á skrifstofu útgáfunnar og skrifstofu Hins Isl. Biblíufélags í Hallgrímskirkju. Páskabókin er sett hjá Prentverki Akraness enprentuðí Danmörku. Sýningar Sýning á verkum íslenskra arkitekta I tilefni 25 ára afmælis Byggingaþjónust- unnar er haldin sýning á verkum islenskra arkitekta i húsakynnum Byggingaþjónust- unnar að Hallveigarstíg 1. Sýningin er opin alla virka daga kl. 10—18, frá 24. aprfl til 28. apríl. ÁSMUNDARSALUR við Freyjugötu: Þar stendur yfir sýning Hönnu Gunnarsdóttur á 35 vatnslitamyndum. Hanna hefur stundað nám bæði hér heima og erlendis en hún lauk burt- fararprófi innanhússhönnun og myndlist frá Cuyahoga college í Ohio í Bandaríkjunum. Sýning Hönnu stendur til 23. april og er opin alla daga frá kl. 14—22. Á pálmasunnudag verður sýningin opnuð kl. 15.00. Ferðalög Frá Ferðafélagi íslands Ferðafélag Islands heldur kvöldvöku fimmtu- daginn 26. aprfl á Hótel Hofi, Rauðarárstig 18, oghefsthúnkl. 20.30. Efni: Guttormur Sigbjamarson jarðfræðing- ur sýnir myndir og segir frá Krepputungu og Hvannalindum. Myndagetraun: Olafur Sigurgeirsson sér um getraunina. Allir velkomnir, félagar og aðrir. Aðgangur ókeypis en veitingar seldar í hléi. Ferðafélag Islands. Tónleikar Tónleikar að Breiðumýri Kristinn öm Kristinsson píanóleikari, Lilja Hjaltadóttir fiðluleikari og Þuríður Baldurs- dóttir altsöngkona halda tónleika að Breiðu- mýri í Reykjadal þriðjudaginn 24. apríl kl. 21. A efnisskránni eru sónötur fyrir fiðlu og píanó eftir Jón Nordal, W.A. Mozart, sjö sígauna- ljóð eftir A. Dvorak, íslensk söguljóð og fiðlu- tónlist eftir F. Kreisler og V. Monti. Vísnakvöld Vísnakvöld verður haldið að Hótel Borg þriðjudaginn 24. apríl kl. 20.30. Söngflokkurinn Hrim kemur fram, Unnur Jensdóttir söngkona syngur nokkur lög. Þá mun Aðalsteinn Asberg Sigurðsson flytja fmmort ljóð. Hann er að flytja af landi brott og er þetta í síðasta sinn um nokkurt skeið sem hann kemur fram á vegum Visnavina. Aðalgestir kvöldsins verða skáldið Benny Anderson og Paul Dissing en þeir koma hingað til landsins á vegum Norræna hússins, Norræna félagsins á Islandi, „Det danske sel- skab” og Vísnavina. Þeir félagar era einna þekktastir fyrir flutning sinn á Svantes viser eftir Benny Anderson en Svante er nokkurs konar ímynd Dana á Bellman. Háskólafyrirlestur Danski sagnfræðingurinn og skjalavörðurinn dr. phU. Harald Jargensen flytur opinberan fyrirlestur 1 boði heimspekideildar Háskóla lslands miðvikudaginn 25. april 1984 kl. 17.15 í stofu 422 í Ámagarði. Fyrirlesturinn nefnist: „Da det kgl. danske gehejmearkiv havde islandske chefer. Grímur Thorkelin og Finn Magnússen 1791 1847” og verðurflutturá dönsku. öllumer.heimillaðgangur. :nlsi!i; oxso ÁSTUNDUM FRIÐARUPPELDI U Félag forrœflislausra foreldra Laugardaginn 14. aprii var formlega stofnað Félag forræðislausra foreldra. i lögum félagsins segir m.a. að tilgangur þess sé að: vinna að hagsmunamálum forræðis- lausra- og einstæðra foreldra og bama þeirra; gæta réttar þeirra gagnvart stjórn- völdum og öðrum sem með mál þeirra fara; vinna að þvi að bæta uppeldisaðstöðu þeirra bama sem ekki njóta samvista við bæði for- eldri. Næstu vikur hyggst félagið nota til þess að móta og skipuleggja starfsemi félagsins en ljóst er að þess bíða mörg verkefni. 1 fyrstu stjórn félagsins vom kjörin: Lárus S. Guðjónsson formaður, og aðrir í stjóm, Gunnar Sæmundsson, Jónína Armannsdóttir, Júlíus Halldórsson og Sigmundur Hafberg Guðmundsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.