Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1984, Qupperneq 43

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1984, Qupperneq 43
DV. ÞRIÐJUDAGUR 24. APRlL 1984. 43 DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL Frá mótsstað í Nýjadal. Þarna er veðrið bara gott miðað við það sem siðar átti eftir að verða. Dagskráin var flutt inn í skálann og þar blossaði upp blússandi stuð. Aðalhættan er sú að læknast ekki af sleðaferðunum rætt við Þorstein Baldursson sem selur vélsleða og þeysir umáþeim líka „Það eru margir sem segja að aðal- hættan við vélsleðaferðir sé sú að menn læknist aldrei af þeim,” sagði Þorsteinn Baldursson er við impruðum á þvi í upphafi samtals okkar hvort þetta væri ekki hættulegt sport. Þorsteinn er 49 ára að aldri og er framkvamdastjóri hjá Gísla Jónssyni og co en það fyrirtæki hefur flutt inn mikið af vélsleðum. Það var fyrir um tíu árum sem Þorsteinn kynntist þessum farartækjum, vélsleðunum. „Eg kynntist þeim þannig að ég fékk að setjast á sleða fyrir tilviljun uppi í Hveradölum. Það var geysilega gott veður úti, sól og logn, og áhuginn kviknaði. Fjölskyldan hefur einnig haft mjög gaman af vélsleðaferðunum, og við höfum gjaman tekiö skíðin meö. En skiðin eru einnig ólæknandi sport. Við f öram mikið á skiði um helgar. ” Þorsteinn sagði að hann væri ekki einn af mestu dellukörlunum á vélsleð- um. Það væri hópur manna sem væri mun duglegri að ferðast. „Eg skipti þessu bróðurlega á milli skíðanna og vélsleðans.” „Það kom fyrir til að byrja með að ég fór upp í Bláf jöll á sleðanum. En ég hætti því strax. Það á ekki við að vera á vélsleðum í skíðalöndunum innan um skíðafólk. Farartæki til að ferðast á Það er líka þannig að ég lít fyrst og fremst á vélsleðann sem farartæki til aðferðast á. Ég vil fyrst og fremst fara í ferðalög á vélsleðanum og skoða þannig þá stórkostlegu náttúru sem landið okkar hefur upp á að bjóða.” — Nú varst þú einn af þeim sem fóru í Nýjadal. — Hvernig var sú ferð? „Þaö er ekkert vafamál að þessi ferð kemur til með að verða einhver sú eftirminnilegasta og skemmtilegasta sem ég hef farið. „Við fórum fjögur á þremur sleöum uppeftir, frá Sigöldu. Veðrið var skín- andi gott og við stoppuðum hvað eftir annaö til að skoöa landslagiö, enda þýðir ekkert annaö en taka það hæfi- lega rólega er ferðast er um á vélsleð- um. Aðalatriðið er að skoða náttúruna, sem oft er æði hrikaleg. Á heimleiðinni á þriðjudag fengum við svo dýrðlegt veður. Það var sól og nýfallinn snjór. Hreint ævintýri að ferðast. Til gamans vil ég geta þess aö eitt af því sem margir hafa mjög gaman af er að vera á skíðum og iáta vélsleða draga sig. Þannig fékk tengdadóttir mín sér „far” alla heimleiðina. Þetta er ekki ólíkt því og að vera á sjóskíð- um.” Þorsteinn Baldursson um mótið i Nýjadal: „Það skemmtilegasta við þetta mót var Hka það að þarna hittist fólk úr öllum landshornum. Fólk sem ekki hafði þekkst áður. En þetta endaði sem ein fjölskylda." D V-mynd Bjarnleifur. Lagt af stað upp i Nýjadal frá Sigöldu. Þau fóru fjögur á þremur sleðum uppeftir. „ Veðrið var skinandi gott og við stoppuðum hvað eftir annað til að skoða landslagið." Hrafn var aldursforsetinn i Nýjadal. Hann vakti mikla athygli fyrir hressleika sinn. Var maður mótsins og hrókur alls fagnaðar. Visurnar sem hann orti uppfrá ku verða lengi i minnum hafðar. Við sjáum hér Hrafn i essifiúsinu. nu'J,iv raii snerf i -ioI gi ,él„ — Veðrið uppfrá hefur ekki eyðilagt feröina? „Nei, alls ekki, þó það hefði mátt vera betra veður uppfrá á meðan á mótinu stóð. Dagskráin fór úr skoröum vegna veðursins og við fluttum því námskeiðin inn í skálann. Það gafst ágætlega og skapaðist mikil stemmn- ing í skálanum. Rabbað saman á fjöllum. Menn bæði vélbúnir og vel búnir. Endaði sem ein fjölskylda Þaö skemmtilega við þetta mót var líka það að þama hittist fólk úr öllum landshornum. Fólk sem ekki hafði þekkst áður. Eri þetta endaði sem ein fjölskylda.” — Núertalaðumaðháttí3hundruð manns hafi komið í Nýjadal þessa helgi á hátt í 2 hundruð vélsleðum. — Hvað eru margir sem eiga vélsleða í landinu? „Það er ekki gott að segja, en talan 2 þúsund er oftast nefnd. Eg held að sú tala sé, ef eitthvað er, vanáætluö. Og margir af þeim sem eiga vélsleðana eru bændur. Þeir nota þá gífurlega mikið og nokkrar sveitir væru mjög einangraðar ef sleöanna nyti ekki við.” — Og það er hugur í ykkur vélsleöa- mönnum? „Já, já. Það hefur verið ákveðið að halda næsta mót í Nýjadal að ári A heimleið úr Nýjadal í sól og „sumaryl".. Það er Þorsteinn sem veifar ■~ifi&i\£\&m-\<uSG/tinMíþafmrköndúm'títinekkiawrtsUóttirhiilegáfEið.s'fi gHlilmraax'i §öj,M„ Voióiol

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.