Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1984, Síða 48
FRETTASKOTIÐ
Hafír þú ábendingu eða vitneskju um frótt — hringdu þá i síma 68-
78-58. fyrir hvert fróttaskot, sem birtist eða er notað i D V, greiðast
1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fróttaskotið ihverri viku.
Fullrar nafnleyndar ergætt. Við tökum við fróttaskotum allan sólar-
hringinn.
€*€% -]Q CO SÍMiNN SEM
0%Þ“mÆ O VU ALDREhSEFUR
Rænduumeinu
ionniaf heyi
Brotist var inn í nokkur hesthús viö
svokailaöa B-tröö í Víöidal og taliö er
að þjófamir hafi haft á brott meö sér
um eitt tonn af heyi.
Aö sögn Árbæjarlögreglunnar barst
þeim tilkynning um atburöinn á páska-
dag en nokkuð mun hafa veriö um
svona þjófnaöi á þessum slóöum.
Árbæjarlögreglan sagði aö þetta mál
væri á góöri leið meö að upplýsast þar
sem auðvelt væri aö rekja slóö
þjófanna eftir upplýsingum sem
bárust til lögreglunnar. -FRI
Logaði út
umglugga
Slökkviliöinu var tilkynnt um eld í
Gúmmísteypu Þorsteins Kristjáns-
sonar í Súöarvogi 20 á sunnudagsnótt-
ina, skömmu fyrir kl. 3.
Talsverður eldur var á jarðhæö húss-
ins og logaöi út um glugga er
siökkviliöiö kom á staðinn en eldurinn
var laus í hjólbörðum og gúmmírúllum
sem voru á jaröhæöinni. Slökkvistarf
gekk greiölega og ekki uröu umtals-
verðar skemmdir á húsinu, sem er úr
steini, en talsverðar skemmdir uröu á
innanstokksmunum á jarðhæðinni auk
reykskemmda. Eldsupptök eru ókunn.
-FRI
LUKKUDAGAR
19. APRÍL
13440
DÚKKUKERRA FRÁ I.H. HF.
AÐ VERÐMÆTI KR. 800.
20. APRÍL
25222
SKÍÐI FRÁ FÁLKANUM
AÐ VERDMÆTI KR. 10.000.
21. APRÍL
4730
BANGSI FRÁ I.H. HF.
AD VERÐMÆTI KR. 750.
22. APRÍL
33071
VÖRUBfLL FRÁ I.H. HF.
AD VERÐMÆTI KR. 900.
23. APRÍL
10946
HLJÓMPLATA FRÁ
FÁLKANUM
AÐ VERÐMÆTI KR. 400.
24. APRÍL
44880
TÆKI AD EIGIN VALI
FRÁ FÁLKANUM
AÐ VERÐMÆTI KR. 6.000.
Vinningshafar hringi í síma 20068
LOKI
Gulur og blár skal Hturinn
vera á nýja Tímanum. Er
það ekki grœnn Htur í
dulargervi?
Fjárlagagatinu lokað að mestu í dag og á morgun:
Fnn varAiir rifa
bllll f vl vlll I IICI
á ríkiskassanum
Ríkisstjómin f jallaði í morgun um
nær fullmótaöar tillögur um aðgerðir
í ríkisfjármálum. Samkomulag er
um þær í grófum dráttum. Vandinn
er aö fylla í 1.845 milljóna gat á f jár-
lögunum og finna fé í 345 milljóna
aögeröir vegna kjarasamninganna.
Ný skattheimta upp í þetta verður á
bilinu 400—500 milljónir. NiÖur-
greiöslur á búvörum lækka einnig
um nokkuð á annað hundrað milljón-
irkróna.
Af samanlögöum vandanum, 2.190
milljónum, eiga að fást um 70
milljónir vegna nýlegra breytinga á
skattalögunum og um 100 milljónir
vegna auklnna tekna í kjölfar meiri
fiskveiða og þjóðarframleiðslu en
áætiaö var. Eftir standa því rétt um
tveir milljarðar.
Samkomulag er milli ráöherra um
spamaö og tilfærslur og að nokkru
leyti aukna gjaldtöku fyrir þjónustu,
samtals aö upphæö í nánd viö 800
milljónir. Þá koma nýju skattarnir,
allt að 500 milljónir. Og loks koma til
framlengingar lána eöa ný lán, mest
erlend lán, allt aö 500 milljónir. Þá
vantar enn 200 milljónir hiö minnsta
til þess aö loka gatinu aö fullu.
Líklegt er aö þeirri rifu veröi lokað
með meiri lántökum.
Nýju skattarnir, auk lækkaðra
niðurgreiösina, eru aukin söluskatts-
heimta með niðurfellingu undanþága
og hertri innheimtu, sem gæti gefiö
200 milljónir eða meira, og líklega
hækkun á bensíni sem gæfi um 150
milljónir króna. Og fleira kemur til.
Söluskattur verður ekki lagöur á
matvæli né nýlenduvörur að neinu
marki.
Þingflokkar stjórnarflokkanna fá
tillögumar til meðferöar á morgun.
HERB
Lögregluvörður er
um upptökustaðina
Upptökur á myndinni Enemy nine
em í fuUum gangi í Vestmanna-
eyjum og þegar hafa veriö tekin sum
atriðin sem taka á hérlendis. Enginn
óviökomandi fær að koma inn á
upptökustaðinn og er lögregiuvöröur
umþaösvæði.
Að sögn Hunts Downs, blaöa-
fuUtrúa hópsins frá 20th Century
Fox, em nú um 100 manns á þess
vegum hérlendis og er áformað aö
hópurinn ljúki upptökum hériendis á
einum mánuðl en um fjórðungur
myndarinnar verður tekinn upp hér.
Auk þess veröa upptökur á
Kanaríey jum og í Ungver jalandi.
Ekki fékkst uppgefið hver væri
kostnaöurinn við myndina hérlendis
eöa í heild en Downs sagði aö þetta
væri stórmynd hjá Fox og ljóst aö
kostnaðurinn skipti mUljónum
dollara.
Framleiðandi myndarinnar er
Stanley O’Toole, bróöir leikarans
Peter OToole. Hann hefur áður
framleitt nokkrar þekktar myndir
eins og tU dæmis myndina „The Boys
fromBrazU”.
-FRI.
Annasamt í
sjúkraflugi
Annasamt hefur veriö hjá Slysa-
vamafélagi Islands og vamarUðinu
um hátíöarnar vegna sjúkraflutninga.
Hefur þyrla frá vamarUöinu farið þrisvar
í sjúkrafkitninga.
Fariö var í gærdag um 240 mílur
suövestur af Reykjanesi að rússnesku
frystiskipi, en þar var maður um borö
meö heilahimnubólgu. Ekki tókst aöná
manninum vegna svartaþoku á miðun-
um.
Er reyna átti aftur í morgun var
maöurinn kominn í verksmiðjutogara
sem var á leið til landsins. Togarmn
var þá staddur 130 mílur frá landi. Enn
var svartaþoka og því ekkert hægt aö
fljúga.
Á miövikudagskvöld fór þyrla frá
varnarliðinu austur aö Hvera völlum til
aö ná í 15 ára pilt úr hópi 20 skáta frá
Akureyri. Hann var meö hastarlega
botnlangabólgu. Þyrlan þurfti aö snúa
við vegna hríðarveðurs.
Daginn eftir, á skirdag, tókst hins
vegar að ná í piltinn og var hann
lagöur inn á Landakotsspítala.
Föstudaginn langa barst svo beiðni
frá skuttogaranum Framnesi frá Þing-
eyri, sem staddur var 60 til 70 mílur
vestur af Látrabjargi. Einn úr áhöfninni
var með hjartabilun. Flugið gekk vél og
var lent með manninn við Borgarspítal-
ann um kvökiið. -JGH
Augnlæknar álykta vegna
gleraugnasölu Hagkaups:
„Gleraugna-
próf un er
læknisverk”
„Okkar aöalpunktur er sá að gler-
augnaprófun er læknisverk og aö ekki
eigi að afgreiða gleraugu án tilvísunar
frá lækni,” sagöi Emil Als læknir í
samtali viö DV en hann er formaður
Augnlæknafélags Islands.
Fyrir páskana hélt félagið fund þar
sem samin var ályktun vegna lestrar-
gleraugnasölu Hagkaups og er
aöalinnihald hennar framangreind orð
Emils.
Hann sagöi einnig að augnlæknum
fyndist þaö mjög miður ef fólk van-
rækti þaö aö vera athugað af lækni
áður en þaö keypti sér gleraugu, en
hvaö beinar aögerðir augnlækna,
vegna gleraugnasölunnar i Hagkaupi,
varðaði væru þær ekki áformaðar eins
og er. -FRI
NTÍfyrsta
sinn á götuna
Dagblaöiö Tíminn kemur út um
hádegisbil í dag undir heitinu NT.
Þetta eru fyrstu skipulagsbreytingar á
blaðinu eftir aö nýtt hlutafélag, Nútim-
inn, tók viö rekstrinum.
„Viö leggjum mikla áherslu á að
vera með haröa og óháöa frétta-
mennsku. Þetta veröur fréttablaö óháö
stjórnmálaflokkum,” sagði Magnús
Olafsson ritstjóri NT í samtali viö DV í
morgun. ,,En hvaö ritstjórnarstefnu
varöar mun blaöið veröa frjálslynt og
umbótasinnaö og byggja á samvinnu-
og félagshyggju.”
Helstu breytingarnar sem munu
mæta lesendum blaösins er að blaöið
hefur stækkað í 32 siöur, fyrstu 13
síðumar verða lagöar undir fréttir,
íþróttir verða auknar í 8 síður,
erlendar fréttir verða nú í blaðinu auk
erlendra símamynda, allar síöur verða
settar upp í sex dálka i staö fimm og
auk mánudagsútgáfunnar veröur gefiö
út sérstakt aukabiað í viku hverri.
. . ÖEF