Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1984, Blaðsíða 2
ff
Viljum engan
friðmeð
þessi kjöri'
-sagöiGuðmundurJ. Guðmundssoní
ávarpisínu. Milli fimmtán og
tuttugu þúsund manns á fundinum
.. s :
MIÐVJKJL
,,Fleiri munu kunna aö höggva
stórt en þú einn,” sagði Guömundur
J. Guömundsson, formaöur Verka-
mannasambandsins, í ávarpi á
Lækjartorgi í gær og geröi orö Njálu-
höfundar aö sínum þegar hann sendi
ríkisstjóminni tóninn vegna kjara-
skeröingar hennar.
Hann sagöi að ríkisstjómin heföi
lækkaö vinnulaun um 25 prósent aö
raungildi undanfarna mánuöi.
„Dagsbrún mun rjúfa friöinn 1.
september, ef okkur sýnist svo. Viö
viljum engan friö meö þessi kjör.”
Guðmundur sagöi ennfremur aö
Verkamannasambandiö myndi nota
fyrsta tækifæri til aö leggja til atlögu
viö ríkisvaldiö.
Hátiöahöldin fyrsta maí fóru mjög
vel fram. „Þetta er fyrirmyndar-
samkoma,” sagði lögreglumaöur
einn, sem var áLækjartorgi.Og bætÚ
því viö að ölvun væri óvenjulítil.
Hann giskaöi á aö milli fimmtán og
tuttugu þúsund manns heföu verið í
miðbænum þegar mest var, enda var
mikil veðurblíöa.
Auk Guömundar tóku til máls á
Lækjartorgi Sjöfn Ingólfsdóttir,
BSRB, og Kristinn Einarsson, for-
maöur INSI. Þá stóð til aðmaöur frá
E1 Salvador tæki til máls á fundinum
en honum var boöiö hingað á vegum
Verkamannasambandsins. Hann
komst hins vegar ekki til landsins en
sendifundinumbaráttukveöjur. -KÞ
Guömundur J. Guðmundsson flytur ávarp sitt. „Verkalýðsfélögin má ekki
daga uppi eins og nátttröll, þess vegna verðum við öll að leggja okkur fram.
Aðeins þá getum við sigrað,” sagði hann meðal annars.
Mikið f jölmenni var við hátiðahöldin
á Lækjartorgi í gær. Menn giskuðu á
fimmtán, tuttugu þúsund manns,
þegar mest var.
(DV-myndir GVA)
Ýmis samtök kvenna héldu sam-
komu á Haliærisplaninu svokailaða.
Einnig þar var margt um manninn.
1. MAIHÁTIÐAR-
HÖLDIN
Það var líf og fjör í miðbænum, enda
veðrið gott. Þessir knáu strákar
sýndu dans fyrir vegfarendur.
Verslunarmannafélag Reykjavíkur tók fyrstu skóflustungu að íbúðum
aldraðra félagsmanna í gær. Það var Andrés Bergmann sem tók fyrstu
skóflustunguna. Magnús L. Sveinsson stendur hjá. Þá má sjá borgarstjórann,
Davið Oddsson, í baksýn.
FREI.S
Húsnæðissamvinnuf élagið Búseti hvatti sína félagsmenn til að mæta á samkomuna og voru þeir mjög áberandi.
Þeir voru ekki allir háir í loftinu, sem báru kröf uspjöld i tilefni dagsins.