Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1984, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1984, Blaðsíða 5
________________________5_ Ekki hlutverk Neytenda- samtakanna _ — að taka þátt í stjórn atvinnufyrirtækja „Eg tel að þaö sé fráleitt að Neytendasamtökin gefi slíkri stofnun gæðastimpil með þátttöku í stjórn GL. Þaö er ekki hlutverk Neytendasamtak- anna að taka þátt i stjórnun atvinnu- fyrirtækja. Kartöflubændur og aðrir verða að gera sér grein fyrir því að það er ekki hægt að binda sig við sölufyrir- komulag §em heyrir sögunni til,” sagði Jón Magnússon, formaður Neytenda- samtakanna, er DV spurði hann álits á tillögu kartöflubændanna um að neytendur sætu í stjórn GL. Jón sagöi ennfremur að það væri ekki óeðlilegt að framleiðendur tækju sig saman og keyptu sjálfa Grænmetis- verslunina. Það samræmdist nútíma viðskiptaháttum að innflutningur á kartöflunum yrði gefinn frjáls. Það væri einnig eðlilegt að landbúnaöar- ráðuneytiö eða viðskiptaráðuneytið sæju um að veita leyfi til slíks innflutnings og með þeim hætti að inn- lend framleiðsla yrði ekki fyrir skakkaföllum. -APH DV.ÞRIÐJUDAGUR 15. MAl 1984. að neytendur verði virkir aðilar í stjómun kartöflumála hér á landi. „Með þessu myndu tengsl neytenda og framleiðenda aukast og það er kappsmál okkar að neytendur séu ánægðir með framleiðsluna,” sagði Guðni Guðlaugsson, formaður Félags kartöflubænda. Kartöflubændumir lýstu því yfir að þeir væru ekki ónægðir með stjórnun GL og telja að innflutningurinn á finnsku kartöflunum sé á engan hátt verjandi. Þeir telja ekki að frjáls inn- flutningur á kartöflum muni leysa vandann og mótmæla honum harðlega. Þeir telja að slíkur innflutningur geti valdiö mikilli ringulreið og skipulags- leysi ó markaðinum. Það sé engan veginn hægt að hafa stjórn á slíkum innflutningi án þess að það komi niður á innlendri framleiðslu. Þá telja þeir einnig að með frjálsum innflutningi aukist hættan á að kartöflusjúkdómar berist hingað til landsins. Að lokum bentu þeir á að líkur væru fyrir því að neytendur yrðu fyrir tjóni þar sem dreifingarkostnaður yrði mun meiri og yrði honum velt yfir á herðar neytandans. Kartöflubændur sögðu að árið í fyrra hefði verið nokkuð sérstakt vegna uppskerubrests en vert væri að hafa í huga að í meðalárferði væm einungis fluttar inn kartöflur hingað til landsins í fóar vikur. Undir þessi mót- mæli skrifar stjórn Landssambands kartöflubænda, kartöflubænda á Suðurlandi, í öræfum, Homafirði og viðEyjafjörð. -APH. Stjórn Félags kartöflubænda á Suðurlandi loggur til að gerðar verði breytingar ð stjórn Grænmetis- verslunarinnar. Frá vinstri er Helgi Sveinsson, Páll Guðbrandsson, Kristján Gestsson, Guðjón Guðnason, Guðlaugur Árnason og standandi er Guðni Guðlaugsson formaður. Kartöf lubændur vilja breyta stjórn Grænmetisverslunarinnar: FULLTRÚAR NEYTENDA OG FRAMLEIÐENDA STJÓRNI Stjórn Félags kartöflubænda á Suð- metisverslunarinnar verði einungis leiðendursjáiumaðkjósasínafulltrúa urlandi leggur til að gerðar verði skipuö fulltrúum neytenda og fulltrú- í stjórnina og jafnvel Neytenda- gagngerðar breytingar á stjórn Græn- um framleiðenda og með oddamann. samtökin fulltrúa neytenda. Með þess- metisverslunarinnar. Stjóm Græn- fró landbúnaðarráðuneytinu. Fram- um breytingum telja kartöflubtendur Til hamingju strákar Islandsmeistararnir frá því í fyrra; Halldór Úlfarsson og Hjörleifur Hilmarsson urðu í 1. sæti ífýrsta ralli sumarsins AUTO-rallinu um daginn og þeir urðu í 2. sæti í Jó Jó-rallinu nú um helgina. Þeir eru alltaf í fremstu röð — á sóluðum radíaldekkjum frá okkur. fúLlltlUr JARÐAFL S 794S3 mmmm SMIÐJUVEGI34, KÓPAVOGI SKEIFUNN111, REYKJAVÍK - BREKKUSTÍG 37, NJARÐVÍK GeliBBjornssonl

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.