Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1984, Page 32
Fréttaskotió
68-78-58
SÍMINN
SEM
ALDREI
SEFUR
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku.
Fullrar nafnleyndar
er gœtt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
ÞRIÐJUDAGUR 15. MAI 1984.
Stakk
konu
sína
með hnífí
Liðlega fertug kona varö fyrir
hnífárás eiginmanns síns á Bjarkar-
götunni í gær og lagði maðurinn til
hennar meö eldhúshníf tvisvar
sinnum. Kom annað sárið undir hægra
brjóstið og hitt í upphandlegg kon-
unnar en maðurinn stakk síðan sjálfan
sig í kviðinn.
Hvorugt þeirra mun vera í lífshættu
eftir þennan atburð, að sögn rann-
sóknarlögreglunnar, og fékk konan að
fara af sjúkrahúsi í gær eftir að gert
hafði verið að sárum hennar. Maður-
inn er í vörslu lögreglunnar.
Rannsóknarlögreglan sagði að
maöur þessi mundi oft hafa hótaö konu
sinni líkamsmeiðingum en þau eru nú
umþaðbil aðskilja.
Yfirheyrslur verða yfir manninum í
dag og þá verður tekin ákvörðun um
hvort krafist verður gæsluvarðhalds-
úrskurðar y fir honum.
-FRI.
Búseti fær
ekki 80% lán
Samkomulag er nú milli stjórnar-
flokkanna að breyta frumvarpinu um
Húsnæðisstofnun ríkisins á þann veg
að tekin eru af öll tvímæli um aö
húsnæöissamvinnufélagið Búseti fái
ekki lán úr Byggingarsjóöi verka-
manna. Lán þessi nema 80% af
byggingarkostnaði.
Lögð var fram breytingartillaga við
þá grein frumvarpsins sem hér á viö í
gær. I samkomulagi stjórnarflokkanna
felst einnig að mál þetta verði faliö
milliþinganefnd sem skili áliti sínu
fyrir næsta þing. Frumvarpið um
Húsnæðisstofnun verður því afgreitt á
þessu þingi með þessari breytingu.
-ÖEF.
LUKKUDAGAR
15. MAÍ
39307
HLJÓMFLUTNINGSTÆKI
FRÁ FÁLKANUM
AÐ VERDMÆTI KR. 40.000,-
Vinningshafar hringi i síma 20068
LOKI
Mér fínnst að eggjadreif-
ingarstöðin ætti að vera í
Flugstöðinni.
Verður aukahús byggt við nýju flugstöðina
á Kef lavíkurflugvelli?:
POSTGEYMSLA
GLEYMDIST
„Það er óhætt að segja aö við erum
ekki hressir meö þetta,” sagði
Kristján Helgason, umdæmisstjóri
hjá Pósti og síma, um þá aðstöðu
sem pósthúsi er ætlað í nýju flugstöð-
inni á Keflavíkurflugvelli.
„Þetta er ekki nógu stórt til aö
annast alla þá þjónustu sem við telj-
um að þurfi að annast. Það er í raun
ekki gert ráð fyrir neinni geymslu
fyrir póst,” sagði Kristján.
Svo virðist sem hönnuðir flug-
stöðvarinnar hafi gleymt að gera ráð
'fyrir póstgeymslu, sem forráðamenn
Póst og síma telja nauðsynlega, enda
þótt engin slík sé í gömlu stöðinni.
Kristján Helgason var spurður
hvort hugmynd hefði komið fram um
að ieysa vandamálið með því að
smíða sérstaka byggingu viö hlið
flugstöðvarinnar undir póstgeymslu.
Kvaðst hann hafa heyrt um það.
Póstinum er annars ætluð aðstaða
á þremur stööum í nýju flugstöðinni.
Gert er ráð fyrir almennri afgreiðslu
á 1. hæð. Þó verður í transit-sal frí-
merkjasala og símaafgreiðsla. Auk
þess verður skrifstofuherbergi.
-KMU.
Húsnæði fyrirhugaðrar eggjadreifingarstöðvar að Vesturvör27iKópavogi.
DV-mynd GVA.
Ríkissaksóknari kærir
sakadómsúrskurð í
nauðgunarmálinu:
Hæstiréttur
úrskurðar
ímálinu
Ríkissaksóknari hefur kært til
Hæstaréttar sakadómsúrskurðinn í
nauögunarmálinu sem upp kom um
helgina og er búist við því aö Hæstirétt-
ur úrskurði í þessu máli öðrum
hvorum megin við helgina.
Rannsóknarlögreglan gerði kröfu
um gæsluvarðhald í héraði yfir manni
þessum en því var hafnað og sagði Þór-
ir Oddsson, vararannsóknarlögreglu-
stjóri ríkisins, í samtali við DV aö
ástæður kröfunnar væru að maður
þessi hefði ekki komið við sögu hjá
þeim undanfarið og ferill hans væri
óþekktur hjá þeim. Framburður hans
hefði verið óljós og teldu þeir ekki allt
upplýst í þessum málum.
Mál þetta kom til umræðu á alþingi í
gær er Sigríður Dúna Kristmundsdótt-
ir kvaddi sér hljóðs utan dagskrár.
Hún beindi þeirri fyrirspurn til dóms-
málaráöherra hvort hann teldi
meðferð málsins fyrir sakadómi eðli-
lega. Fleiri tóku þátt í umræðu um mál-
ið en í svari ráðherra kom m.a. fram
að þörf væri á endurskoðun á viður-
lögum við brotum af þessu tagi.
Stefnirí
verkfall
fíugmanna
Allt situr fast í kjaradeilu Flugleiða
og flugmanna félagsins. Upp úr við-
ræöum slitnaði síðastliðinn fimmtu-
dag. Þriggja sólarhringa verkfall hefst
aö óbreyttu aðfaramótt næstkomandi
föstudags.
„Hvomgur aðilinn hefur óskaö eftir
fundi. Eg reikna með aö hafa samband
við báða aðila íMag. Mér sýnist litil von
til samkomulags,” sagöi Guðlaugur
Þorvaldsson ríkissáttasemjari í
morgun. -KMU.
Eggjadreifingar-
stöðin undir þak
— nýtt stéttarfélag eggjabænda í undirbúningi
Samband eggjaframleiöenda hefur
nú tekið á leigu húsnæði undir eggja-
dreifingarstöð að Vesturvör 27 í Kópa-
vogi. Ekki er enn ljóst hvenær stöðin
getur tekið til starfa, en búið er að
panta hluta af nauösynlegum tækja-
búnaði og unnið er við að skipuleggja
húsnæðið fyrir væntanlega starfsemi.
Samband eggjaframleiöenda fékk
fyrr á þessu ári 2 milljón króna lán úr
kjarnfóðursjóði til að undirbúa stofnun
eggjadreifingarstöðvar. Að sögn Ey-
þórs Elíassonar, framkvæmdastjóra
sambandsins, hefur önnur opinber
fyrirgreiðsla ekki komið til.
Að eggjadreifingarstöðinni stendur
aðeins hluti af eggjabændum, en eins
og kunnugt er klofnaði sambandið í af-
stöðu sinni til þessa máls og stór hluti
félagsmanna, þar á meðal allir stærstu
framleiðendumir, sögðu sig úr
Sambandi eggjaframleiðenda. Að sögn
Gunnars Jóhannssonar, eggjabónda
að Asmundarstöðum, stendur til aö
þessi hópur stofni með sér annað stétt-
arfélag innan nokkurra vikna. Sagði
Gunnar að það félag ætti að berjast
fyrir sameiginlegum hagsmuna-
málum félagsmanna en gegn sérhags-
munum. -OEF.
Þingheimuríbeinni
útsendingu:
Eldhúsdagur
áAlþingi
Eldhúsdagsumræðum verður út-
varpað frá Alþingi í kvöld. Hefst út-
sendingin klukkan 20 og stendur fram
undir miðnætti. Þrír ræðumenn verða
frá hverjum flokki og hefur hver
flokkur 15 til 20 mínútur í fýrri umferð
og 10 til 15 mínútur í hinni síðari.
ÖEF
F ramkvæmdastof nun
kostaði 30 milljónir
Reksturskostnaður Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins varð 30,2
milljónir króna á síðasta ári. Fyrir
utan smávægilegar eigin tekjur fékk
stofnunin framlög að jöfnu úr Fram-
kvæmdasjóði og Byggðasjóði til
rekstursins.
Laun starfsmanna voru 19,2
milljónir, launatengd gjöld 1,8
milljónir og húsaleiga 1,8 milljónir.
Annar kostnaður dreiföist víða.
Athygli vékur þó að gestamóttökur
og risna kostuðu 620 þúsund, utan-
ferðir 1.032 þúsund og innanlands
757 þúsund, en aðeins fóru 191
þúsund í útgáfukostnað. Þá kostaði
endurskoðun 500 þúsund.
Eins .og kunnugt er greinir ríkis-
stjórnarflokkana á um framtíð þess-
arar stofnunar. Sjálfstæðismenn
telja hana óþarfa en framsóknar-
menn standa um hana vörð.
HERB