Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Page 1
DAGBLAOIÐ & VISIR
115. TBL. — 74. og 10. ARG. — LAUGARDAGUR 19. MAI 1984.
Pá er tími garðáhugamanna upprunninn og sjálfsagt eru þegar all-
margir búnir að hreinsa garða sína, tilbúnir til að setja niður blómin
þegar þeirra tími kemur. Aðrir eru að byrja að standsetja garða sína og
enn aðrir alls ekkert byrjaðir.
Garðrœkt er mjög fjölbreytt og margt er hœgt að dunda í garðinum.
Sífellt er hœgt að breyta og bœta. Með þessu garðablaði reynum við að
gefa fólki hugmyndir um yarða og gróður. Við reynum eftir fremsta
megni að gefa upp verð á þeim hlutum sem nauðsynlegir eru í garðinum
og hugmynd-ir.
Garðrœkt hefur farið sívaxandi á undanförnum árum og er nú svo
komið að garðar eru lagfœrðir um leið og flutt er inn í ný hús ef ekki
áður. Þannig er viðhorfið orðið allt annað en það var þegar víða mátti
Itta hirðuleysislega garða.
' íi ■■.:■■/. ",'■. ■ , "■■■■■: ■ ■ '■' ■. ■ ■ - ■
Hin ýmsu nýju efni, sem nú eru á markaðnum, gefa fólki líka meira
svigrúm til að Ufga upp á umhverfið. Og sannarlega hefur sú fjölbreytni
verið notuð. Auk alls þessa hefur fólk áttað sig á því að í garðinum er
hœgt að eiga margar ánœgjustundir yfir sumartímann. Og ekki spillir
fyrir hvað útiveran í garðinum er heilsusamleg.
Við vonum að þetta blað geti komið að góðum notum nú þegar
aðalvertíð garðáhugamanna er að bgrja. -ELA.
—
MALLORKA
Unaðsreíturínn
í suörí
Þessi vinsæla ferðamannaparardís Miðjarðarhafsins
er alltaí jafn seiðmögnuð og lokkandi.
Atlantik býður góða gististaði og þjónustu í sérflokki.
Beriö saman verð og gæði gististaðanna, sem í boði eru.
Við viljum að það fari vel um þig á Mallorka, þegar þú ferðast með okkur.
r»TC(WTi«
FERÐASKRIFSTOFA, Iðnaðarhúsinu Hallveigarstígl. Símar 28388 og 28580