Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Page 4
4
DV. LAUGARDAGUR19. MAl 1984.
Heilbrigjðisnef nd Reykjavíkur gef ur út
vandaðan bækling um garðaúðun:
Leyfum fuglun-
um að syngja
og blómunum
að frjóvgast
—og látum eitrið eiga sig
Eiturúöun á tré kom mjög til um-
ræðu á síðastliönu ári og varð sú
umræða til þess að eiturloftiö minnkaði
til muna. Hins vegar munu mörg tré
hafa verið étin upp til agna. Þess má
þó geta að fái tréð góöa umönnun og sé
sterkt fyrir þolir það slíka árás. Þó er
ekki víst að þaö blómgist í ár ef það
hefur þolað árásina illa. En viö skulum
gæta aö því aö það er ekki bara eitrið
sem kemur í veg fyrir maökana.
Nú í vor mun Heilbrigðisnefnd
Reykjavíkurborgar gera átak í því að
draga tii mikilla muna úr garöaúðun.
Að minnsta kosti verður eitrinu ekki
úðað um allar götur bæjarins eins og
vatni eins og tíðkast hefur undanfarin
ár. Til að koma í veg fyrir það eiturloft
sem hefur myndast á höfuðborgar-
svæðinu, verður gefinn út sérstakur
leiðbeiningabæklingur um þörf og ekki
þörf þess að úða eitri.
I þessum bæklingi kemur fram að
eiturúðun á aðeins að framkvæma ef
sýnt er að ekki ræðst við skaðvaldana á
annan hátt og þá einungis með væg-
ustu eiturefnum. Þau eiturefni, sem
notuö hafa verið undanfarin ár, hafa
mikla ókosti. Þau drepa ekki aðeins
skaövaldinn á trjánum heldur allt
dýralíf þar í kring og eitrið getur
einnig skaðað manninn.
Eiturefni þaö, sem notaö hefur verið
hér á landi, er 1300 sinnum sterkara en
efniö sem notað er á hinum Norður-
löndunum. Ef þörf er á að nota eitur-
efni er bent á hættuminnsta efnið, sem
er malation, og á einungis að nota þaö
á þau tré sem hafa mergð skordýra, og
ef raunveruleg hætta er á tjóni af
þeirra völdum.
I bæklingi þeim, sem Heilbrigðis-
nefnd Reykjavíkur er að senda frá sér,
kemur einnig fram að aöeins þrjár
tegundir fiðrilda af tuttugu og fimm
tegundum valda trjáskaöa. Aðeins
einu sinni á áratug eru fiðrilda-
stofnarnir stórir og þeir ráðast ein-
göngu á ákveðnar trjátegundir.
Með því að velja í garðinn okkar
I byrjun júní er sá tími sem
setja ber niöur plöntur, svo
sem sumarblóm og fjölærar
plöntur. Þó mun vera í lagi að
setja niður plöntur örlítiö síð-
ar.
Þegar blóm eru sett niður
verður að sjálfsögðu að velja
þeim góöan stað og mikla
birtu. Þó f er það mikið eftir því
hvaða planta á í hlut hvað hún
þolir og er því nauðsynlegt að
kynna sér vel meðferð plantn-
anna áður er þær eru keyptar.
Ekki borgar sig að setja of
mikið á einn stað. Ef margar
trjáplöntur sem skordýr sækja síst
eftir getum við átt mun fleiri ánægju-
stundir í garðinum og verið laus við
eiturloft.
öll barrtré, svo sem greni, fura,
lerki, þinur, þöll, sólber, alaskaösp,
alparifs, gljávíðir, gullregn og fleiri
tegundir eru í þeim flokki þar sem ekki
er þörf á neinum aðgerðum til að verja
þau.
I flokki trjáa, sem auövelt er að verja
fyrir fiðrildalirfu með límborða á
haustin, eru: álmur, askur, beyki, elri,
gráreynir, heggur, hlynur, reyniviður,
silfurreynir og úlfareynir.
Þau tré, sem verja má með vetrar-
úöun, eru allar víðitegundir (óþarfi er
þó að verja gljávíöi), rauðber (rifs)
rósir og lágvaxiö birki (allt að 2,5 cm
hátt).
Trjágróður, sem þarf að fylgjast
með aö vori, er birki og allur víðir
nema gljávíðir. Eftirlit með þessum
trjám er frá 20. maí til 15. júní. Ef
greinilegt er aö margar lirfur eru á
trénu þarf að fækka þeim. Má gera þaö
með ýmsum ráðum, til dæmis úða á
trén vatni, sóda, sápuvatni eða tóbaks-
legi, hrista tréð rækilega eða tína
lirfumar úr laufinu. Árangursríkast er
að úða eitri en það hefur ýmsa ókosti í
för með sér. Þó má benda á aö nota
aðeins vægt efni og úða aðeins þau tré
sem eru í hættu. Gagnslaust er að úða
þegar lirfumar em fullvaxnar.
I bæklingi þeim, sem heilbrigðis-
nefndin er að gefa út og Auglýsinga-
stofa Kristínar að vinna við um þessar
mundir, er sérstaklega varað við
brekkuvíði en hann er sérstaklega lús-
sækinn og viðkvæmur f yrir lirfum.
Bæklingur þessi er mjög fróðlegur
fyrir garðeigendur og ættu þeir að
kynna sér hann mjög vel áður en haf ist
er handa við aö úða eitri.
r
tegundir eru settar niður verða
þær aö passa saman.
E£ setja á niður rósir verður
að velja besta staöinn í garðin-
um. Rósir þurfa mjög mikla
umönnun en best er aö setja
þær niður á vorin áður en þær
laufgast. Einnig verður aö
athuga að hlúa verður mjög vel
að rósunum um vetrartímann.
Lauka, eins og t.d. páska-
liljulauka og túlípana, þarf
ekki að taka upp á haustin.
Hins vegar eru til laukar sem
þola illa veturinn eins og
gladíólur og begóníur.