Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Side 12
12
DV. LAUGARDAGUR19. MAI1984.
MARGAR GERÐIR HEITRA POnA
A MARKAÐNUM OG MISJAFNT VERÐ
Þeir sem eru meö sína einkagarða
vilja gjarnan fá heitan pott i garðinn.
Aörir hafa slíkan pott í garðstofunni.
Einnig eru nokkrir sem vilja hafa heila
sundlaug. A markaði hér á landi er all-
nokkurt úrval af slíkum pottum og
sundlaugum og er þá bæði um innlenda
og erlenda framleiðslu að ræða. Sumir
pottar eru seldir með öllu — þaö er að
segja meö nuddútbúnaði — en einnig
er hægt að fá pottana án alls auka-
búnaðar.
Innlendu pottarnir eru úr trefja-
plasti og eru þeir seldir án dælu-
búnaðar. Þó mun vel vera hægt að
setja slíkan búnað í þá.
Fossplast, Selfossi, hefur selt mikiö
af heitum pottum eins og þeir eru
gjarnan kaliaðir. Algengasta stærðin
er 2x2 m og kosta þeir frá 10.600
krónum upp í 15.500 krónur.
Trefjar, Hafnarfirði, eru einnig með
heita potta. Þar er aðeins ein gerð sem
er 2X2, rúmar fimm manns og kostar
28.783 krónur.
Trefjaplast, Blönduósi, er með
nokkrar gerðir af pottum og kosta þeir
20—28 þúsund krónur. Þeir eru 2X2 en
misdj úpir eða allt niður í 55 cm.
Gunnar Ásgeirsson hefur veriö með
mikiö af erlendum pottum á markaðn-
um. Þeir eru úr akrýli og með trefja-
grind, með loftnuddi en án dælu, og
kosta 62—69 þúsund krónur. Einnig er
Gunnar Ásgeirsson með mikið úrval af
margs konar sundlaugum.
Fyrirtækiö K. Auðunsson býður upp
á fjórar gerðir af akrýlpottum frá Kali-
forníu en þeir kosta í kringum 60
þúsund allslausir. 7—8 manna pottur
með loftdælu, loftnuddi, stútum, yfir-
falli og niðurfalli kostar 93.600 krónur.
5—6 manna pottur með því sama
kostar 80.100 krónur, lúxuspottur fyrir
5—6 kostar 99.800 krónur og lúxus-
pottur fyrir 3—4 kostar 81.400 krónur.
Tveir síðastnefndu pottarnir eru báðir
tilbúnir til notkunar.
Vatnsnudd í þessa potta kostar um
17.000 krónur. K. Auðunsson er með
sýningarpott í versluninni og kennir á
pottinn á staðnum.
Eins og sjá má er úrvalið mikið og
ekki tæmandi upptalningin hér að
framan. Við erum með þessari
upptalningu einungis að gefa fólki hug-
mynd um verð og síðan verður að
sjálfsögðu hver og einn að athuga um
gæði og hentugustu kjörin.
Lengjum fslenska sumarið
PLEXIGLER er áreidanlega
rétta lausnin fyrir þig