Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Side 18
DV. LAUGARDAGUR19. MAl 1984.
18
Plexiglermikið notað
ígarðstofur:
Glerið
Þaö er ekki langt síðan plexigler
kom hér á markað en það hetur unniö
sér gífurlegar vinsældir, sérstaklega í
garðstofur og lítil gróöurhús.
Plexigler hefur mjög mikið
einangrunargildi eða 2,9 K-gildi eða
10% meiri einangrun en venjulegt
rúöugler. Þess vegna hefur það verið
mjög vinsælt í garðstofumar sem hér
eru orðnar svo vinsælar. I garöstofur
er fyrst og fremst tekið tvöfalt plexi-
gler en það fæst í standard breiddum,
105,3 cm og 98 cm. Lengdin er alltaf
upp í sex metra, þó mun vera hægt að
sérpanta lengra gler.
Tvöfalt plexigler kostar 925 hver fer-
metri og þá glært en einnig er hægt að
fá þrefalt sem er 120 cm breitt og sömu
lengdir og sama verð á þvi. Plexigler
sem er 105,3 cm breitt hefur 32 mm bil
milli þverbanda en plexigler sem er
120 cm breitt er með 16 mm bili milli
þverbanda.
Eini munurinn á þessum tveimur er
sá að önnur gerðin hefur 86% ljós-
gegnumstreymi en hin 96%. Eiginleik-
arnir eru hinir sömu. Einnig er hægt að
fá reyklitað gler og kostar fermetrinnl
1018 kr. af því. Reyklitað gler hefur
60% ljósgegnumstreymi en hleypir
ekki útf jólubláum geislum i gegn eins
ogþaö giæra.
Plexiglerið er þannig útbúið aö þaö
sést ekki í gegnum það. Þess vegna
hafa margir valið það í garðstofur, sér-
staklega í veggi sem snúa að nágrönn-
unum. Hins vegar þar sem fólk vill
hafa útsýni hefur það valið venjulegt
gler.
Fyrirtækið Akron í Síðumúla selur
plexigler og þar er hægt að fá upplýs-
ingar um á hvern annan hátt er hægt
að nota plexigler. Að sögn þeirra hjá
Akron má búast við aö þegar búið er að
kaupa plexiglerið í garðstofu megi
áætlaö að 40—45% verðsins á öllu
húsinu séu komin ef fólk kaupir smiö til
að vinna verkið. En sökkull og bitar
eru eftir þegar glerið er komiö. Að
sjálfsögðu er svo æði misjafnt hvernig
fólk notar plexiglerið. Sumir nota það
aðeins í þakið, aðrir í tvo veggi eöa
bara einn, þannig að erfitt er að segja
til um heildarverö á garðstofu.
Plexigler hefur verið mjög vinsælt
i garðstofur enda hleypir það í gegnum
sig útfjólubláum geislum sólarinnar.
tilskrúð-
garðyrkju-
meistara:
„Skrúðgaröyrkja felst einkum í því
að laga eldri lóðir og byggja upp
nýjar,” sögðu þeir Þór Snorrason,
'formaður Félags skrúðgarðyrkju-
meistara, og Markús Guðjónsson
gjaldkeri er DV spurði hvað félagið
þeirra léti í té er fólk fengi þá til vinnu.
„Við teljum aö með því aö láta
skrúögarðyrkjumann sjá um lóðina
fáist miklu meiri nýting á henni. Við
útvegum allt efni sem til þarf, gras,
tré, blóm, hellur og hvaðeina. Oft höf-
um við líka ráölagt fólki sem síðan vill
sjálft vinna garðinn. Við kantskerum,
bætum við mold, hreinsum beð og þess
háttar í eldri görðum og oft er það
þannig að við vinnum á tímakaupi eða
gerum tilboð í verkið áður.
Við tökum einnig að okkur klipping-
ar á trjám. Það verður aö gerast áður
en trén laufgast og síöan aftur er þau
eru fulllaufguö.
Þaö hefur aukist mjög mikið að fólk
fái landslagsarkitekt til að teikna upp
lóðina og ráði síðan skrúðgarðyrkju-
THERMO CLEAR:
Plast með mikinn
sveigjanleika
Thermo Clear er plast sem mjög
mikið hefur veriö haft í garðstofur en
er þó að langmestu leyti notaö í gróður-
hús. Einnig hefur Thermo Clear verið
notaö á svalir, í geymsluglugga, þak-
glugga, gripahús og í anddyri við hús.
Thermo Clear hefur mikið
einangrunargildi eða k-gildi, 3,2 í
tvöföldu plasti en í þreföldu 2,2. Ástæða
þess að Thermo Clear hefur verið svo
Þetta hús lét Skógræktarfélag
Reykjavikur reisa i Fossvoginum og
var notað í það Thermo Clear.
DV-mynd Bragi Guðm.
mikið notað í gróðurhús er t.d. hversu
sveigjanlegt plastið er og einnig
hversu vel það heldur hita.
Thermo Clear er mjög sterkt plast
og það brennur ekki. Plastiö hleypir í
gegnum sig hluta af útfjólubláum
geislum sólarinnar eins og akrylplötur
gera. Ekki sést í gegnum plastiö og er
það því ekki notað þar sem á að njóta
útsýnis.
Mjög margir hafa valið Thermo
Clear plastið í viðbótarbyggingar við
stofur, sérstaklega þar sem ekki á að
sjást inn.
Það er Konráð Axelsson, Ármúla 36,
sem selur Thermo Clear og er verð á
plötum án festinga eins og hér segir:
16 mm þrefaldar, heilar plötur, 2,10 x 6,0 m
10 mm tvöfaldar, heilar plötur, 2,10 x 6,0 m
8 mm tvöfaldar, heilar plötur, 2,10 x 6,0 m
6 mm tvöfaldar, heilar plötur, 2,10 x 6,0 m I
41/2 mm tvöfaldar, heilar plötur, 2,10 x 6,0 m
kr. 983,-
kr. 598,-
kr. 528,-
kr. 457,-
kr. 352,-