Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1984, Qupperneq 2
2
•jut íwT'n n* r«iv»*ft;»Tw<n>sr w
DV. FIMMTUDAGUR 21. JUNI1984.
Verkföllíhaust?
Fólkið fúsara að fylgja
eftir kröfunum
„Það er þungt hljóð í mönnum,
þyngra en nokkru sinni fyrr. Fólkið er
fúsara til að fylgja eftir kröfum sínum
nú en áður,” sagði Lárus Guöjónsson,
einn fulltrúa á formannafundi Verka-
mannasambandsins, í samtali við DV.
Á formannafundi þessum voru um
fjörutíu manns og var samþykkt sam-
hljóða áskorun framkvæmdastjómar
Verkamannasambandsins um að
verkamannafélögin segi upp samn-
ingum frá 1. september.
„Við lögðum fram kröfugerð á
þessum fundi,” sagði Karl Steinar
Guðnason, varaformaður Verka-
mannasambandsins. „Hún felur í sér í
fyrsta lagi 14 þúsund króna lágmarks-
laun. 1 öðru lagi að taxtakerfið verði
endurskoðað þannig að fuilt tillit verði
tekið til vinnuálags og starfsaldurs. I
þriðja lagi aö reiknitölur fylgi töxtum
svo að taxtar fyrir bónus verði miðaðir
við gildandi dagvinnukaup og í fjóröa
lagi munum við í komandi kjara-
samningum taka fullt tillit til raun-
hæfra verölækkana sem kjarabóta.”
— Eigum viö von á hörðum átökum
á vinnumarkaðinum í haust?
„Ja, við erum að fara í baráttu. Við
munum halda fast fram okkar kröfum
vegna undangenginna kjara-
skerðinga.”
— Þýðir þetta ekki í raun verkföll í
haust?
„Það get ég ekki sagt um eins og
stendur,” sagði Karl Steinar Guðna-
son.
-KÞ.
I _1__ - WZ/í&i • jsg
fetSJr■■ • 'Ttr ■■■ ••■ ■»••• • •
Ef tekíð er meðaltal þríggja mest
seldu bíla hérlendís kemur í ljós
að Skoda '84 er hvorkí meíra
né mínna en ÞRIÐJUNGI STÆRRI
O0 bví mtín rúmhotrí on Uoí*-
Frá formannafundi Verkamanna-
sambandsins i Lindarbæ on þar voru
mættir um fjörutiu manns.
DV-mynd Arinbjöm.
Akureyri:
Norræna
hafnar-
sambandið
þingar
Tólfta ársþing Norræna hafnarsam-
bandsins er nú haldið á Akureyri en
þessi þing eru haldin til skiptis á
Noröurlöndunum annað hvert ár.
Þrjú mál eru efst á baugi á þinginu,
þróun hafnarmála á Noröurlöndunum,
tækninýjungar á hafnarsvæðum og
brúttóstærð skipa sem mælikvarði á
hafnargjöld.
Frá hverju hinna Norðurlandanna
sitja 10 fulltrúar en með Islendingun-
um eru þetta alls 65 fulltrúar.
JBH/Akureyri
VISITALA
BYGGINGAR-
KOSTNAÐAR
HÆKKAR
Visitala byggingarkostnaðar eftir
verðlagi í fyrri hluta júní 1984 reyndist
samkvæmt Hagstofunni vera 163,87
stig sem hækkar í 164 stig. Gildir þessi
vísitala á tímabilinu júlí—september
1984. Samsvarandi vísitala, miðuð við
eldri grunn, er 2428 stig og gildir hún
einnig á sama timabili til viðmiðunar
við vísitölur á eldri grunni.
Hækkun vísitölunnar frá því hún var
síðast reiknuð lögformlega, í mars
1984, er úr 157,99 stigum þá í 163,87 stig
í júní 1984. Erþað3,72%hækkun.
Áætluð vísitala byggingarkostnaðar
miðað við maíverðlag 1984, var 161,48
stig og er því hækkun hennar frá maí
til júní 1,48%.
Milljarðar
Prentvilla varð í frétt DV í gær um
vanskil útgeröarinnar við Fiskveiða-
sjóð. Þar átti að standa 5,5 milljarðar
en ekki 5,5 milljónir. Viökomandi
málsgrein verður því birt hér aftur
leiðrétt:
„Ef allir útgeröarmenn sem hafa
fengið lán hjá Fiskveiðasjóði heföu
tekið sig til þann 30. maí og greitt lánin
og vanskilaskuldimar upp hefðu þeir
oröið að borga 5,5 milljarða til Fisk-
veiðasjóðs. Það er heildarskuld út-
gerðarinnar við s jóðinn. ”
Því má bæta við að vanskil útgerðar-
ínnar 30. maí voru 820 milljónir eins og
greintvarfráígær.
-JGH