Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1984, Blaðsíða 9
DV. FIMMTUDAGUR 21. JÚNl 1984.
9
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Hætt var við byggingu kjarnorkuversins i Naw Jersey eftir slysið á
Three Miie Islandi Pensylvaniuríki.
Kjarnorkuver á uppboði
Fyrsta uppboö í heimi á kjarnorku-
veri fer nú fram í New Jersey í
Bandarík junum og hófst þaö á því aö
uppboðshaldarinn lýsti eftir tilboð-
um í gufurafal og kjarnaofn.
Meir en 300 brotajámssalar komu
til uppboðsins og sagöi uppboðshald-
arinn, Rick Hutchinson, að búast
mætti við að tekjur af uppboðinu
yrðu um ein milljón dollara.
Eigandi kjarnorkuversins, fyrir-
tækið Jersey Central Power and
Light Company, hætti við að byggja
kjarnorkuverið eftir slysiö sem varð'
í kjarnorkuverinu á Three Mile
Island í Pensylvaníufylki. Þá var að-
eins búið að byggja um 5% af verinu.
Þá hafði byggingin kostað 400
milljónir dollara.
Bandaríkin:
Herflutningavélar
til þjóðemissinna
Meðgullískó
Michael Armstrong, starfsmaður við’
gullhreinsistöð i Bretlandi, gekk dag-
lega úr vinnunni með auðæfi undir fót-
um sér. Hann komst framhjá öryggis-
eftirliti við gullhreinsistöðina, sem er
mjög strangt, með þvi að fela gullörð-
ur í vinnuskóm sínum. Á þrem árum-
smyglaði hann út gulli að andvirði 5,1
milljón króna. En hann kom minnstum
hluta af því í verð. Fengurinn fannst
heima hjá honum, falinn undir rúmi og
í krukkum i geymslunni.
Armstrong viðurkenndi þjófnaðinn
•og var dæmdur í þriggja ára fangelsi.
Fomkínverskur
postulínsvasi
finnstáeldhúshillu
íLondon
Kinverskur postulínsvasi frá timum
Mingkeisaraættarinnar frá fyrri hluta
fimmtándu aldar var seldur á uppboði
hjá Sothebys í London og var hæst
boöið í hann 48.500 pund, eða tæplega
tvær milljónir króna.
Vasinn sem er blár og hvítur að lit
hafði verið gefinn móður konunnar
fyrir 60 árum af fjölskylduvini sem
hafði fengið hann í arf. Þaö var jap-
anskur listaverkasali sem keypti vas-
ann, sem er 25 sentimetrar á hæð.
Konan sem átti hann áður geymdi
hann inni í eldhúsi hjá sér.
Fjöldamorð
íNewYork
Christopher Thomas, 34 ára gamall
New Yorkbúi, hefur verið ákærður
fyrir morð á tíu manns, þar af átta
bömum, í stærsta fjöldamorði fyrr og
síðar í New York. Christopher Thomas
var kærður í fangelsi þar sem hann var
i varðhaldi, ákærður fyrir nauðgun.
Taismaður lögregluhnar í New York
sagði að Thomas hefði taliö Enrique
Bermudez eiga í ástarsambandi við.
konu sína. Þetta sagði lögreglumaður-
inn að væri ekki rétt.
Thomas drap konu Bermudez, tvær
dætur hans og tvær dætur konunnar af
fyrra hjónabandi, ásamt frændfólki
sem var í heimsókn. öll voru hin myrtu
skotin í höfuðið af stuttu færi. Það var
Bermudez sem fann líkin og einnig 11
mánaöa stúlku sem slapp lifandi. Hún
haföi dottið í gólfið.
Sovésk rokkhljóm-
sveit gagnrýnd
opinberlega
Sovéska dagblaðið Vechemyaya
Moskva lýsti undrun yfir því að rokk-
hljómsveit fengi að leika í Moskvu með
reyksprengingum og heymarskemm-
andi hávaða. Sagöi blaðið aö rokk-
hljómsveitin Kruiz hefði nýlega lokið
röð sjö tónleika i stórum sal í Moskvu.
Bandarisk stjórnvöld, sem hafa lýst
sig reiöubúin að selja Kínverska al-
þýðulýðveldinu vopn, hafa nú tilkynnt
aö þau muni einnig selja stjóm Þjóð-
emissinna á Taiwan tólf stórar her-
flutningaflugvélar. Samkvæmt til-
kynningu bandariska vamarmála-
ráðuneytisins til þingsins hyggjast
bandarísk stjómvöld selja stjórnvöld-
um á Taiwan tólf Herkules-flutninga-
vélar sem eiga að koma í stað eldri
flutningavéla sem her Þjóðemissinna
nú notar.
„Hvernig getur svo fáránlegt fyrir-
bæri komist á svið í Moskvu?” spyr
blaðið og lýsti reykskýjum og skugga-
legum síðhærðum tónlistarmönnum.
Segir i blaðinu að hávaöinn i hljóm-
sveitinni hefði verið slíkur að fólk hefði
yfirgefið salinn eftir tvö fyrstu lögin.
Bætir blaðið því við að það sé engin
furða að hljómsveitin hafi ekki hlotið
náð fyrir eyrum opinberra plötuút-
gáfa. Hljómsveitin gengi svo langt til
að vekja á sér athygli að hávaðinn væri
hættulegur heilsu tónleikagesta og ætti
að hafa neyðarvaktir á nálægum
sjúkrahúsum þegar hljómsveitin héldi
tónleika.
Fyrir ári síðan gagnrýndi
Konstantin Chernenko unga listamenn
í Sovétríkjunum og heimtaði að þeir
héldu sig við rétta hugmyndafræði.
Síðar var hljómsveitum sem stæla
vestrænar popphljómsveitir sagt að
breyta ímynd sinni eða hætta tónleika-
haldi.___________
Sterkastamót
ískáksögunni
Sovéskir skákmenn munu keppa við
„Herflutningaflugfloti Taiwan er nú
svo til eingöngu búinn gömlum flugvél-
um, frá fimmta og sjötta áratugn-
um,” sagði í tilkynningu vamarmála-
ráöuneytisins til þingsins. „Sala á flug-
vélunum og varahlutum í þær mun
ekki hafa áhrif á hernaöarjafnvægið í
þessum heimshluta,” sagði einnig í til-
kynningunni og er þar greinilega átt
við kröfur stjórnvalda á meginlandinu
um aö Bandaríkjamenn hætti að selja
Taiwanstjóm vopn.
heimslið í London og hefst keppnin um
næstu helgi. Segja skipuleggjendur
keppninnar að þetta verði sterkasta
skákkeppni í sögu skáklistarinnar.
Tefldar verða fjóra umferðir og
verða tíu skákmenn í hvom liði. Meðal
kappa í sovéska liöinu verða Karpov
heimsmeistari og Kasparov sem unnið
hefur rétt til að skora á heims-
meistarann. Þá verður Smyslov meöal
keppenda fyrir Sovétmenn.
I heimsliðinu verða m.a. Viktor
Kortsnoj sem var sovéskur ríkis-
borgari en teflir nú fyrir Sviss og
Zolton Ribli, ungverski meistarinn.
Anetoiy Karpov heimsmeistari
verður meðal sovásku keppend-
anna á mótínu i London.
tjvítír. Rauðir. Gulir. Bláir.
19-23*620,- 24-27 675
Sendum í póstkröfu
AUSTURSTRÆTIÍO SÍMI 27
Meira en venjuleg verslun!
Hvítir. Rauðir. Gulir.
18-23
Hvítír. Rauðir. Gulír
Svartir. Hvítír
19-27 445,-