Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1984, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1984, Side 7
DV; PIIvíMTUDA'GfDE M:JTJ«IT»4.Va 7 Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Góð fjár- festing Allar bifreiöar eiga að vera útbúnar öryggisbeltum í framsætum bifreiða. Enn sem komið er hafa ekki verið gerðar neinar reglur þess efnis að öryggisbelti þurfi að vera í aftursætum bifreiða. Það er hins vegar flestum ljóst að aftursætisfarþegar, sem ekki nota neinn öryggisbúnað, eru í mikilli hættu ef til árekstrar kemur. Það gildir með þessi mál sem svo mörg önnur aö það er of seint að byrgja brunninn þegar barnið er dottið ofan í hann. Ef menn hafa ekki efni á að kaupa þennan útbúnað geta þeir spurt sig hvort þeir hafi efni á að hafa t.d. böm sin laus í aftursætinu. öryggisútbúnaöur af ýmsu tagi er nú víða fáanlegur í varahlutaverslunum, bílaumboðum og á bensínstöðvum. Búnaður fyrir ungbörn Það fer best á því að láta kornaböm iiggja í burðarrúmi eða efri hluta bamavagns í aftursætinu. Höfuð barnsins á að Iiggja inn aö miðju bif- reiðarinnar og önnur hlið rúmsins á að liggja þétt upp aö framsætisbakinu. Bæði undir rúminu og til hliöar er hægt að koma fyrir hentugum hlutum sem styðja við það. Þá eru einnig fáanlegar sérstakar ólar til að festa niður burðar- rúm í aftursætum. Þegar barnið getur setið Þegar bamið er orðið það gamalt er kominn tími til að venja það við að sitja í barnabílstól. Það em til margar gerðir af barnabíistólum. Við kaup þeirra er fólki ráðlagt aö athuga hvort á þeim séu merkingar sem sýna að þeir séu viðurkenndir sem öryggisbún- aður. Algengast er að hafa bamabílstóla í aftursæti en til em stólar sem hægt er að hafa í framsætinu. Það kemur að því að barnabílstóllinn verður of lítill fyrir barnið og er þá kominn tími til að láta það nota bílbelti. Til em sérstök barnabilbelti og einnig sértilgerðir púðar sem barnið situr á og getur þá notað fulloröinsbílbelti. Það ætti að vera öllum ljóst að það er góð fjárfesting að kaupa öryggisbún- að í aftursæti bifreiða. En það er reyndar ekki nóg að láta setja slíkan búnað í aftursætið það verður líka að notahann. APH Leiðrétting Eigandi veitingastaðarins Fells í Breiðholti hafði samband við okkur og vildi koma þvi á framfæri aö í verðkönnun Verðlagsstofnunar, sem nýlega var gerð á fjölmörgum veitingahúsum, hefði verið rang- lega farið með verð á veitingastað hans. Odýrasti svínakjötsrétturinn var sagður kosta 385 en kostar í raun 340. Odýrasti nautakjötsrétturinn kostar ekki 395 heldur 230, lamba- kjötsrétturinn kostar 140 en ekki 194, hálfur kjúklingur kostar 279 en ekki 324 og djúpsteikt ýsuflök kosta 149 en ekki 194. Þá kom einnig fram aö kaffið kostaði 20 krónur eftir mat en það rétta er að kaffiö er ókeypis fyrir matargesti. APH Sumartilboð Hígh-Tech 260 G0^ Háþróuð hljómtækjasamstæða fyrír kröfuharðan nutímamann Vandaður skápur mcð glerhurð og á hjólum. Ath. Fengum aðeíns 90 sett af þessarí frábæru samstæðu á stórlækkuðu sumartííboðsverðí eða aðeíns 28.850.- (verð áður^33r460.-) • Magnari 2x35 sínus wött (120 músík- wött) með fullkomnu tónstillikerfi SOUND EXCHANGER. • Steríó útvarp með FM, MB og LB. • Tveir 60 watta hátalarar (3 Way) ___ • Kassettutækið tekur allar gerðir af I A ■ f kassettum, leítari, Dolby B og það |J| || | nýjasta: Nyja Dolby kerfið Dolby C. BRAUTARHOLTI 2 Akranes: Stúdíóval. Akureyrí: Tónabúðin. Borgames: Kaupfélagið. Eskifjörður: Pöntunarfélagið. Hafnarfjörður: Kaupfélagið, Strandgöiu. Hella: Mosfell. Homafjörður: Radíóþjónustan. ísafjörður: Eplið. Keflavík: Stúdíó. Neskaupstaður: Kaupfélagið. Reyðarfjörður: Kaupfélagið. SeYðísfjörður: Kaupfélagið. Tálknafjörður: Bjarnar- búð. Vestmannaeyjar: Músík og Myndir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.