Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1984, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1984, Qupperneq 18
18 i'VTf'; r. r? ;*7ri:ITYWTVO DV. FIMMTUDAGUR 21. JtJNl 1984. íþróttir Allir leik- menn Frakka hafa leikið — nema varamarkverðirnir Frá Árna Snævarr, fréttamannl | DV í Frakklandi. Þegar Daniel Bravo kom inn á sem I varamaður fyrir Ferreri á 77. mín. í leik Frakklands og Júgóslavíu höfðu allir ieikmennirnir í franska GM- hópnum — nema varamarkverðirnir tveir — leikið í Evrópuleikjum Frakklands nú, eða 18 leikmenn. óttir Iþróttir íþróttir Slíkt hefur ekki skeð hjá öðrum lið- umþar. Ferreri, sem leikur með Auxerre eins og Joel Bats, markvörður, meiddist í leiknum við Júgóslava. Líklegt er þó talið að hann geti leikið í undanúrsiltum á Iaugardag. Tveir ieikmenn Monaco, Le Roux, sem slasaðist í samstuðinu við Allan Simonsen í fyrsta leiknum, er það illa farinn á hné að litlar sem engar likur er á að hann leiki meira í Evrópukeppninni. Þá er Genghini meiddur og lék því ekki gegn Júgó- slavíu. ÁS/hsím. Fjórir Danir meiddir Frá Gunnlaugi Á. Jónssyni — f réttamanni DV í Svíþjóð: — Eg bjóst við Belgíumönnum hörðum en ekki svona grófum, sagði Sepp Piontek, landsiiðsþjálfari Dana, en hann var afar óhress með hvernig Belgíumenn fóru með leikmenn hans. Fjórir leikmenn Dana eru meiddir eftir leikinn en það er þó reiknað með að þeir geti leikið í undanúr- slitunum í Lyon á laugardaginn. Þeir sem eiga við meiðsli að stríða eru Morten Olsen, miðvörðurinn sterki, Klaus Berggreen, Preber Elkjær Larsen og Frank Arnesen. -GAJ/-SOS. Loksins skorað hjá Bats — franski markvörð- urinn hélt markinu hreinu í662 mínútur Frá Árna Snævarr, fréttamanni | DV í Frakklandi. Þegar Joei Bats, markvörður I Frakklands, fékk á sig mark á 32. mín. í leik Frakklands og Júgóslavíu í St. Etienne í fyrrakvöid hafði hann haldið landsliðsmarkinu franska hreinu i 662 mín., eða í sjö landsleikj- um og 32 mín. betur. Þá loks þurfti hann að horfa á eftir knettimun í markið, þegar Júgóslavinn Milos Sestic skoraði. Hann hafði ekki áður leikið í júgóslavneska liðinu i Evrópukeppninni en átti mjög snjall- | an leik gegn Frökkum. Joel Bats hefur vakið mikla at- I hygii siðan hann var valinn í franska I landslíðið. Áð visu fékk hann á sig I þrjú mörk i fyrsta Iandsleik sinum. I Það var i Kaupmannahöfn 7. septem- ber sl. þegar Danir sigruðu Frakk- I land 3—1. Næsti iandsleikur hans var I gegn Spáni í Paris 5. október. Jafn- I tefli varð 1—1 og skoraði Senor fyrir I Spánverja úr vítaspyrnu. Siðan I hefur Bats ekki fengið á sig mark þar I til Sestic skoraði í fyrrakvöld — eða í Tveir snjallir frá Englandi aðalkennarar — við knattspymuskóla PGL, DV og Flugleiða sem hefst á KR-svæðinu í júlí Joel Bats, markvörður Frakka. sjö landsieikjum, gegn Júgósiavíu (0—0 í Zagreb), Englandl (2—0 i París), Austurríki (1—0í Bordeaux), Vestur-Þýskalandi (1—0 í Stras- bourg), Skotlandi (2—6 i Marseille) og síðan í leikjunum við Danmörku og Belgíu í Evrópukeppninni. ÁS/hsim. Nantes vill fá Bertelsen Frá Gunnlaugi Á. Jónssyni — frétta- manni DV í Sviþjóð: — Jens Jörn Bertelsen, miðvallar- spilari danska landsliðsins, er nú frjáls ferða sinna eftir að félag hans í Belgíu, Seraing, varð gjaldþrota. Tvö frönsk félög slást um hann — Nantes og Sochoux, en einnig hefur QPR áhuga á honum. —' Ég tek enga ákvörðun um hvað ég geri fyrr en eftir EM-keppnina, sagði Bertelsen í g®r. -GAJ/-SOS KNATTSPYRNUFÉLÖG Pottþétt ■ FjáfÉsiiM fjáröflun. Auðveld framkvæmd. LUKKUSPIL Nýjar leiðir til að fjármagna félagsstarfið. SJÁLFSALAR FYRIR MIÐA VÆNTANLEGIR. Upplýsingar og pantanir: Kristján L. Möller, Siglufirði, sími 96-71133. Söluumboð í Reykjavík: Karl H. Sigurðsson, Garðabæ, sími 40565. Eins og frá hefur verið sagt i DV koma tveir snjallir knattspyrnumenn til íslands — þeir Phil Thompson frá Liverpool og Brian Talbot frá Ársenal, til að stjórna knattspyrnuskóla PGL, DV og Flugleiða sem verður á KR- svæðinu 3. til 7. júli. Það er geysilegur áhugi fyrir skóla þessum sem er fyrir drengi 8—16 ára. 100 drengir geta verið á þessu nám- skeiði og verður aö tilkynna þátttöku í félagsheimili KR við Frostaskjól — síma 27181. Námskeiðið mun standa yfir frá kl. 10 á morgnana til kl. 16. Æfingaprógramm er vel skipulagt og þá verða einnig video-fundir þar sem sýndar verða knattspyrnumyndir, eins og myndir um sóknarleikmanninn Kevin Keegan, miðvallarspilarann Trevor Brooking, Arsenal, Liverpool, og brasilíska knattspymu. Æfingar byggjast upp á knatttækni og leikfléttum, svo eitthvaö sé nefnt. Þeir drengir sem hafa áhuga á að taka þátt og vera með í knattspymu- skólanum ættu aö láta skrá sig tíman- lega. Þátttökugjald er kr. 1200. -SOS Völler á séræfingu — þegar aðrir leikmenn vesturþýska landsliðsins fóru í skoðunarferð til Parísar Frá Gunnlaugi A. Jónssyni — frétta- manni DV í Svíþjóð: Boltinn kemur í fallhlíf Það verður mikið um dýrðir á Akur- eyri á föstudagskvöld þegar leikur KA og Breiðabliks í 1. deild íslandsmótsins í knattspymu fer fram á aðalleik- vanginum. Fyrir leikinn og í leikhléi mætir Hall- bjöm Hjartarson ásvæðiðog leikur list- ir sinar og svo rétt áður en leikurinn hefst fleygir Sigurður Bjarklind fall- hlifarstökkvari sér út úr flugvél yfir vellinum og lendir á honum stuttu síð- ar með knött þann er Ieikið verður með. Leikurinn hefst síðan kl. 20.00. -sk. Elkjærfer til Verona „Samningur Elkær fyrir hann persónulega er sá besti, sem nokkur danskur atvinnumaður hefur náð. Betri en þegar Ailan Simonsen fór til Barcelona,” sagði Fritz Ahlström, blaðafulltrúí danska landsliðsins, eftir að Preben Elkjær Larsen hafði sam- þykkt þriggja ára samning við italska Iiðið Verona. Það skeði nóttina eftir leik Danmerkur og Belgíu i Stras- bourg. Fulitrúar hins belgíska félags Elkjær, Lokeren, vom þar og þeir náðu samkomulagi við Verona eins og Dan- inn. Talið er að söluverð sé um 45 millj- ónir króna eða helmingi meira en Lokeren ætlaði sér í fyrstu að fá. Elkjær hefur staðiö sig frábæriega vel í Frakklandi, og mörg félög kepptust um að fá hann til sin. Þegar samningur hans við Lokeren rann út í vor hafði ekkert félag boðið í hann. Hann hefur ekki skrifað undir samning við Verona en verður að gera þaö fyrir mánaðamót. hsim. — Mörg félög hafa áhuga á V-Þjóð- verjanum Rudi Völler og hefur Terry Venables, nýi framkvæmdastjóri Barcelona, lýst því yfir að Völler sé efstur á óskalista hjá félaginu. — Ég er samningsbundinn Bremen þar til i júli á næsta ári. Ég hef ekki hug á að gerast leikmaöur með erlendu félagsliði á næstunni. Mun einbeita mér að landsliðinu og þaö verður ekki fyrr en í fyrsta lagi eftir HM-keppnina i Mexikó að ég get hugsað mér aö fara til erlends félags, sagði Völler. Varð eftir til að æfa Völler hefur vakið mikla athygli í Frakklandi fyrir hvað hann er einbeitt- ur. Þess má geta að þegar leikmenn v- þýska liðsins fengu frí á dögunum til að fara í skoðunarferö um París varð Völler eftir í æfingabúðunum fyrir utan Paris þar sem hann æföi sig sér- staklega — var á ferðinni með knöttinn ogtókskotæfingar. -GAJ/-SOS Rudi Völler átti frábæran leik gegn Rúmeníu í Evrópukeppninni í Frakk- landi. Skoraði bæði mörk Vestur- Þýskalands i 2—1 sigrinum. Myndin er frá leiknum. Magnús sigr- aði á Nesinu Magnús Jónsson frá Keflavík varð sigurvegari i meistaraflokki í Pierre Robert-golfmótinu sem fór fram á Nes- veilinum. Magnús lék 18 holur á 69 höggum. Jón Haukur Guðlaugsson, NK, og Úlfar Jónsson, GK, léku á 75 höggum. Þeir þurftu því að heyja bráðabanakeppni og lauk henni með sigri Jóns Hauks. Sólveig Þorsteinsdóttir, GR, varð sigurvegari í kvennaflokki án forgjaf- ar, á 81 höggi, en Kristín Pétursdóttir, GK, með forgjöf, á 68 höggum. Guðbjartur Þormóðsson, GK, varð sigurvegari, með forgjöf, í karlaflokki á 64 höggum og Jón Sigurösson, NK, varö sigurvegari í karlaflokki, án for- gjafar, á 75 höggum. Pólverjar lögðu Dani Frá Gunnlaugi A. Jónssyni — frétta- manni D V í Sviþjóð: — Pólverjar unnu sigur, 25:20, á Dönum í seinni landsleik þjóðanna i handknattleik sem fór fram í Svend- borg á þriðjudagskvöldið. Klaus Jensen varð markahæstur hjá Dönum, með sex mörk, en Waszkiewics varð markahæstur Pólverja, einnig með sex mörk. HAMINGJUSAMASTI MAÐUR FRAKKLANDS eigandi Pub Danois í Lyon Frá Árna Snævarr — fréttamanni DV í Frakklandi: — Hamingjusamasti maðurinn í Frakklandi er nú eigandi bjórstofunn- ar Pub Danois i Lyon. Draumur hans um að Danlr myndu leika í undanúr- slitum í Lyon á sunnudaginn rættist heldur betur og er hann nú þegar byrjaður að undirbúa komu dönsku knattspyrnuáhangendanna aftur til Lyon en hann græddi mikið um sl. helgi þegar Danir léku gegn Júgóslövum i borginni. Dönsku áhangendurnir gerðu danska pöbbinn að herbúðum sinum i Lyon og viðskiptin fóru langt yfir venjuleg ársviðskipti. Nú eru dönsku stuðningsmennirnir semsé á leiðinnl til Lyon frá Stras- bourg og viðskiptln á Pub Danols halda áfram að aukast. Á aðeins tveimur helgum mun eigandi kráarlnnar þre- falda árstekjur sinar. -ÁS/-SOS íþróttir Iþróttir íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.