Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1984, Blaðsíða 16
16
DV. FIMMTUDAGUR 21. JUNI1984.
Spurningin
Spennirðu
beltin?
Jóhann Oskarsson bóndi: Nei, mér
finnst betra aö vera óspenntur.
Höskuldur Vilhjálmsson verkamaöur:
Yfirleitt spenni ég beltin, já, en ekki
ailtaf.
Jens P. Jensson: Þegar ég fer út úr
bænum nota ég beltin, annars geri ég
þaö yfirleitt ekki.
Ásdís Höskuldsdóttir gjaldkeri: Þegar
ég er úti á vegum spenni ég beltin. I
bænum er sennilega of mikill flýtir á
manni til aö gera þaö.
Guðmundur Jóhannsson húsasmiður:
Já, ég spenni beltin oftast, þaö er nauð-
synlegt að notast viö þau.
Oskar Valdimarsson: Ekki alltaf.
Maöur gefur sér sennilega ekki alltaf
tíma til'að spenna þau, flýtirinn er þaö
mikill.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
HENTIHVOLP1NUM ÚT
06 KEYRÐIIBURT
— vantar nú heimili
Geir Grétar Pétursson hringdi:
Fyrir nokkrum dögum var ég á
ferö milli Selfoss og Hveragerðis.
Veður var slæmt, hífandi rok og
rigning. Skyndilega kom ég auga á
iítinn hund sem var aö sniglast utan
vegar. Við nánari athugun kom í ljós
að þama var á ferðinni nokkurra daga
gamall hvolpur, kaldur og hrakinn.
Eg tók hann meö mér heim og hlúöi
aö honum.
Þaö einkennilega er aö um svipað
leyti fann Stokkseyringur einn þrjá
hvolpa f jarri mannabyggöum, einnig
nokkurra daga gamla. Við athugun
kom í ljós aö þarna reyndist liklega
vera um hunda af labrador-kyni að
ræöa. Af sama kyni var hvolpurinn
sem ég fann.
Fólk, sem ég hef rætt við, segist
hafa séö bíl frá Þorlákshöfn á ferðinni
á svipuðum slóöum og hvolpamir
fundust. Er þaö rökstuddur grunur
manna að bilstjórinn hafi hent
hvolpunum út og losað sig þannig viö
þá á miður geöslegan hátt. Þaö
hlýtur aö þurfa nokkra örvæntingu
til þess aö henda nokkurra daga
gömlum dýrum út í kalsaveður og
rigningu. Enda voru hvolpamir sem
fyrr sagði mjög illa haldnir þegar
þeir fundust. Þetta er ef til vfll eitt
margra dæma um afleiðingar þess
aö leyfa hundahald i þéttbýli.
Sjálfur get ég ekki né vil halda
hund við slíkar aöstæður. Eg hef því
fullan hug á að koma hvolpinum í
hendur góðra manna. Ef einhver
hefði áhuga þá er hægt að ná í mig í
síma 2103 á Selfossi.
Bréfrítari er ánægöur með Beríin Alexanderplatz.
BERLIN ALEXANDER-
PLATZ GÓÐIR ÞÆTTIR
Guðjón skrifar: ^
Sú gagnrýni sem komið hefur fram á
Berlin Alexanderplatz í lesenda-
dálkum blaöanna finnst mér í hæsta
máta ósanngjörn. Þetta eru virkilega
vandaöir og góðir þættir sem lýsa lífi
þess sem alltaf verður undir í lífinu.
Ég held aö fólk ætti aö horfast í augu
við aö lífiö er ekki eins og í hinum ógeð-
felldu Dallasþáttum og aö raunveru-
leikinn verður ekki flúinn endanlega,
hann kemur alltaf aftur þegar einum
þætti af þessari ömurlegu vitleysu er
lokið og slökkt er á sjónvarpinu.
Þess vegna er eins gott að horfast í
auguviðhann.
Ljósin vit-
laust stillt
Bílstjóri hringdi:
Hann var óhress með meðferð sem
ljósin á bílnum hans fengu á einu bif-
reiðaverkstæðinu í Hafnarfirði. Það
hefur nú gerst í tvígang aö hann hefur
farið þangaö til að stilla ljós sín en í
bæði skiptin sem hann fór með bif-
reiðina í skoðun var honum neitaö um
hana vegna þess aö ljósin voru vitlaust
stillt. Ymist var þaö vegna þess að þau
lýstu beint niður á jörðina eöa upp í
loftið. „Þaö er skrítið hvernig sumir fá
leyfi til að gera það sem þeir ekki
geta,” sagði bílstjórinn.
LOFAÐIAÐ GEYMA
ÁVÍSUN EN
LEYSTISÍÐAN ÚT
Maðurhringdi:
Hann sagðist hafa orðiö fyrir heldur
óskemmtilegri reynslu um daginn er
hann keypti sér dekk undir bílinn sinn.
Hann borgaði með ávísun sem hann
bað eiganda fyrirtækisins að geyma í
tvo mánuði. Sá féllst á það og fór
maöurinn síöan heim með dekkin.
Eftir mánuö kom tilkynning frá
bankanum um innistæðulausa ávísun
og var það sú sama og eigandi dekkja-
fyrirtækisins ætlaöi að geyma í tvo
mánuði.
Hann fór í fyrirtækiö og sagði
eigandinn aö þarna hefðu oröiö leiðin-
leg mistök og lofaði að borga sektir
ásamt þeirri upphæð, sem ávísunin
nam.
Þegar svo til kastanna kom borgaði
eigandinn sektina en vildi ekki kannast
við hitt, þannig að nú situr viðskipta-
vinurinn uppi með háa upphæð sem
kastað hefur verið á glæ.
Hann vill nú vara fólk við því að
gleypa við svona greiðvikni
verslunareigenda, það geti farið illa.
Eins og reynsla brófrítara ber með sór ber að fara gætilega með ávísanir.
Aðra sundlaug í Breiðholtið
Poul V. Michaelsen skrifar:
Ég brá mér niður á höfn á sjómanna-
daginn og horfði á björgunaræfingar
og kappróður ásamt öðrum skemmti-
atriðum sem þarna voru á dagskrá.
Mikill mannfjöldi var þama saman-
kominn á þessum hátíðisdegi
sjómanna sem eiga allt gott skilið. En
mér finnst hlut sjómannakvenna allt of
lítil skil gerð.
Þær þurfa að vera heima, gæta bús
og bama og vita ekkert hvemig eigin-
mönnum þeirra reiðir af í þeim
vondu veðrum sem oft geisa á höfum
úti. Einhver sjómaður hefði átt að
halda ræðu um þær og kannski heföi
mátt hengja oröu á eina eða tvær.
Eg hlustaði á ræður Guömundar
Kjærnested og Halldórs Ásgrímssonar
ráðherra en báðir ræddu þeir um
sundið og mikilvægi þess. Guðmundur
sagði í sinni ræðu að engum sjómanni
ætti að hleypa um borð í skip nema
hann hefði gott sundpróf og er það án
efa rétt.
Flestir læra nú sund í skóla og sund-
staðir eru víöa um land. I Reykjavík
eru að ég held fjórir góðir sundstaöir
en oftast svo yfirfullir að maður verður
að skáskjóta sér á milli og oft fær
maður spark í andlitið.
Eg stunda sund á hverjum degi í
Breiðholtssundlaug og er öll aðstaða
þar til mikillar fyrirmyndar og starfs-
fólk einnig.
Þama kemur fólk sem er að æfa
fyrir keppni og er óþolandi að þetta
fólk skuli þurfa að æfa sig innan um
almenning. Þaö verður að skapa þessu
fólki betri skilyrði því oft heldur það
utan og ber þá merki þjóðar vorrar.
Það ætti að byggja aðra laug rétt hjá
svo allir geti unaö hag sínum án þess
að rotast.
Það er mikill áhugi fyrir þessu og við
ættum að geta það því annaö eins hefur
nú verið gert.
Brófrítarí vill fá aðra sundlaug í Breiðholti svo að allir geti unað glaðir við
sitt. Þessar virðast vera sæmilega ánægðar þótt þær hafi bara eina.