Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1984, Síða 3
DV. FMMTUDAGUR 21. JUNl 1984.
3
G. Ólaf sson kærð fyrir lyfjaskort í annað sinn á tveimur árum:
,Veldur gífur-
legum óþægindum’
— segir framkvæmdastjóri Apótekarafélagsins
Lyfjaheildverslunin G. Olafsson, í
eigu Einars Bimis, hefur veriö kærð
fyrir lyf jaskort í annað sinn á tveimur
árum og hefur kæran verið send heil-
brigðisráðuneytinu. Hér er um al-
varlegt mál að ræða þvi illa haldinn
sjúkling skorti sérlyf vegna vanrækslu
fyrirtækisins á skuldbindingum sinum
um að hafa nægar birgðir sérlyfja á
lager.
„Við eigum eftir að ræða þessi mál en
þetta hefur valdið okkur gifurlegum
óþægindum enda bitnar lyfja-
skorturinn mest á apótekum,” sagði
Guðmundur Reykjalín, framkvæmda-
stjóri Apótekarafélagsins, í samtali
við DV er við spurðum hann um álit fé-
lagsins á þessu máli.
Kæran nú er komin frá Borgarspítal-
anum en þar skorti illa haldinn
sjúkling lyfið fenýtóíni sem er krampa-
stillandi en G. Olafsson hefur umboð
fyrir lyfið. Kæran fyrir 2 árum er aftur
á móti komin frá Apótekaraf élaginu.
Guðmundur sagði að vandamál
vegna G. Olafssonar heföu alltaf komið
upp annað slagið en þeir hefðu engar
skýringar fengið á þessu hjá heildsöl-
unni.
„Það hafa ekki aörar lyf jaheildsölur
verið kæröar hér vegna lyfjaskorts,”
sagöihann.
Eyjólfur
Eyjólfsson,
rekstrarstjóri
Express-
Htmynda
vifl tölvuna.
Express-litmyndin
Framkalla með nýrri tækni
Express-litmyndir heitir fyrirtæki
sem opnaði á dögunum. „Við veitum
viðskiptavinum okkar persónulegri
þjónustu en áður hefur tíðkast með þvi
að tala við þá sem til okkar leita,”
sagði Dagný Olafsdóttir, fram-
kvæmdast jóri fyrirtækisins.
Fyrirtækið annast framköllun
mynda með nýrri japanskri tækni og
tekur aðeins klukkustund aöframkalla
filmu. Einnig fer hver myndrammi
fýrir augu framköUunarmanns sem
nær því besta fram með aðstoð tölvu.
Þá eru fólki veittar þær ráðleggingar
sem það óskar. Express-litmyndir eru
til húsa að Hótel Esju við Suðurlands-
braut.
Vísitala f ram-
færslukostn-
aðar hækkar
Vísitala framfærslukostnaðar miðað
við verðlag í júníbyrjun 1984 reyndist
vera 105,84 stig samkvæmt út-
reikningum kauplagsnefndar. Er það
2,33% hærra en í maíbyr jun.
Af þessari 2,33% hækkun visi-
tölunnar stafa 1,0% af veröhækkun
búvöru, annars vegar vegna lækkunar
niðurgreiðslna 9. mai og hins vegar
vegna hækkunar á grundvaHarverði og
vinnslu- og dreifingarkostnaði frá 1.
júni. Hækkun á verði lyfja og læknis-
þjónustu (þeim hluta sem sjúklingar
greiða) oUi 0,5% hækkun visitölunnar
og hækkun á ýmsum vöru- og þjónustu-
liðum hækkaði hana um 0,8%.
-pá.
Matthías Á. Mathiesan, Asbjöm Haugstvadt og Vigdís Finnbogadó ttir.
DV-mynd: GVA.
Hagsmunamál land-
anna til umræðu
hjá viðskiptaráðhemini Noregs og íslands
Viðskiptaráðherra Noregs, As-
bjöm Haugstvedt, heimsótti Vigdísi
Finnbogadóttur forseta síðdegis i
fyrradag. I gær heimsótti norski
ráðherrann SkáUiolt, Gullfoss, Geysi
og ÞingveUi ásamt konu sinni og
föruneyti. Jens Otterbech, skrif-
stofustjóri norska viöskiptaráðu-
neytisins, kona hans og Evan Kittel-
sen fuUtrúi eru með ráðherranum í
þessari heimsókn.
Matthias Á. Mathiesen og Asbjöm
Haugstvedt ræddust við árdegis á
þriðjudag. Ræddu þeir um viðskipti
Islands og Noregs, samskipti land-
anna og önnur viöskiptamál þar
sem bæði löndin eiga hagsmuna að
gæta, þar á meðal skreiðarsölu tU
Nígeríu.
Heimsókn norska viðskipta-
ráðherrans lýkur i dag.
-pá.
HUSALEIGA HÆKKAR
Leiga fyrir íbúðar- og atvinnu-
húsnæði hækkar um 2% f rá og með júU-
byrjun 1984 samkvæmt ákvæðum í
bráöabirgöalögum nr. 62/1984.
Reiknast hækkun þessi á þá leigu sem
er i júni 1984. Júlileigan mun haldast
óbreytt tvo næstu mánuði, þ.e. í ágúst
og september.
Sérstök athygU er vakin á þvi að
þessi tUkynning Hagstofunnar snertir
aðeins húsaleigu sem breytist sam-
kvæmt ákvæðum í umræddum bráða-
birgðalögum.
EV I FIATHÚSINU
SERVERSLUN I BILA-
VIÐSKIPTUM
Við bjóðum notaða bíla í eigu Fiatumboðsins. Bílaúrvalið er síbreyti-
legt frá degi til dags. Allir þekkja hin sívinsælu EV-kjör. EV-
salurinn er sérverslun, sú eina sinnar tegundar hér á landi sem býður
upp á skiptiverslun á öllum notuðum bílum. Þú kemur á þeim gamla
og ekur í burtu á nýrri bíl. EV er líka eina bílaverslun landsins er
býður jafnvel enga útborgun. Við lánum þér jafnvel líka milligjöfina.
Við lánum í 3,6,9, jafnvel 12 mánuði. Allir bílarnir eru á staðnum.
Komið, skoðið og semjið ykkur að kostnaðarlausu því við lánum þér
líka ábyrgðartryggingu hjá einu sterkasta og virtasta tryggingar-
félagi landsins. Þú greiðir engin sölulaun af gamla bílnum. Opið alla
virka daga kl. 9—18.30. Opið laugardaga kl. 10—16.
1929
BILAÚRVALIÐ
ER SÍBREYTILEGT
FRÁ DEGITILDAGS.
notodir bílor í eigu umbodssins
EGILL,
T TTT T TT V T 1 Rf* T T TF' MUNIÐ EV-KJÖRIN
VILHJALMSSON HF i:s
1984
Smiðjuvegi4c — Kópavogi — Sími 79944—79775
AÐ OGLEYMDRI
SKIPTIVERSLUNINNI.
^2SSS££S5S5S5SSEE5535&
TmrXTÁ ■XTK'K ÍC »1» * .A,
Hí>t-