Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1984, Page 5
DV. FIMMTUDAGUR 21. JUNl 1984,
5
Það eru ýmsar leiðir fœrar i sólarferðum en mestu skiptír þó að komast, því
þaðer gaman eins og sjá má.
Ef viðkomandi fjöiskylda nýtir sér
apex-fargjald til Amsterdam verður
heildarkostnaðurinn við feröina 53.958
krónur. Fyrir þessa þriggja manna
fjölskyldu kostar ferðin frá Islandi til
Costa del Sol 57.900 krónur og munar
því tæpum 3.942 krónum. Búast má við
því að fjölskyldan þurfi að gista
einhverjar nætur í Amsterdam og
kostar gisting þar fyrir hana frá 1.400
og upp í 1.700 krónur. Fullyrða má því
að lítill hagnaður sé fólginn í að fara
þessa ferð frá Amsterdam.
Mallorca
Þriggja vikna ferð í júlí til Mallorca
frá Amsterdam með ferðaskrif-
stofunni D-Tours kostar um 1.200
gyllini í íbúð þar eða 11.640 íslenskar
krónur fyrir einstaklinginn. Fyrir
þriggja manna fjölskylduna okkar
kostar því fargjaldið frá Amsterdam
32.980 krónur og ef við fljúgum þangaö
með apex kostar það okkur 24.135
krónur og heildarkostnaöurinn er því
kominn upp í 57.115 krónur. Frá Islandi
kostar 3ja vikna ferð 69.250 krónur og
munurinn þvi einar 12.135 krónur
ferðaskrifstofunni í Amsterdam í hag.
Fyrir þá upphæö er hægt að dvelja á
hóteli í Amsterdam i 8 daga, eða t.d. 4
daga, og nota afganginn í mat á meöan
á dvölinni stendur þar í borg. Ef menn
hafa áhuga á aö dvelja i Hollandi i
nokkra daga áður en farið er í
steikjandi sólina á Mallorca. Það má
vera að því fyigi meiri fyrirhöfn að
ferðast á þennan máta miðað við að
kaupa sér far hér á Islandi beint í
sólina. Hins vegar er vert að benda á
að þetta er möguleiki fyrir þá sem eru
veraldarvanir og geta bjargað sér á er-
lendri grund án hjálpar islenskra
leiðsögumanna.
Við höfum litið á verð sem gildir
fyrir júlí sem er aðalfrítimi Hol-
lendinga og eftirspurn því mikil eftir
sólarferðum og verðið hæst á þessum
tíma. I Hollandi er gert lítið af því að
selja óselda miða á niöursettu verði á
síðustu stundu. Hins vegar skal á það
bent að verðmunur er mikill eftir árs-
tiöum. I apríl/maí er algengt að verðið
sé um helmingur þess sem það er á
mesta annatímanum.
-APH.
DÆMIFRA ÍSLANDI
DV kannaði einnig verð á sólar-
landaferðum hjá þremur íslenskum
ferðaskrifstofum sem hafa má til hlið-
sjónar þeim erlendu. Tekið skal fram
að hér er um dæmi að ræða og að verð-
in geta verið lægri eða hærri eftir aö-
stæðum.
Samvinnuferðir/Landsýn
Samvinnuferðir bjóða í sumar upp á
ferðir til Rimini á Italiu, Vulgamene á
Grikklandi og Dubrovnik í Júgóslavíu.
Þriggja vikna ferð til Rimini kostar
68.400 krónur fyrir hjón meö níu ára
barn en 28.400 krónur fyrir einstakling.
Þá er matur ekki innifalinn. Til
Vulgamene kostar 72.600 krónur fyrir
þriggja manna fjölskyldu en 29.500
krónur fyrir einn. Morgunverður er
innifalinn í einstaklingsverðinu en ekki
hjá fjölskyldunni. Miðað er við þriggja
vikna dvöl. Uppselt er í allar ferðir til
Dubrovnik fram í september en þar
greiðir fjölskylda 66,200 krónur fyrir
þrjár vikur á hóteli með hálfu fæði en
einstaklingar borga 27.500 krónur.
Útsýn
Tveggja vikna ferð til Costa del Sol
með ferðaskrifstofunni Utsýn kostar
20.800 krónur fyrir hvern fullorðinn og
böm fá 4.500 króna afslátt. Böm fá
einnig 4.500 króna afslátt ef ferðast er
til Italíu í tvær vikur en fullorðnir
borga 26.500 krónur hver. Algengt verð
til Portúgal er 64.400 krónur fyrir f jöl-
skyldu. Oski menn eftir að ferðast einir
til þessara staða geta þeir reiknað með
að borga um 30.000 krónur.
Úrval
Þriggja vikna ferð til Mallorca fyrir
hjón og eitt barn kostar 69.250 krónur
hjá ferðaskrifstofunni Orvali. Tveggja
vikna ferð kostar 64.700 krónur. Fari
sama fjölskyldan til Ibiza kostar ferðin
62.000 krónur. Einstaklingar borga
tæplega 30.000 krónur fyrir ferðir til
þessarastaða. ea
Efþúferð til London:
Ein milljón
sæta á lausu
Verð á sólarlandaferðum hefur snar-
lækkað í Bretlandi að undanförnu
vegna gífuriegs offramboðs á leigu-
flugi þar í landi. 1 grein í Sunday Times
17. júní síðastliðinn kemur fram að um
ein milljón flugsæta liggur á lausu
fram á haust og að þegar sé farið að
selja þau undir kostnaðarverði. Tekiö
er sem dæmi aö kostnaöur við að koma
einum farþega frá London til Aþenu sé
4.800 krónur en að ferðin sé seld á 2.800
krónur. Það sama á við um ferðir til
Malaga á Spáni. Þær em seldar á 2.400
krónur en kostnaðurinn er 4.100
krónur. Gjaldþrot blasir við mörgum
flugfélögum.
DV hafði samband við nokkrar
ferðaskrifstofur í London til að for-
vitnast um verð á sólarlandaferðum.
Hjá ferðaskrifstofu Tomas Cook
fengust þær upplýsingar að tveggja
vikna f erð til Mallorca f yrir tvo kostaði
11.900 krónur á manninn og til Ibiza
8.300 krónur. Innifalið er hálft fæði og
böm fá 50% afslátt. Ferðaskrifstofan
Exchange býður hins vegar upp á
ferðir til Mallorca fyrir einn á 5.300
krónur og til Ibiza fyrir 4.500 krónur.
Matur er ekki innifalinn en eldhús
fylgir íbúöinni.
Ferðaskrifstofan Airlink Holidays er
með fjölda ferða til grísku eyjanna
Korfu, Krít, Rhodos, Menorca og
Poros. Tveggja vikna ferð fyrir einn
kostar á bilinu 6.500 til 7.700 krónur og
er matur ekki innifalinn. Verðið
lækkar eftir því sem nær dregur brott-
farardeginum en hér er um afsláttar-
verð að ræða.
Martin Rooks Holidays býður upp á
tveggja vikna ferðir fyrir einn við
Garda vatn á Itaiíu fyrir 11.500 og til
Como vatns fyrir 12.300 krónur. Hálft
fæði fylgir þessum tilboöum.
Rétt er að geta þess að allir sem
ferðast frá Bretlandi þurfa að greiða
400 króna flugvallarskatt. Og svo þarf
aö sjálfsögðu að reikna meö far-
gjaldinu til London.
-EA.
Á Kastrup-
flugvelli
erhægt
að prútta
Á Kastrupflugvelli í Kaup-
mannahöfn er ekki óalgengt að sjá
ferðalanga standa með töskur
sínar og fylgjast grannt með því
hvemig gengur að fylla flugvélar
þær sem eru á leiö til sólarlanda.
Þegar líöa fer að síðasta útkalli
byrjar nefnilega uppboð á þeim
sætum sem ekki hefur tekist
að selja og þá er prúttað fram á
síðustu mínútu. Danskir f erðaskrif-
stofuhöldar vita sem er að betra er
að selja sæti fyrir hálfvirði en að
fljúga með það tómt.
Að vísu er þetta ekki öruggasta
aðferð til að komast í ódýrt sumar-
frí því eins er víst að ferða-
langurinn sem ætlar aö notfæra sér
þennan möguleika verði að snúa
heim með tösku sína þegar vélin
fer í loftið. En þá er bara að mæta
næsta dag í von um aö heppnin sé
með í farangrinum og ódýrt sumar-
friívændum. -EIR.
m
ÞESSI
PLASTKASSI
EREINN
AFMÖRGUM
FRÁ PERSIORP...
Uppröðun á mismunandi gerðum Perstorp
kassa er einföld.
NES ítm
PORTHF
UMBODS OG HEILDVERSLUN
Perstoip verksmiðjan í
Svíþjóð, er meðal stærstu
plastkassaframleiðenda í
Evrópu. Nesport hf. hefur tekið
að sér umboð fyrir Perstorp Fomi
á íslandi.
Við bjóðum þér að
kynnast möguleikum Perstorp
plastkassa, með því að hringja í
sölumenn okkar í síma 621190
og fá sendan bækling með nánari
upplýsingum. eða líta við í
sýningarsal okkar að
Austurströnd 1, Seltjamamesi.
Perstorp plastkassar
henta vel fyrir-. Frystihús,
fiskverkanir, sláturhús, pósthús,
bakarí, gróðurhús, kartöflur,
grænmeti og fyrir allskonar
iðnað.
-hafóu samband
Austurströnd 1 sími 621190
Seltjarnamesi
og kynntu þér úrvalið.
auglýsingastofa