Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1984, Blaðsíða 1
40.000 EINTÖK PRENTUÐÍ DAG.
RITSTJÓRN SÍMI 686611 • AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA SÍMI 27022
, óháð dagblað
DAGBLAÐIÐ — VÍSIR
142. TBL. — 74. og 10. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ1984.
Flugvélin á
Eiríksjökli
Brakið af bresku
flugvélinni nálægt
toppi Eiríksjökuls.
Eins og sjá má
gengur það krafta-
verki næst að
mennirnir báðir
skuli hafa lifað
slysið af.
DV-mynd: E.J.
Breska flugvélin sem leitaö var aö í
gærkvöldi og nótt fannst kl. 1.43 nálægt
toppi Eiríksjökuls aö suðvestanverðu.
Reyndust báðir mennirnir sem í henni
voru á lífi.
Samkvæmt upplýsingum frá Valdi-
mar Olafssyni hjá Flugmálastjórn, er
stjómaði leitinni að flugvélinni, var
skyggni á leitarsvæðinu orðið það gott
um eittleytið að flugvélin TF—OLI,
sem stödd var á flugvellinum við Húsa-
fell, var send til leitar. Kl. 1.43 tilkynn-
ir flugmaöur hennar að hann hafi
fundiö flugvélina GB—HNS og sé hún
mjög brotin. Leitarmönnum nálægt
jöklinum var strax beint á vettvang en
aöstæður á þessum slóðum reyndust
erfiðar vegna ófærðar.
Þyrlan TF—GRO flutti og leiðbeindi
leitarmönnum að slygstaö en gat
ekki lent þar sjálf og um kl. 5.15 komu
fyrstu leitarmenn á vettvang og fundu
báða mennina á lífi en töluvert slas-
aða.
Haft var samband við Varnarliðið
sem sendi þyrlu eftir mönnunum og
kom með þá á Borgarsjúkrahúsið kl.
8.01 í morgun. Þeir eru ekki í lifshættu.
Fleiri hundruð manna lið björgunar-
og hjálparsveita tók þátt í leitinni að
flugvélinni, sem er af Piper Cherokee
Arrow gerð, en leitarsvæðið náði frá
Reykholti og norður í Skagafjörð, um
Amarvatnsheiði.
Bretarnir komu hingað til lands á
miðvikudagskvöldið frá Bretlandi en í
gærmorgun, upp úr kl. 11, lögðu þeir af
stað frá Reykjavík til Grímseyjar.
Leitarmenn að störfum á Arnarvatnsheiði, skammt fyrir
sunnan Eiríksjökul. DV-mynd E.J.
Síðast heyrðist í flugvélinni kl. 11.27 og
var hún þá yfir Reykholti en áætlaði að
lenda í Grímsey ki. 13.03. Skömmu
eftir að vélin hafði siðast samband
hvarf hún af ratsjá flugtumsins á
Keflavíkurflugvelli.
Aðstæður til leitar vom mjög erfiðar
á þeim slóðum er flugvélin hvarf, þoka
og lágskýjað og þvi ekki hægt aö leita
úr lofti fram yfir miönættið. Þá rofaði
til og flugvélar og þyrlur tóku þátt í
leitinni, auk björgunarsveitarmanna
sem fluttu gífurlegt magn af útbúnaði
á leitarsvæðið, m.a. vélsleða og snjó-
bíla.
Bresku mennimir heita M. Dukes,
sem er flugmaðurinn og Francis
Sikora.
-FRI