Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1984, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1984, Page 7
DV. FÖSTUDAGUR 22. JUNI1984. 7 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd MITTERRAND RÆÐIR SAKHAROV í KVÖLD- VERÐARRÆÐU í KREML Francois Mltterrand. Francois Mitterrand Frakk- landsforseti braut öll fordæmi í ræðu sem hann hélt í kvöldverðar- 'boði i Kreml í gærkveldi og nefndi andófsmanninn Andrei Sakharov. Þótt athugasemdir Mitterrands um Sakharov hefðu verið kurteislegar og sýnt fyllstu sáttfýsi telja erlendir sendiráðsstarfsmenn í Moskvu að þær muni angra Sovétmenn mjög, sérlega vegna þess að á undan Mitt- errand talaði Konstantin Chernenko, forseti Sovétríkjanna, og varaði menn við að predika um mann- réttindi. I ræðu sinni brýndi Mitterrand fyrir Sovétmönnum að virða mann- réttindaákvæði Helsinki-sáttmálans frá 1975 og bað Sovétmenn skilja til- finningar Vesturlandabúa vegna táknrænna mála eins og Sakharov- máliö er. Ræða Mitterrands var ekki skrifuð fyrirfram heldur talaði hann eftir minnispunktum og búist er við að sovésk dagblöð prenti í dag endur- sögn af ræðu hans og sleppi öllum athugasemdum um Sakaharov. Konstantin Chernenko hélt ræðu á undan Mitterrand og sagði þá að sovéska kerfið tryggði mannréttindi, svo sem réttinn til vinnu, menntunar og húsnæöis og bætti síðan við: „Við munum ekki leyfa neinum að skipta sér af okkar málefnum.” Franskir embættismenn sögöu að Mitterrand vildi ekki að ræða hans yrði til þess að eyðileggja heimsókn- ina en hann hefði verið ákveðinn í að segja það sama í Moskvu og í París um mannréttindamál og af- vopnunarmál. 1 ræðu sinni kom franski forsetinn einnig að öðrum málum sem valdið hafa versnandi sambúð austurs og vesturs, innrás Sovétríkjanna í Afganistan og her- lagasetningunni í Póllandi. Sovétríkin: Vopnabúr springur Allt að þriðjungi birgða sovéska flotans af loftvamaeldflaugum kann að hafa eyðilagst í sprengingu sem varð í skotfærageymslu nærri Murmansk-flotastöðinni, segir bandaríska dagblaðið Washington Post í dag. I frétt blaösins segir að sprengingin, sem varð um miðjan maí í Severomorsk við Barentshaf um 1450 kílómetra norður af Moskvu, hafi verið svo öflug að vestrænar leyniþjónustur hafi í fyrstu talið að um kjamorkusprengingu væri að ræða. Engar siíkar grunsemdir eru nú á ferðinni en sprengingin kann að hafa eyöilagt allt að þriöjungi loftvarnar- flauga sovéska flotans. „Það urðu mjög miklar skemmdir,” er haft eftir bandariskum embætiismanni. „Viö myndum orða það svo að nú væri ekki hentugur tími fýrir sov- éska Atlantshafsflotann aö takast á við bandaríska flotann." Talsmaöur bandaríska vamarmálaráðuneytis- ins neitaði að ræða þetta mál við blaðamenn. Kolaflutn- ingar stöðvaðir Verkfallsmenn í breskum kola-i námum stöðvuðu flutninga á kol- um og koksi til stáliðjuvera í dag og báðu verkalýðsfélög járnbrautar- verkamanna og önnur verkalýðsfélög í vöruflutningagreinum um stuðning í baráttu sinni gegn fyrirætlunum yfir- valda um að loka kolanámum og fækka störfum. Stáliðjuverin í Ravenscraig í Skot- landi og Scunthorpe í N-Englandi fengu engin kol eða koks send með járnbrautarlestum í gær. En á báðum stöðunum tókst að koma eldsneytis- birgðum framhjá verkfallsvörðum kolanámaverkamanna með vöru- flutningabifreiöum, meö þöglum stuðningi verkamanna í stáliðjuverun- um sem óttast um störf sín, ef málm- bræðsluofnar kólna. Kolanámaverkamenn vilja draga úr stálframleiðslu til að efla baráttu sína sem staðið hefur í þrjá mánuöi. Arthur Scargill, leiðtogi námaverka- manna, varaði verkamenn í stáliönaði við því að eldsneytisflutningar yrðu heftir frekar og hugsanlega komið í veg fyrir flutning á málmgrýti ef þeir sættu sig ekki viö minnkun í stálfram- leiðslu. Fundur með leiðtogum námaverka- manna og verkamanna í flutninga- iðnaði lýstu því yfir í gærkveldi að flutningar til stáliðjuveranna yrðu tak- markaðir þar til samkomulag næðist við samtök stáliöj uverkamanna. Forstjóri hinna ríkisreknu bresku kolanáma, Ian McGregor, reyndi í gær að telja verkamenn á aö hætta við verkfallið. I bréfi sem hann skrifaði verkfallsmönnum sakaði hann Scargill um að afvegaleiða félagsmenn sína varöandi fyrirætlanir stjórnvalda og sagöi einnig að ef verkfallið stæði til ársloka yrði að loka 20—30 námum, sem reka mætti meö hagnaöi, vegna skemmda sem á þeim yrðu vegna van- ræsklu. McGregor varaði við því að í þessari deilu gæti enginn unniö en aöeins tapað. McGregor sagöist vonast eftir góöum viðbrögðum frá náma- verkamönnum sem ekki vildu taka þátt í verkfalli en óttuðust verkalýðs- félögin. ið»tlfðlta{áiittílöjid Gaddafi, leiðtogi Lfbýu, er iðinn við að koma andstæðingum sinum fyrir kattarnef. Grikkland: Andstæðingur Gaddafis myrtur Líbýskur innflytjandi í Grikklandi var skotinn til bana í miðborg Aþenu í gær. Er talið að morðinginn sé út-‘ sendari Muammars Gaddafis, leiðtoga Libýu. Samkvæmt heimildum lög- reglunnar varð hinn látni Mohamed Saleh Buzeit Sapiti fyrir fimm skotum. Moröinginn forðaði sér á mótorhjóli aö loknu ódæðinu. Sapiti hafði búiö í Aþenu í tvö ár. Hann var 50 ára og rak verslun í miðborg Aþenu. Lögreglan telur að Sapiti hafi veriö andstæöingur Gaddafis en ekki er vitað nánar um ástæður mann- drápsins. Fyrr í þessum mánuöi handtók gríska lögreglan 31 árs gamlan Líbýumann sem starfaöi hjá líbýska flugfélaginu í Aþenu. Var hann grunaður um skotárás á líbýskan innflytjanda sem einnig rak verslun í Aþenu. Sá hafði selt í búð sinni tíma- ritsemer andstætt stjómGaddafis. Morðiö á Sapiti kemur á sama tíma og utanríkisráðherra Líbýu, Ali Abdel-Salam Al-Tureiki, er staddur í Grikklandi í opinberri heimsókn. A hann þar fundi með Andreas Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, og utanríkisráðherr- anum Toannis Harlalambopoulos. Snúast viðræðurnar um viðskipta- tengsl ríkjanna og einnig samvinnu á sviðihermála. Fjórir Irananna sneru heim Fjórir af Irönum þeim sem lentu í Frakklandi fyrir skömmu og báðust hælis sem pólitískir flóttamenn sneru heim til Irans í gær. Sam- kvæmt heimildum lögreglunnar voru þrír mannanna í herklæðum en einn virtist vera óbreyttur borgari. líj't’í v-v T; Enn eru f jórir Iranir í Frakklandi og bíöa þeir þess að ákvörðun verði tekin um þaö hvort þeim verður veitt hæli sem pólitískum flóttamönnum. Ekki er vitað hvar þeir eru niður- komnir en talið er að þeir séu i haldi einhvers staðar í Bordeaux héraöi. Walter Mondale. Mondale íhugar svertingja í vara- forsetaframboðið Walter Mondale, líklegastur fram- bjóðenda til að hljóta tilnefningu demókrata til forsetaframboðs gegn Ronald Reagan, ræddi í dag viö Tom Bradley, borgarstjóra í Los Angeles og er Bradley þannig fyrsti svertinginn sem alvarlega kemur til greina sem varaforsetaefni annars stóru flokk- anna í bandariskumstjómmálum. Eftir að þeir höfðu ræðst við í rúma þrjá klukkutíma á heimili Mondales í Minnesota sagöi Mondale aö Bradley væri „mikilhæfur leiðtogi”. Mondale sagði fréttariturum einnig aö hann teldi að bandarískir kjósendur væru komnir langt á undan stjórnmála- mönnum hvað varöaði viljann til þess að kjósa svertingja til embættis. Annar demókrati sem er á höttunum eftir tilnefningu demókrata til forseta- framboðs, Jesse Jackson, sakaði Mondale nýlega um að hugsa ekki í alvöru um að velja svertingja eða konu til framboðs með sér. Bradley, sem þrívegis hefur veriö kjörinn borgarstjóri Los Angeles, næststærstu borgar Bandaríkjanna, er ekki á sama máli og Jackson og segir Mondale taka framboð sitt of alvar- lega til þess að leika sér að varafor- setaembættinu með auglýsingabrell- um. Mondale sagði við fréttamenn að hann vildi ekki valdalausan varafor- seta, heldur varaforseta sem tæki þátt í ákvörðunum, í utanríkis- og innan- ríkismálum og væri reiöubúinn til þess að taka að sér forsetaembættið fyrir- varalaust. Indland: Átök í Bombay Atök áttu sér stað í Bombay á Ind- landi á miili uppreisnarmanna og stjórnarhersins í fyrrinótt. Indverska fréttastofan PTI segir að einn hafi látist og 17 hafi særst þegar stjórnar- herinn skaut á uppreisnarmenn. Ekki gat fréttastofan þess hversu margir tóku þátt í uppþotinu en í fréttum sagði að herinn hefði fulla stjórn á borginni. I síðasta mánuöi létust um 260 manns í blóðugum götu- bardögum i Bombay á milli múhameöstrúarmanna og hindúa. Samkvsemtfréttum-fró.’indiandi er. nú allt með kyrrum kjörum í Punjab héraði. öflugur hersveitir eru nú í Punjab og ganga þær fylktu liði um götur þar í því skyni að endurvekja traust íbúanna á stjórn landsins. Mörgum af musterum sikka í Punjab hafði verið lokað vegna þess að upp- reisnarmenn úr röðum sikka höfðu leitað þar skjóls. Samkvæmt opin- berum fréttum er nú búið að opna öll musterin, að einu undanskildu. Er þaö gullna musterið í Amritsar þar sem hörðustu átökin fóru fram.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.