Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1984, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1984, Blaðsíða 9
DV. FÖSTUDAGUR 22. JUNI1984. Lir Neytendur Neytendur Neytendur Burknar eru ákaflega mikil prýði i görðum. Það færist í aukana að hafa mikið af grjóti og plöntum i görðum en minna gras. Burknar kosta um 250 krónur. DV-mynd Bj. einkum í sjávarplássum, þar sem trjágróöur þrífst ekkí. Stykkiö af bláhjálmi kostar 40 krónur. Sama verð er á randagrasi sem breiðir mikiö úr sér. Plöntulisti og leiðbeiningar Gróörastöðin Mörk gefur viðskipta- vinum sinum leiöbeiningarbæklinga. I öörum eru listar yfir erlend og ís- lensk heiti trjáa og blóma. Þar er einn- ig gefin út nákvæm lýsing á hverri plöntu, sagt hvort hún er viökvæm, þol- ir skugga eða annað slíkt. Hinn bæklingurinn inniheidur ýmsar upplýsingar sem viö kemur starfsemi í göröum. Þaö er tekið fyrir hvenær á að gróðursetja, vökvun, klipping, undir- búningur jarðvegs, umhirða gras- bletta, gróðursetning og hvernig viö veljum réttar plöntur. Ýmis góð ráð eru gefin, til dæmis bent á að gróður- setja ekki lítil tré við sólstétt eöa stofu- glugga þar sem þau koma til með aö varpa skugga þegar þau stækka. Rósir til að hafa i görðum kosta frá 200—300 krónur. Þær minnstu fara vel hvort sem er ihengipottum eða blómakerjum. DV-myndir GVA. Þá stendur meðal annars í um- ræddum bæklingi að vafningsplöntur henti vel til aö lífga upp á stóra stein- veggi og girðingar. Bestar eru vestur- og norðvesturhliöar. Bergfléttu þarf ekki að binda upp en verð á vafnings- plöntum er frá 180—200 kr. Þá eru einnig upplýsingar um úðun trjáa, klippingu og undirbúning fyrir vetur- inn. Þess skal að lokum geta að garð- plöntur í pottum og fjölærar jurtir er hægt að gróðursetja allt sumarið, en greni og furu er best að gróðursetja áður en þær taka að vaxa eða i lok sumars þegar þær eru hættar að vaxa. -RR krónur. Fleiri ungar limgerðisplöntur má nefna svo sem alaskavíði, brekku- víði og viöju, sem eru fárdegar á flest- um gróðrarstöðvum. Plöntumar em 2ja til 3ja ára, hæð þeirra frá 25-80 cm, þær eru á verðbilinu frá20—25 kr. -Fer verðið nokkuð eftir greinafjölda. Reynir og ösp Margar em gerðirnar af reyni, ilm- reyni, úlfareyni og fleiri gerðum. Plöntumar eru af stærðinni frá 1 metra í 11/2, verðið f rá 150 krónum í gróörar- stöðinni Mörk og í 400 krónur í Alaska, Breiöholti. Algengasta verðið á reyni er f rá 2—300 krónur. Stærðin á ösp er allt frá 50 cm í 150 cm, víðast er verðið um 100 krónur, en í gróörarstöðinni Mörk er öspin á verð- bilinu frá 50-300 kr. ' Algengur aldur á ösp er 3—5 ára þegar henni er plantað út. Berjatré Alaska, Hraunbrún, Grænahlíð og gróðrarstööin Lundur eiga tii sólberja- og rifsberjatré. Þau fyrmefndu kosta frá 70 krónum í 130 krónur, en rifs- berjatrén kosta frá 90 krónum í 190. Fer það eftir stærð. Ef hugsað er um að nýta berin á trjánum er ráðiagt að hafa 130-150 cm á milli þeirra þegar plantaö er út. Ef ætlunin er aö hafa þau sem skjólvegg er ágætt að hafa 1 metra á milli. Rósir Runnarósir eru harðgerðar plöntur sem geta staöiö einar sér eða margar saman í röð sem limgerði eða skjól- girðing. Ber þar að nefna rúgrósateg- undir svo sem „hansa”, síðan fjalla- rósir, skáldarós, gullrós og meyjarrós sem jafnframt er klifurrós en getur þó staðið ein. Runnarósir kosta víðast hvar um 200 krónur og hæð þeirra er um 70 cm. Agræddar rósir, svo sem domrósir, eru viðkvæmar og þurfa helst að standa í skjóli. Sígrænar trjáplöntur Að sögn Péturs Olasonar og Mörthu Bjömsson, eigenda gróðrarstöðvarinn- ar Mörk í Stjömugróf, þá selja þau ekki blágreni fyrr en það er orðið 7-8 ára gamalt. Þá er það selt í pottum á 3- 400 krónur stykkið. Hæöin er um hálfur metri. Fura er á 2-300 krónur í potti en hægt er að fá furuungplöntur sem eru þriggja til fimm ára gamlar, þó ekki nema um 15-20 cm háar. Þær kosta 30 krónur. „Plöntur þessar era teknar upp á haustin eða vorin, látnar í potta og seldar þannig aö unnt er að um- planta þeim fram eftir sumri,” sagði Pétur. Þá kvaðst hann ávallt taka besta hlutann af ungplöntunum og fleygja þeim minnstu. Aðspurður hvaða plöntur fólk kaupir aðallega sagði hann að það vildi mikla fjölbreytni í skrautrunnum,, meiri en áður hefði tíökast. Fólk er mikiö að taka gamla garða í gegn, ungt fólk kaupir gömul hús og gefur þá garðinum nýjan svip með tilfæringum og endumýjun. Eitthvað er um að það sé verið að skipuleggja nýjar lóðir, en það fylgir þó byggingarhraða, oftast er garðurinn gerður síðast eða þegar hús- in eru komin vel á veg. —RR öll sumarblóm eru á veröbilinu frá 12—14 krónur, það eru stjúpur, og margar fleiri gerðir. Sumarblóm í pottum, eins og daliur og tóbakshorn, eru á verðinu frá 50—70 krónur. Fjölærar plöntur eru á verðbilinu frá 40 krónum í 60 og 80 krónur. Stærri plöntur eins og tófugras kosta 90 krónur og útiburknar frá 110—250 krónur. Fjölærar plöntur eru til háar og lágar, í beð og steinhæðir, fyrir skuggsæla staði og sólrika. Grænmetisplöntur eru á verðbilinu frá 8—10 krónur. Það er blómkál, græn- kál, hvítkál, salat og rófuplöntur en þær kosta 3 krónur. Tómatplöntur kosta 70 krónur og jaröaberjaplöntur, sem eru fjölærar, kosta 100 krónur. Tvær til þrjár gerðir eru til af jarða- berjaplöntum. Þá er stærðarmunur á berjunum og einhver bragðmunur. Ösp er stofntré sem er bert að neðan og leyfir þvi undirplöntur. Fremst á myndinni er Htil ösp, ca 5 ára gömul, en „talsvert" eldri ösp hefur vaxið upp fyrir húsið. Martha C. Björnsson og Pétur N. Ólason, eigendur Gróðarstöðvarinnar Mörk, við fjölæra jurt sem nefnist gulvöndur og er í þann veg að fara að blómstra. DV-myndir GVA. Toyota Starlet árg. 1980. Blazer árg. 1977, 8 cyl., dísil, Bíll i sérflokki. AMC Eagle 4 x 4 árg. 1980. ÆOJBS M. Benz 250 árg. 1978. Bíll með öllu. 0P|Ð A LAUGARDAGA KL. 9-19. KL. 10-18. BORGARTUNI 24. SIMAR 13630 - 19514 - 23718. Mazda 323 G.T. árg. 1982. Honda Accord árg. 1980. Mazda 323 st. 1,4 árg. 1979. Cordoba árg. 1978. Oldsmobile Cutlas L5. Dodge Omni árg. 1980.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.