Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1984, Síða 4
4
DV. FÖSTUDAGUR 22. JUNI1984.
Ran&aðéghafi
bent á konuna”
Fyrrum
sambýlis-
maðurinn
í„skotmálinu”:
„Eg mótmæli því harðlega sem
haft er eftir konunni um að ég hafi
bent á hana. Það er alrangt,” sagði
fyrrum sambýlismaður konu sem
tekin var til yfirheyrslu hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins fyrir
skömmu vegna svokallaðs skotmáls
en það gekk út á „skotárás” á vöru-
bíl frá Steypustööinni hf.
Konan reyndist við yfirheyrslur
hafa fullkomna fjarvistarsönnun og
sagöi rannsóknarlögreglan, er sam-
taliö við konuna birtist, að hún væri
alls ekki grunuð í þessu máli.
Þess má geta að fyrrum sambýlis-
maöur konunnar vinnur hjá Steypu-
stöðinni hf., ekur þar vörubíl. Hann
er því vinnufélagi bílstjórans sem
var á fyrrgreindum bíl.
Er DV hafði samband við Rann-
sóknarlögreglu ríkisins í gær stað-
festi hún að fyrrum sambýlismaður
konunnar hefði ekki bent þeim á
hana. Þær skýringar fengust að eftir
aö biistjórinn taldi sig hafa orðið
fyrir skotárásinni fór hann aö ræða
málið við vinnufélaga sína. Hann
vissi jafnframt um samband vinnu-
félaga síns við konuna og barst það í
tal er hann gaf skýrslu um málið.
,,I framhaldi af því höfðum við
samband við vinnufélaga mannsins,
fyrrum sambýlismann konunnar, og
spuröum hann hvaö konan héti og
hvar hana væri að finna. Hann svar-
aði eingöngu spumingum okkar og
gaf ekki í skyn að konan ætti þátt í
þessu,” sagði Þórir Oddsson vara-
rannsóknarlögreglustjóri.
Það kom ennfremur fram hjá
rannsóknarlögreglunni að búið væri
að taka skýrslu af ökumanninum
sem hafði farið með bílinn sinn í við-
gerð. Þar var settur sóteyðir á bíl-
inn. Eftir þaö ók hann honum upp í
Mosfellssveit og komu miklir hvellir
frá bílnum allan tímann.
„Sá maður telur að um hvell frá
sínum bíl hafi verið að ræða en rann-
sókn okkar hef ur samt ekki leitt í ljós
hvað þarna gerðist raunverulega.”
-J
,r M
Þær Laufey Sigurðardóttir og Eiva Aðalsteinsdóttir eru starfsmenn Upplýs-
ingamiðstöðvarinnar. Turninn er sérlega fallegt hús sem stendur við
göngugötuna nýju. DV-mynd: JBH
Kvennalistinn
á Sauðárkróki
stöðu og jöfnunar innan þjóðfélagsins,
friðarhreyfingu kvenna, kvennaat-
hvarf, o.fl. Hvöttu kvennalistakonur
stöllur sínar hér til að stofna stuönings-
hópa og halda uppi umræðum um mál-
efnikvenna.
A fundinum buðu kvennaJistakonur
ýmsan varning til kaups, t.d. barm-
merki, fána, boli með merki listans og
kvenna. Einnig nærbuxur meö sömu
áletrun, en ekki fékk fréttaritari séð
hvoru kyninu þær voru ætlaðar.
Siöastliðinn þriðjudag héldu kvenna-
listakonur, sem nú eru á hringferö um
landið, fund í Safnahúsinu á Sauöár-
króki. Voru þar saman komnar konur
úr ýmsum hreppum héraösins.
Þó ekki væru fundarmenn margir
ríkti frjálslegt og gott andrúmsloft,
enda hefðbundið fundarform og fund-
arstjórn látin lönd og leið.
Málefni Kvennalistans voru kynnt og
rædd yfir rjúkandi kaffibollum. M.a.
Kvennalistakonur á fundinum á Sauðárkróki.
DV-mynd Jón Hallur.
r Akureyri:
I Turninum á að leysa
vanda ferðamannsins
Feröamálafélag Akureyrar hefur
opnað upplýsingamiðstöð fyrir ferða-
menn í „Turninum” við Hafnarstræti.
Þessi þjónusta er nú veitt þriöja sum-
arið í röö en í nýjum húsakynnum.
Opnunartími hefur einnig verið lengd-
ur. Opið verður að minnsta kosti út
ágúst frá klukkan 10-19 virka daga en
11-13 og 16-19 laugardaga og sunnu-
daga.
Það hefur sýnt sig að ferðamertn
kunna vel að meta þá þjónastu sem
Upplýsingamiðstöðin veitir. I fyrra
komu þar um 3000 manns, stór hluti út-
lendingar en tslendingar geta aö sjálf-
sögðu ekki síður fengið svör við spum-
ingum sínum. Veittar eru upplýsingar
um Akureyri og nágrenni, ýmsa þjón-
ustu við ferðamenn, ferðamöguleika út
frá Akureyri og um landið allt ef því er
að skipta. En til aö stöðin geti sem best
gegnt hlutverki sínu segja forráða-
menn mjög mikilvægt að þangað berist
upplýsingar frá þeim sem bjóða ferða-
mönnum þjónustu, svo og um viðburði
sem ferðamenn kynnu aö hafa áhuga
fyrir. Simi Upplýsingamiðstöðvarinn-
arer 96-25128. JBH/AKUREYRI
Verðbólga, mæld meö hækkun láns-
kjaravísitölunnar, var í júní 27
prósent miðaö við heilt ár. Þetta er
samkvæmt upplýsingum Seöla-
bankans sem reiknaði út lánskjaravísi-
töluna í gær.
Lánskjaravísitalan verður þann 1.
júlí 903 stig. Um 2 prósent hækkun er
aö ræða frá 1. júní, en þá var hún 885
stig. Þessi 2 prósenta hækkun þýðir 27
prósenta verðbólgu á heilu ári.
Um áramótin, 1. janúar, var láns-
kjaravísitalan 846 stig. Sé sú tala borin
saman við 903 stig 1. júlí þýðir
hækkunin 13,9 prósenta verðbólgu á
heilu ári. -JGH
Athugasemd f rá
Þorgeiri Þorgeirssyni
I blaöinu þann 19. júní sl. birtiö þið
„fregnir” af ritskoðunartilburðum
Rannsóknarlögreglu ríkisins á
greinum eftir mig. Sannleiksgildi
frásagnarinnar tel ég að mörgu, leyti
samboöiö blaöi ykkar. Þó finnst mér
þið fara yfir strikið að einu leyti. Þiö
tengið þessi mál við svokallað
„Skaftamál” bæði í fyrirsögn og
texta. Þetta er alrangt meö farið og
vildi ég mega biðja ykkur að leið-
rétta þetta meö því að birta klausuna
atama:
Hér er um að ræða fullkomlega
aðskilin mál og hefur hvort þeirra
sitt númer í „réttarkerfinu”. Auk
þess eru málrn f jarska óskyld að inn-
taki þarsem annað þeirra fjallar um
rétt lögreglunnar til aö berja fólk og
handjárna en hitt fjallar um rétt
höfunda tilað segja meiningu sína.
Semsé um rétt manneskjunnar tilaö
rísa uppá afturfætuma og tala.
Með fyrirfram þökk fyrir skjóta
birtingu.
Þorgeir Þorgeirsson
Myndverk til
sölu og leigu
I sýningarsal Listamiðstöövarinnar
hf., sem er til húsa í Hafnarstræti 22,
stendur yfir um þessar mundir sýning
á grafíkmyndum eftir 5 íslenska lista-
menn. I tengslum viö þessa sýningu
tók Listamiðstöðin upp þá nýbreytni aö
bjóða myndverk til leigu. Allar myndir
sem em til leigu em einnig til sölu og
verður leigugjald fyrir mynd minnst 5
kr. á dag, en fyrir dýrari myndir 1—2%
af söluverði hennar f yrir hvem mánuð.
Hámarksleigutími hverrar myndar er
þrír mánuðir. Leigugjaldið dregst frá
söluverði ef mynd er keypt strax og
leigutíma lýkur. Listamiðstöðin hf.
hefur yfir að ráða sýningarsal þar sem
einkasýningar fara fram og sal þar
sem myndaleigan og salan fer fram.
Hækkun lánskjaravísitölunnar í gær:
SAMSVARAR
27% VERD-
BÓLGU Á ÁRI
Henrik
Bemdsen,
formaður
SÁÁ:
Bjórinn yrði ekki
til bóta
„SAÁ sem slíkt tekur ekki afstöðu til
svona mála,” sagði Henrik Bemdsen,
formaður SÁA, um skoðanakönnun
DV.
„I samtökunum eru náttúrlega
margir félagar með mismunandi
skoðanir en sjálf samtökin marka ekki
neina stefnu í þessu máli. Persónulega
tel ég að bjórinn yröi ekki til bóta. Eg
er ánægöur hvað munurinn er lítill
milli hópanna, ég hefði haldið aö fylgið
væri meira. Annars er fólk farið að
finna smjörþefinn af bjómum með til-
komu kránna og þær hafa áhrif á
stefnufólks,” sagðiHenrik. -pá
r Wm !j| 1
Olafur Þ. |iþi* ^ fj
Þórðarson 1
alþingis-
maður: BpHjL. ■
Hefekkertað segja
um skoðanakannanir
„Eg hef ekkert að segja um skoöana-
kannanir Dagblaðsins-Vísis,” sagði
Olafur Þ. Þórðarson alþingismaður í
samtali við DV.
„Eg veit aldrei hvenær þær eru
gerðar í hreinu áróöursskyni og
■hvenær þær em hremlega upplognar.
Þær brjóta allar félagsfræðilegar regl-
ur. Eg tel að þaö verði að standa vís-
indalega að svona skoöanakönnunum
og það hefur aldrei verið gert hjá
ykkur,”sagðiOlafur. -pá
Halldór
Kristjáns-
son frá
Kirkjubóli:
Hlutiaf áhuganum
tískufyrirbæri
„Eg hef ekkert um þetta aö segja í
sjálfu sér,” sagði HalldórKristjánsson
frá Kirkjubóli um niðurstöðu skoöana-
könnunarDV.
„Svona kannanir breyta ekki afstööu
manna. Eg geri ráð fyrir að þingmenn
hugsi málið betur á næsta þingi, ég lít
svo á aö hluti af þessum áfanga sé
tískufyrirbæri. Það er ekki víst aö
gengi bjórkránna veröi hið sama eftir
árið,”sagöiHalldór. -pá
1 m1 r'
Stefán
Benedikts-
sonal-
þingis- lÉapff s jWIÍp>
maður: W &, Hf
Kemurmérekki
áóvart
„Þetta kemur mér ekki á óvart,”
sagði Stefán Benediktsson alþingis-
maður í samtali við DV.
„Það er nánast óskiljanlegt aö
stjórnmálamenn skuli ekki átta sig á
staðreyndum og haga sér samkvæmt
þeim. Núverandi alþmgismenn koma
varla til með að afgreiða frumvarp á
borð við bjórfrumvarpið nema aukinn
þrýstingur komi til,” sagði Stefán.
-pá