Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1984, Qupperneq 5
DV. FÖSTUDAGUR 22. JtJNl 1984.
5
Niðurstöður skoðanakönnunar DV:
HLUTINN
FABJOR
Meiríhluti landsmanna vill, aö leyfð
verði sala á áfengu öli hér á landi.
Þetta sýnir skoöanakönnun, sem DV
gerði fyrir skömmu.
Spurt var: Ertu fylgjandi eða
andvígur því, að leyfð verði sala
áfengs öls hér á landi? Urtakið í
könnuninnivar 600 manns. Þar afvar
helmingur á Stór-Reykjavíkursvæðinu
og þvi helmingur úti á landi. Jöfn
skipting var milli kynja.
52,3 prósent af öllu úrtakinu
reyndust fylgjandi bjórnum. Andvígir
voru 35,7 prósent. Aðeins 5,8% voru
óákveðin og 6,2% vildu ekki svara
spurningunni.
Þetta þýðir, að 59,5 prósent þeirra,
sem taka afstöðu, vilja leyfa sölu
áfengs öls, en 40,5 prósent eru því and-
víg.
DV hefur ekki áður gert könnun á
þessari ákveönu spumingu eftir
sameiningu Dagblaðsins og Vísis, en
fyrirrennarar DV gerðu kannanir, sem
oft sýndu, að mjótt var á munum milli
stuðningsmanna bjórs og andstæöinga.
Bjórinn sótti sig heldur, þegar á leið,
og hefur haft meirihluta í síöustu
skoðanakönnunum.
DV kannaði í vetur afstöðu fólks til
Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar:
Fylgjandi 314 eða 52,3%
Andvigir 214 eða 35,7%
Óákveðnir 35 eða 5,8%
Vilja ekkisvara 37 eða 6,2%
Efaðeins eru teknir þeir, sem tóku afstöðu, verða niður-
stöðurnar þessar:
Fylgjandi 59,5%
Andvígir 40,5%
Ummæli fólks í könnuninni:
„ Yrði seldur
f vínbúðunum”
,,Það er fásinna og vitleysa aö
banna bjórinn,” sagði kona á Reykja-
víkursvæðinu, þegar hún svaraöi
spurningunni í skoðanakönnun DV.
, ,Drekk ekki mikiö af honum s jálf ur en
vil samt leyfa hann,” sagði karl á
Reykjavíkursvæðinu. „Hundrað
prósent með því,” sagði kona á
Reykjavíkursvæðinu. „Vil bjór með
vissum skilyrðum. Hann yrði seldur í
áfengisverslunum ríkisins eða
veitingahúsum, ” sagði karl á Suður-
nesjum. „Það má leyfa bjórinn, ef
hann verður seldur gegnum ÁTVR,”
sagði karl á Reykjavíkursvæðinu.
, J^ylgjandi, er salan yrði bundin við
áfengisútsölumar og bjór ekki seldur í
matvörubúðum,” sagði karl á Reykja-
víkursvæðinu. „Oþolandi frelsis-
skerðing að hafa ekki bjórinn,” sagði
karl úti á landi. „Vil, að bjórinn verði
seldur alls staðar, líka í matvöm-
verslunum,” sagöi karl úti á landi.
„Það er góö þróun, sem hefur orðið
með fjölgun á veitingastöðum. Eg er
fylgjandi bjór,” sagði karl á Reykja-
víkursvæðinu. „Auðvitaö á að leyfa
bjórinn. Það er hvort eð er allt fullt af
bjór í landinu, aö minnsta kosti nóg af
bjórstofum. Hvemig á maður að út-
skýra þetta fyrir útlendingum?” sagöi
karl á Reykjavíkursvæðinu. „Vil hafa
reynslutíma á ölinu og sjá afleiðing-
arnar, sérstaklega hvað varðar ung-
.lingana,” .sagðl karl. á Reykjavíkur-
svæðinu. „Eg er fylgjandi ölinu, því
það er nú þegar komið að hluta inn í
landið. Áhafnir og ferðamenn fá að
kaupa öl. Hví ekki við hin líka?” sagði
karl á Akureyri.
„Nóg af fyllibyttum"
„Nóg er af fyllibyttum, þó aö við
bætum ekki bjómum við,” sagði karl á
Reykjavíkursvæðinu á hinn bóginn.
„Ottast um ungdóminn, ef bjórinn
verður leyfður,” sagði kona á Reykja-
víkursvæðinu. „Eg er persónulega
fylgjandi bjór, en á móti því, að hann
veröi gefinn frjáls,” sagði kari úti á
landi. „Eg er andvíg sölu á áfengu öli.
Salan yrði aðeins til að auka á áfengis-
neysluna i landinu,” sagöi kona á
Reykjavíkursvæðinu. „Bjórinn yrði
bara til bölvunar,” sagði karl á
Norðurlandi. „Bjórdrykkja kæmi
verst niöur á heimilunum,” sagði
kona á Vestfjörðum. „Andvíg bjórnum
vegna þess að hann eykur drykkju hjá
fólki, ” sagði kona út á landi. „Hélt að
nóg væri drukkið. Fólk er að veltast
dmkkið í strætisvögnum. Eg er á móti
öllu áfengi,” sagði kona á Reykja-
víkursvæðinu. „Ég býst ekki við, að
við sækjum neina lukku í ölið,” sagði
karl á Reykjavíkursvæðinu. „Það er
orðið svo mikiö af þessu brennivíni hér
í sveitinni, að það er ekki á það bæt-
andi,” sagði kona í sveit.
i.|! —HH
Ein hinna fjölmörgu knæpa sem sprottíð hafa upp að undanförnu.
tillagna um að láta fara fram þjóðarat-
kvæði um, hvort leyfa skyldi bjór hér á
landi. Þá voru 74,5% af úrtakinu
fylgjandi þjóðaratkvæði um bjórinn,
17,7% andvíg, 4% óákveðin og 3,8%
vildu ekki svara spurningunni. Þetta
þýddi að 80,8% af þeim sem tóku
afstöðu vom fylgjandi þjóðaratkvæði,
enl9,2%andvíg.
Vmsir sem ekki em fylgjandi bjórn-
um vilja samþykkja þjóðaratkvæði, er
skeri úr í deilunni.
1 könnuninni nú var mikill meirihluti
karla því fylgjandi, að bjór yrði
leyfður, einkum karlar á Reykjavíkur-
svæðinu.
Aðeins lítill meirihluti kvenna var
fylgjandi bjórnum. Utan Reykjavíkur-
svæðisins voru fleiri konur andvigar
bjómum en fylgjandi.
-HH
/
B/acksi Decker
GARÐSLÁTTUVÉLAR
jj' / f
•ífpr
STRIMMER
T—1 tólt tommu lottpúðasláttuvél. Lauflétt loftpúðasláttuvél
sem líöur yfir grasflötinn, slær bæði rakt, þurrt og hátt gras af
snilld. Tvöföld einangrun, þrjár hæöarstillingar. 1000 W mót-
or. Ars ábyrgö. Verðkr.
6.684.-
Umboó og þjónusta.
Utsölustadir um land allt.
grasiö þar sem aörar
sláttuvélar komast ekki
aö. Laufléttur, einnar
handar grasskeri meö
kraftmiklum 210 W mótor
sem snýr nælonþræöinum
12.000 hringi á mínútu. 6
metra nælonþráöur fylgir.
Tvöföld einangrun. Ars
ábyrgö. Verökr.
2.332.-
G. ÞORSTEIIMSSOIM
& JOHNSON HF.
Ármúla 1, sími 685533.