Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1984, Síða 6
6
DV. FÖSTUDAGUR 22. JUNI1984.
Kennara vantar
Almennan kennara vantar aö grunnskólanum Borgarfirði
eystra. Upplýsingar í síma 97—2932 og 97—2925.
Skólanefnd.
HEILBRIGÐISRÁÐ REYKJAVÍKURBORGAR
Frá Skólataxmlækningum
Reykjavíkurborgar
Tannlækningastofurnar verða í sumar opnar á eftirtöldum
stöðum:
í júní:
Heilsuverndarstöð
Árbæjarskóla ....
Austurbæjarskóla
Breiðholtsskóla...
Fellaskóla.......
Fossvogsskóla ...
Hólabrekkuskóla .
Langholtsskóla...
Laugarnesskóla ..
Melaskóla........
Ölduselsskóla ....
Seljaskóla.......
.. Sími
22417
686977
25709
73006
75452
31430
74470
33124
35545
10625
75522
77411
í júlí:
Heilsuverndarstöð..................................— 22417
Langholtsskóla til 20. júlí........................— 33124
Melaskóla til 9. júlí..............................— 10625
Ölduselsskóla......................................— 75522
Seljaskóla til 15. júlí............................— 77411
íágúst:
Heilsuverndarstöð..................................— 22417
Fossvogsskóla......................................— 31430
Melaskóla frá 22. ágúst............................— 10625
Ölduselsskóla......................................— 75522
Seljaskóla.........................................— 77411
Athygli er vakin á því að tannlæknadeild Heilsuvemdarstöðv-
arinnar er opin alla virka daga frá kl. 8.30—16.00 og eru þar
gefnar upplýsingar um neyðarþjónustu í síma 22417.
Yfirskólatannlæknir.
VIDEOAUGAÐ
Höfum flutt videoleiguna í stóran, bjartan sal í Brautarholti
22, gengið inn við hliðina á Pottinum og pönnunni, Nóatúns-
megin. Mikið úrval af nýjum myndum í VHS með íslenskum
texta og án texta. Gjörið svo vel að líta inn.
VIDEOAUGAÐ
Brautarholti 22.
ATH. nýtt símanúmer
2 2 2 5 7.
Útlönd Útlönd Útlönd
Kúba endurselur
sovéskar oh'uvörur
Fidel Castro reynir nú að auka útflutningstekjur Kúbu með því að endurselja
sovéskar olíuvörur.
Kúba hefur aö undanförnu selt mikið
magn af olíuvörum sem þeir hafa
keypt af Sovétmönnum. Tilgangurinn
er sá aö bæta gjaldeyrisstöðu Kúbu
sem er afar bágborin vegna lækkandi
verðs á meginútflutningsvöru lands-
ins, sykri.
Sovétmenn selja Kúbu mikið af olíu-
vörum og er veröiö töluvert lægra en
heimsmarkaösverð.
I skýrslu sem vestrænir diplómatar
á Kúbu komust yfir kemur fram aö
ríkisstjórn Kúbu endurseldi í fyrra
olíuvörur fyrir um þaö bil 600 milljónir
Bandaríkjadollara og er taliö aö það sé
um 57 prósent aukning frá árinu 1982.
Taliö er aö tekjur Kúbu af endursölu
á sovéskum olíuvörum nemi aö
minnsta kosti um þriöjungi af öllum
gjaldeyristekjum landsins. Þaö að
Sovétmenn skuli selja Kúbu oliu á
verði sem er lægra en heimsmarkaðs-
verö er í andstöðu viö samninga þeirra
við önnur ríki sem aðild eiga að efna-
hagsbandalagi kommúnistaríkja,
Comecon. Hin aðildarríkin hafa kvart-
að sáran undan háu olíuverði frá
Sovétríkjunum og var þetta tekiö fyrir
á nýafstöðnum fundi Comecon í
Moskvu.
Bandaríkin:
Fólksfjölgun
fer minnkandi
George Schultz, utanrikisráðherra
Bandaríkjanna, og Anatoly
Dobrynin, sendiberra Sovétríkjanna
í Bandaríkjunum. Þeir áttu viðræður
um samskipti stórveldanna.
Schultz og
Dobrynin
ræddust við
George Schultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, og Anatoly Dobryn-
in, sendiherra Sovétríkjanna í
Bandaríkjunum, áttu þriggja
klukkustunda fund saman í fyrra-
dag.
Dobrynin sagði í viötali við frétta-
menn að margt hefði borið í góma á
fundinum og viðræðumar heföu ver-
ið ítarlegar. Sendiherrann svaraöi
ekki hreint út spumingu frétta-
manna hvort rætt hefði verið um
möguleikann á fundi Ronalds
Reagans Bandarikjaforseta og
Konstaníns Chemenkos, forseta
Sovétríkjanna. Þegar þessi spurning
var borin fram var svar sendiherr-
ans „við reyndum að ræða um allt”.
Dobrynin bætti því við að engar
lausnir hefðu fengist á þessum fundi
en hins vegar heföu viðræðurnar
verið mjög itarlegar og kvaöst hann
mundu skýra ráðamönnum í Sovét-
ríkjunum frá viðræðunum en
Dobrynin fer til Sovétríkjanna
snemma í næsta mánuði til fundar
viö æðstu menn landsins.
Ronald Reagan hefur aö undan-
fömu farið mildari orðum um Sovét-
ríkin en hingað til og í síðustu viku
sagöi hann á fréttamannafundi aö
hann hefði áhuga á viðræðum við
Chernenko og ennfremur að hann
myndi ekki gera kröfur um að á slík-
um fundi færu fram formlegar við-
ræður um afvopnunarmál.
Fólksfjölgun í Bandaríkjunum fer
minnkandi og hlutfall háaldraðs fólks
mun vaxa mjög á næstu áratugum.
Þannig hljóða niðurstöður í skýrslu
sem unnin hefur verið af opinberum
aöilum þar í landi. I skýrslunni kemur
fram að um miðja næstu öld verði ekki
um neina fólksfjölgun að ræða í Banda-
ríkjunum. Ennfremur segir þar að árið
1982 hafi 2,5 milljónir Bandaríkja-
manna verið 85 ára og eldri og er það
um það bil eitt prósent þjóðarinnar.
Um næstu aldamót er talið að í þessum
aldurshópi verði tvöfalt fleiri, árið 2030
verði níu milljónir Bandaríkjamanna í
þessum hópi. Mun það verða um sex
prósent þjóðarinnar.
Sex létu lífið og 20 manns slösuðust
þegar langferðabifreið og flutningabif-
reið lentu í árekstri ó Spáni í fyrradag.
I langferðabifreiðinni voru erlendir
ferðamenn og voru margir þeirra
breskir og hollenskir. Bílstjórarnir,
sem bóðir voru spánskir, voru meöal
þeirra sem létust. Auk þess lést holl-
enskur fararstjóri og margir þeirra
sem særöust voru börn.
Slysið átti sér staö miðja vegu á milli
Tónleikar sem Michael Jackson
ætlaði aö halda ásamt bræðrum sínum
í Foxboro skammt frá Bandaríkjunum
i ágúst næstkomandi hafa veriö bann-
aðir af yfirvöldum bæjarins. Sú skýr-
ing hefur verið gefin á banninu að
brunavarnir væru ófullkomnar á tón-
leikasvæðinu og auk þess var sagt að
umferðaröryggi væri stefnt í hættu.
Er því ljóst að útgjöld bandaríska
ríkisins munu aukast mjög á næstu
áratugum því nær allir í þessum hópi
þiggja framfærslu frá ríkinu, þótt í
mismunandi mæli sé.
Auk þess segir í skýrslunni að lífslík-
ur muni aukast töluvert á næstu árum.
Meðalaldur er nú 74,3 ár í Banda-
ríkjunum. Um næstu aldamót er því
spáð að meðalaldurinn verði 76,7 ár og
81árárið2080.
Árið 1982 voru 14,5 prósent Banda-
ríkjamanna af lituðum kynstofni og
mun það hlutfall fara vaxandi. Er taiiö
að litaðir Bandaríkjamenn veröi 16,9
prósent um næstu aldamót og 25,5 pró-
sentárið2080.
borganna Malaga og Granada. Flestir
hinna særöu voru fluttir á sjúkrahús i
Granada.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar liggur ekki ljóst fyrir með hverj-
um hætti slysið varð.
Tæpum tveimur sólarhringum áöur
en slysið varð lenti önnur langferðabif-
reið í árekstri við tvo fiutningabila. 1
því slysi létust ellefu og tíu slösuðust.
Tónleikasvæðið sem um ræðir tekur
um það bil 50.000 manns í sæti.
Jackson-bræður munu fara i tónleika-
ferð um Bandaríkin í sumar og höföu
ákveðið að koma fram í Foxboro.
Aðstandendur tónleikanna sögðust
miður sín vegna þessarar ákvörðunar
og að þeir hafi ekki vitað annað en þeir
hefðu öll tilskilin leyfi. 1,1
Spánn:
SEX MANNS LÉTUST
í BIFREIÐASLYSI
Tónleikar Michaels
Jacksons bannaðir