Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1984, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1984, Síða 10
10 DV. FÖSTUDAGUR 22. JUNI1984. Útlönd Utlönd Útlönd Útlönd JÓRDANÍUMENN BJÓDAST TIL AD AÐSTODA ÍRAKA Slík aðstoð kann að breiða Persaflóastriðið út Hussein Jórdaníukonungur hefur nú enn boöist til að veita Irökum og öörum þjóöum viö Persaflóa hernaöaraöstoö til aö verjast Irönum. Fréttaskýr- endum ber saman um að þetta boð Jórdaníukonungs kunni aö draga dilk á eftir sér og muni það að mestu ráöast af afstööu Sýrlendinga sem styöja Irana í stríði þeirra viö Iraka. Grunnt er á því góða í samskiptum Sýr- lendinga og Jórdaníumanna. Aðstoð boðin fram Hussein konungur fór fyrir nokkrum dögum til Iraks og ræddi þá viö Sadd- am Hussein, forseta Iraks. Kon- ungurinn hefur hvaö eftir annaö boöið Irökum hemaðaraðstoö á þeim 45 mánuöum sem stríðið hefur staöiö yfir. Auk þess fór konungurinn til annarra ríkja, meöal annars Kuwait, Oman, Qatar og Sameinuöu furstadæmanna. I þessum heimsóknum sagði Hussein konungur aö Jórdanía væri reiðubúin. til aö veita Irökum og öörum ríkjum viö Persaflóa umfangsmikla hemaðar- aöstoö. Ekki gat konungurinn þess í hverju slik aöstoö yrði fólgin en líklegt er taliö aö Jórdaníumenn séu tilbúnir aö senda hersveitir til þessara landa. Jórdaníumenn hafa notiö mikillar aðstoðar Bandaríkjamanna bæði hvaö varðar hergögn og einnig viö þjálfup hermanna. Ekkert af áður- nefndum ríkjum hefur gefið í skyn aö hafa leitað eftir aöstoð Jórdaníu en hins vegar hafa ríkin þegiö hernaöar- legar ráðleggingar frá Jórdaníu- mönnum. Persaflóaríkin mörg undir stjórn Saudi Araba hafa veitt Irökum milljaröa dollara í aöstoö til að þeir geti staðið straum af þeim gífurlega kostnaöi sem fylgt hefur stríöi þeirra við Irana. Hins vegar hafa þessi ríki reynt aö forðast þaö í lengstu lög aö blanda sér í stríöiö meö beinum hætti. Hverjir greiða reikninginn? Fréttaskýrendum ber saman um aö Jórdaníumenn sem sjálfir hafa notið hemaðaraðstoöar hafi ekki bolmagn til aö veita Irökum mikla aðstoö. Hins vegar efast enginn um aö Hussein kon- ungur bauö fram aöstoö í alvöru. Því er talið líklegt aö hin efnaðri arabaríki, Kuwait og Saudi Arabía, muni greiða megnið af kostnaöinum viö slika aö- stoð. Diplómatar hafa af því áhyggjur að aöstoö Jórdaníu viö Iraka kunni aö hafa alvarlegar afleiðingar. Þá er átt viö samskipti þeirra viö Sýrlendinga sem hafa lagt sig alla fram um aö leika lykilhlutverk í friöarviðræðum í Líbanon. Fréttaskýrendur telja aö Sýr- lendingar eigi þá ósk heitasta aö styrkur Iraka verði sem minnstur og þeir hafi engan áhuga á aö stríöi Iraka og Irana ljúki svo framarlega sem Irakar fari halloka. Ariö 1982 lokuðu Sýrlendingar fyrir olíuleiðslu sem liggur frá Irak um yfirráöasvæöi Sýr- lendinga og flutti áöur oh'u til Mið- jarðarhafsins. Sýrlendingar hafa harö- neitað Irökum um afnot af leiöslunni þrátt fyrir mikinn þrýsting annarra ríkja viö Persaflóa. Nú flytja Irakar mest af sinni olíu í gegnum leiðslu sem liggur um Tyrkland. Auk þess hafa Jórdaníumenn sakað Sýrlendinga um aö styöja Irana og jafnframt um aö styðja viö bakiö á róttækum öflum inn- an Frelsissamtaka Palestínumanna (PLO) sem berjast gegn Yasser Ara- fat, leiötoga samtakanna. Ennfremur fullyröa Jórdaníumenn aö Sýrlending- ar standi á bak viö morö á sendiráðs- starfsmönnum Jórdaníu víöa um ^e*m' Því má ljóst vera aö hefji Jórd- aníumenn mikil afskipti af stríðinu viö Persaflóa þá kann slíkt aö hafa ófýrirsjáanlegar afleiðingar. Hussein, konungur Jórdaniu, og Ronaid Reagan Bandaríkjaforseti. Jórd- anir hafa nú boðist tii að aðstoða íraka en sjáifir njóta Jórdanir mikiiiar aðstoðar frá Bandarikjamönnum. Varnarsamningur arabaríkja Viö þetta er síðan aö bæta aö frétta- skýrendur telja óvarlegt af Jórdaníu- mönnum aö hefja of mikil afskipti af stríöinu vegna eigin öryggis. Ætli Hussein konungur aö eyöa miklu af þreki hersins í stríð við Iranaþá kann þaö aö veikja stöðu hans innanlamls og óeirðir kunna aö brjótast út. Hussein hefur á undanfömum árum lagt mikiö kapp á að tryggja friöinn innanlands og styrkja sjálfan sig í sessi. Því er allt óljóst um þaö hvort Jórd- anir muni hefja bein afskipti af stríðinu og shk ákvöröun er ömgg- lega tvíeggjuö. Einnig skal á þaö bent að Irakar hafa sjálfir aldrei fariö bein- linis fram á þaö aö önnur arabariki sendi herliö til aðstoöar í stríðinu viö Irana. Hins vegar hafa þeir krafist staðfestingar á varnarsamningi ar- ababandalagsins sem undirritaður var árið 1950 en aldrei hefur reynt á þann samning. I samningi þessum skuld- binda ríkin sig til að aðstoða það bandalagsríki sem veröur fyrir utan- aökomandi árás. Þó má segja aö vísir aö þessu sé það aö Jórdanir hafa sent allt aö 2000 hermenn til Iraks frá því aö striðið hófst og önnur ríki hafa einnig sent þangaö sjálfboöahða. A síðasta ári tóku Irakar upp hem- aöarsamvinnu viö Egypta að nýju þrátt fyrir andúö annarra arabaríkja vegna friöarsamnings Egypta og Isra- elsmanna frá árinu 1979. Egyptar hafa selt Irökum mikiö af vopnum en nú hafa þeir gengið í lið með þeim þjóðum sem leggja sig fram um aö leysa stríö Irana og lraka með friösamlegum hætti. Sá hópur hlýtur aö fara stækk- andi því mönnum veröur ljósara meö hverjum deginum aö hvoragur mun standa uppi sem sigurvegari í stríöi þessu, spumingin stendur aðeins um þaö hversu miklar þjáningar íbúar þessara landa þurfi aö þola til viöbót- ar. BANDARÍKIN: ENN SYKT1R í ÁUNN HJÁ REYKINGAMÖNNUM Það era fleiri en Islendingar sem reyna aö stemma stigu viö reykingum á almennum samkomustöðum. Mikil barátta hefur veriö háð í Bandaríkjun- um á síðustu árum gegn reykingum. Nú fyrir skömmu reyndu andstæöing- ar reykinga aö fá því framgengt aö al- gjört bann yröi lagt viö reykingum um borö í bandarískum flugvélum. Þeir vora því ánægöir þegar flugmálastjóm Bandaríkjanna sem skipuö er þremur mönnum ákvað fyrir skömmu að reyk- ingar yröu hér eftir bannaöar um borö í flugvélum standi flugið yfir í tvær klukkustundir eða skemur. Þetta var þó skammgóður vermir fyrir reykingaandstæöinga því ákvörðunin stóð aöeins í nokkrar klukkustundir. Formaöur flugmálastjórnarinnar skipti nefnilega um skoðun og þvi haföi myndast nýr meirihluti innan stjórnar- innar. Þó varö ósigur andstæöinga- reykinga ekki algjör því samkomulag varö um aö banna reykingar í flugvél- um sem taka færri en 30 farþega. Ástæöan er sú aö loftræstikerfi slíkra véla er mun lélegra en þeirra stærri. Forráðamenn flugfélaga fögnuðu Forráðamenn bandarisku flugfélag- anna fögnuðu mjög aö flugmálastjóm skyldi breyta upphaflegri ákvöröun sinni því aö þeir töldu mikil tormerki á aö framfyigja shku banni. Reykinga- menn era að sjálfsögöu stór hluti við- skiptavina flugfélaganna eins og ann- arra fyrirtækja. En baráttan gegn reykingum er háö á fleiri vígstöövum í Bandaríkjunum í mikilli óþökk tóbaksframleiöenda. I Bandaríkjunum er skylda aö iiafa aö- vörun á hverjum sigarettupakka. Texti þessarar ákvörðunar er staölaö- ur og ákveðinn af yfirvöldum. I aðvöruninni segir að rannsóknir sýni aö reykingar séu skaölegar heilsu manna. Nú stendur til aö breyta þessum texta því menn séu orðnir ónæmir fyrir þeim gamla og taki ekki lengureftir honum. Nefndir sem starfa á vegum banda- ríska þingsins hafa lagt til aö fjórar mismunandi aðvaranir verði prentað- ar á sígarettupakkana og skipt verði reglulega um. Auk þess eiga nýju að- vörunarorðin aö vera mun hvassari en þau sem nú tíðkast. A meðal annars aö fullyrða aö sígarettureykingar valdi lungnakrabba, hjartasjúkdómum og fleiri sjúkdómum. Auk þess verður sérstakri aövörun beint til ófriskra kvenna og einnig verður bent á aö þeir sem hætta aö reykja auka meö því hfs- hkur sínar. Óvæntur stuðningur Það hefur vakið athygli aö tóbaks- framieiðendur tóku vel í þessar hug- myndir strax í upphafi. Astæöa þess er talin sú að þeir telja sig heppna ef þeir sleppa meöshkar aövaranir. Þeir vilja sýnast sveigjanlegir en berjast hat- rammlega gegn öhum takmörkunum á frelsi fólks til að reykja því það skaöar hagsmuni þeirra aö sjáifsögöu mest. Andstæðingar reykinga fengu óvænt- an og mikilvægan stuðning 23. maí síö- asthðinn. Þá birti dr. Everett Koop niðurstöður úr rannsókn sem hann og fleiri bandarískir vísindamenn unnu aö. I rannsókninni kemur fram aö þeim sem umgangast reykingamenn — án þess aö reykja sjálfir — stafar meiri hætta af reykingum en áöur var tahð. Þaö sem mesta athygli vakti var sú staðhæfing vísindamannanna að börnum reykingamanna stafaöi mikil hætta af reykingum foreldranna. Læknirinn skoraöi á bandaríska for- eldra aö hætta reykingum því þaö væri ótvírætt börnunum fyrir bestu. Hinn móralski meirihluti (The Moral Majority) hefur tekið undir áskoranir læknanna og benda forsvarsmen.n þeirra á aö öh böm eigi aöeins skiiiö þaö besta. Er talið að þessi áróöur muni hafa mikh áhrif á Bandaríkja- menn og fjöldi þeirra sem hætta muni aukast verulega á næstunni. Þaö er þó athyghsvert aö þrátt fyrir aö 33 mihjónir Bandarikjamanna hafi hætt reykingum á síðustu árum þá viröast afköst þeirra sem enn reykja fara vaxandi. Nú er tahð aö 53 milljón- ir Bandaríkjamanna reyki og vex neysla þeirra um eitt prósent á ári. Mörg fylki Bandaríkjanna hafa sett strangar reglur um reykingar á opin- berum samkomustööum og jafnvel á fjölmennum vinnustööum. Tahð er aö baráttan gegn reykingum eigi enn eftir að haröna i Bandaríkjunum og aö reykingamenn eigi eftir aö veröa fyrir miklu aðkasti af hálfu þeirra sem ekki reykja. Þaö er því skiljanlegt aö sala á reyklausu tóbaki (snuff) og tóbaki sem tuggiö er (chewing tobacco) fari sífellt vaxandi. Neysla shks tóbaks hefur aukist um að meöaltali 11 prósent á ári síðan 1974. Ums Gunnlai Gunnlai íjón: ugurS. ugsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.