Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1984, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1984, Qupperneq 16
t '16 DV:.FÖSTODAÖUft-22.:JONI 1Í984: 3 íslensk brons- verðlaun á OL — Frábær árangur íslensku keppandanna á OL fatlaðra Ólympíuleikar fatlaöra standa nú yfir í New York í Bandaríkjunum og eru margir islenskir keppendur meðal þátttakenda á leikunum en alls eru þeir 2000 frá 54 löndum. Islensku keppendurnir bófu keppni i gter og náðu þremur bronsverðiaunum sem verður að teljast mjög góður árangur. Jónas Óskarsson keppti í 100 m bringusundi og varð 5. af 18 keppendum á timanum 1.37,32 min. Hann keppti einnig í 100 m skriðsundi og varö 13. af 23 keppendum og fékk timann 1.13,74 mín. Snæbjörn Þórðarson keppti í 100 m skriðsundl og varð 11. af 18 keppendum á timanum 1.11,20 min. Sigrún Pétursdóttlr náði frábærum árangri í 25 metra baksundi. Hlaut hún bronsverðlaun, 3. sæti af 7 keppendum, á tímanum 33,99 sek. Oddný Óttarsdóttlr keppti einnlg í 25 metra baksundinu og varð 5. á timanum 34,11 sek. Oddný var einnig á meðal keppenda í 100 metra bringusundi og gerði sér iítið fyrir og varð þriðja. Hlaut bún timann 3.35,13 mín. Loks keppti Eysteinn Guðmundsson í lOOm skriðsundi og varð 14. af 16 keppendum á 1.19,97 min. „Ég var bjartsýnn fyrir ieikana en þessi árangur okkar fólks fer fram úr öllum vonum,” sagði Amór Pétursson, fararstjóri islenska liðsins, i samtali við DV i gærkvöldi. -SK. Bikardráttur í sjónvarpssal? Það eru miklar líkur á því að dregið verði í 16-liða úrslitum bikarkeppni KSt i knatt- spymu í sjónvarpssal á morgun og verður því sjónvarpað beint frá drættinum, og jafnframt spjaiiaö við nokkra forráðamenn féiaganna sem eiga lið í 16-liða úrsiitunum. Tryggvihefur skorað 34 mörk Tryggvi Gunnarsson, sem leikur með ÍR í knattspyrau, hefur heldur betur verið á skot- skónum í sumar. Tryggvi hefur skorað 34 mörk í leikjum IR—inga en hann leikur einnig meö 2. flokki félagsins. Tryggvi hefur skorað 26 mörk fyrir meist- araflokk í bikarkeppninni og Reykjavikur- og tsiandsmóti. Átta mörk hefur hann þvi skorað í leikjum með 2. flokki. Það þarf vart að taka fram að Tryggvi er langmarkahæstur yfir aiiar deiidirnar. Fórholuíhöggi íþriðja sinn Geir Þórðarson, Golfklúbbi Reykjavíkur, fór hoiu i höggi nýlega á Grafarholtsveili. Þetta er í þriðja sinn sem Geir fer holu í höggi en hann hefur æft og keppt í golfi i áratugi. Það var á sjöttu braut sem höggið mikia kom hjá Geir og kúlan fór beint í holuna. Hann var þaraa ásamt þremur öðrum kunnum kylf- ingum. Arakell Guðmundsson lék sömu braut á tveimur höggum, Ásgeir Nikuiásson á þrem- ur og Jón Svan Sigurðsson á fjórum. Það var sem sagt 1—2—3—4 árangurinn h já köppunum fjórum. hsím. Völs- ungur áfram — íbikarkeppni KSI eftirsigurá KS 1:2 Fjögur I | Ásgeir Elíasson, þjáifari Þróttar. dæmd í I Frá Kristjáni Möller, fréttaritara DV á Siglufirði: Framlengja varð baráttuleik Völsungs og KS frá Siglufirði i bikar- keppni KSl sem fram fór í gærkvöldi á Siglufirði. Völsungur sigraði 1—2 og var sá sigur i meira lagi ósanngjara. Siglfirðingar áttu í þaö minnsta sex dauöafæri í fyrri hálfleik en ekki tókst þeim að skora og staöan í leikhléi var 0-0. Húsvíkingar hresstust eilítið í síðari hálfleik og þeir náðu að skora fyrsta mark leiksins á 62. mínútu leiksins. Markið skoraði Helgi Helgason beint úr homspyrnu. A 80. mín. náði Oli Amarsson að jafna metin fyrir KS og framlengja þurfti leikinn að venjuleg- um leiktima loknum. Á 2. mín framlengingarinnar tókst Jónasi Hallgrímssyni að tryggja Völsungi sigur, sem var mjög ósanngjam. -SK. I ! „Verður að i I bjargast ínótt" I O ÍSÍ dæmdi Þrótt R„ Vestr ÍSÍ kennsluskýrslum fyrir 198 I„Þetta kemur mér mjög á óvart, ég hafði enga hugmynd Ium þetta,” sagði Asgeir Elías- son, þjálfari Þróttar, í samtali I við DV seint í gærkvöldi. * „Þetta er að sjálfsögðu hið . I versta mál en ég treysti stjóra- | Iinni til að leysa þetta mái faið fyrsta. Þetta verður að bjargast í Inótt. Þetta er alfarið mál aðal- stjóraar og þeir verða að bjarga Imáiunum,” sagði Asgeir. I. -sk.j tþróttasamband tslands hefur frá og með deginum í gær dæmt fjögur knatt- spyrnufélög í keppnisbann. Ennfremur eru allir leikir umræddra félaga dæmdir liðunum tapaðir frá og með deginum i gær þangað til félögin, nánar tiltekið aðaistjórair þeirra, hafa skilað inn kennsluskýrslum tii tSt fyrir árið 1983. Tillit er tekið til þeirra við út- hlutun kennslustyrkja til íþr' félaga. j Félögin sem hér um ræðir t Þróttur, Reykjavík, Fylkir, Vestri (IBI) og Oðinn. Þessi félög hafa þegar fyrirgert rétti sínum á kennslustyrkj- um næsta ár. Þetta er mikið alvörumál fyrir þessi félög og þegar hefur trassa- skapur aðalstjórna þeirra komið viðkomandi liðum í koll. Þróttarar léku í gærkvöldi í 2. flokki gegn Grindavík og vann Þróttur leikinn. Samkvæmt ákvörðun ISI tapar Þróttur þessum leik. 5. flokkur Þróttar lék í gærkvöldi gegn FH og tapaði 1—2 þannig að Þróttarar töpuðu þeim leik hvort eö er. 1. deildarlið IBI í kvennaknatt- spymunni, en um helmingur IBI- liöanna í kvenna-, karla og yngri Qokkum bandalagsins eru í Vestra, leikur í kvöld gegn Breiðabliki á Isa- firði og ef Isaf jörður hefur ekki skilað skýrslum tapast leikurinn. 2. deildar lið Fylkis í kvennaknattspymu lék í íþróttir íþróttir íþróttir Enn drekka Danir Frá Áraa Snævarr, fréttamanni DV í Frakklandi: Drykkjuskapur danskra áhorfenda sem fylgja danska landsliðinu i Evrópukeppninni hefur vakið verð- skuldaða athygli. Minna hefur farið fyrir fréttum af ótæpilegri bjór- og tóbaksneyslu dönsku landsliðsmann- anna sjálfra. Eftir hinn stóra sigur Dana á Júgóslövum lögðust Danimir öldungis ekki í kör eins og ætla mætti. Um hálf- þrjúleytið um nóttina tókst Piontek, þjálfara danska liðsins, að koma þeim í rúmið en eftir leik og fram aö þeim tíma hafði bjómeysla 20 menninganna verið „ótrúleg” að sögn útsendara franska blaðsins Equipe. Þetta var þó aöeins byrjunin. Eftir sigurleik Dana gegn Belgum hófst veisla mikil í búningsklefanum danska og Piontek þjálfari fékk ekki við neitt ráöið. Skipaði hann svo fyrir aö menn ættu að vera komnir á hótelið ekki seinna en kl. 5 um morguninn. Um sex- leytið þann morgun sáust landsliös- menn Dana enn á ferli með Tuborg í hendi. Morgunverður var síðan snæddur kl. 3 um daginn, hádegisverð- ur kl. 6 um kvöldið og kvöldverður kl. 10. -SK. m m mm Öll f ranska miðj- aní„Evrópuliðinu” Michel Platini sést hér skora anni knattspyrau. Platini er löngu orðim ;orar og skorar. Frá Árna Suævarr, fréttamanni DV í Frakklandi: Blaðamenn hins virta ítalska íþróttablaðs „Gazzette dello Sport” völdu 11 manna lið, einfe konar Evrópulandsliö, að lokinni forkeppni Evrópu- keppninnar. Það skipa þeir Toni Schumacker, Uli Stielike og Rudi Völler (V-Þýskalandi), Morten Olson, Berggren, Sören Lerby (Danmörku), Alain Giresse, Luis Fernandez, Michel Platini og Jean Tigana (Frakklandi) Coras (Rúmeniu). „Enginn skallamaður í r ■■ ff Frá Áraa Snævarr, fréttamanni DV í Frakklandi: Mikið er rætt og ritað um atvik það er átti sér stað í fyrsta leik Evrópu- keppninnar í knattspyrau í Frakklandi þegar Amoros, bakvörðurinn franski, skallaði Jesper Olsen og var vikið af leikvelU. „Eg var aldrei hræddur um að það kæmi það sama fyrir leikmann úr okkar liði og kom fyrir Amoros á móti Dönum,” sagöi framkvæmdastjóri belgíska landsliðsins í viðtali við franskt blað í gær. Og af hverju ekki?" Jú.sjáöu til. Það er akkúrat enginn skallamaður í okkar liði. ” -SK. Guy Thys, landsiiðsþjálfari Belgíu. MARADONA FEKK1000 ATKVÆÐI! — í Evrópuþingskosningum á Italíu Frá Árna Snævarr, fréttamanni DV í Frakklandi: Geir Þórðarson með golfkylf una. Diego Ármando Maradona hlotn- aðist óvæntur heiður á dögunum. Sem kunnugt er hefur ítalska liðið Napoli gert hosur sínar grænar fyrir leik- manninum og boðið liði hans, Barce- lona, dágóðar summur í skiptum fyrir þjónustu hans. Ekki ber á öðru en að Napólíbúar styðji knattspymufélag sitt í þessari veiðleitni því þegar talið var upp úr kjörkössum í Evrópuþingskosningun- um á dögunum kom í ljós aö 1000 kjós- endur í Napolí höföu letrað nafn Mara- dona á kjörseðilinn. Maradona ógnar ekki kommúnistum og kristilegum demókrötum hvað kjörfylgi varðar, en hverveit...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.