Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1984, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1984, Síða 26
DV. FÖSTUDAGUR 22. JUNI1984. SAMRÖÐUN HEFTING BROT SKURÐUR LÍMING FRÁGANGUR 3TEMSILL NÓATÚN117 SÍMI 24250 Andlát Unnur Jónsdóttir, Silfurgötu 32 Stykkishólmi, lést í St. Fransiskus- spítala, Stykkishólmi, þriöjudaginn 19. júní. Eygerður Ágústa Bjamadóttir, fyrrv. ljósmóöir, Ásbúö 18 Garöabæ, lést 31. maí. Jaröarförin hefur fariö fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Matthildur Ágústsdóttir, Hásteinsvegi 64, er lést í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja þann 15. júní, verður jarösungin frá Landakirkju þann 23. j úní kl. 14. Guðmundur Þorsteinsson sem lést 13. júní, verður jarðsunginn frá Selfoss- kirkjulaugardaginn 23. júníkl. 13.30. Guðmundur Sveinsson bifreiðarstjóri, Þórunnargötu 7 Borgamesi, sem lést í Sjúkrahúsi Akraness föstudaginn 15. júns verður jarðsunginn frá Borgar- neskirkju laugardaginn 23. júní kl. 14. Þorleifur Þorleifsson, Hraungerði, Grindavík, verður jarösunginn frá Grindavíkurkirkju laugardaginn 23. júníki. 14. Tilkynningar Sumarferð Breiðfirðingafélagsins veröur til Vestmannaeyja. Lagt verður a£ staö frá Umferðarmiðstöðinni v/Hringbraut föstudaginn 6. júlí kl. 19 og komið til baka síðla sunnudags 8. júlí. Vinsamlegast pantið fyrir 23. júní. Upplýsingar veittar og pantanir teknar í símum 41531,50383 og 74079. Lausar stöður Við Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi eru lausar til um- sóknar kennarastöður í ensku og rafmagnsgreinum. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, skal senda til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 19. júlí nk. Menntamálaráðuneytið, 21. júní 1984. Auglýsing um skoðun léttra bifhjóla í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur Mánudagur 25. júní R- - 1 til R— 300 Þriðjudagur 26. júní R- - 301 til R— 600 Miðvikudagur 27. júní R- - 601 til R— 900 Fimmtudagur 28. júní R- - 901 til R— 1200 Föstudagur 29. júní R- -1201 og yfir. Skoðunin verður framkvæmd fyrrnefnda daga við bifreiða- eftirlitið að Bfldshöfða 8, kl. 08.00 til 16.00. Svna ber við skoðun að lögboðin vátrygging sé í gildi. Tryggingargjald ökumanns og skoðunargjald ber að greiða við skoðun. Skoðun hjóla sem eru í notkun í borginni en skrásett eru í öörum umdæmum fer fram fyrrnefnda daga. Vanræki einhver að koma hjóli sínu til skoðunar umrædda daga, verður hann látinn sæta sektum samkvæmt um- ferðarlögum og hjólið tekið úr umferð hvar sem til þess næst. Þetta tilkynnist öllum sem hlut eiga aö máli. 19. júní 1984. Lögreglustjórinn í Reykjavík. _SL •íiiil jlill 7 1 TILBOÐ óskast í eftirtaldar bifreiðar skemmdar eftir umferðaróhöpp: Galant 2000 GLS árg.1982 Plymouth Volaré árg.1978 Datsun Cherry árg.1981 Toyota Tercel árg. 1980 Subaru GFT1600 árg.1979 Ford Fairmont árg.1978 Mazda 929 (3 bílar) árg.1977 Fiat125 P árg.1979 Wartburg árg.1980 Bifreiðarnar verða til sýnis að Melabraut 26, Hafnarfirði, laugardaginn 23. júní frá kl. 13.00—17.00. Tilboðum sé skilað til aðalskrifstofu, Laugavegi 103, fyrir kl. 16.00 mánudaginn 25. júní. Brunabótafélag íslands. í gærkvöldi_______ í gærkvöldi r Jón L. Amason: TOMMIOG JENNI ERU BESTIR ,^Eg hlusta aldrei á útvarp á fimmtudögum, ekki einu sinni leik- ritin freista mín. Mér finnst að út- varpiö ætti að bjóða upp á betri dag- skrá á fimmtudögum þegar ekkert sjónvarp er. Eg er yfirhöfuð lítill útvarps- hlustandi, þaö er helst að ég hlusti á rás 2, þótt ekki sé það mikið, en ég er ánægöur með það sem ég hef heyrt. Það mætti kannski hafa dagskrá hennar á kvöldin og þyngja hana örlítið meö töluðu máli. Eg er líka frekar lítill fyrir þar sem sjónvarpið er, Tommi og Jenni eru náttúrlega það besta á dag- skránni og fréttirnar horfi ég oftast á. Fréttirnar hafa lagast mikið á undanförnum árum. Þó ég horfi lítið á sjónvarp, þá er það ekki svo að ég loki mig alveg frá því, það getur verið gott að horfa á góöa bíómynd og slappa af. Eitt sem ég hef tekiö eftir er hversu mikill fjöldi er af dýralífs- myndum um einhverjar örsmáar furöuverur og kynjakvisti, fræðslu- myndir eiga rétt ásér en fjölbreytnin verður að vera meiri. ” Motocross — motocross Fyrsta motocrosskeppni sumarsins veröur haldin laugardaginn 23. júní kl. 14 rétt sunnan viö Grindavíkurafleggjarann. Keppt verður í 125cc—250cc og 500cc flokkum og gefur keppnin stig til Islandsmeistaratitils. Albr helstu crossarar landsins veröa meðal þátt- takenda og verður eflaust hörkuspennandi keppni. Keppendur geta skráð sig á staðnum. Vélhjólaíþróttaklúbburinn. Frá Rauða kross deildum á Vestfjörðum Orlofsdvöl aldraðra Vestfirðinga verður að Laugum í Sælingsdal 9.-14. ágúst nk. Að Laugum er öll aðstaða til hvíldar og skemmtunar mjög góð. Eins og áður verða haldnar kvöldvökur og stiginn dans. Farið verður í dagsferð um Borgarfjörð og Stykkis- hólmur heimsóttur. Dvalargestir geta ekki orðið fleiri en 45 og er þátttökugjald 5000 kr. Þeir sem áhuga hafa, láti skrá sig hjá Sigrúnu Gisiadóttur í síma 94-7770 eftir kl. 17 fráog með 25. júní. Happdrætti FSI Dregið hefur verið í Landsliðshappdrætti FSt og hlutu eftirtalin nr. vinning. 1. Ferð á vegum Útsýnar, andv. 10.000,- nr. 537. 2. Ferð á vegum Fluglciða, andv. 10.000,- nr. 1307. 3. Ferð á vegum Fluglelða, andv. 10.000,- nr. 337. 4. Ferð á vegum Flugleiða, andv. 10.000,- nr. 1184. 5. Ferð á vegum Flugleiða, andv. 10.000,- nr. 1053. Vinninga ber að vitja eða tilkynna í sima 43345. (Guðrún.) Vinningar í happaregni SVFÍ Dregið hefur verið um aðalvinninga í „Happaregni”, happdrætti Slysavarnafélags íslands, þ.e. um 10 bifreiðir af gerðinni Fiat HÁÞRÝSTI- VÖKVAKERFI SérhæfÓ þjónusta. Aóstoóum vió val og uppsetningu hvers konar háþrýstibúnaóar. RADIAL stimpildælui^ = HÉÐINN = VÉLAVERZLUN-SlMI: 24260 LAGER-SÉRPANTANIR-ÞJÓNUSTA Uno 45/S og 22 myndbandstæki af Nordmende gerð. Féllu vinningar á eftirtalin númer: FiatUno45/S: 42284,48468,48530 , 65232,72685, 99739, 112209, 133207, 134227, 146946. Nordmende myndbandstæki: 1588, 7610, 8174, 10219, 17734, 20599, 26773, 43449, 43630, 43694, 50796, 52612, 72913, 84616, 94407, 103904, 104888,117692,140680,147150, 148157, 151966. Áður hafa verið birt vinningsnúmer fyrir 1000 vinninga, sem dregnir voru út 1. og 8. júnl. Slysavarnafélag Islands þakkar öUum þeim, sem hafa veitt félaginu stuðning með því að kaupa miða í happdrætti félagsins. Handhafar vinningsmiða eru beðnir að hafa samband við skrifstofu félgsins að Granda- garði 14. Ferðalög Útivistarferðir Hornstrandaferðir. 1. Hornvík 13.-22. júlí. Gönguferðir frá tjald- bækistöð, m.a. á Hælavíkurbjarg og Horn- bjarg. Fararstjóri Lovísa Christiansen. 2. Aðalvík 13.-22. júlí. Tjaldað að Látrum, gönguferðir þaðan. 3. Aðalvík-Jökulfirðir-Hornvík. 13.-22. júlí. Fararstjóri: KristjánM. Baldursson. 4. Hornvik-Reykjafjörður 20.-29. júlí. 4 dagar með farangur og síðan dvalið um kyrrt í Reykjafirði. Fararstjóri: Lovísa Christiansen. 5. Reykjafjörður 20.-29. júlí. Tjaldbækistöð og gengiö til aUra átta. Hægt er að tengja ferðir saman og lengja þannig sumarleyfið. Upplýsingar og farmiðar á skrifstofunni, Lækjargötu 6a, símar 14606 og 23732. Tvö bana- slysígær Um hádegisbil í gær lést sautján ára piltur í umferöarslysi í Fljótshlíð ná- lægt Fljótshlíðarskóla er bíll sem hann ók rann til í lausamöl, fór út af og valt. Farþegi sem var í bifreiðinni, jafnaldri ökumanns, slapp lítið meiddur. Báðir piltamir köstuðust út úr bif- reiðinni og er talið að ökumaður hafi látist samstundis. Bifreiöin er talin gjörónýt. Annaö dauöaslys varð í gærkvöldi í Þúfuveri uppi á öræfum þar sem unnið er við Kvíslarveitur. Þar varð maður undir grjótflutningabíl. Öskað var eftir þyrlu frá Slysavamafélaginu til að flytja hann til læknis en áður en hún fór á loft var beiðnin tekin til baka því maöurinn var lótinn. SGV Fiskverð hækkaði um 6 prósent Fiskverð var hækkað að meðaltali um 6% af fyrirnefnd verðlagsráðs sjávarútvegsins. Verðið gildir til árs- loka. Þá var ákveðin 4% hækkun á verðuppbót sem greidd er úr verðjöfnunardeild Aflatryggingasjóðs sjávarútvegsins. Ákvörðunin felur í sér aö verð á þorski hækkar um 6%, verö á ýsu og steinbít um 7% en verð á öðrum tegundum hækkar yfirleitt um 5,5%. Þess má geta að útgerðin hefur fengið vilyrði fyrir því að olíuverð til fiskiskipa hækki ekki á tímabilinu. -JGH Siglingar Ferðir Herjólfs A virkum dögum eru ferðir Herjólfs sem hér segir: Kl. 7.30 frá Vestmannaeyjum. Kl. 12.30 frá Þorlákshöfn. Áföstudögum: Kl. 7.30 og 17.00 frá Vestmannaeyjum. Kl. 12.30 og 21.00 frá Þorlákshöfn. Á laugardögum. Kl. 10.00 frá Vestmannaeyjum. Kl. 14.00 frá Þorlákshöfn. Á sunnudögum. Kl. 14.00 frá Vestmannaeyjum. Kl. 18.00 frá Þoriákshöfn. Aætlun Akraborgar Frá Akranesi kl. 8.30 kl. 11.30 kl. 14.30 kl. 17.30 Frá Reykjavík kl. 10.00 kl. 13.00 kl. 16.00 kl. 19.00 Kvöldferðir 20.30 og 22.00. Á sunnudögum i april, maí september og október. Á föstudögum og sunnudögum í júni, júli og ágúst. Tapað -fundið Tapað — fundið Grábröndótt Iítil læða, hvít á trýni og bringu, er í óskilum að Bústaðavegi 75 R. síðan á mánudagskvöldið sl. Uppl. í síma 34293. Afmæli 80 ára afmæli á í dag, 22. júni, Sölvi Elíasson leigubílstjóri, Einholti 9 hér í Reykjavík. Hann er fæddur í Þórðar- búð í Eyrarsveit á Snæfeilsnesi. Kona hans er María Guðmundsdóttir. Hann er aö heiman. 70 ára afmæli á í dag, 22. júni, Guð- mundur Finnbogason verkstjórl, Mel- haga 15 hér í Reykjavík. Hann er að heiman í dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.