Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1984, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1984, Síða 32
FRÉTTASKOTIÐ 6878 58 SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá i sima 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1984. Ernaráðin fréttamaður á Akureyri Erna Indriöadóttir hefur verið ráö- in fréttamaöur útvarps á Akureyri. Hún hefur unniö um skeið á frétta- stofu hljóðvarpsins, nú i vor sem þingfréttamaður. Norðlendingar hafa lengi ýtt á að fréttastofan hefði mann í fuliu starfi á Akureyri og nú hillir undir það. Ema sagðist flytja norður í ágúst en taka til starfa 1. nóvember. Erna er ekki með öllu ókunnug Norðurlandi því að hún var sem barn í sveit á Svalbarðsströnd og í Eyja- firði. Hún sagði að Akureyri væri sérstaklega fallegur bær og sér litist mjög vel á að starfa þar. „Mér finnst alitaf spennandi að fást við ný verk- efni. Þetta leggst voöa vel í mig.” JBH/Akureyri 4% launaskriö? „Ég tel líklegast að launaskrið á þessu ári verði um 4 prósent,” sagði sérfræðingur í Þjóðhagsstofnun í við- tali við DV. Launaskrið eru launa- hækkanir umfram samninga. Þá taidi sérfræðingurinn að kaup- máttur kauptaxta mundi á síðasta fjórðungi þessa árs geta aö óbreyttu orðið 5—6% lægri en var á sama tíma í fyrra. A móti því kemur 3% kaup- htítkun 1. september samkvæmt samningum. Verkamannasamband- ið hefur sett fram kröfur um 5—6% kauphækkun í september í stað 3ja prósentanna, plús hækkun lágmarks- launaíl4þúsund. -HH Byggingarblað fylgirámorgun Efnismikiö 32 blaðsíðna bygging- arblað fylgír DV á morgun, laugar- dag. Meðal efnis er úttekt á innlendri einingahúsaframleiðslu, hvemig á að gera upp gamlar hurðir, hvaða lán er hagstæðast að taka með tilliti til skatta, Byggingaþjónustan kynnt og fleira er nýtilegt fyrir húsbyggj- endur. LOKI Svo má líka fá ódýran bjór í London. Þyrla Varnarliðsins lenti mað brasku flugmennina tvo við Borgarspítalann skömmu eftir kl. átta í morgun og var þessi mynd tekin ftegar verið var að færa annan þeirra inn á spítalann. DV-myndBj. Bj. Niðurstöður skoðanakönnunar DV: MEIRIHLUTINN VILL FÁ BJÓR Meirihluti landsmanna er andvíg. Aðeins 5,8% voru óákveðin fylgjandi því aö leyfð verði sala á og 6,2% vildu ekki svara spuming- áfengu öli hér á landi. Þetta kemur unni. fram í skoðanakönnun DV, sem birt erídag. Þetta þýðir að 59,5 prósent þeirra Af öllu úrtakinu sögðust 52,3 sem taka afstöðu eru fylgjandi bjór prósent vera því fylgjandi að bjór en 40,5% andvíg. yrði leyfður. 35,7 prósent vora því Fyrr á árum var oft mjótt á munum í skoðanakönnunum milli stuðningsmanna og andstæðinga bjórsins. Bjórinn hefur sótt á síðustu ár. -HH sjánánarábls.4og5 UTSALA A FAR- MIDUM í LONDON Offramboö á leiguflugi í Bretlandi veldur því aö unnt er aö komast þaöan til ýmissa staöa í Evrópu á ótrúlega góðum kjörum. Flugmiðar eru seldir á fimmfalt lægra verði en á Islandi. DV ræddi við farmiðasala í London í gær og fékk þær upplýsingar að nú kostaði 1600 krónur að fljúga þaðan. til Miinchen. Flugmiði frá London til Barcelona kostar 2000 krónur, til Feneyja 2000 krónur og til Möltu 2600 krónur. Hér er um að ræða miða báð- arleiðir. Væru þessir sömu miðar keyptir hér á landi kostaði 12.617 krónur að fara fró London til Miinchen, 10.500 krónur að fara til Barcelona, 10.908 krónur til Feneyja og 10.232 til Möltu. 1 þessum tölum er að sjálfsögöu ekki fargjaldiö frá Reykjavík til London, en það er ódýrast 8.854 krónur. Munurinn felst í því aö íslenskir farmiðasalar eru skyldugir sam- kvæmt alþjóðasamningum að selja miða á því verði sem bresku flugfé- lögin gefa upp hverju sinni. 1 Bret- landi er þessu öðravísi farið. Þar gera farmiðasalar tilboð í sæti sem umboðsmönnum flugfélaganna hefur ekki tekist að selja og taka sjólfir óhættuna af að koma þeim í verð. Flugfélögin selja þessi sæti langt undir kostnaöarverði en álagn- ing farmiðasalanna fer eingöngu eftir framboði og eftirspum. Eins og greint var frá í DV í gær liggur um ein milljón flugsæta á lausu hjá bresku flugf élögunum í sumar. Farmiðasali, sem DV ræddi við í gær, taldi að verð flugmiða mundi hækka eftir því sem liði á júlímánuð og að þeir yrðu um eitt til tvö þúsund krónum dýrari í byrjun ágústmánað- ar. Hann sagði að unnt væri að panta miða með allt að mánaöar fyrirvara. Það mætti gera í gegnum síma fró Is- landi, en þá yrðu menn að borga með kreditkorti. EA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.