Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1984, Page 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. JUNl 1984.
3
Fiskkör Sæplasts hf. — Skotar vilja nú kaupa 60 stykki.
SKOTAR VIUA
KAUPA FISKI-
KÖR ÚR PLASTI
Mál þýsku
fálkaeggjaþjófanna:
Málflutn-
ingur á
föstudaginn
— ólíklegtað
dómurinn verði
þyngdur
Mál Miroslav Peter Baly og konu
hans Gabriele Uth Baly veröur tekiö
fyrir hjá Hæstarétti á föstudag og má
búast viö dómi um miöjan júlí, sam-
kvæmt upplýsingum DV.
Eins og sagt hefur veriö frá hér í
blaöinu, fékk Gabriele aö fara úr landi
eftir aö úrskurður sakadóms lá fyrir
gegn tryggingu, og ekki síður gegn því
aö hún áfrýjaöi ekki dómnum til
Hæstaréttar. Hún var þó varla fyrr
komin til síns heima í Köln en hún
skrifaði verjandi sínum, Guömundi
Jónssyni hdl., bréf þar sem hún sagðist
hafa skipt um skoðun og vildi áfrýja.
Guðmundur Jónsson kom þeirri beiöni
hennar á framfæri viö ríkissaksóknara
sem féllst á aö leyfa henni aö áfrýja.
En skyldi dómurinn yfir skötuhjú-
unum veröa þyngdur fyrir Hæstarétti í
ljósi nýjustu fregna? Þeir sem blaöið
ræddi við áttu ekki von á því aö flótti
Miroslav Peter réöi þar einhverju um.
Dómurinn væri þegar oröinn sá
þyngsti af þessu tagi sem kveðinn heföi
verið upp á Islandi. .KÞ
— Sjá nánar bls. 2 —
Tvö norðlensk plastfyrirtæki sýna
nú framleiðslu sína á sjávarútvegs-
sýningu í Aberdeen í Skotlandi og
hafa þegar borist kauptilboö. Þegar
á fyrsta sýningardegi sem var 20.
júní kom tilboð frá aðila í Skotlandi
um kaup á 60 fiskkörum sem fram-
leidd eru af Sæplasti hf. á Dalvík.
Einnig munu kassabretti frá sama
aöila hafa vakiö mikla athygli sem
forráðamenn fyrirtækisins binda
vonir við.
Sæplast hf. var stofnað í vor meö
stuöningi Iðnþróunarfélags Eyja-
fjarðar. Mun framleiöslan hafa
gengiö mjög vel og verið unniö dag
og nótt.
Hitt fyrirtækið sem sýnir í Skot-
landi er Plasteinangrun hf. sem þeg-
ar stundar umfangsmikinn útflutn-
ing á vörum fyrir sjávarútveg. I
Skotlandi sýnir fyrirtækið trollkúlur,
netahringi og fiskkassa. Gunnar
Þórðarson framkvæmdastjóri sagöi
aö þetta væri fyrsta tilraun til aö
komastá Bretlandsmarkaö.
Samkvæmt upplýsingum frá Ot-
flutningsmiðstöð iðnaöarins hefur
Sæplast fengiö pöntun á 100 plastkör-
um aö verömæti um ein milljón
króna. JBH/Akureyri.
Stærsta varmadæla landsins í notkun
Fjórði ársfundur Sambands
islenskra hitaveitna veröur haldinn á
Akureyri dagana 28. og 29. júní næst-
komandi. Varmadælur veröa megin-
viðfangsefni fundarins. Sem kunnugt
er flytja þær orku úr einu formi yfir í
annaö, þannig aö unnt er t.d. aö vinna
háan hita úr volgu afrennslisvatni.
Stærsta varmadæla landsins verður
tekin í notkun á Akureyri á síöari degi
fundarins. Einnig mun Iðnaöar-
ráöuneytið leggja fram skýrslu meö
nýju mati á orkuverði og samanburði
hinna ýmsu hitaveitna.
-EA.
SÍS flutti út 277 íslenska hesta
ásíðastaári:
BULLANDITAP
Á HESTAÚT-
FLUTNINGI
„Eg neita því alfariö að SlS hafi
svínaö á þessum norska hesta-
kaupmanni,” sagði Magnús Friðgeirs-
son hjá Búvörudeild Sambandsins í
framhaldi af frétt DV á laugardag þar
sem sagði frá norskum
hestakaupmanni og samskiptum hans
viðSambandiö.
Hestakaupmaðurinn, Sveinn Svart-
haug, kom hingaö til lands með sér-
búin hestaflutningabíl og keypti 8
hesta í Skagafirðinum. Fyrir þá
greiddi hann 66 þúsund norskar
krónur, 8 þúsund norskar í frakt en svo
tók Sambandið 12 þúsund
norskar fyrir það eitt að útfylla út-
flutningssk jöl fyrir kaupmanninn.
„Við tökum ekki sjálfir nema 2/3 af
þessari upphæð,” sagði Magnús
Friðgeirsson, „þriðjungur gjaldsins
fer í tryggingar og upprunavottorð
þannig að það eru aðeins um 30 þúsund
krónur sem koma í okkar hlut fyrir
þessa vinnu. En henni fýlgir að við
verðum að tryggja gjaldeyrisskil og
annast innheimtu fyrir umbjóðendur
okkar. Sannast sagna höfum við verið
að basla í hrossaútflutningi svo árum
skiptir og undanfarin ár með bullandi
tapi. Við erum ekki að bregða fæti fýrir
keppinauta okkar, það er af og frá,”
sagðiMagnús.
Sambandið flutti út 277 hross á
síöasta ári og skiluðu þau viðskipti
ekki hagnaöi.
-EIR.
Tæknitónlist á Kjarvaisstöðum
Raf- og tölvutónleikar verða
haldnir á Kjarvalsstöðum dagna 26.-
30. júní. Þar verður kynning og
sögulegt yfirlit yfir íslenska
tæknitónlist.
Flutt verða verk eftir tónskáldin
Gunnar Reyni Sveinsson, Helga
Pétursson, Kjartan Olafsson, Lárus
Grímsson, Magnús Blöndal Jóhanns-
son, Snorra Sigfús Birgisson, Þorkel
Sigurbjörnsson og Þorstein Hauks-
son. Tónleikarnir verða haldnir á
tveimur stöðum í húsinu, annars
vegar í málverkasalnum þar sem
gestir geta notið málaralistar um
leið og tónlistar og hins vegar í litlum
sal þar sem tónlistin mun hafa óskipt
völd.
Tónleikarnir verða haldnir
miðvikudaginn þann 27. júní,
fimmtudaginn 28. júní, föstudaginn
29. júní kl. 17.00 og endurteknir kl.
20.30 og síöan á laugardaginn 30. júní
kl. 15 og kl. 17. Ný efnisskrá verður á
hverjum degi. Þorsteinn Hauksson
tónskáld hefur undirbúið tónlistar-
dagskrána.
-ás.
SÉRVERSLUN í BÍLA- .. —T .
VIÐSKIPTUM
RAT í FARARBRODDI
VIÐ ERUM MÖRGUM SKREFUM Á UNDAN ÖLLUM ÖÐRUM
Hverjir eru söluhæstir á landinu?.................
Hver býður minnstu útborgunina?...................
Hver býður bestu kjörin?..........................
Hver býður jafnvel enga útborgun í notuðum bílum?
Hver býður lán í allt að 12 mánuðum?..............
Hverjir gera öllum kleift að kaupa notaðan bíl?...
Hverjir taka engin sölulaun af notuðum bílum?.....
Hverjir geta státað af 55 ára sífeildri þjónustu?.
Hver býður upp á lán í milligjöf í skiptiverslun?.
FIATUMBOÐIÐ.
FIATUMBOÐIÐ.
FIATUMBOÐIÐ.
FIATUMBOÐIÐ.
FIATUMBOÐIÐ.
FIATUMBOÐIÐ.
FIATUMBOÐIÐ.
FIATUMBOÐIÐ.
FIATUMBOÐIÐ.
HVER ANNAR BÝÐUR UPP Á ALLT ÞETTA EÐA JAFNVEL
EITTHVAÐ MEIRA
EN EV-SALURINN - FIATUMBOÐINU -
FIATHÚSINU.
1929
BILAURVALIÐ
ER SÍBREYTILEGT
FRÁ DEGI TIL DAGS.
notodir bílor í eigu umbodssins *J$i
EGILL,
T TTT T TT K T 1 T T TT' MUNIO EV-KJÖRIN
VILHJALMSSON HF zss
1984
Smiðjuvegi 4c — Kópavogi — Sími 79944—79775
AÐ ÓGLEYMDRI
SKIPTIVERSLUNINNI.