Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1984, Page 8
KOO r tr/T’Tr nr> rr
DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNl 1984.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Perú:
50 látast
í skærum
Um 50 manns, þar á meöal a.m.k.
átta lögregluþjónar, hafa látist í
fjögurra daga sókn maóískra skæru-
liða í Perú. Aö sögn yfirvalda í Perú er
þetta mesta sókn skæruliða Sendero
luminoso-hreyfingarinnar á þessu ári
og upplýsingamálaráöherra Perú,
Luis Percovich, sagði blaðamönnum
að samkvæmt upplýsingum öryggis-
lögreglunnar ráðgerðu Sendero
luminoso skæruliðarnir bylgju morðtil-
ræða sem ná skal til allra svæða í Perú.
Sendero luminoso hreyfingin hefur
haft sig í frammi í Ayacuchohéraði í
suðurhluta Perú og barátta hreyfing-
arinnar gegn stjóm Fernande
Balaunde Terry forseta hefur staðiö í
fjögur ár. Meira en 3000 manns hafa
látist í átökum á þeim tíma.
Bretland:
TIMES,
BINGÓ
Hið viröulega breska dagblað,
Times, býður lesendum sínum nú að
taka þátt í einskonar bingó-keppni, og
er það liöur í ‘ilraunum blaðstjómar til
þess að auka útbreiöslu blaðsins. En
Times er vii fulegt blað, og venjulegt
bingó er ekki þtð sem blaðið býður les-
endum sínuri upp á. Þess í staö er hér
um einskonar kauphallarleik að ræða.
Lesendur blaðsins fengu plastspjöld
meö síðasta helgarblaöi og á spjaldinu
voru tölur sem svara til hlutabréfa
sem verslað er með á hlutabréfa-
markaði í London og Times getur um
í f jármálafréttum sínum. Þeir sem em
heppnir og hafa fengið hlutabréf sem
stíga í verði geta síðan unnið til
verölauna.
I breska blaðaheiminum grínast
menn nú meö þaö, að þetta gæti leitt til
uppnáms við morgunveröaborö em-
bættismanna og bresku valdastétt-
arinnar almennt sem gæti reynst
hættuleg.
Rupert Murdoch, eigandi Times,
hefur notað verðlaunasamkeppnir
áður til að auka útbreiðslu annarra
blaöa.
HART OG MONDALE
A SÁTTAFUNDI
Edward Kennedy öldungadeildar-
þingmaöur hefur tekið að sér hlut-
verk sáttasemjara og komiö á fundi
með þeim Walter Mondale og Gary
Hart. Munu þeir hittast í New York í
dag og ræða leiðir til að sættast eftir
harða og langa kosningabaráttu.
Aðstoðarmenn Mondales tóku
skýrt fram að hann myndi ekki fara
þess á leit við Hart aö hann drægi
framboð sitt til baka þó Mondale
hefði nú tryggt sér meirihluta þing-
fulltrúa. Þá muni Mondale ekki biðja
Hart um aö verða varaforsetaefni
sitt. Blaðafuiltrúi Mondales sagði að
á fundinum myndu þeir ræða leiðir
til þess aö efla einingu demókrata.
Fundurinn mun fara fram á heim-
ili eins stuðningsmanna Mondales en
það var Edward Kennedy sem kom
því í kring að fundurinn færi fram.
Hann lýsti í gær yfir fullum stuðningi
við Walter Mondale. Hann ræddi
einnig hugmyndir sínar um leiðir til
að efla einingu flokks þeirra og
hringdi síðan í Hart og afhenti Mond-
alesímann.
Þessi fundur kemur í kjölfar yfir-
lýsinga beggja aðila sem bentu til
þess að friðarumleitanir væru í að-
sigi. Hart lýsti yfir að hann myndi
ekki kæra kosningu 700 landsþings-
fulltrúa sem lofað hafa Mondale
stuðningi sínum og Mondale lofaði aö
styðja tillögur Harts um breytingar
á kosningafyrirkomulagi við kjör
fulltrúa í framtíðinni. Báðir aöilar
tóku skýrt fram að þessar yfirlýsing-
ar væru á engan hátt tengdar.
WalterMondale.
Gary Hart.
Um 2000 manns gengu um götur Manila, höfuðborgar Filippseyja, i siðustu viku og mótmæltu hækkandi
verðlagi. I fararbroddi fóru húsmæður sem slógu saman pottum og pönnum. Einnig mótmælti fólkið
stjórn Ferdinands Marcosar. í mótmælunum tóku meðal annarra þátt ættingjar stjórnarandstöðuleiðtog-
ans Benigno S. Aquino, sem myrtur var á dögunum. Verðlag hefur hækkað mjög á Filippseyjum að und-
anförnu í kjölfar lækkandi gengis gjaldmiðils landsins.
Jackson
áKúbu
Jesse Jackson, frambjóðandi í
forkosningum demókrata í Banda-
ríkjunum, kom til Kúbu í gær. Fidel
Castro, leiðtogi Kúbu, tók á móti
Jackson á flugvellinum í Havana
og er það sjaldgæfur heiður fyrir
mann sem ekki ber þjóðhöfðingja-
tign.
Jackson kom frá E1 Salvador
þar sem hann átti viðræður við
Duarte forseta og einnig fulltrúa
skæruliða.
Castro var spurður hvers vegna
hann hefði boðið Jackson til Kúbu
og svaraði hann að það „væri
vegna vinskapar Kúbu og Banda-
ríkjanna. Mér þykír heiöur að
heimsókn Jacksons,” sagði Castro
ennfremur.
Khargeyja:
Eiga írakar alls
kostar við írani?
Njósna-
fræðingur
vill hitta
Treholt
John Barron, rithöfundur og rit-
stjóri, frægastur fyrir bók sína um
KGB, er nú staddur í Osló og vildi
helst af öllu fá að hitta Ame Treholt
aö máli. Hefur hann sótt um leyfi til
þess aö heimsækja Treholt í fangelsi
og er reiðubúinn aö hlíta öllum skil-
yröum sem yfirvöld vilja setja fyrir
þeirri heimsókn.
Barron vinnur nú aö nýrri bók um
KGB og mun meöal annars halda
aeminar í Osló fyrir njósnaskáld-
sagnahöfunda. Hann hefur mikinn
áhuga á að hitta Ame Treholt að
máli en ekki er enn ljóst hvort Tre-
holtvillhitta Barron.
John Barron.
ísrael:
Leiðtogi öfgahóps handtekinn
Shimon Barda sem talinn er vera
leiðtogi öfgahóps gyðinga í Israel og
kærður er fyrir aðiid að tilraun til þess
aö sprengja A1 Aqsa moskuna i
Jerúsalem var handtekinn í gær. Hann
hafði fariö huldu höfði eftir að fjórir
meðlimir hóps hans vom handteknir í
yfirgefnu húsi fyrir utan Jerúsalem.
Tilraunin til þess að sprengja A1
Aqsá'iíiðskúnál lóft uþp míistókst þeg-
ar arabískur vaktmaöur kom að
tilræðismönnum þar sem þeir voru að
klifra yfir vegg nærri moskunni með
sprengiefni á bakinu. A1 Aqsa moskan
er næsthelgasti staöur múslima á eftir
Kaaba, í Mekka.
Lögregluþjónar segja að Barda hafi
verið handtekinn í Natanya, bæ við
Miðjaröarhafsströndina, skammt fyrir
Orrustuþotur íraska flughersins
kunna að hafa fundið leið framhjá
vörnum frana við Khargeyju en þaðan
flytja Iranir mestalla olíu sína út.
Iranir þurfa á öllum olíuútflutnings-
hagnaði sínum að halda til þess aö
reka stríðið gegn Irak.
Erlendir sendiráðsstarfsmenn í
Teheran segja að frásagnir af árás
Iraka á olíuskip við Khargeyju á
sunnudag bentu til þess að skipið hefði
veriö lagst að bryggju. Skipið hefði
komið til Khargeyju snemma á laugar-
dag, sólarhring áöur en árásin var
gerð, og það tæki rúmlega sólarhring
að fylla skipið af oh'u. Iranskir em-
bættismenn vilja ekkert um málið
seg ja annað en aö slík árás sé ólíkleg.
Khargeyja er mikilvægasta höfn
Irana og hafa þeir hugaö mjög vand-
lega að loftvörnum þar. Er sagt að
eyjunni hafi verið breytt í óvinnandi
virki með loftvamarflaugum og öörum
hefðbundnum loftvömum. En
sendiráðsstarfsmenn í Teheran segja
að hugsanlega hafi ekki unnist tími til
þess að beita þessum vörnum hafi
írösku flugmennirnir skotið Exocet-
flugskeytinu sem skemmdi gríska
olíuskipið Alexander meðan flugvélar
þeirra voru utan sjónmáls frá Kharg-
eyju.
Al-Tawra, opinbert málgagn
íraskra stjórnvalda, segir að Irakar
geti eyðilagt oliuhöfnina á Kharg og
önnur mikilvæg írönsk mannvirki ef
íranski herinn hefur nýja sókn á víg-
stöðvunum við Persaflóa. Caspar
Weinberger, varnarmálaráðherra
Stærstu bankar Bandaríkjanna
hækkuðu vexti í gær um hálft prósent
og eru vextirnir nú 13 prósent. Tals-
maður Hvíta hússins, Larry Speakes,
sagði á fréttamannafundi í gær að
þessi ákvörðun bankanna væri ó-
skiljanleg og engin ástæða væri til
hækkunarinnar. Hann sagöi að
bankamir neituðu aö viðurkenna þann
mikla árangur sem náðst hefði í bar-
áttunni gegn verðbólgu í tíð ríkis-
stjórnar Ronalds Reagans.
Fjármálasérfræðingar sögöu í gær
að vaxtahækkunin væri afleiöing af
hinum mikla fjárlagahalla í Banda-
Bandaríkjanna, sagði nýlega í
Washington að hann byggist nú við
stórárás íranskra herja yfir landa-
mæri ríkjanna innan skamms og að
þar gætu orðið fótgönguliösorrustur
sem yrðu jafnmannskæðar og verstu
orrustur fyrri heimsstyr jaldar.
rík junum og einnig þeirrar miklu sam-
keppni sem væri um lánsfé í landinu á
mUli ríkisins og einkageirans. Sér-
fræðingar töldu að mikil gróska í efna-
hagslifi Bandaríkjanna að undanfömu
væri ein meginástæða hækkunarinnar.
Bankarnir væm með þessu aö stemma
stigu við of mikilli þenslu sem leitt
gæti til vaxandi verðbólgu.
Hörð viðbrögð bámst frá leiðtogum
ríkja i latnesku Ameríku þegar til-
kynningar um vaxtahækkanir bámst
frá bönkunum í gær. Kemur þetta sér
mjög illa fyrir þessi ríki sem em hlaðin
skuldum en flest lán þeirra em
reiknuð í dollurum.
norðán Tél Aviv.
Bandaríkin:
Vextir hækka