Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1984, Page 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. JUNI1984.
11
Þýskur ferðahópur taldi sér misboðið:
Þjóðverj-
amir vildu
ekki Hótel
Akureyri
Þýskur feröamannahópur sem átti neitaði því. Fólkinu fannst sér vera
að gista á Hótel Akureyri í síöustu viku misboðið með því þar sem vistar-
Haraldur Sigurðsson hótelstjóri:
Frekar kvartað
undan hávaðanum
úti en hótelinu
Sóð inn ieitt herbergjanna sem Þjóðverjarnir höfnuðu.
„Mér finnst þetta skrítið. Ferða-
skrifstofan er löngu búin að taka út
þetta hótel og þeir vita vel að hverju
þeir ganga,” sagði Haraldur Sigurðs-
son hótelstjóri um þá ákvörðun þýsku
ferðamannanna, sem komu til Akur-
eyrar 14. júní, að gista ekki á Hótel
Akureyri. Hann sagði að þetta hefðu
reyndar verið aðeins fjórir eða fimm
úr hópnum þó allir hefðu farið.
Haraldur sagðist vera búinn að vera
hótelstjóri í eitt og hálft ár og á þeim
tíma hefði ekki komið upp svona mál.
„Ég held þvert á móti að fólk hafi farið
héðan ánægt. Það kvartar ekki undan
hótelinu heldur miklu frekar
hávaðanum úti, ” sagði hann.
Hluti af þýska hópnum var bókaður
á Hótel KEA þessa nótt og taldi
Haraldur að það gæti að hluta skýrt
óánægju ferðamannanna. Ferðaskrif-
stofan tekur sama gjald fyrir báða
staöina sem þeir áttu að vera á. Hins
vegar sendi Hótel KEA miklu hærri
reikning en Hótel Akureyri. „Það væri
fróðlegt að vita hvert sá mismunur
fer,” sagði Haraldur, „auðvitaö til
ferðaskrifstofunnar. Það hefðu
örugglega allir verið ánægðir ef þeir
Haraldur Sigurðsson hótelstjóri.
hefðu fengið að borga það verð sem við
setj um upp fyrir gistinguna. ”
Haraldur lagöi áherslu á aö allir
gerðu sér grein fyrir að fólki væri ekki
boðinn fyrsti klassi. „Þetta er
ódýrasta hótelverð á landinu. Það er
dýrt að reka þetta og ekki hægt að fara
neðar. Tveggja manna herbergi er hér
á 850 krónur og eins manns á 600
krónur.”
Leiðsögumaöur Þjóðverjanna,
Þorgerður Bergmundsdóttir, var mjög
óánægð með þau herbergi á Hótel Akur-
eyri sem hún sá. Þar á meðal var her-
bergið með rúmunum þremur. „Við
notum það í hallæri,” sagði hótelstjóri.
„A sumrin er þar haft svefnpokapláss
og ekki búið um. I þessu tilfelli var þó
búið um.” Þegar biaðamaður DV fékk
að líta þar inn viku eftir að
Þjóðverjarnir sneru frá bjuggu þar
svefnpokagestir.
„Það var nýbúið að setja hand-
laugina upp en ég haföi ekki fengið
mér þynni til að ná límbandinu af
henni,” sagði Haraldur. Límbandið
var þar er enn og sófinn óhreini. Fyrir
herbergið borgar svefnpokafólkið 240
krónur fyrir nóttina. Annað það sem
blaðamaöur sá af hótelherbergjum
virtist ekki undir velsæmismörkum og
allt að því í mjög góðu lagi.
Verið að laga hlutina
Hótel Akureyri var hér á árum áður
meira áberandi gististaður. Það hefur
með árunum dalað verulega. Húsið er
byggt 1928 og hefur nokkrum sinnum
frá stríðsárum skemmst í eldi. Gisti-
herbergi eru á tveimur hæðum, 9
herbergi uppi og 6 niðri. Eigandi
hótelsins er Jóhannes Fossdal, frá því
1970.
Hótelstjóri sagði að gagngerar
endurbætur færu nú fram á húsnæðinu.
I herbergjum á efri hæð hafa verið
settar nýjar handlaugar, flisalagt
kringum þær og settir speglar. Þar á
síðan að teppaleggja. Síðan um áramót
hafa pípulagnir verið endumýjaðar og
raflagnir að sumu leyti.
Einnig eftir þessar endurbætur sagði
Haraldur að stefnan væri aö halda
hótelinu í lægri verðflokkum. „Ég
stefni að því að miða verðið áfram við
það sem við bjóðum upp á og vera rétt
yfir kostnaðarverði. Við höfum reynt
að vera jafnvel undir Edduhótelunum
ásumrin.”
Þorgerður leiðsögumaður nefndi að
herbergið sem bilstjóranum var boðið
hefði verið geymsia. Hótelstjóri tók
undir það og sagði að það væri yfirleitt
ekki notaö. Bílstjóranum hefði verið
gerð grein fyrir því og hann ekki gert
athugasemdir við það. Um það að her-
bergi leiðsögumannsins hefði vantað
huggulegheit, sagði hann aðeins: „Ja,
við bjóðum ekki upp á neinn lúxus.”
JBíVAJuirqyri
verurnar væru fjarri því boðlegar.
Þorgerður Bergmundsdóttir var
leiösögumaður hjá hópnum. Hún sagð-
ist í samtali við DV telja að hótelið
væri ekki boðlegt fyrir hópa sem hér
eru á ferð. Hins vegar mætti leigja þar
herbergi fyrir þá sem ákveða sjálfir að
gista. Verðið fyndist sér samt of hátt,
gistingin yrði að vera mun ódýrari en á
öðrum hótelum.
Þorgerður sagðist hafa séð þrjú her-
bergi á Hótel Akureyri. 1 herberg jum á
efri hæð hefði vantað allt til aö gera
huggulegt. Til dæmis hefði hjónum
verið boðið upp á herbergi með þremur
mjóum rúmum og einum grútskitug-
um sófa. „Hann var svo blettóttur og
ógeösiegur að ég hefði aldrei sest í
hann. I ööru herbergi var gatslitin
ábreiða. Yfirleitt var þetta ekki
óhreint, nema vaskamir á herbergjun-
um sem voru nýir en höfðu ekki verið
þrifnir almennilega. En þetta virkaði
allt á mann sem fjóröa eöa fimmta
flokks.”
Herbergið sem Þorgerður átti sjálf
aö fá sagði hún að heföi verið í lagi en
ekkert skemmtilegt. „Bílstjórinn
sagðist hins vegar hafa fengið einhvers
konar geymslu. Rúmið hefði verið í
D V-myndir JBH Akureyri.
lagi en þar hefði verið gamalt sjónvarp
oggamallsími.”
I þýska hópnum voru 22 ferðamenn á
hringferð um landið. „Þetta er mjög
góður hópur,” sagði Þorgerður. „Það
eru allir mjög ánægðir með ferðina og
hefur ekki verið kvartað neins staöar
nema þarna. Eg er búin að vera leið-
sögumaöur í sjö ár og þetta er í fyrsta
skipti sem ég lendi í svona. En ég vil
iíka taka fram að hótelstjórinn sem
talað var við var mjög vinsamlegur og
kurteis. Eg hef ekki neitt yfir því að
kvarta.”
JBH/Akureyri
AMSTERDAM
borgin sem kemur á óvart
Fullyrða má að fáar borgir Evrópu njóta jafnmikilla vinsælda
íslenskra ferðamanna og Amsterdam, enda býr hún yfir
miklum töfrum og býður ferðamanninum flest það, sem hugur
hans gimist, svo sem mikið og fjölbreytt úrval verslana,
skemmtistaða, veitingastaða og ekki síst fjölda stórbrotinna
listasafna og annarra menningarstofnana.
Saga býður marga ferðamöguleika
til og frá Amsterdam.
Helgarferðir — flug og gisting verð kr. 13.600,
Vikuferðir — flug og gisting
Flug og bíll — 1 vika, fjórir i bíi.
verðkr. 15.900,-
verðkr. 11.084,-
Ferðaskrifstofan Laugavegi 66. 101 Revkjavik. Simi 28655
' * »_t ? •