Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1984, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1984, Qupperneq 14
14 DV. ÞRIÐJUDAGUH 26. 'JUNT1984. íslendingar voru 238.175 1. des. 1983: Fjölgunin minni en 1982 Islendingar voru 238.175 talsins þann 1. desember síðastliðinn, 119.859 karlar og 118.316 konur. Ibúar í Reykjavík voru 87.309 og í öðrum kaupstöðum 94.036, en alls 56.830 íbúar í sýslum. Fjölmennasti kaupstaður landsins utan Reykjavíkur er Kópavogur, með 14.433 íbúa. Næstur í röðinni er Akureyri meö 13.745 íbúa, þá Hafnarfjöröur með 12.683 íbúa og Keflavík með 6.886 . 5.764 íbúar eru í Garðabæ, 5.349 á Akranesi, 4.743 í Vestmannaeyjum, 3.602 á Selfossi og 3.400 á Isafirði. Fámennasti kaup- staöurinn er Seyðisfjörður með 993 íbúa, en sá nýjasti, Olafsvík, sem fékk kaupstaðarréttindi i mars 1983, hefur 1.234 íbúa. Fjölmennasta sýsla landsins er Ámessýsla með 6.817 íbúa en þar er einnig fámennasti hreppurinn, Sel- vogshreppur, með 14 íbúa. I öðru sæti er Suður-Múlasýsla með 4.761 íbúa og í þriðja sæti Kjósarsýsla með 4.647 íbúa. 3.577 íbúar eru í Rangár- vallasýsla, 3.402 í Snæfells- og Hnappadalssýslu, 3.015 í Gullbringu- sýslu og 2.966 í Suður-Þingeyjar- sýslu. Fámennustu sýslur landsins eru Norður-Isafjarðarsýsla með 499 íbúa og Austur-Barðastrandarsýsla með 418íbúa. Sveitarfélög á landinu eru 224 að tölu, miðað viö 1. desember 1983, þar af 23 kaupstaöir (Reykjavík meðtalin) og 201 hreppur. Sýslufélög eru23aötölu. Fjölgun Islendinga varö 1,16% frá 1. desember 1982 til 1. desember 1983. Er það heldur minna en árið áður, en þá varðfjölgunin 1,51%. -pá íþessari viku! TUR AF SKA3TSKYLDUM TEKJUM AF ATVINN UREKSTRI Fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa tekjur af atvinnurekstri er nú heimilt að draga 40% frá skatt- skyldum tekjum til að leggja í fjárfestingarsjóð. Frádrátturinn er bundinn því skilyrði að helm- ingur fjárfestingarsjóðstillagsins sé lagður inn á bund- inn 6 mánaða reikning fyrir 1. júlí n.k. vegna tekna árs- ins 1983. Ef reikningsárið er annað en almanaksárið skal lagt inn á reikninginn innan 5 mánaða frá lokum reikningsárs. Innstæður á reikningunum eru verðtryggðar samkvæmt lánskjaravísitölu. Auk þess býður Lands- bankinn 1,54% stigum hærri vexti en gilda um aðra 6 mánaða reikninga. Reikningsinnstæðum má ráðstafa að loknum 6 mánaða binditíma, en innan 6 ára. Enn er hægt að njóta þeirra skattfríðinda sem að framan er lýst, við álagningu tekjuskatts og eignaskatts á árinu 1984 vegna tekna ársins 1983. Fresturinn að þessu sinni er til 1. júlí n.k. Upplýsingar um stofnun fjárfestingarsjóðsreikninga eru veittar í sparisjóðsdeildum Landsbankans. LANDSBANKINN Græddur er geymdur eyrir Hringsjáin í Borgarnesi. Hringsjáin f Borgamesi: Vatnstankur- inn reistur með hanaíhuga Frá Sigurjóni Gunnarssyni, fréttarit- ara DV í Borgarnesi: Nú fer sá tími í hönd að landinn leggst í ferðalög og brunar landshorna milli til að líta merka staði, skoða f jöll og klífa. Fingrum er rennt eftir landa- korti og reynt að finna hvað þessi eða hinn lækurinn heitir og hvaða fjöll sjást í fjarska. Landakort eru nauðsynleg en þó eru til önnur hjálpar- tæki og það eru hringsjár. Að sögn Guðmundar S. Finnssonar verkstæðisformanns eru um það bil 10 ár síðan þeirri hugmynd var hreyft að setja upp hringsjá í Borgarnesi. Tóku Lions- og Rotarymenn höndum saman um að hrinda þessu í framkvæmd. I upphafi var helst litið til Brennuholts en þegar séð var að reisa átti vatns- tank í Bjargslandi var stefnan tekin þangað. Vatnstankur þessi var síðan teiknaður og reistur með það í huga að ofan á yrði sett hringsjá. Sú veglegasta á landinu Hjá Jakobi Hálfdánarsyni tæknifraBð- ingi, er teiknaöi hringsjá þessa, fengust þær upplýsingar að um 33 hringsjár væru í landinu en líklega væri sú í Borgarnesi veglegust. A upp- hækkun á miðjum tankinum er hring- laga plata er sýnir dali, sveitir og f jöll. I miðri plötunni er teinn sem hægt er að taka mið út frá. Teinn þessi er einnig hluti af sólúri er sýnir eykta- mörk. Jakob tók það sérstaklega fram að ekki bæri aö Úta á sólúrið og stilla síðan armbandsúrið sitt, en það stæði þó fyllilega fyrir sínu. Ýmislegt hefur áhrif á sólúr og nefndi Jakob mismun sumars og vetrar og að jörðin væri á sporbraut. Einnig er Borgarnes ekki á sama lengdarbaug og þeim sem tölvu- úrin og útvarpið eru stillt eftir. En hér er ekki öll sagan sögð því út við handrið vatnstanksins eru skildir er sýna betur stefnu f jalla og markverðra staða. Já, það er svo sannarlega þess virði fýrir ferðalang að renna við í Borgar- nesi og líta yfir Borgafjarðarhéruð, Mýrar og allt vestur á Snæfellsjökul. Stjómunarfélag íslands: Tekurviðrekstri Mímis Stjómunarfélag Islands mun yfir- taka rekstur málaskólans Mímis frá og með 1. júli næstkomandi. Einar Páls- son skólastjóri hefur selt félaginu skól- ann og hyggst hann snúa sér alfariö að fræðistörfum. Einar hefur rekið skól- ann einn síöan 1954. Skólinn verður rekinn áfram sem sjálfstæð stofnun undir nafni Mímis. Sigurður Helgason hjá Stjómunarfé- lagi Islands sagði á blaðamannafundi að félagið væri með þessu að víkka út svið sitt og jafnframt að styðja við menntakerfið. Félagið hefur starfað að endurmenntunarmálum innan at- vinnulífsins í yfir 20 ár og sagði Sigurö- ur að flagið væri meö 30 námskeið á mánuði þegar mest væri. Hann sagði að yfirtakan á Mími væri eðlilegt f ram- hald á starfi félagsins að endur- menntunarmálum. -pá

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.