Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1984, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1984, Page 31
DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. JUNI1984. 31 Sandkorn Sandkorn Sandkorn Sigmar Pótursson. Byggðastefna Sigmar Pétursson í Sigtúni hefur sem kunnugt er staðið í nokkrum framkvæmdum varðandi téðan skemmtistað. En þar sem þær hafa reynst f járfrekar mjög datt honum í hug á dögunum að heimsækja ónefndan ráðherra og athuga hvort ekki mætti vænta frá honum elnhverrar fyrir- greiðslu. Sigmar lagði nú af staö sem leið lá og endaði för sína innl á hnausþykku gólfteppi í skrifstofu ráðherrans. Þar bar hann upp erindi sitt. Er ráðherra hafði hlustað skamma stund setti hann sig í stcllingar og sagði; „Þettaer nú því miður ekki hægt, Sigmar minn. En ef þú hefðir verið að byggja Sigtún á Breiðdalsvík, ja þá hefði gengt aUt öðru máU.” Ekkert í boði Erlendir ferðamenn sem koma tU Akureyrar kvarta sáran undan þvi að þar sé ekkert að gera. Þeir koma með fuliar hendur fjár og tUbúnir að dreifa þvi i aUar áttir. En það er bara ekkert í boði, Akureyringar hafa haft SjaUann og KEA í áratugi og taUð það nóg fyrir sig og þá. Ferðamennlrnir eru hins vegar að leita að allt öðru. Þeir vttja komast á hestbak eða út á s jó, svo dæmi sé tekið en reka sig á vegg. Engin bátaleiga og mikium erfið- leikum háð að komast á hest- bak. Þeir sem hafa reynt að bjóða hestaferðir vita hins vegar að með því má raka saman peningum. Þar strandar þó á blcssaða kerf- inu. Maður einn leitaði aðstoðar við að fjárfesta i búnaði fyrir hestaleigu. Kerfið hló að heimsku slikri. Daginn eftir Á flestum blöðum mun sá siður í heiðri hafður að minn- ast 17. júní , þjóöhátíðar- dagsins, í leiðaraskrifum. Víkurfréttir á Húsavík hafa tekið annan pól i hæöina. Að þessu sinni var dagurinn eftir 17. júní nefnUega tekinn fyrir í leiðara. Og þessi er níður- staðan: „Á þjóðhátíðardaginn var ísland „land mins föður, landið mitt”, fullt með hetjur á harðastökki um héruð og gott ef ekki skrautbúin skip fyrir landi guðsvors hvers heUaga, heUaga nafn vér lofsungum. En þegar menn skunda þungbúnlr í vinnuna, mánu- daginn 18. júni var sælulandið sautjándans búið að skipta um svip. Það er á góðri leið með að verða land erlendra lánadrottna, engar hetjur ríða um héruð, en annað veif- ið má sjá einn og einn fram- sóknarblazer á byggðastefnu- lausu rjátli um dreifbýlið. Og skrautbúnu skipin eru löngu sokkln í blámóðu aldanna og nú þjóta skutbúnlr togarar i stórhópum á gengdarlausu oliufyUeríi á hafinu, með aUa togvíra skuldaflækta i skrúfum hver annars...”. Frammarar á leiðarþingi Framsóknarmenn hafa veriö nokkuð iðnir við að halda flokksmönnum félags- skap að undanfömu. TU að mynda hafa þeir þeyst með Davið Aðalsteinsson. leiðarþing svoköUuð um landið þvertog endUangt. Af einu slíku fréttum við í Borgarfirði en það var nánar tUtekið að Logalandi i Reyk- holtsdal. Þar mættu kapparn- ir Davið Aðalsteinsson þing- maður og Alexander Stefáns- son félagsmálaráðherra. Þingið það aroa mun hafa Ahxander Stefánsson. verið vel auglýst. Þrátt fyrir það mun mætingin hafa verið með verra móti, miðað við slíkar samkundur. Þó segir sagan að húsvörðurinn hafi mætt, enda einn af fjórum sjálfstæðismönnum sveitar- innar. Umsjón: Jóhanna S. Sigþórsdóttir. Kjallarinn DR. SIGURÐUR PÉTURSSON GERLAFRÆÐINGUR Z Kemur þama vel fram hverau þingræðiö er islensku þjóðinni í blóö boriö og hvereu flugu- menn, sem reka erindi erlendra ein- valdsherra og einræöisríkja, þykja tor- tryggilegir hérlendis. En hvaö varö nú um kommúnistana? ER. NÚ DOKHrOR.lN'J KOMINN / Pé>LIT'iiC\N/\ f?£Tr £INU S/NNI f VEITINGAHÚSIÐ KÚPURINN AUGLÝSIR Höfum opið í hádeginu og öll kvöld, njótið góðra veitinga og út- sýnis sem kvemur á óvart. Leggjum megináherslu á steikur. Borðapantanir í síma 46244. Veitingahúsið KÓPURINN Auðbrekku 12, sími 46244, Kópavogi. ;rtjijwj»íxj<j(jíjíj0íjív%jökj(jíj^jjjssjijööíj^jijjx jfxjíjwsjt' Skrifstofustarf Viljum ráða skrifstofumann með starfsreynslu til að annast verkstjórn við IBM tölvuskráningu. Laun samkvæmt launakerfi ríkisstarfsmanna. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf óskast sendar fyrir 1. júlí nk. Vegagerð ríkisins, Borgartúni 7, 105 Reykjavík. Kvikmyndir Kvikmyndir Bíóhöllin — Einu sinni var íAmeríku (I & II): Nálgast f ullkomnun Heiti: Once Upon a Time in America (I Er II) Þjóðemi: Ítalskt/bandarískt. Leikstjóri: Sergio Loone. Handrit: Sergio Leone o. fI. Kvikmyndun: Tonio Colli. Tónlist: Ennio Morricone. Aðalhlutverk: Robert Di Nero, James Woods, Elizaboth McGovorn, Joe Pesci, Burt Ypung, Tuesday Weld, Treat Williams. Það er á bannárunum í Banda- ríkjunum, Noodles er ungur gyðingastrákur sem strax í æsku fær að kynnast því að í stórborginni gildir það sama og í frumskóginum: Þeir hæf ustu munu lifa. Hann stofnar klíku ásamt Max, Patsy, Cockeye og Dominique. Þeir finna upp aðferð til að spara leynisprúttsölunum stórfé og brátt eru þeir orðnir aðalstrákagengiö á Lower East Side í New York. Sá sem stjómaöi genginu sem nú er á und- anhaldi hyggur á hefndir. Honum tekst þaö, skýtur Dominique sem er þeirra yngstur, ekki nema 10 ára. Noodles tekur upp hníf og hefur einvígi viö morðingjann, hnífur gegn byssu. Hnífurinn vinnur og Noodles er gripinn og fer í fangelsi. Mörgum árum síðar sleppur hann út. Max og félagar hans hafa gert fyrirtæki þeirra að stórveldi í brans- anum, þeir eru með þeim stærstu og þeir hafa alltaf gert ráö fyrir Noodles og hann gengur inn í fyrir- tækiö um leið og hann sleppur út. En þó þeir séu stórir þá eru þeir ekki nógu stórir fyrir Noodles, þaö er allt eöa ekkert fyrir hann og þeir hefja sókn sína til enn frekara veldis. Loks kemur að því að vínbannið er úr gildi og gengið verður at- vinnulaust. Max fær þá flugu í höfuðið að þeir skuli ræna banka og er ekki mönnum (né konum) sinnandi vegna þessarar hugmynd- ar. En bankinn er ósigrandi og þaö vita allir, allir nema Max. Noodles ákveður þvi að segja lögreglunni frá þeim og tekur áhættu sem hljóðar upp á eitt og hálft ár í fangelsi sem er betra en aö drepast í vonlausu bankaráni. Noodles sjálfur ætlaði meö í fangelsiö en áður en þeir halda af staö í fang lögreglunnar sinnast honum og Max, og sá síðarnefndi rot- ar Noodles og hann fer ekki með. Max, Patsy og Cockeye voru aldrei handsamaðir, þeir voru drepnir, allavega fundust þrjú lík. Mörgum árum seinna fær Noodles boö um að taka aö sér verkefni, frá einhverjum sem kallar sig Bailey og er ráöherra.. . Þetta er nokkuð ítarleg frásögn á sögunni sem gerjast í Once upon a Time in America. Myndin fjallar um þrjú æfiskeið Noodles (De Niro) en það fer langt í frá aö vera framansögð röö á þeim. Myndin er eitt allsherjar flassbakk, snyrtilega ofin saman, eiginlega frábærlega. Þessi sífellda endurskoðun gerir þaö aö verkum aö heili áhorfands þarf að starfa talsvert meira en gengur og gerist í bíói. Sagan er bæði þægileg og óþægileg. Robert De Niro getur látið manni líða alveg frábærlega í sætinu með sínum frábæra og á- reynslulausa leik. James Woods (Max) er einnig mjög góður og sömu sögu má segja um flesta leikarana og þá sérstakiega þá sem leika fimmmenningana unga í fyrrihlut- anum. Greinilegt er aö vandað hefur veriö til leikaravals en heldur finnst mér valið á Elizabeth McGovem í hlutverk Deborah hafa mistekist. Fésið á henni er langt á eftir likamanum og hún líður fyrir það blessuð, virkar ósannfærandi. Ofbeldiö og blóðiö í myndinni getur verið óþægilegt og Leone gefur engan griö þar f rekar en venjulega. En öll vinnsla nálgast fullkomnun, enda ekkert sparaö, myndin mun aldrei ná upp í kostnaö. En þeir sem þessa mynd sjá veröa ekki sviknir. Hún var í kollinum á Leone í 13 ár. Hún er ekki þeirrar biöar viröi en fjandinálægtþví. Sigurbjörn Aðalsteinsson. ULTRA ÆLOSS Eina raunhæfa nýjungin í bílabóni Þaö sem gerir ULTRA GLOSS svo frábrugðið er, að það inniheldur engin þau efni, sem annars er að finna i hefðbundnum bóntegundum, svo sem harpeis, vax, plast eða polymer efni. Grunnefnið I ULTRA GLOSS eru glerkristallar, auk bindiefna og herða. BÓNAR TIL REYNSLU ULTRA GLOSS er svo frábært bón, að þú verður að hafa reynt það til þess að trúa því. Kauptu þér.brúsa og gerðu tilraun, smáa eða stóra. Utsolustaðir Bensinafgreiðslur ENDURGREIÐUM ónotaðar eftirstöðvar ef þú ert ekki fyllilega ánægður með árangurinn. Einkaumboð á Islandi Háberg hf Skeifunni 5a. OlíuSagidhf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.