Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1984, Blaðsíða 40
FRÉTTASKOTIÐ
687858
SÍMINN
SEM
ALDREI
SEFUR
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu -
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá í
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað í DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku.
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ1984.
Fangelsisdómur yfir fyrrverandi sveitarstjóra ómerktur:
FJÁRSVIKAMÁUNU
VISAÐ AFTUR HEIM
Hæstiréttur hefur ómerkt sex
mánaöa fangelsisdóm sem sýslu-
mannsembættiö í Ámessýslu felldi
yfir fyrrverandi sveitarstjóra á
Stokkseyri fyrir fjársvik. Hefur
Hæstiréttur visaö málinu heim í
héraö til nýrrar meðferðar.
SVERRIR
MEÐ SÓP
ÁL0FTI
— Hagvangur
gerir úttektá
Rafmagnseftirlitinu
„Nei, nei, ég er ekkert að leggja
Rafmagnseftirlitið niður. Fyrst verð
ég að bíða eftir niðurstöðum úttektar
sem Hagvangur er að vinna fyrir mig,
hún kemur ekki fyrr en í haust, og þá
skoða ég málið,” sagði Sverrir
Hermannsson iðnaðarráðherra en
hann er með sóp á lofti og vill vita um
afkomu allra þeirra fyrirtækja sem
heyra undir ráðuneyti hans.
„Þaö er mér ekkert kappsmál að
leggja niður fyrirtæki í eigu rikisins,
frekar að reyna að lagfæra agnúa sem
kunna að vera á rekstri þeirra, eða þá
bara að selja þau,” sagði ráðherrann.
„Eg er búinn að selja Siglósíld og er að
reyna að losa mig við Landssmiðjuna
og Iðnaðarbankann.”
-EIR.
I LUKKUDAGAR k
26. júní
5386
HLJÓMPLATA FRÁ
FÁLKANUM AÐ
/ERÐMÆTI KR.400,-
Vinningshafar hringi í síma 20068
LOKI
Flokkur mannsins, jamm,
þá vitum við víst hverjir
eru fiokkar dýranna.
Meirihluti Hæstaréttar telur að
sakamálið hafi ekki verið rannsakað
með þeim hætti sem nauðsyn beri til
svo aö unnt sé að leggja efnisdóm á
það. 1 dómi Hæstaréttar segir að
skýrsla um fjölda þeirra manna sem
rétt áttu á olíustyrk meðan ákærði
Þrír af helstu mönnum Pósts og
síma, Jón Skúlason, póst- og síma-
málastjóri, Rafn Júlíusson póst-
málafulltrúi og Bragi Kristjánsson
framkvæmdastjóri eru nú staddir á
19. alþjóöapóstþinginu í Hamborg.
Samkvæmt upplýsingum hjá
samgönguráðuneytinu stendur þing-
ið yflr í um 6 vikur. Þeir Jón, Rafn og
Bragi fóru til Hamborgar þann 17.
júní síðastliðinn.
Þeir verða mislengi á þinginu, Jón
um 2 til 3 vikur, en Rafn og Bragi
allan tímann, 6 vikur. Jón kemur
var sveitarstjóri sé hvorki nægilega
rækileg né geti hún talist unnin af
óviihöllum mönnum.
Sveitarstjórinn fyrrverandi hefur
staðfastlega neitað að hafa misfarið
með fé það sem hann er ákærður út
af. Hann er sakaður um að hafa
samt ekki til landsins strax að þingi
loknu því samkvæmt upplýsingum
hjá Pósti og síma er ekki von á
honum aftur fyrr en í lok júlí. Hann
verður því í fríi erlendis um tíma.
Á sama tíma og þessir þrír helstu
menn Pósts og síma eru erlendis
verður í Laugardalshöllinni stærsta
frímerkjasýning sem haldin hefur
verið hérlendis.
Hún hefst þriðjudaginn 3. júlí og
stendur fram til 8. júlí. Sýningin er
samnorræn. Á hana koma allar póst-
stjómir Noröuriandanna og sýnend-
svikið út olíustyrki úr ríkissjóði með
því að gefa upp fleiri nöfn styrkþega
enréttáttuástyrk.
-KMU.
— Sjánánarbls.5
ur eru um 150 talsins, þar af eru um
130 til 140erlendir.
öll bestu verðlaunasöfn á Norður-
löndum verða sýnd.
Þess má geta að Grænlendingar og
Færeyingar verða með sýningar-
bása sem og íslensku frímerkja-
deildimar.
Búist er við að á annað hundrað út-
lendingar komi til landsins vegna
sýningarinnar, sem er eins og fyrr
segir sú stærsta sem nokkum tímann
hefur verið haldin hér á landi.
-JSS
Þjófnaður og ínnbrot:
Faraldurí
Reykjavík
Innbrotafaraldur geisar nú I
Reykjavík. „Ég man vart annað
eins,” sagði Guðmundur Hermanns-
son aðstoðaryfirlögregluþjónn.
„Þetta kemur í gusum dag eftir dag
og ég hef vart undan að senda
skýrslubunkana til Rannsóknarlög-
regiunnar.”
Þótt takist að upplýsa hluta inn-
brotanna þá er fátt sem kemur í veg
fyrir að sömu mennirnir geti haldiö
áfram iðju sinnL „Þeir em teknir
upp á stöð, þar játa þeir og svo eru
þeir komnir út á götu aftur eins og
ekkert hafi ískoriat,” sagði Guð-
mundur.
—EIK
Aðalf undur Amarflugs
loks haldinn:
Óvísthverjir
kaupanýju
hlutabréfin
Halli á rekstri Amarflugs árið 1983
varð 54,4 milljónir króna, eftir af-
skriftir að fjárhæð 20,6 milljónir
króna. Eiginfjárstaöa fyrirtækisins
er neiðkvæð um 43,3 milljónir króna.
Reikningar félagsins vom
staðfestir og undirritaðir á stjómar-
fundi síðastliðinn föstudag. Á sama
fundi var samþykkt samhljóða að
leggja til að hlutafé í Amarflugi
verði sexfaldaö úr tæpum átta
milljónum króna í rúmar 48 milljónir
króna, til aðbæta f járhagsstöðuna.
Aðalfund átti samkvæmt lögum
Amarflugs að halda í maimánuði.
Aðalfundurinn verður ekki fyrr en
11. júlinæstkomandi.
Stjóm Flugleiða, stærsta hlut-
hafans í Amarflugi, hefur ekki
ákveðið hvort félagið notfæri sér for-
kaupsrétt á nýjum hlutum.
-KMU.
Albertdæmdur:
„Hef fjórar
vikur til
aðhugsa
málið”
,J)ómsorð vom þau að ég skyldi
greiða 6.500 króna sekt eða sæta átta
daga varðhaldi,” sagði Aibert Guð-
mundsson fjármálaráðherra í sam-
tali við DV í morgun. Sakadómur
birti í gær úrskurð i máii ákæra-
valdsins gegn fjármálaráöherra fyr-
ir ólöglega hundaeign í Reykjavík.
Albert var einnig gert að greiða
málskostnað.
Aðspuröur kvaöst Albert ekki vera
búinn að ákveða hvort hann mundi
greiða sektina eða sitja inni. „Eg hef
fjórar vikur til að gera upp hug
minn,” sagði fjármálaráðherra.
Hann hefur lögum samkvæmt
fjórtán daga til að áfrýja til Hæsta-
réttar, en sagði í morgun að hann
hygðist ekki gera það. „Málið liggur
ljóstfyrir,” sagði Albert.
EA
Stærsti tannbursti á íslandi eða minnsta stelpa á íslandi? Sennilega er tannburstinn í
stærra lagi, að minnsta kosti ku hún Marta Einarsdóttir ekki vera neitt sérlega lítil.
DV-mynd: GVA.
ÞRÍR AF TOPPNUM HJÁ
PÓSTIOG SÍMA ERU Á
SEX VIKNA RÁÐSTEFNU
— verða ekki viðstaddir stærstu f rímerkjasýningu
sem haldin hefur verið hérlendis